Morgunblaðið - 30.01.2009, Page 11
Fréttir 11INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 2009
BJÖrn BOrG
rOBerT la rOCHe
CHanel
ralPH laUren
PerSOl
CUTler and GrOSS
TOm fOrd
J.lindeBerG
Prada
raY Ban
BUrBerrY
verSaCe
rOBerT la rOCHe
dOlCe&GaBBana
faCe
Prada
BUrBerrY
PerSOl
J.lindeBerG
rOBerTO Cavalli
Prada
Prada
TOm fOrd
BvlGari
TiGer Of SWeden
BJÖrn BOrG
TOm fOrd
dOnna Karan
CUTler and GrOSS
BJÖrn BOrG
CHanel
BellinGer
BrUUnS BaZaar
dOlCe&GaBBana
BvlGari
TOm fOrd
BellinGer
d&G
raY Ban
verSaCe
CHanel
dOnna Karan
Prada
rOBerTO Cavalli
PerSOl
BvlGari
J.lindeBerG
PeaK PerfOrmanCe
BvlGari
verSUS
raY Ban
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
FRAMKVÆMDASTJÓRI Atlants-
hafsbandalagsiNS (NATO) hefur á
síðustu árum einblínt á „heit“ svæði
á borð við Afganistan og Kákasus en
þarf nú að beina sjónum sínum að
kaldari slóðum. Ástæðan er sú að
norðrið mun ef til vill ekki verða jafn
„kalt“ í framtíðinni. Á norðurslóðum
eru loftslagsbreytingar ekki fjarlæg
hugmynd heldur raunveruleiki og sú
staðreynd felur í sér ákveðnar
áskoranir. Þetta sagði Jaap de Hoop
Scheffer, framkvæmdastjóri NATO,
í opnunarræðu sinni á málstofu um
öryggishorfur á norðurslóðum sem
íslensk stjórnvöld og NATO standa
að og hófst í gær.
Í ræðu sinni gerði Jaap de Hoop
Scheffer fjögur atriði að umtalsefni
sem að hans mati væri mikilvægt að
skoða. Í fyrsta lagi nefndi hann
aukna skipaumferð á norðurslóðum
sem koma myndi til þegar áður
óþekktar og ófærar siglingarleiðir
myndu opnast. Aukinni skipaumferð
fylgdi aukin hætta á umhverfis-
slysum sem þyrfti að bregðast við.
Sagðist hann þeirrar skoðunar að
NATO hefði hér mikilvægu hlut-
verki að gegna.
Ferlið þarf að vera gagnsætt
Í öðru lagi nefndi Scheffer nátt-
úruauðlindir þær sem fundist gætu á
norðurslóðum og áhugi væri á að
nýta. Í þriðja lagi gerði Scheffer
deilur þjóða um eignarhald á norð-
urslóðum, þrátt fyrir hafréttarsamn-
inginn, að umtalsefni.
Í fjórða og síðasta lagi gerði hann
varnir á norðurslóðum að umtals-
efni. „Hernaðarstarfsemi á norð-
urslóðum hefur hægt og bítandi auk-
ist. Það er skiljanlegt og fullkomlega
eðlilegt að bandalagsþjóðirnar
spyrji sig hvernig þær eigi jafnt sem
bandalag og sem einstök lönd að
bregðast við þessu,“ sagði Scheffer
og tók fram að þetta væri meðal
þeirra spurninga sem reynt yrði að
leita svara við á málstofunni. Lagði
hann áherslu á að sama hver nið-
urstaðan yrði væri mikilvægt að
ferlið væri gagnsætt, stuðlað væri að
trausti þjóða í millum og samvinnu.
Þetta ætti ekki síst við í samskipt-
unum við Rússland.
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@mbl.is
FYRRVERANDI stjórnendur og
stjórnarmenn Reykjavík Energy
Invest (REI) og forstjóri Geysis
Green Energy (GGE) eru meðal
þeirra sem eru á lista yfir vitni í
dómsmáli Hafnarfjarðar gegn
Orkuveitu Reykjavíkur (OR) sem
verður tekið fyrir í héraðsdómi
Reykjavíkur í dag.
Stjórnarmenn REI á listanum
Á meðal þeirra sem eru á listan-
um eru Bjarni Ármannsson, fyrr-
verandi stjórnarformaður REI,
Björn Ingi Hrafnsson, fyrrverandi
stjórnarmaður í REI, Vilhjálmur
Vilhjálmsson, fyrrverandi borgar-
stjóri, Haukur Leósson, fyrrver-
andi stjórnarformaður OR og
stjórnarmaður í REI, Guðmundur
Þóroddsson, fyrrverandi forstjóri
REI og OR, og Ásgeir Margeirs-
son, forstjóri GGE. Auk þeirra eru
fjölmargir borgarfulltrúar í
Reykjavík, Hafnarfirði og fulltrúar
annarra eigenda í Hitaveitu Suð-
urnesja (HS) á listanum. Þessir
einstaklingar eru boðaðir til að
gefa skýrslu fyrir dómi til að varpa
ljósi á ferli sem byrjaði með sölu á
hlut ríkisins í HS og endaði með
REI-málinu svokallaða sem litaði
borgarmálin í Reykjavík um
margra mánaða skeið. Ef listinn
verður samþykktur er því líklegt
að fram komi upplýsingar við aðal-
meðferð málsins sem aldrei hafa
komið fram opinberlega áður.
Samningsviðræður um lokaútgáfu
af listanum standa þó enn yfir.
Dómsmálið sem nú er til með-
ferðar snýst um að Hafnarfjörður
vill knýja OR til að virða samkomu-
lag um að kaupa hlut bæjarins, 15,4
prósent, í HS á genginu 7,0. Við
síðasta verðmat var virði hlutarins
verðmetið 4,7 og er líklega lægra í
núverandi árferði. OR telur sig
ekki þurfa að efna samkomulagið
vegna þess að Samkeppniseftirlitið
hefur meinað henni að eiga meira
en 16 prósent í uppskiptri HS, en
fyrirtækið á þegar 15,4 prósent.
Eignarhlutur OR, ásamt kaup-
rétti á Hafnarfjarðarhlutnum, átti
að renna inn í hið sameinaða REI á
sínum tíma. Fjárfestingarfélögin
FL Group, síðar Stoðir, og Atorka
áttu samtals að eiga 47 prósent í
REI og OR 35,5 prósent. REI átti
á móti að eiga um 64 prósenta hlut
í HS. OR er að mestu í eigu
Reykjavíkurborgar. REI-samrun-
inn gekk síðar til baka líkt og frægt
er orðið.
REI-menn bera vitni
Dómsmál Hafnarfjarðar gegn Orkuveitunni tekið fyrir í dag Allir helstu ger-
endur í sameiningu REI og Geysis Green Energy líklega boðaðir til skýrslutöku
Bjarni
Ármannsson
Vilhjálmur
Vilhjálmsson
Haukur
Leósson
Björn Ingi
Hrafnsson
GEIR H. Haarde, fráfarandi forsætisráðherra, gerði óróann í efnahags-
kerfi heimsins að umtalsefni í opnunarræðu sinni. Sagði hann að óréttmæt
beiting Breta á hryðjuverkalögum gegn Íslandi hefði beint athygli manna
að samspili og tengslum efnahagslegs öryggis og þjóðaröryggis. Ítrekaði
hann mikilvægi þess að bandalagsþjóðirnar sýndu samstöðu á þessum tím-
um ölduróts í efnahagsmálum og þakkaði bandalagsþjóðum stuðning
þeirra við Ísland á erfiðum tímum. Geir notaði einnig tækifærið til þess að
þakka fyrir það samstarf sem hann hefur átt á vettvangi NATO.
Á blaðamannafundi að opnunarávörpum loknum voru Jaap de Hoop
Scheffer og Geir spurðir út í loftvarnir yfir Íslandi. Sögðust þeir báðir sátt-
ir með núverandi skipulag á þeim en ítrekuðu að ákvörðun þessa efnis væri
í höndum íslenskra stjórnvalda. Geir upplýsti að von væri á loftrýmisgæslu
Dana í mars, Spánverja í maí og Bandaríkjamanna með haustinu.
Þakkaði samstarf og stuðning
LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæð-
inu hefur lagt hald á 530 kannabis-
plöntur í janúar. Plönturnar, sem
flestar voru á lokastigi ræktunar,
fundust við húsleitir á ýmsum stöð-
um í umdæminu en um er að ræða
nokkur aðskilin mál. Það nýjasta
kom upp á Álftanesi í gær.
Samhliða hefur verið lagt hald á
ýmsan búnað tengdan starfseminni,
s.s. gróðurhúsalampa. Þess má geta
að árið 2008 lagði lögreglan alls
hald á um 700 kannabisplöntur.
530 kannabis-
plöntur teknar
Morgunblaðið/Kristinn
Í sviðsljósinu Geir H. Haarde, fráfarandi forsætisráðherra, og Jaap de Hoop Scheffer, framkvæmdastjóri NATO.
Horft til norðurs
Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins telur mikilvægt
að skoða aðkomu bandalagsins að vörnum á norðurslóðum
TVEIR farþegar og ökumenn voru
fluttir með sjúkrabíl á Heilbrigð-
isstofnun Suðurnesja eftir harðan
árekstur fólksbíla á Njarðarbraut í
Reykjanesbæ á móts við ÓB-
bensínstöðina um fimmleytið í gær.
Annar ökumaðurinn missti stjórn á
bifreið sinni vegna hálku. Bifreið-
irnar voru báðar óökuhæfar og
fjarlægðar af vettvangi með krana-
bifreið. Lögreglan telur að meiðsl
hafi ekki verið alvarleg.
Fjórir á
sjúkrahús