Morgunblaðið - 30.01.2009, Blaðsíða 24
24 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 2009
✝ Helga Jóhann-esdóttir fæddist í
Lækjarbæ, Miðfirði í V-
Hún. 5. júlí 1920. Hún
lést á Landspítalanum í
Fossvogi 23. janúar síð-
astliðinn. Foreldrar
Helgu voru Jóhannes
Jónsson, f. í Huppahlíð
í Miðfirði 1886, d. 1968,
og Soffía Jónsdóttir, f.
á Geirastöðum í Sveins-
staðahreppi í A-Hún.
1885, d. 1973. Systkini
Helgu eru Jóhanna, f.
1915, látin, Jón Þor-
bergur, f. 1916, látinn, Jósep, f. 1918,
látinn, Grétar, f. 1921, látinn, Ingvi
Pálmi, f. 1922, Ólafur, f. 1923, Mar-
grét, f. 1927, og Anna, f. 1928.
Eiginmaður Helgu er Svavar Jó-
hannsson, f. 1919. Þau gengu í hjóna-
1958, maki Áslaug Þórðardóttir.
Börn Linda Sif, Eva Kristín, Lovísa
og Bjarki. Barnabörn Helgu og
Svavars eru tólf .
Helga flutti suður með foreldrum
sínum tíu ára gömul. Hún gekk í
Austurbæjarbarnaskólann og vann
að honum loknum við ýmis störf.
Eftir að Helga giftist Svavari tók
hún að sér húsmóðurhlutverkið eins
og algengt var í þá daga. Þau
bjuggu fyrstu árin hjá foreldrum
Svavars á Fjólugötu 25 en fluttu svo
í eigið hús í Ferjuvogi 15. Framtíð-
aríbúðina á Bugðulæk 1 byggðu þau
sjálf og fluttu inn í hana árið 1957.
Hún var heimili þeirra næstu fimm-
tíu árin. Svavar vann alla sína
starfsævi eða í 52 ár hjá Bún-
aðarbanka Íslands þar sem hann
gegndi lengst af stöðu sparisjóðs-
stjóra og síðar skipulagsstjóra
bankans.
Útför Helgu fer fram frá Graf-
arvogskirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 13.
band 1941. Foreldrar
hans voru Jóhann
Franklín Krist-
jánsson frá Litlu-
Hámundarstöðum í
Árskógshreppi í
Eyjafirði, f. 1885, d.
1952, og Mathilde V.
Kristjánsson frá Osló,
f. 1892, d. 1962. Börn
Helgu og Svavars
eru: 1) Edda, f. 1941,
maki Birgir Hólm
Björgvinsson. Börn
Helga, Matthildur og
Haukur. 2) Jóhannes
Óttar, f. 1943, maki Unnur Guðjóns-
dóttir. Börn Sólveig, Svavar og Íris
Dögg. 3) Gunnar, f. 1951, í sambúð
með Önnu Þorsteinsdóttur. Börn
Gunnars og Ólafar B. Þorleifsdóttur
Valur Þór og Berglind. 4) Bragi, f.
Elsku besta amma mín, nú ertu
búin að kveðja. Það er erfitt að
hugsa sér tilveruna án þín, þú
varst og verður alltaf mín fyr-
irmynd, konan sem alltaf áttir nóg
af kærleik, ást og umhyggju. Því-
lík fegurð og friður í kringum þig
allt til loka. Því mun ég aldrei
gleyma. Ég fyllist lotningu í hvert
sinn sem ég hugsa til þín. Ef heim-
urinn væri fallegur eins og þú þá
þyrfti ekkert himnaríki. Ég fann
miða þar sem þú hafðir skrifað
niður þessi orð sem eiga svo vel
við nú:
Sem sjálfur Drottinn mildum lófum lyki
um lífsins perlu í gullnu augnabliki –
(Tómas Guðmundsson)
Þú varst fallega perlan í okkar
fjölskyldu.
Allt sem þú snertir í lífi þínu var
fallegt, öllum leið vel nálægt þér
og ekkert fannst þér skemmtilegra
en að fá lítil börn í fangið. Núna
horfi ég á myndir af þér þar sem
þú heldur á stelpunum mínum,
Eddu og Helgu, og horfir svo fal-
lega á þær eins og alltaf. Svona
man ég þig svo vel, barnavininn
mesta. Öllum börnum leið svo vel
hjá þér enda sýndir þú þeim virð-
ingu og gafst þeim óskipta athygli.
Þú vissir hvað skipti máli, ekki
peningar eða eignir heldur eig-
inmaðurinn og fjölskyldan. Þér
fannst þú aldrei gera nóg fyrir
aðra og sýndir alltaf svo mikið
þakklæti. Sýndir því sem aðrir
tóku sér fyrir hendur mikinn
áhuga og virðingu. Þú og afi vilduð
fá að sjá skólaeinkunnir, myndir
sem börnin teiknuðu fengu að
prýða heimili ykkar í fjölda ára.
Þangað voru líka allir velkomnir.
Þér líkaði vel við alla og öllum við
þig. Alltaf var til kaffi og með því.
Kleinurnar (a la Helga eins og afi
segir), pönnukökurnar, sandkakan,
rúllutertan og kryddsúkkulaðikak-
an, allt jafn gott. Ekki síst brauð-
súpan fína.
Þú varst mikill ljóðaunnandi,
kunnir ljóð utan að frá því þú
varst lítil stelpa, 23 erindi með
átta línum hvert, ljóðið um Helgu
Jarlsdóttur. Ég las upp ljóðið fyrir
þig á spítalanum og gat ekki betur
séð en að þú brostir þegar ég
bætti afa nafni inn í textann. Sam-
rýndari hjón en þið afi finnast
ekki. Milli ykkar ríkti djúp virðing
og ást og er það til eftirbreytni.
Elsku besta amma mín, ég mun
alltaf elska þig og varðveita minn-
ingu um yndislega konu. Ég er
þakklát fyrir hversu lengi ég átti
þig að en tilveran er tómleg án
þín, þú hefur alltaf verið svo stór
hluti af lífi mínu. Fallegar minn-
ingar munu ylja mér um ókomna
tíð. Það verður fallegur engill sem
tekur á móti okkur þegar við för-
um héðan en þangað til vakir þú
yfir okkur eins og þú hefur alltaf
gert. Góði Guð, viltu taka ömmu
mína í faðm þinn og gæta hennar
vel og gefa elsku afa og okkur öll-
um styrk á þessum erfiða tíma.
Vertu ekki grátinn við gröfina mína
góði, ég sef ekki þar.
Ég er í leikandi ljúfum vindum,
ég leiftra sem snjórinn á tindum.
Ég er haustsins regn sem fellur á fold
og fræið í hlýrri mold.
Í morgunsins kyrrð er vakna þú vilt,
ég er vængjatak fuglanna hljótt og
stillt.
Ég er árblik dags um óttubil
og alstirndur himinn að nóttu til.
Gráttu ekki við gröfina hér –
gáðu – ég dó ei – ég lifi í þér.
(Þýð. Ásgerður Ingimarsdóttir)
Bless elsku amma mín, ég mun
alltaf sakna þín óendanlega mikið.
Takk fyrir allt sem þú hefur gert
fyrir mig og mína fjöskyldu.
Hvíldu í friði.
Þín
Matthildur.
Nú hefur yndisleg amma og
tengdamóðir kvatt okkur feðga.
Við munum sakna hennar sárt.
Þótt lítil hafi verið, var Helga mik-
ilmenni. Góðmennska hennar var
einstök og örlæti hennar og vilji til
að bæta líðan fólks í kringum sig
var ávallt í forgangi. Alltaf setti
hún aðra í fyrsta sætið. Allar okk-
ar samverustundir með henni ein-
kenndust af hlýleika og gestrisni
sem átti sér enga hliðstæðu og
heimsóknirnar á Bugðulækinn í
gegnum tíðina munu aldrei gleym-
ast. Hún tók alltaf á móti okkur
með stóru brosi og girnilegum
veitingum sem leiddu til kaffivímu
föður og sykurvímu sonar, ofan á
ofneyslu af heimalöguðum skúffu-
kökum, pönnukökum og kleinum.
Aldrei höfum við kynnst annarri
eins konu og aldrei munum við
gera það aftur, því vandaðri og
elskulegri manneskju er útilokað
að finna. Stanslausar heimsóknir
vina og afkomenda á spítalann síð-
ustu daga ævi hennar voru aug-
ljóst merki þess. Allir vildu fá að
kveðja þessa merkilegu konu og
verja með henni síðustu stundun-
um. Við erum þakklátir fyrir að
hafa verið hluti af lífi hennar og
erum betri menn vegna þess að
hún var stór hluti af lífi okkar.
Brosmildi hennar og jákvæðni
verður okkur leiðarljós um alla
framtíð.
Haukur Örn Birgisson og
Birgir H. Björgvinsson.
Helga Jóhannesdóttir
Fleiri minningargreinar um Helgu
Jóhannesdóttur bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.
✝ Ágústa Jónsdóttirfæddist á Gunn-
laugsstöðum í
Stafholtstungum 8.
ágúst 1922. Hún lést á
Sjúkrahúsi Akraness
19. janúar síðastlið-
inn. Hún var þriðja
yngst af 16 börnum
hjónanna Jóns Þórólfs
Jónsonar og Jófríðar
Ásmundsdóttur.
Ágústa giftist
Kjartani Guðnasyni 5.
des. 1942, d. 28. ágúst
1943. Dóttir þeirra
Erla Katrín, f. 1943, d. 23. des. 2004.
Maður hennar var Aðalsteinn Vil-
bergsson, f. 1945, þau eiga 3 börn.
Ágústa giftist 13. apríl 1950 Sig-
urði Ásgrímssyni, f. 30. jan. 1911, d.
19. ágúst 1979. Börn þeirra eru:
Kjartan, f. 1946, kona hans er Guð-
rún Skarphéðinsdóttir, f. 1945, þau
eiga 5 börn. Steingrímur, f. 1947.
Kona hans er Þórdís Björg Alfreðs-
dóttir, f. 1951, þau eiga 2 börn.
Magnús, f. 1949. Kona
hans er Svanhildur
Skarphéðinsdóttir f.
1952, þau eiga 4 börn.
Hulda, f. 1951, sam-
býlismaður Þorsteinn
Pétursson, f. 1960.
Hún á 3 börn. Eygló
Anna, f. 1953, sam-
býlismaður er Karl
Þórðarson. Hún á 3
börn. Barna-
barnabörn Ágústu eru
40.
Ágústa og Sigurður
bjuggu í Selhaga í
Stafholtstungum frá 1951 til 1960.
Þá bjuggu þau á Jafnaskarði í sömu
sveit til ársins 1968. Síðan fluttu þau
á Akranes þar sem hún bjó til ævi-
loka. Þar vann Ágústa að mestu í
fiskvinnslu til 70 ára aldurs og lét
hún þá af störfum. Síðustu æviár sín
bjó Ágústa á Jaðarsbraut 11.
Útför Ágústu verður gerð frá
Akraneskirkju í dag og hefst athöfn-
in kl. 14.
Við burtför þína er sorgin sár
af söknuði hjörtun blæða.
En horft skal í gegnum tregatár
í tilbeiðslu á Drottin hæða.
og fela honum um ævi ár
undina dýpstu að græða..
Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð,
hjartans þakkir fyrir liðna tíð,
lifðu sæl á ljóssins friðar strönd,
leiði sjálfur Drottinn þig við hönd.
(Guðrún Jóhannsdóttir.)
Elsku mamma mín. Þetta eru
skrítnir dagar sem núna eru að líða.
Mikið tómarúm einkennir þessa
daga. Það er svo erfitt að geta ekki
hringt í þig á morgnana eða komið til
þín. Ég sagði þér oft þegar þú varst
að kvarta yfir að þurfa að taka lyfin
þín þegar við vorum að skammta í
lyfjaboxið þitt, sem við þurftum að
gera hálfsmánaðarlega, hvað við
værum heppin að eiga þig að þar sem
við erum öll komin á besta aldur.
Mér fannst ég vera svo rík að eiga
mömmu og geta gert fyrir þig,
mamma mín, hluti sem þú baðst mig
um. Elsku mamma, það var svo gam-
an að sjá hve sjálfbjarga þú varst, er
allt lék í lyndi, og vildir helst gera allt
sjálf. Stundum lá við að það þurfti að
neyða upp á þig hjálp. Því miður
breyttust hlutirnir í desember síð-
astliðinn er þú veiktist og fóru þau
veikindin illa í þig.
Þú sagðir mér einn daginn að þú
ætlaðir að fá þér heimilishjálp sem
ég mjög ánægð með það en því miður
kom ekki til þess því þá gerðist það
óhapp sem var þér um megn. Þrátt
fyrir alla þá hjálp sem þú fékkst frá
frábæru starfsfólki á Sjúkrahúsi
Akraness, hjálp sem orð fá ekki lýst,
hvað gerðu mikið fyrir fyrir þig og
ekki síður okkur fjölskylduna í þess-
um erfiðu veikindum. Veikindi sem
því miður sigruðu að lokum.
Elsku mamma, mikið var erfitt að
horfa á þig smátt og smátt verða
meira veikburða. Þú sem alltaf varst
mjög heilsuhraust og kveinkaðir þér
ekki undan neinu. Þrátt fyrir sorg-
ina, mamma, og hve erfitt er að þurfa
að sætta sig hlutina er gott að vita til
þess að er þú sofnaðir svefninum
langa hér hjá okkur þá veit ég að er
þú vaknar á hinum æðri stöðum þá
vaknarðu í faðmi pabba og Erlu syst-
ur.
Guð geymi þig, mamma mín, sofðu
rótt, og takk fyrir allt sem þú gafst
mér.
Þín elskandi dóttir,
Hulda.
Ágústa Jónsdóttir
Fleiri minningargreinar
um Ágústu Jónsdóttur bíða birtingar
og munu birtast í blaðinu næstu
daga.
✝ Bjarni B. Ásgeirs-son fæddist í
Reykjavík 31. ágúst
1937. Hann lést 24.
janúar síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Ásgeir Bjarnason frá
Húsavík, f. 10.6. 1910,
d. 13.4. 1978, og Rósa
Finnbogadóttir frá
Vestmannaeyjum, f.
27.9. 1914, d. 28.10.
1994. Systkini Bjarna
eru Sesselja Þórdís, f.
16.1. 1941, Finnbogi
Ásgeir, f. 27.2. 1945,
d. 8.12. 1997, og óskírður bróðir, f.
10.4. 1949, d. 10.4. 1949.
Bjarni kvæntist 9.9. 1959 Elínu
Guðmundsdóttur sjúkraliða, f. 19.3.
1939. Foreldrar hennar eru Guðrún
Helgadóttir frá Kollsvík, f. 10.10.
1919, og Guðmundur E. Guðmunds-
son frá Reykjavík, f. 16.3. 1916.
Hann fórst með togaranum Ólafi
2.11. 1938. Stjúpfaðir Helgi Guð-
f. 1989, b) Sigurður Stefán, f. 1990,
og c) Björn Ásgeir, f. 2003, dætur
Kristjáns eru a) Ólöf, f. 1980, unn-
usti Pétur Vilhjálmsson, þau eiga
eina dóttur, og b) Kristín Rut, f.
1983, sambýlismaður Fredrik Sjø.
4) Regína, f. 13.12. 1973, gift Henry
Alexander Henryssyni. Dætur
þeirra eru a) Elín Katla, f. 2003, b)
Emma Karen, f. 2008.
Bjarni ólst upp í Vesturbænum,
en hann og Elín bjuggu lengi á Sel-
tjarnarnesi þar sem börn þeirra ól-
ust upp. Hann lauk prófi frá Verzl-
unarskóla Íslands og stundaði
framhaldsnám í Bretlandi og
Þýskalandi. Hann starfaði lengst af
við verslunar- og fyrirtækja-
rekstur. Hann var til margra ára
einn af eigendum EJS og síðar aðal-
eigandi Tölvulistans. Hann gekk
ungur til liðs við Oddfellowregluna,
var einn af stofnendum Kiwanis-
hreyfingarinnar á Íslandi og
gegndi ýmsum trúnaðarstörfum í
þeirra þágu, m.a. sem Evrópufor-
seti Kiwanis árin 1976-1977.
Bjarni verður jarðsunginn frá
Neskirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 15.
mundsson frá Pat-
reksfirði, f. 1.7. 1912,
d. 13.8. 1985. Bjarni
og Elín eignuðust
fjögur börn: 1) Anna
Rósa, f. 3.2. 1960, gift
Kristni Héðinssyni.
Börn þeirra eru a)
Þórdís Elín, f. 1978,
gift Eyjólfi Vilhjálms-
syni, þau eiga 4 börn,
b) Héðinn, f. 1984, og
c) Ásgeir, f. 1987, unn-
usta Gróa Rán Birg-
isdóttir. 2) Ásgeir
Guðmundur, f. 16.3.
1961, kvæntur Sigríði Hafberg.
Börn hans eru a) Ásta Hrönn, f.
1983, hún á einn son, b) Bjarni Bent,
f. 1991, c) Christian Erik, f. 2001, og
d) Ísabella Rósa, f. 2003, börn Sig-
ríðar eru a) Sigurbjörg, f. 1982, gift
Andra Klausen, b) Axel, f. 1991 og c)
Nanna, f. 2001. 3) Guðrún Helga, f.
6.4. 1963, gift Kristjáni Björnssyni.
Synir þeirra eru a) Bjarni Benedikt,
Elsku pabbi minn, nú er komið að
kveðjunni hinstu, það er eitthvað
svo óraunverulegt að þú skulir nú
vera farinn frá okkur. Allan þann
tíma sem liðinn er síðan fyrst fór að
bera á veikindum þínum hef ég ver-
ið að búa mig undir þennan dag.
Daginn sem ég sat hjá þér og þú
kvaddir þennan heim. Þessa síðustu
daga sem ég sat hjá þér og talaði við
þig í huganum og rifjaði upp allar
stundirnar sem komu upp í hugann,
þá gerði ég mér ljóst hversu mikill
áhrifavaldur þú hefur verið á líf
mitt.
Þó að þú hafir verið af þeirri kyn-
slóð þar sem maðurinn var hús-
bóndinn á heimilinu, vann úti og
mamma heima að sinna okkur
systkinunum þá breyttist það allt
þegar tíminn leið og sýndi okkur
hversu sveigjanlegur þú varst í
rauninni. Þá má segja að þegar hún
Regína systir fæddist og mamma
ákvað svo að fara aftur í skóla að þá
hafir þú hætt að tilheyra þinni kyn-
slóð og komið meira inn í okkar kyn-
slóð. Þú byrjaðir að sinna okkur
meira, þú fórst að taka þátt í upp-
vaskinu og var nú reyndar orðið
þannig að þú sást alveg um upp-
vaskið, þú gast á þennan hátt nálg-
ast okkur og verið hluti af okkur. Þú
varðst líka þeirrar gæfu njótandi að
ferðast mikið, mennta þig í útlönd-
um og styðja mig þegar ég vildi
gera slíkt hið sama. Þú varst alveg
óendanlega þolinmóður og það er
svo margt sem bara ég og þú vitum
um hversu mikla þolinmæði þú
sýndir mér, bæði á uppvaxtarárun-
um og einnig á námsárum mínu og
svo þegar ég fór að fóta mig í at-
vinnulífinu. Ég gat alltaf komið til
þín og sótt styrk, þú varst ekki endi-
lega sammála því sem ég vildi gera
en þú settir mér ekki stólinn fyrir
dyrnar heldur reyndir að leiðbeina
mér.
Pabbi minn, síðustu árin höfum
við verið mjög nánir og þú hefur
stutt við bakið á mér í þeim verk-
efnum sem ég tók að mér, við höfum
farið í gegnum súrt og sætt og það
sem stendur upp úr nú þegar ég
kveð þig, er að ég er hamingjusam-
ur og horfist í augu við framtíðina á
tímum mikilla efnahagsvandræða en
veit að þú og afi Ásgeir eruð nú
saman og fylgist með mér og veitið
mér styrk. Pabbi minn, takk fyrir
allt sem þú gerðir fyrir mig, það er
ekkert sjálfsagt að maður standi á
þennan hátt við bakið á börnunum
sínum eins og þú hefur gert.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum.)
Ásgeir Guðmundur Bjarnason.
Bjarni B. Ásgeirsson
Fleiri minningargreinar
um Bjarna B. Ásgeirsson bíða birt-
ingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga.
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegn-
um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morg-
unblaðsins – þá birtist valkosturinn
Minningargreinar ásamt frekari
upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Minningargreinar