Morgunblaðið - 30.01.2009, Page 15
Fréttir 15INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 2009
Áskrifendur
Morgunblaðsins
fá miðann á 700 kr
frumsýningarhelgina
gegn framvísun
þessa miða.
5ÓSKARSVERÐLAUNA
©TILNEFNINGAR
BESTI LEIKARI Í AUKAHLUTVERKI
Philip Seymour Hoffman
BESTA LEIKKONA Í AUKAHLUTVERKI
Amy Adams
BESTA LEIKKONA Í AUKAHLUTVERKI
Viola Davis
BESTA HANDRIT
BESTA LEIKKONA Meryl Streep
„EXPECT FIREWORKS! THE
ACTORS COULD NOT BE BETTER“
„MERYL STREEP GIVES THE
PERFORMANCE OF THE YEAR.
A MAGNIFICENT FILM“
MIÐINN Á AÐEI
NS
700 KR.
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„ÞAÐ sem við kvörtuðum yfir var að við vor-
um búin að reyna í marga mánuði að fá fráfar-
andi ríkisstjórn til að taka ákvarðanir, sér-
staklega í þeim málum sem við erum að tala
um, og það var ekki gert. Okkar þolinmæði
einfaldlega brast,“ segir Gylfi Arnbjörnsson,
forseti Alþýðusambands Íslands, spurður
hvernig hann meti árangur fráfarandi stjórnar
í glímunni við aukið atvinnuleysi og greiðslu-
vanda heimilanna í landinu.
Gylfi segir ASÍ tilbúið til
að aðstoða næstu ríkis-
stjórn við að bregðast við
þessum alvarlega vanda.
„Við teljum að það séu
möguleikar til þess ef vilji
er til þess á Alþingi að setja
kraft í málin, þrátt fyrir
þær aðstæður að það séu að
fara í gang kosningar. Við
munum þá vera tilbúin að
setjast niður til viðræðna og
leggja þá þunga áherslu á að það verði traustir
menn sem geri það, vegna
þess að málið er einfaldlega
of brýnt til þess að hægt sé
að bíða eftir niðurstöðum
kosninganna.“
Vilhjálmur Egilsson,
framkvæmdastjóri Sam-
taka atvinnulífsins (SA),
segir að þótt „ótímabært sé
að kveða upp dóma fyrir-
fram“ um áherslur komandi
stjórnar í efnahagsmálum
fagni hann þeim áformum að endurskoða
samningana við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn
(IMF), enda hafi fráfarandi stjórn þar ekki
haldið vel á málum.
Vextir verði lækkaðir
Samtök atvinnulífsins leggi nú einkum
áherslu á að vextir verði lækkaðir, að gjald-
eyrishöftin verði afnumin, að bankarnir verði
endurreistir, svo þeir geti þjónað íslenskum
viðskiptavinum, með því að „bakka úr núver-
andi ríkisbankafyrirkomulagi“, auk aðgerða til
að sporna gegn auknu atvinnuleysi. Hann vilji
sjá að erlendir aðilar eignist bankana.
Þolinmæði Alþýðusambandsins brast
Gylfi
Arnbjörnsson
Forseti ASÍ segir sambandið hafa beðið mánuðum saman eftir aðgerðum af hálfu fráfarandi stjórnar
Framkvæmdastjóri SA kveðst fagna því ef ný ríkisstjórn hyggst endurskoða samningana við IMF
Vilhjálmur
Egilsson
„MAÐUR vonar
að það verði tek-
ið á þessum erf-
iðustu málum.
Þau hljóta að
vera stjórn
Seðlabankans og
efnahagsmálin og
að málefni al-
mennings fái for-
gang. Ég reikna
með að það verði
lögð áhersla á velferðarmál og mið-
að við stefnuskrár flokkanna ætti
það að vera,“ sagði Silja Bára Óm-
arsdóttir, stjórnmálafræðingur við
Háskóla Íslands þegar hún var
spurð álits á stjórnarmynd-
unarviðræðum. Hún er stödd er-
lendis en hefur fylgst með fréttum
af viðræðunum.
Silja Bára sagði að sér þætti
raunar svolítið skondið að rík-
isstjórn sem væri ætlað að sitja í
um 90 daga skyldi taka sér fimm
daga til að semja um samstarfið.
Eðlileg kynjaskipting
Silju Báru þótti eðlilegt að lögð
væri áhersla á jafna kynjaskiptingu
í ríkisstjórn Samfylkingar og
Vinstri grænna í ljósi áherslna og
bakgrunns þessara flokka. Í þess-
um tveimur flokkum væri einnig
stór hluti þeirra kvenna sem sitja á
Alþingi. Því ætti ekki að vera erfitt
að finna hæfar konur til ráðherra-
starfa. gudni@mbl.is
Áhersla
á velferð-
armálin
Ætti ekki að vera
erfitt að finna konur
Silja Bára
Ómarsdóttir
„ÉG lýsti ekki
stuðningi við
áætlunina en
sagði að almennt
væri það skoðun
mín að ef það
væri markaður
fyrir hvalkjötið
þá ætti að nýta
þá auðlind,“
sagði Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson, formaður Framsókn-
arflokksins, um afstöðu sína til
þeirrar ákvörðunar Einars K.
Guðfinnssonar, fráfarandi sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra,
að heimila veiðar á allt að 150
langreyðum og 100 hrefnum á ári
næstu 5 árin.
„Ég verð hins vegar að játa að í
öllu þessu stappi sem maður hefur
staðið í og þessum hugsanlegu
stjórnarmyndunarviðræðum þá
hef ég ekki náð að kynna mér al-
mennilega þessa áætlun hans eða
hvernig hún er metin útfrá selj-
anleika hvalkjötsins og ráðgjöf í
fiskveiðistjórnun,“ segir Sigmund-
ur. baldura@mbl.is
Vill veiðar ef
kjötið selst