Morgunblaðið - 30.01.2009, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 30.01.2009, Blaðsíða 18
NÚ STYTTIST í að átakið Karlmenn og krabbamein hefjist, en Krabbameinsfélag Ís- lands er önnum kafið við undirbúninginn fyrir þetta tveggja vikna átak sem hefst í mars. Eins og í fyrra hefur hann Steinar hafið störf sem talsmaður átaksins, en hann hefur hafið söfnun á vinum á samskiptavefnum Facebook, og nú þegar eignast tæpa 1.400 vini. Steinar hvetur alla Facebook-meðlimi til að heimsækja síðuna og styðja gott málefni! Í ár snýst her- ferðin um lífsstíl, heilsu og mataræði, en hollur og góður matur ásamt hreyfingu hjálpar mjög við að draga úr líkum á krabbameini. Fleiri karlar en konur greinast með krabbamein, en hingað til hefur lítið verið um það rætt. Nauð- synlegt er að karlmenn þekki helstu einkenni krabbameins og geti þannig leitað sér lækn- ingar fyrr en ella. Mikilvægt er að þekkja ákveðin líkamleg einkenni og bregðast rétt við þeim verði þau viðvarandi. Ýmis einkenni svo sem hósti og þvagtregða benda ekki alltaf til alvarlegs sjúk- dóms en geta þó verið einkenni um krabba- mein. Því er nauðsynlegt að bregðast við einkenn- um því líkur á lækningu eru meiri því fyrr sem krabbamein greinist. Hefur þú orðið var við eitthvert þessara ein- kenna? Ef svo er leitaðu læknis sem fyrst. 1. Langvarandi óþægindi í munni og koki eða breyting á rödd (hæsi). 2. Þrálátur hósti. 3. Óþægindi frá maga eða ristli. 4. Blóð í þvagi. 5. Erfiðleikar við þvaglát. 6. Hnútur í eista/pung. 7. Einkennileg varta eða breyting á fæðing- arbletti á líkamanum. 8. Hnútar eða þykkildi á líkamanum. Steinar vinsæll á Facebook Átakið Karlar og krabbamein hefst í mars 18 Daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 2009 Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is Undanfarin tíu ár hef ég verið að geraþað sem kallað er „semi permanentmakeup“ eða „cosmetic tattoo“ en íþví felst meðal annars að gera var- anlegar augnlínur, augabrúnir og línur á varir. Mig hafði lengi langað til að bæta við mig Medical tattoo og ég lét verða af því í fyrrasum- ar. Ég fór á námskeið til Bretlands, hjá einu öfl- ugasta fyrirtæki á þessu sviði,“ segir Undína Sigmundsdóttir snyrtifræðingur sem býður nú fyrst allra hér á landi upp á svokallað Medical tattoo. „Slík meðferð hentar vel fyrir þá sem vilja bæta útlit í kjölfar slysa, skarðs í vör, öra á húð eftir aðgerðir t.d. eftir brjóstastækkun eða brjóstaminnkun, sem og önnur ör á húðinni. Eins hentar þetta til að gera vörtubaug eftir uppbyggingu brjósta og einnig við gerð auga- brúna hjá fólki sem er í lyfjameðferð.“ Undína segir að þegar hún vinni með ör á líkama fólks sé hún fyrst og fremst að búa til betri lit í örið og gera það samlitara húðinni í kring. „Í þessa meðferð þarf fólk að koma í fimm til tíu skipti svo vel megi vera. En örið hverfur auðvitað ekki, heldur verður það minna áberandi.“ Hárleysi og skortur á litarefni Undína segir að medical tattoo nýtist einnig vel fyrir fólk með sjúkdóma, eins og Alopecia og Vitiligo. „Þeir sem hafa Alopecia sjúkdóm, missa öll líkamshár og þá getur komið sér vel að láta til dæmis tattúvera á sig augabrúnir og augnlínu. Vitiligosjúkdómurinn lýsir sér aftur á móti meðal annars í því að líkaminn missir lita- frumur á litlum eða stórum svæðum og þá eru hvítar skellur á húðinni. Með Medical tattoo er hægt að tattúvera þessi svæði með lit sem er hvað líkastur húðlitnum á heilbrigðu svæð- unum.“ Ætti að vera í tryggingakerfinu Undína segir að Medical tattoo sé mikið not- að fyrir konur og karla sem greinst hafa með brjóstakrabbamein og hafa þurft að láta nema brott brjóst og hafa farið í uppbyggingu á nýju brjósti. „Tæknin í Medical tattoo gerir mögu- legt að búa til, lita og skyggja vörtubaug og geirvörtu og þannig er sköpuð sem eðlilegust ásýnd brjóstsins. Þetta er mjög mikil ná- kvæmnisvinna, vörtubaugurinn þarf að vera í samræmi við heilbrigða brjóstið, liturinn þarf að vera réttur og svo framvegis. Það er alveg frá- bært að sjá hvað þessi tækni getur gert útlit brjóstsins eðlilegt. Þessi meðferð skiptir af- skaplega miklu máli fyrir hvern einstakling sem hefur gengið þennan veg og er fyrir marga loka- punkturinn í langri og erfiðri meðferð,“ segir Undína. „Ég hef kynnt þetta lýtalæknum og þeir hafa sýnt þessu mikinn áhuga sem vonandi getur leitt til náins samstarfs í framtíðinni. Því miður er kerfið þannig í dag að tryggingakerfið borgar ekki fyrir Medical tattoo til að skapa ásýnd vörtubaugs og geirvörtu á brjóst kvenna sem fengið hafa brjóstakrabbamein, en vonandi verður það þannig í framtíðinni.“ Örlitameðferð nýtist víða Morgunblaðið/Golli Að störfum Undína mundar nálina þar sem hún vinnur að því að laga lit á öri á fæti. Vandasamt Örlitameðferð er mikil nákvæmn- isvinna og fólk þarf að koma í nokkur skipti. Hún hefur sérhæft sig í því sem kallað er Medical tattoo eða húðflúri sem unnið er með til að laga ör á húð fólks, einnig til að lita hvít svæði sem skortir litar- efni. Eins tattúverar hún vörtu- baug á ný brjóst hjá konum sem hafa þurft að láta byggja upp brjóst eftir aðgerð vegna krabba- meins. „Fólk þarf að koma oft og örið hverfur auðvitað ekki, heldur verður það minna áberandi.“ „OKKUR hefur vissulega vant- að hér á Íslandi manneskju með þessa kunnáttu, en við sem vinnum við að byggja upp brjóst á konur sem hafa þurft að fara í brottnám, viljum að húðflúrið sé gert í samráði við okkur,“ segir Þórdís Kjart- ansdóttir lýtalæknir. „Best af öllu væri ef þetta væri gert af hjúkrunarfræðingum á sjúkra- húsum, á lýtalækningadeildum þar sem konurnar hafa verið í meðferð vegna uppbyggingar brjósta, nú eða á læknastofum okkar.“ Þórdís segir að nokkrir þeirra hjúkrunarfræðinga sem hún starfi með hafi sýnt því áhuga að mennta sig á þessu sviði. „Undína hefur vissulega mikla reynslu af húðflúri, þá er ég fyrst og fremst að hugsa um litaval og blöndun. Rétt er að leita leiða til að nýta þekk- ingu hennar til að þróa sem best þessa þjónustu við konur.“ Ekki húðflúr til skrauts Þórdís vann í tíu ár úti í Frakklandi og segir að þar hafi sérhæfður hjúkrunarfræð- ingur á lýtalækningadeildinni séð um að búa til vörtubauga með húðflúri og þá í fullri sam- vinnu við læknana. „Það er líka miklu eðlilegra fyrir konurnar því þær eru ekki að fá sér húðflúr til skrauts heldur eru þær að ljúka uppbyggingu á brjósti og þær hafa gengið í gegnum erf- iða reynslu í tengslum við að hafa greinst með krabbamein og að hafa þurft að gangast undir brottnám brjósts. Ég sem lýtalæknir vil líka hafa um það að segja hvar vörtubaugurinn er staðsettur nákvæmlega og fleira sem skiptir máli í þessu samhengi.“ Hluti af læknismeðferð Þórdís segir að geirvörtuna sjálfa sé ekki hægt að búa til með húðflúri en vörtubauginn sé aftur á móti hægt að búa til á mismunandi hátt. „Stundum er hægt að taka ysta hluta vörtubaugsins af heilbrigða brjóstinu og nota hann til að búa til vörtubaug á nýja brjóstið. Oftast er tekin húð af innanverðu læri kon- unnar og ef sú húð er of ljós þá er hægt að laga hana til með húðflúri. Loks er svo hægt að búa til nýjan vörtubaug með húðflúri.“ Að því er kostnaðinn við húðflúr varðar, telur Þórdís eðlilegt að hann sé end- urgreiddur af sjúkratrygg- ingum enda sé um hluta af læknismeðferð að ræða undir stjórn lýtalæknis. Í samráði við lýtalækna Precision Plus M-tækið, sem notað er íörlitameðferð, má einnig nota með svokallaðri þurri nál og tækni sem nefnd er „MCA (Multitrepannic Collagen Ac- tuation). Tæknin felst í því að erta efsta húðlagið. Við það örvast starfsemi húð- arinnar, eykur litarefni hennar og colla- gen og kallar fram eðlilegan litarhátt á því svæði sem orðið hefur fyrir áverk- um. „MCA-tæknin er áhrifarík meðferð sem endist í langan tíma. Vel gróið ör má gera samlitt húðinni með örlitameðferðinni eða MCA- tækninni. Oft verður erting húðarinnar með MCA-tækninni til að mýkja örið.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.