Morgunblaðið - 07.02.2009, Page 9
HARALDUR Björnsson fæddist í
Ánanaustum í Reykjavík 2. október
1924. Hann lést á líknardeild Land-
spítalans í Landakoti 31. janúar síð-
astliðinn. Foreldrar hans voru Anna
Pálsdóttir húsmóðir og Björn Jóns-
son skipstjóri. Haraldur var ellefti í
hópi 13 systkina, sem ólust upp hjá
foreldrum sínum í Ánanaustum.
Systkinin eru nú öll látin. Haraldur
stundaði nám við Verzlunarskóla Ís-
lands og lauk þaðan prófi árið 1942.
Hann hóf störf hjá S. Árnason & Co.
umboðs- og heildverslun haustið
1942. Hann tók þar fljótlega við starfi
framkvæmdastjóra og varð síðar eig-
andi fyrirtækisins ásamt Gunnari
Guðjónssyni. Árið 1984 festi S. Árna-
son & Co. kaup á Ólafi Þorsteinssyni
ehf. Haraldur rak fyrirtækin ásamt
fjölskyldu sinni til dauðadags.
Árið 1965 var Haraldur skipaður
ræðismaður Finnlands í Reykjavík og
frá 1968 til 2001 gegndi hann starfi
aðalræðismanns Finnlands á Íslandi.
Fyrir störf hans sæmdi forseti Finn-
lands hann stórriddarakrossi hinnar
hvítu rósar. Haraldur var virkur í fé-
lagsstörfum íþróttafélagsins KR ár-
um saman og æfði og keppti með því
félagi um árabil.
Haraldur kvæntist 9. júní 1951
Þóru Stefánsdóttur. Eignuðust þau
þrjú börn. Þóra lést 26. janúar 2006.
Andlát
Haraldur
Björnsson
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 2009
Verðhrun
50-80% afsl.
af öllum vörum
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
www.gisting.dk/gisting.html
sími: 499 20 40 (Íslenskt símanúmer)
Ódýr gisting í Kaupmannahöfn
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 1200
Bæjarlind 6
sími 554 7030 Opið í Bæjarlind laugardag 10-16
Síðustu dagar útsölunnar
50-80% afsláttur
PIPAR OG SALT
Klapparstíg 44 • Sími 562 3614
ÚTSALA
ÚTSALA
enn meiri
afsláttur
Lagersölu Lín Design lýkur á Akureyri í dag.
Opið kl. 10-14 í Sunnuhlíð.
Lagersalan er á Sauðárkróki á morgun,
sunnudag, kl. 10-14 í Ljósheimum.
LAGERSALA
Lín Design á Akureyri
og Sauðárkrókiallt að 80% afslætti
Úrval rúmteppa,
púða, dúka, rúmfatnaðar
ásamt ýmsu öðru með
Orðsending til skilanefnda og lögmanna.
Önnumst fjármálaþýðingar · Afar snör handtök.
Tilboð í öll verkefni · bafþýðingaþjónusta.is.
HREIN
SNILLD
Drjúgt, fjölhæft og þægilegt...
Gott á:
gler
plast
teppi
flísar
stein
ryðfrítt stál
fatnað
áklæði
tölvuskjái
omfl.
ATH. frábært á
rauðvínsbletti
og tússtöflur
S. 544 5466 • www.kemi.is • kemi@kemi.is
Laugavegi 63 • S: 551 4422
NÚ LJÚKUM VIÐ
ÚTSÖLUNNI
50-70%
AFSLÁTTUR
Á FRÁBÆRUM VETRARFATNAÐI
• Jakkar
• Úlpur
• Ullarkápur
• Dúnkápur
• Hattar
• Húfur
Mörkinni 6,
sími 588 5518.
Opið virka daga
frá kl. 10-18 og
laugardaga frá kl. 11-17
Opið á
sunnudögum
frá kl. 12-17
Útsala 10-50% afsláttur
Björgvin Guðmundsson
bjorgvin@mbl.is
BAUGUR Group og tengd félög
skulda 133 milljörðum króna meira
en eignir félaganna eru metnar á.
Morgunblaðið hefur fengið stað-
fest hjá forsvarsmönnum Baugs að
skuldirnar nemi á milli 1,2 og 1,4
milljörðum punda. Heildarupphæðin
sveiflist eftir gengi krónunnar því
hluti skuldarinnar sé í íslenskum
krónum. Umreiknað í krónur nema
skuldirnar um 200 milljörðum króna.
Í breska blaðinu Telegraph hefur
komið fram að eignir Baugs og
tengdra félaga séu verðmetnar á um
400 milljónir punda. Það eru tæpar 67
milljarðar króna. Þessi tala er ekki
rengd af forsvarsmönnum Baugs og
kröfuhöfum félagsins.
Mismunurinn á skuldum og verð-
mæti eigna félagsins er því rúmlega
133 milljarðar króna.
Breskur dómstóll samþykkti í gær-
morgun að setja dótturfélag Baugs,
BG Holding, í greiðslustöðvun. Það
þýðir að Landsbankinn ræður yfir
helstu félögum Baugs í Bretlandi.
Misstu tökin á Magasin
Straumur hefur einnig gengið að
veðum í M Holding, sem heldur með-
al annars utan um 75% hlut Baugs í
dönsku verslununum Magasin Du
Nord og Illum. Óttar Pálsson, fram-
kvæmdastjóri hjá Straumi, er nú for-
maður stjórnar M Holding.
Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnar-
formaður Baugs Group í Bretlandi,
ræður því ekki lengur yfir þessum fé-
lögum.
Stjórnendur Baugs Group fóru
fram á það í Héraðsdómi Reykjavík-
ur í gær að félagið og nokkur dótt-
urfélög færu í greiðslustöðvun. Þá
hefðu þeir getað skipað tilsjónar-
mann og unnið áfram úr erfiðri stöðu.
Arngrímur Ísberg dómari sagði að
upplýsingum, sem fylgdu beiðninni,
væri mjög ábótavant, svo sem um
eignastöðu Baugs og verðmat þeirra,
skuldastöðu félagsins og lánar-
drottna. Tölur í gögnunum væru allar
frá því í haust og miklar breytingar
hefðu orðið síðan þá. Benti hann á að
orðalag væri almennt og raunhæfari
hugmyndir um aðgerðir þyrftu að
liggja fyrir. Var málinu því frestað
fram á þriðjudag.
Stefán Hilmarsson, fjármálastjóri
Baugs, sagði að þessar upplýsingar
lægju fyrir og ekki ætti að vera
vandamál að bæta úr.
Eignir Baugs duga
fyrir þriðjungi skulda
Ráða ekki lengur yfir Magasin og Illum í Danmörku
Morgunblaðið/RAX
Dómsalur Ragnar H. Hall, lögmaður stjórnar Baugs, og Stefán Hilmarsson
fjármálastjóri verða að upplýsa betur um stöðu Baugs Group.