Morgunblaðið - 07.02.2009, Side 8
8
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 2009
FRÉTTASKÝRING
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson
sisi@mbl.is
GREIÐSLUR úr Atvinnuleysis-
tryggingasjóði hafa vaxið hröðum
skrefum undanfarna tvo mánuði í
takt við stóraukið atvinnuleysi. Svo
kann að fara, að Atvinnuleysis-
tryggingasjóður verði orðinn tómur
í árslok. Sjóðurinn greiðir 1.600-
1.700 milljónir út í janúar en greiddi
að meðaltali 260 milljónir á mánuði í
fyrrasumar.
Að sögn Sigurðar P. Sigmunds-
sonar, forstöðumanns rekstrarsviðs
Vinnumálastofnunar, er unnið að
því að gera upp stöðu sjóðsins fyrir
árið 2008. Sigurður áætlar að um
áramótin hafi um 15 milljarðar ver-
ið til í sjóðnum. Atvinnuleysi hefur
verið lítið um margra ára skeið og
því hefur talsverð upphæð safnast
þar fyrir.
Ráðuneytið spáir 7,8%
atvinnuleysi á þessu ári
Sigurður reiknar með að tekjur
sjóðsins af atvinnutryggingagjaldi
verði um 5 milljarðar króna á þessu
ári, auk eins milljarðs króna í vaxta-
tekjur. Að viðbættum 15 milljörð-
unum hefur sjóðurinn því úr að
spila 21 milljarði á árinu.
Hann segir að sé miðað við að at-
vinnuleysi verði 7% á þessu ári
muni sjóðurinn geta staðið undir
greiðslum atvinnuleysisbóta. Í ný-
endurskoðaðri þjóðhagsspá fjár-
málaráðuneytisins er gert ráð fyrir
7,8% meðalatvinnuleysi árið 2009 en
Vinnumálastofnun áætli að það geti
orðið meira.
Talið er að hvert prósentustig at-
vinnuleysis kosti 3,1 milljarð á árinu
2009. Ef atvinnuleysi verður 7,8% á
árinu, eins og ráðuneytið spáir,
gætu greiðslur á hverjum mánuði
numið tveimur milljörðum að með-
altali á mánuði og 24 milljörðum á
heilu ári.
Því sé ljóst, að Atvinnuleys-
istryggingasjóður gæti tæmst fyrir
lok ársins, kannski í nóvember eða
desember.
En hvað er þá til ráða? Sigurður
segir að til greina komi að hækka
atvinnutryggingargjaldið, sem nú
nemur 0,65% af tryggingagjaldi.
Ókosturinn við þá aðgerð sé sá, að
byrðarnar lentu enn frekar á at-
vinnulífinu, sem nú standi höllum
fæti. Önnur leið sé að kanna mögu-
leika á tilfærslum innan trygging-
argjaldsins, sem nemur 5,34% af
greiddum launum. Þriðji kosturinn
sé sá að ríkið leggi sjóðnum til fjár-
magn, en Atvinnuleysistrygg-
ingasjóður er með ríkisábyrgð.
Hjá Vinnumálastofnun voru
13.703 skráðir atvinnulausir í gær.
Að sögn Karls Sigurðssonar, for-
stöðumanns vinnumálasviðs, má
ætla að um 10% af þessum hópi séu
í hlutastarfi. Sé gengið út frá því,
má ætla að atvinnuleysi í landinu sé
nú um 7,1%.
Tæmist sjóðurinn í árslok?
Morgunblaðið/G.Rúnar
Horfnir á braut Talið er að framboð vinnuafls hjá körlum muni minnka á þessu ári því erlendir verkamenn hafa
flestir horfið af landi brott. Þeir hafa verið uppistaðan í byggingavinnu og útivinnu hvers konar undanfarin ár.
Atvinnuleysistryggingasjóður hefur 21 milljarð til ráðstöfunar en gæti þurft að greiða 24 milljarða
Sjóðurinn greiddi 1.700-1.800 milljónir út í janúar en 260 milljónir að meðaltali í fyrrasumar
13.703
atvinnulausir í dag
NÚ liggur fyrir áætlun fjármálaráðuneytisins um fram-
boð vinnuafls á árinu 2009. Til vinnuafls teljast allir
einstaklingar á starfsaldri sem taka þátt í vinnumark-
aði, annaðhvort í starfi eða atvinnulausir í starfsleit.
Ráðuneytið áætlar að framboð vinnuafls aukist um
0,9% og verði að meðaltali 167.800 ársverk. Þar af
verða tæplega 95 þúsund karlar og tæplega 73 þús-
und konur.
Á höfuðborgarsvæðinu verða rúmlega 106 þúsund
störf og rúmlega 61 þúsund á landsbyggðinni. Ráðu-
neytið tekur fram að þessi spá sé háð mikilli óvissu
vegna ástandsins í þjóðfélaginu og spáin verði endur-
skoðuð ef ástæða verður talin til.
Áætlað er að atvinna dragist saman hjá körlum, að-
allega vegna brottflutnings erlendra verkamanna.
Spáð er aukinni atvinnuþátttöku kvenna. Framboð
vinnuafls mun aukast á höfuðborgarsvæðinu en drag-
ast saman á landsbyggðinni, ekki síst á Austurlandi,
þar sem stóriðjuframkvæmdum er lokið þar. Reiknað
er með töluverðri aukningu á framboði vinnuafls á
Suðurnesjum frá því í fyrra.
Samkvæmt því sem fjármálaráðuneytið áætlar verður
mest framboð á vinnuafli í desember og júní, eða
174.500 manns. Fæstir eru á vinnumarkaði í janúar,
eða 159.399 manns.
Vinnumálastofnun notar tölur fjármálaráðuneytisins
til að reikna atvinnuleysishlutfall fyrir einstaka lands-
hluta og eftir kyni í hverjum mánuði.
Áætlað að 167.800 manns verði á vinnumarkaði í þessu ári
Hringdu í 569 1317 eða
sendu póst á ritstjorn@mbl.is
Þekkir þú til
Atvinnumálin í brennidepli
víða mjög mikið að gera. Þannig að
fólk er beðið um að minnka við sig
starfshlutfall, en á samt að skila
sömu vinnu og er því jafnlengi í
vinnunni þó að það fái minna greitt.“
Miðað við ástand mála nú má því
gera ráð fyrir að minna framboð
verði af sumarvinnu, sem íslenskir
nemar hafa jafnan reitt sig mikið á.
„Okkar tilfinning er sú að það sé ekki
bjart fram undan hjá unga fólkinu
með sumarvinnu,“ segir Elísabet.
„Við vitum til dæmis að margir sem
höfðu vinnu í fyrrasumar og ætluðu
sér að ganga að henni vísri sem
hlutastarfi um jólin fengu ekki inni.“
hjálp,“ segir Laufey Eydal hjá VR.
Hún segir til dæmis of algengt að
yngsta fólkið á vinnumarkaði sé ekki
látið fá ráðningarsamninga. Þau
hvetja krakkana því til þess að sækj-
ast eftir samningum, og eins að gefa
sér tíma til að fara yfir þá með for-
eldrum eða með hjálp VR áður en
skrifað er undir.
Hún segir starfsfólk VR fá í aukn-
um mæli til sín mál þar sem fólk geri
sérstaka samninga við vinnuveitend-
ur til að halda vinnunni og afsali sér
jafnvel réttindum, eins og t.d. upp-
sagnarfresti. „Þetta er skrýtinn tími,
á meðan verið er að skera niður er
Eftir Unu Sighvatsdóttur
una@mbl.is
LANGSTÆRSTA hlutfall atvinnu-
lausra í dag, 37%, er ungt fólk, 29 ára
og yngra. Staða ungs fólks á vinnu-
markaði hefur því breyst mjög á
skömmum tíma og hafa stéttarfélög-
in reynt að bregðast við í samræmi
við það.
Fulltrúar VR héldu í gær erindi
fyrir nemendur Háskóla Íslands í
fyrirlestraröð Rannsóknarstofu í
vinnuvernd og bar hann heitið Ungt
fólk og vinnumarkaðurinn. Þar kom
fram að þegar upphaflega var leitað
til VR um að taka þátt í fyrirlestra-
röðinni var ennþá góðæri þegar ekk-
ert mál var fyrir ungt fólk að fá
vinnu. Annað er uppi á teningnum nú
enda er fólk að vakna til vitundar um
réttindi sín og leitar í auknum mæli
til stéttarfélaganna að sögn Elísa-
betar Magnúsdóttur hjá VR.
Ungt fólk þekkir ekki réttindin
Þar hefur verið lögð rík áhersla á
það að kynna starf félagsins fyrir
nemendum í grunn- og menntaskól-
um svo þeir þekki réttindi sín þegar
farið er út á vinnumarkaðinn. „Það
er því miður allt of algengt að ungt
fólk viti ekki hvert það getur leitað
og er jafnvel ekki meðvitað um að
það sé verið að troða á því. Svo situr
það bara heima í stað þess að fá
Ekki bjartar horfur um
sumarvinnu ungs fólks
Staða ungs fólks á vinnumarkaði er nú gjörbreytt frá fyrri tíð
Réttlaus Jón Gnarr gerði myndskeið fyrir VR. „Ég hef starfað sem glæpa-
maður síðan ég fór á vinnumarkaðinn“ segir fangi sem á engin réttindi.
MEÐALLESTUR á hvert tölublað
Morgunblaðsins eykst um 2,4 pró-
sentur í nýjustu dagblaðakönnun
Capacent, frá síðustu könnun. Hin
nýja könnun tekur til tímabilsins
nóvember 2008 til janúar 2009 og
er meðallestur á hvert tölublað
42,7%. Meðallestur á hvert tölublað
Fréttablaðsins stendur svo til í stað,
í 63,7% en var 64% í síðustu könnun.
Þá segjast um 70% aðspurðra
lesa Morgunblaðið í viku hverri og
er það einnig aukning frá síðustu
könnun. Mjög lítill munur er á kynj-
unum hvað þetta varðar en ríflega
69% kvenna lesa blaðið í viku hverri
og tæplega 71% karla. Uppsafnaður
lestur á Fréttablaðinu yfir vikuna
dregst saman um 1,7 prósentur frá
því í síðustu könnun og er nú 87%.
Lestur á helgarútgáfunni er ekki
síður í sókn, en meðallestur á laug-
ardagsútgáfu blaðsins eykst úr
34,6% í síðustu könnun í 41,5% í
þeirri nýju. Þá eykst meðallestur á
sunnudagsútgáfu Morgunblaðsins
úr 40,6% í 43,4%.
Notkun á fréttavefnum mbl.is
eykst líka. 61,9% þeirra, sem tóku
þátt í könnuninni, fóru inn á vefinn
á hverjum degi í vikunni sem könn-
unin var gerð, en 80% heimsóttu
vefinn a.m.k. einu sinni í vikunni.
Í samskonar könnun, sem gerð
var í október, fóru 58,5% þátttak-
enda inn á vefinn daglega og 77,8%
a.m.k. einu sinni.
Þetta var símakönnun með end-
anlegt úrtak 4.046 manns. Fjöldi
svarenda var 2.444 og svarhlut-
fallið því 60,4%. Karlar voru um
49% svarenda en konur um 51%.
!
"#
$
"%
"
!
!"
"
!"
#
#$
#
Miðlar Árvakurs í
sókn hjá lesendum