Morgunblaðið - 07.02.2009, Síða 1
L A U G A R D A G U R 7. F E B R Ú A R 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
36. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
Allt lífið
á einum stað
„Sem stendur eru meiri tekjur af
útflutningi hrossa en hvala,“ segir
Kristján B. Jónasson. Hann telur
þjóðarhagsmunum og hagsmunum
Hvals hf. einnig blandað saman.
Lesbók
Réttmæti hval-
veiða í umræðunni
„Ég sjálfur er ekki kúl og töff en ég
fer kannski langt á því að hafa kúl og
töff umgjörð. Ég gæti jafnvel komist
fram fyrir röðina á Boston núna,“
segir Pétur Jóhann Sigfússon.
Veganesti fyrir
mædda þjóð
Elías B. Halldórsson hélt því fram
að „væri allri list kippt út úr sam-
félaginu yrði engin manneskja eftir
í heiminum eftir 50 ár. Það [yrðu]
allir búnir að drepa hver annan“.
Kostir kerfis-
heimskunnar
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
08
-0
08
0
NÝJAR OG HANDHÆGARI UMBÚÐIRostur.is
Eftir Björgvin Guðmundsson
bjorgvin@mbl.is
VIÐ stofnun Nýja Kaupþings voru 935 millj-
arðar króna færðir á afskriftareikning. Fyrir
voru 19 milljarðar á afskriftareikningi. Sam-
tals er því gert ráð fyrir að 954 milljarðar af
lánum sem veitt voru í gamla Kaupþingi fáist
ekki endurgreiddir.
Ólafur Garðarsson, hæstaréttarlögmaður og
aðstoðarmaður Kaupþings í greiðslustöðvun,
segir þetta vera bráðabirgðamat unnið af fjár-
málaráðgjafarfyrirtækinu Oliver Wyman.
Fulltrúar Wyman vinna við að meta eignir og
skuldir nýju viðskiptabankanna.
Í glærukynningu sem kynnt var kröfuhöfum
á fundi á Nordica í fyrradag kemur fram að
eigið fé Kaupþings er neikvætt um 807 millj-
arða. Fyrir rúmu hálfu ári var eigið fé jákvætt
um 424 milljarða króna. Þetta eru umskipti
upp á 1.230 milljarða króna sem hægt er að
túlka sem tap bankans á hálfu ári.
Útlánatap skýrir neikvætt eigið fé
Ólafur segir að væntanlegt tap á útlánum til
viðskiptavina, sem sé bráðabirgðaniðurfærsla
þangað til endanlegt mat liggi fyrir, skýri stór-
an hluta af þessum umskiptum á eiginfjárstöðu
bankans. Einnig hafi verið tap á rekstri Kaup-
þings á þessu tímabili.
Afskrifa tæpa þúsund milljarða
Tap á efnahagsreikningi gamla Kaupþings vegna bankahrunsins nemur um 1.200 milljörðum króna
Gríðarlegt útlánatap fyrirsjáanlegt og 954 milljarðar króna færðir á afskriftareikning til bráðabirgða
Kaupþing tók áhættu | 20
Spurður hvers konar lán þetta séu segir
Ólafur að um sé að ræða lán til einstaklinga og
fyrirtækja. Bæði sé um innlenda og erlenda að-
ila að ræða.
„Þegar framkvæmt er bráðabirgðamat milli
Nýja og gamla Kaupþings er fundið út mark-
aðsvirði þessara eigna,“ segir Finnur Svein-
björnsson, bankastjóri Nýja Kaupþings. Eign-
irnar, eins og lán til viðskiptavina, eru svo
færðar á markaðsvirði til nýja bankans. Þarna
sé um að ræða lán til stórra og millistórra fé-
laga og einstaklinga. Smærri lánin séu þó
tryggari en þau stóru.
Í HNOTSKURN
»Gert er ráð fyrir að 954 milljarðarkróna af lánum sem gamla Kaup-
þing veitti fáist ekki endurgreiddir.
»Tap á efnahagsreikningi gamlaKaupþings frá því um mitt ár 2008
nemur um 1.230 milljörðum króna.
»Væntanlegt tap vegna útlána og einstaprekstur á árinu skýrir þetta tap
og lækkun á eigin fé bankans.
BJART var yfir afmælisgestum á Grand Hóteli í
gærkvöldi. Þar fögnuðu menn og konur tíu ára
afmæli Vinstrihreyfingarinnar – græns fram-
boðs. Sérstakur heiðursgestur var Kristin Hal-
vorsen, fjármálaráðherra Noregs, sem ávarpaði
samkomuna. Meðal gesta voru Þuríður Back-
man, Katrín Jakobsdóttir, nýr mennta-
málaráðherra, Kolbrún Halldórsdóttir, nýr um-
hverfisráðherra, og Þorleifur Gunnlaugsson.
Morgunblaðið/Kristinn
Glatt á hjalla í afmælisboðinu
Vinstrihreyfingin – grænt framboð fagnar 10 ára afmæli sínu yfir helgina
SÁ SEM áður
eyddi ríflega 25
þúsund krónum í
mat eyðir nú 33
þúsundum.
Íbúðalánið hans
sem var 10 millj-
ónir í fyrra er
komið í ríflega
11,5 í ár. Launa-
lækkanir og verð-
hækkanir hafa áhrif á fjölskyldur á
þessum þrengingartímum. Raf-
magn, hiti, tryggingar og læknis-
þjónusta hækkar í verði. Kjarnafjöl-
skylda, sem áður hafði 550 þúsund
krónur í laun fyrir skatta átti í fyrra
rúmlega 79 þúsund krónur í afgang
þegar skuldbindingarnar höfðu verið
greiddar. Hana vantar nú tæplega
14 þúsund krónur upp á til að ná end-
um saman, eftir að sá launalægri tók
á sig 20 prósenta launalækkun.
Dæmið er byggt á tölum Hagstof-
unnar.
„Ég hugsa að þetta dæmi sé ekki
óraunhæft,“ segir Henný Hinz, hag-
fræðingur hjá hagdeild ASÍ. Margir
sjái fram á breytingar og betra sé að
taka á vandanum strax.
Verðið
hækkar og
tekjur lækka
Fjárhagur heimila
undir smásjána
Henný Hinz
DAGLEGTLÍF