Morgunblaðið - 30.01.2009, Síða 32
32 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 2009
Fólk
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÞETTA er sprottið af einhverjum misskilningi,“
segir Elísabet Linda Þórðardóttir, fram-
kvæmdastjóri Söngvakeppni Sjónvarpsins,
þegar hún er spurð út í þann orðróm að
símakosningin á laugardögum sé ekki sýnd í
beinni útsendingu, og sé þar með svindl.
Á þetta minnist m.a. Jens Guð á bloggsíðu
sinni, og vísar þar í annað blogg þar sem því er
haldið fram að barn sem sást í símakosning-
unni síðasta laugardag hafi í raun verið er-
lendis þegar þátturinn var sendur út.
„Einhverra hluta vegna var einhver kona
úti í bæ sem hélt að annað barnið sem af-
henti umslagið með úrslitunum síðast væri í út-
löndum. En það var bara misskilningur og að
sjálfsögðu er þetta í beinni útsendingu, það segir
sig bara sjálft. Höfundarnir væru örugglega ekki
til í að taka þátt í þessu ef þetta væri eitthvert
stórt plat,“ segir Elísabet og bætir því við að þótt
ekkert „beint“-merki sjáist undir merki Sjón-
varpsins í útsendingu þurfi það alls ekki að þýða
að þátturinn sé ekki í beinni. Hún vísar því öllum
ásökunum um svindl á bug.
„Það er líka einfaldasta mál í heimi að sann-
reyna það, við erum náttúrulega með 150
manns í myndverinu hjá okkur á laugardags-
kvöldum og það fólk getur allt staðfest þetta.“
Símakosningin er víst sýnd í beinni útsendingu
Sjónvarpsstöðin Skjár einn virð-
ist vera í nokkurri sókn þessa dag-
ana þrátt fyrir að hart sé í ári.
Þannig hafa nýir íslenskir þættir
þegar verið boðaðir, til dæmis Nýtt
útlit og Fyndnar fjölskyldumyndir,
auk þess sem þau Sölvi Tryggva-
son og Gunnhildur Arna Gunn-
arsdóttir hafa þegar hafið störf við
nýjan umræðuþátt, Málefnið.
Skjár einn ætlar ekki að láta þar
við sitja heldur nýta krafta Sölva
enn frekar, en eins og margir ef-
laust muna var hann rekinn frá
Stöð 2 um áramótin. Þannig mun
Sölvi stýra nýjum spjallþætti sem
hefur hlotið hið einfalda vinnuheiti
Spjallið, en fyrsti þáttur fer vænt-
anlega í loftið laugardagskvöldið
21. febrúar kl. 20. Þar verður á
ferðinni sambland af skemmti- og
þjóðmálaþætti og herma fregnir að
þátturinn verði því eins konar
blanda af Loga í beinni og Larry
King Live. Ekki slæmt það!
Sambland af Loga í
beinni og Larry King
Eins og sagt var frá á þessum
stað í síðustu viku stökk Erpur Ey-
vindarson (Blazroca) heim til sín í
miðjum þriðjudags-mótmælunum
til að taka upp eitt stykki bylt-
ingaróð sem mótmælin blésu hon-
um í brjóst. Fjölmargir urðu þess
heiðurs aðnjótandi að fá smávegis
forsmekk að því frá höfundinum
sjálfum þar sem hann stóð upp við
styttuna af Jóni Sigurðssyni en þá
var það strax ljóst að lagið yrði
engin vögguvísa. Óðurinn var send-
ur fjölmiðlum í gær ásamt texta
lagsins og óhætt er að segja að Erp-
ur reiði hátt til höggs í laginu og fá
útrásarvíkingarnir heldur betur að
finna fyrir hárbeittri þjóðfélags-
gagnrýninni sem í laginu er að
finna. Hins vegar má velta því fyrir
sér hvort hraði „byltingarinnar“
hafi gert blóðheitum listamönnum
dálitla skráveifu því nú sýnist
manni að Erpur og Bubbi verði að
beina reiðinni í farveg fagnaðar og
farsældar. Eða hvað?
Byltingaróður
að byltingu lokinni
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
SIGURÐUR Guðjónsson myndlist-
armaður var mikilvirkur í upp-
haflegu dauðarokkssenunni hér-
lendis um og upp úr 1990 sem
meðlimur í hljómsveitinni Cranium.
Dauðarokkið hefur verið honum
innblástur í myndlistarverkum en
með nýjasta verki sínu, Svo auðs
verði gætt, setur hann það í algeran
forgrunn.
„Það má segja að ég sé að rann-
saka þessa tónlist í opnu ferli með
þessari sýningu,“ útskýrir Sigurður.
„Með áherslu á alla þá hliðarvinkla
sem henni fylgja. Og þá er ég ekki
bara að tala um ímyndirnar sem
henni fylgja, heldur reyni ég að fara
alla leið að kvikunni. Hvað eru þess-
ir tónlistarmenn t.d. að hugsa þegar
þeir semja lög, út frá hvaða kerfi
eru þeir að vinna?“ Sigurður segist
t.a.m. hafa byggt myndbandsverk
sín upp á sama hátt og lagasmíðar
sínar fyrir Cranium.
Margir leggja hönd á plóg svo
hægt sé að þokast nær þessum
kjarna en Gísli Sigmundsson, fyrr-
verandi leiðtogi Sororicide, mun
DJ-a, Ingólfur Ólafsson, söngvari
Severed Crotch, verður með gjörn-
ing og ýmsir aðilar sem tengjast
öfgarokki gömlu sem nýju koma að
sýningunni.
Verkið er þannig einslags tilraun
og gestir ganga í raun inn í miðja
framleiðslu þess og gerast hluti af
því. Allt verður filmað og hljóðritað
og svo verður unnið með það áfram
en sýningin á morgun er fyrsti hluti
af þremur. Aðrir hlutar munu eiga
sér stað í Vogum á Vatnsleysu-
strönd og Bergen í Noregi og verk-
efnið verður svo sýnt í heild sinni í
Reykjavík í lok árs 2010. „Ég lýk
þessu með stórsýningu þar sem
m.a. ný plata með Cranium verður
kynnt til sögunnar en bandið er að
koma saman aftur og þá verður
heimildarmynd um íslenskt dauða-
rokk frumsýnd.“
Sigurður segir þá miklu grósku
sem er í íslensku dauðarokkssen-
unni í dag hafa verið mikinn hvata
að þessu. Aðspurður hvort gestir
eigi von á mikilli grótesku segir Sig-
urður að það sé ómögulegt að segja.
„Ég árétta að það er mikil fegurð
bundin í þessa annars skuggalegu
list og eru dauði, draumar og heil-
agleiki ákveðin minni sem ég er
m.a. að slægjast eftir.“
Flutningur verksins hefst kl. 20 á
morgun, laugardag, í Nýló. Safnið
er á Laugavegi 26 (Grettisgötu-
megin).
Dauðadraumar
Sigurður Guðjónsson tekst á við dauðarokkið í Nýló á laugardagskvöldið
Tilraun til að komast að kjarna þess, segir listamaðurinn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hvað er dauðarokk? Sigurður Guðjónsson leggst í djúprannsókn á þessu öfgakennda tónlistarformi á morgun.
Lýstu sjálfum þér (að Íslendingasagna sið).
Stirfinn maður og fátalaður, enginn veifiskati
við alþýðu; gerðist ölkær og varð málóði öls
við pel.
Eru þessar Íslendingasögur ekki bara hund-
leiðinlegt torf?
Hræðilegt, hræðilegt, þetta er eins og herða-
kistill á þjóðinni.
Hvernig líst þér á væntanlega vinstri stjórn?
Ég vil bara fá Hannibal, eða Lúðvík Jós-
efsson.
Hver er hinn íslenski Obama (framtíð-
arleiðtoginn) (spyr síðasti aðalsmaður, Anna
Svava Knútsdóttir leikkona)?
Ýmsir koma til greina. Þó ekki Ástþór.
Bítlarnir eða Stones – eða kannski Small Fa-
ces?
Það er sami rassinn undir þeim öllum!
Wham! eða Duran Duran?
Báða. Beint á haugana.
Hvaða persónu úr Sturlungu áttu mesta sam-
leið með?
Ég hefði gjarnan fylgt Aroni Hjörleifssyni til
Rómar og Érúsalem.
Hver er þinn helsti kostur sem knatt-
spyrnumaður?
Ef boltinn rúllar eftir línu andstæðinganna, þá
er ég þar.
Tekurðu afrit af skjölunum sem þú skrifar?
Já, yfirleitt nokkur þúsund.
Hvað uppgötvaðir þú síðast um sjálfan þig?
Að ég er trúlega vonlaus „Aðalsmaður“.
Eigum við (Íslendingar) von?
Það vona ég.
Hver er stórkostlegasta kvikmynd allra tíma?
Another Fine Mess með Stanley Arthur Jef-
ferson og Oliver Norwell Hardy.
En hljómplata?
Oft má saltkjöt liggja.
En bók?
Það er ekki búið að skrifa hana.
Hvers viltu spyrja næsta viðmæl-
anda?
Af hverju ertu að láta etja þér
á þetta forað?
EINAR KÁRASON
AÐALSMAÐUR VIKUNNAR ER EINN AF MIKILHÆFUSTU RITHÖFUNDUM ÞJÓÐARINNAR, SJÁLFUR EINAR KÁRASON,
EN Í VIKUNNI VORU HONUM VEITT ÍSLENSKU BÓKMENNTAVERÐLAUNIN FYRIR BÓK SÍNA OFSA.
Sigurður stofnaði hljómsveitina
Cranium árið 1990 ásamt Ófeigi
Sigurðssyni (rithöfundi). Síðar
áttu Egill Tómasson (tónleikahald-
ari), Bjarni Grímsson, (ljósmyndari
og kvikmyndagerðarmaður), og
Árni Sveinsson, (kvikmyndagerð-
armaður og plötusnúður), eftir að
slást í hópinn. Þannig skipuð tók
sveitin upp kassettuna Abduction
(1993) sem inniheldur séríslenskt
dauðarokk; kalt og grimmúðlegt.
„Eitt af því sem ég er að rannsaka
með sýningunni er einmitt íslenskt
dauðarokk,“ segir Sigurður.
Cranium
Veturinn grimmi Cranium, 1993.
Ekkert svindl Þær Ragnhildur Steinunn
og Eva María eru alltaf í beinni útsendingu.