Morgunblaðið - 07.02.2009, Blaðsíða 14
14 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 2009
SAMTÖK heilsuræktarstöðva og
Alþýðusamband Íslands gerðu í
gær samning þess efnis að styrkja
einstaklinga í atvinnuleit til að
stunda heilsurækt.
Stéttarfélög innan Alþýðu-
sambandsins sem gerast aðilar að
þessum samningi styrkja fé-
lagsmenn sína sem hafa misst vinn-
una og eru atvinnulausir um 2.000
kr. að lágmarki á mánuði til að
stunda heilsurækt. Heilsurækt-
arstöðvar innan SHS veita þessum
viðskiptavinum að lágmarki 50% af-
slátt af mánaðarkortum stöðvanna.
Samningurinn gildir til 31. desem-
ber nk.
„Atvinnuleysi hefur stóraukist
undanfarið
vegna erfiðs
efnahagsástands.
Að mati Alþýðu-
sambands Ís-
lands og Sam-
taka heilsu-
ræktarstöðva
eru það ótvíræð-
ir hagsmunir ein-
staklinganna og
þjóðfélagsins alls að atvinnuleit-
endum sé gefinn kostur á að rækta
líkamlegt og andlegt atgervi.
Færðar hafa verið sönnur á að
regluleg hreyfing sé mikilvæg und-
irstaða heilbrigðis,“ segir í tilkynn-
ingu.
ASÍ og Samtök heilsuræktarstöðva
styrkja atvinnulausa til heilsuræktar
Á MORGUN,
sunnudag, bjóða
Öryrkjabandalag
Íslands og Laug-
arneskirkja til
málþings í safn-
aðarheimili
Laugarneskirkju
kl. 12:30-14:30.
Framsögumennn
verða dr. Sólveig Anna Bóasdóttir
siðfræðingur og Harpa Njáls fé-
lagsfræðingur sem ræða munu um
réttlæti til handa öryrkjum.
Að erindunum loknum verður
boðið upp á kaffiveitingar undir
umræðum þar sem málshefjendur
sitja fyrir svörum ásamt Aðal-
björgu Traustadóttur, fram-
kvæmdastjóra Þjónustumiðstöðvar
Laugardals og Háaleitis sem þekkir
vel til málsins.
Halldór Sævar Guðbergsson, for-
maður ÖBÍ, og prestarnir Hildur
Eir Bolladóttir og Bjarni Karlsson
stjórna umræðum.
Málþing um rétt-
læti fyrir öryrkja GISTINÆTUR á hótelum í desem-
ber sl. voru 58.800 og fjölgaði þeim
um 10% frá desember 2007 þegar
þær voru 53.600. Gistinóttum fjölg-
aði hlutfallslega mest á Austurlandi
eða um 32% og á höfuðborgarsvæð-
inu um 13% miðað við desember
2007. Gistinóttum á Austurlandi
fjölgaði úr rúmlega 400 í tæplega
600 og á höfuðborgarsvæðinu úr
44.400 í 50.100. Á Suðurlandi, Suð-
urnesjum, Vesturlandi og Vest-
fjörðum var fjöldi gistinátta svip-
aður og í desember 2007.
Gistinóttum fjölgar
JAFNRÉTTISRÁÐ skorar á rík-
isstjórnina að verja atvinnu
kvenna og koma í veg fyrir að
niðurskurður opinberra útgjalda
leiði til aukinna byrða kvenna á
vettvangi fjölskyldunnar.
„Við þann niðurskurð er hætta
á að konur tapi atvinnu sinni við
hvers kyns velferðarþjónustu þar
sem þær starfa í ríkari mæli en
karlar og oft á lágum launum.“
Verja vinnu kvenna
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
LANDSVIRKJUN og Vegagerðin
hafa gert samkomulag um gerð
nýrrar brúar yfir Þjórsá, vegna fyr-
irhugaðra virkjana í neðri hluta ár-
innar, og tilheyrandi vegarlagn-
ingar. Samkomulagið er háð
samþykki stjórnar Landsvirkjunar
og yfirvalda samgöngumála. Sveit-
arfélögin beggja vegna Þjórsár
binda vonir við að Þjórsárvegur
muni styrkja byggðirnar með auk-
inni ferðaþjónustu og samvinnu
sveitarfélaganna.
Ný tenging yfir Þjórsá hefur
lengi verið til umræðu en aldrei
komist til framkvæmda. Lands-
virkjun er að undirbúa fjórar nýjar
virkjanir í Þjórsá og segir Helgi
Bjarnason, verkefnastjóri virkj-
ananna, að mikilvægt sé að fá teng-
ingu yfir ána vegna byggingar og
rekstrar Hvamms- og Holtavirkj-
ana. Landsvirkjun hefur gert sam-
komulag við Vegagerðina um fram-
kvæmdina. Reiknað er með að
Landsvirkjun kosti framkvæmdina
í upphafi en fái kostnaðinn end-
urgreiddan þegar vegurinn kemst á
vegaáætlun.
Fyrirhuguð brú yfir Þjórsá er
rétt fyrir ofan Búðafoss, miðja vegu
milli fyrirhugaðra Holts- og
Hvammsvirkjana. Þetta er mikið
mannvirki, 160-180 metrar á lengd,
væntanlega í þremur höfum. Unnið
er að hönnun brúar og vega. Veg-
urinn að brúnni liggur frá Landvegi
í Rangárþingi ytra hjá bænum
Minnivöllum og að Þjórsá við bæinn
Vindás. Vegurinn kemur síðan upp
á Þjórsárdalsveg rétt norðan við fé-
lagsheimilið Árnes. Lagður er nýr
vegur á um 7,7 km kafla.
Vegagerð hefjist í vor
Helgi segir stefnt að því að vinna
við vegina að brúnum hefjist í vor
eða sumar og að gerð brúarinnar
verði boðin út í vor þannig að fram-
kvæmdir geti hafist í haust. Segir
hann betra að vinna slíkt verk að
vetri, þegar lítið er í ánni. Miðað er
við að vegurinn verði tilbúinn á
næsta ári.
„Það er hagur okkar að brúin
verði tilbúin áður en framkvæmdir
hefjast við virkjanirnar. Þá mun
hún nýtast okkur best,“ segir Helgi.
Vegagerðin mun einnig færa
Þjórsárdalsveg hjá bænum Haga
og byggja nýja brú á Þverá í stað
einbreiðrar brúar sem þar er nú.
Vegurinn er færður vegna virkj-
anaframkvæmdanna og kostar
Landsvirkjun færsluna en Vega-
gerðin gerir brúna. Áætlaður
kostnaður við brúna yfir Þjórsá og
tilheyrandi vegaframkvæmdir þar
og í Þjórsárdal er áætlaður hátt í
900 milljónir kr.
Ferðaþjónusta og samskipti
Örn Þórðarson, sveitarstjóri í
Rangárþingi eystra, segir að ný brú
yfir Þjórsá muni auka umferð og
möguleika á ferðaþjónustu í sveit-
arfélaginu. Örn segir að með þess-
ari tengingu við uppsveitir Árnes-
sýslu geti svokallaður uppsveita-
hringur stækkað og umferð aukist.
„Þetta hefur ekki síður áhrif á
samskipti íbúanna og getur skapað
möguleika á auknu samstarfi,“ seg-
ir Örn. Nefnir hann að styttra yrði
fyrir börn úr Landsveit í skóla í Ár-
nesi, en í núverandi skóla, og mætti
hugsanlega semja um það. Þá
mætti útvíkka það samstarf sem nú
er milli sveitarfélaganna í Rang-
árvallasýslu og Vestur-Skaftafells-
sýslu um félagsþjónustu og barna-
verndarmál og láta það ná vestur
yfir Þjórsá. „Þetta er alveg ný vídd
fyrir okkur,“ segir Örn.
Þjórsársveitir vinna saman
Örn taldi of snemmt að ræða um
sameiningu sveitarfélaganna
beggja vegna Þjórsár, sagði að það
yrðu íbúarnir að lokum að ákveða,
en vekur athygli á nánu samstarfi
sem fjögur sveitarfélög við Þjórsá
hafa tekið upp um atvinnuuppbygg-
ingu, undir heitinu Þjórsársveitir.
Markmiðið er að ná til þessa svæðis
orkufrekum iðnaði og nýta til þess
orku Þjórsár. Framkvæmdanefnd
með fulltrúum Rangárþings ytra,
Ásahrepps, Flóahrepps og Skeiða-
og Gnúpverjahrepps hittist reglu-
lega til að fara yfir málin.
Örn segir að hingað til hafi að-
allega verið rætt um möguleikana á
gagnaveri. „Við höfum verið að
koma okkur betur fyrir í sam-
keppninni um staðarval slíks iðn-
aðar,“ segir Örn en viðurkennir að
erfitt hafi verið að vinna að þeim
málum í vetur. „Við viljum nýta
orkuna sem hér verður til en erum
líka opin fyrir öðrum möguleikum.
Það væri okkur að meinalausu ef
samkomulag næðist við önnur
svæði um að þau fengju orkuna en
við fengjum í staðinn einhverja aðra
starfsemi sem skilar jafn miklu inn
í samfélagið,“ segir Örn Þórðarson.
Sveitir tengjast
Landsvirkjun og Vegagerðin semja um gerð nýs vegar og
brúar yfir Þjórsá Íbúarnir á bökkum Þjórsár auka samvinnu
Í HNOTSKURN
»Þjórsárvegur milli Land-vegar og Þjórsárdalsvegar
verður tæpir 8 kílómetrar að
lengd. Brúin verður 160-180
metrar í þremur höfum.
»Stefnt er að því að vega-gerð hefjist í vor og brúar-
gerð í haust og Þjórsárvegur
verði tilbúinn á næsta ári.
»Tengingin eykur ferða-þjónustu í Rangárþingi og
eykur möguleika á sam-
skiptum íbúanna við Þjórsá.
&'
(&)
*
!"
!
"
#$
#
$ %&''%
()*$
%&''%
+&,-$./
/01'&%2$
%&''%
%$0/#%3,0/45%$
)+, *
+,
-)+&
!"
SJÖ vélar leiguflugfélagsins Loft-
leiða Icelandic, dótturfélags Ice-
landair, eru allar í verkefnum og seg-
ir Guðni Hreinsson,
framkvæmdastjóri félagsins, verk-
efnastöðuna vera góða miðað við
efnahagsástandið almennt í heimin-
um. Vélarnar eru flestar í langtíma-
leigu, með samningum til 3-5 ára, en
tvær vélar losna í vor.
Að sögn Guðna eru góðar líkur á
að samningar náist um 12 mánaða
leigu á þessum tveimur vélum þar
sem undirritaðar viljayfirlýsingar
liggja fyrir við viðkomandi samn-
ingsaðila. Í báðum tilvikum yrðu þær
vélar mannaðar íslenskri áhöfn en
áhafnir eru ýmist erlendar eða inn-
lendar í leiguverkefnum Loftleiða.
„Við höfum lagt áherslu á að herja
á nýja markaði utan Evrópu og
Norður-Ameríku. Við berum okkur
vel og erum bjartsýn á framhaldið,“
segir Guðni en vélar Loftleiða eru
m.a. í verkefnum í Suður-Ameríku,
Jakútíu í Rússlandi og Papúa Nýju-
Gíneu í Eyjaálfu. Þar á meðal eru
þrjár vélar í Rússlandi með erlend-
um áhöfnum en viðhaldsþjónustu frá
Íslendingum. bjb@mbl.is
Allar vélar Loft-
leiða í verkefnum
Aukin áhersla á S-Ameríku og Rússland
Í HNOTSKURN
»Á síðasta ársfjórðungi2008 gengu Loftleiðir Ice-
landic frá samningum við
fjóra samstarfsaðila í jafn-
mörgum heimsálfum.
»Heildarverðmæti samn-inganna nam um 125 millj-
ónum dollara, eða 14 millj-
örðum króna á núvirði. Á þeim
tíma voru sex vélar leigðar.
KRISTJÁN L.
Möller sam-
gönguráðherra
hefur skipað
þrjár konur í úr-
skurðarnefnd
fjarskipta- og
póstmála til
næstu fjögurra
ára. Þetta eru
þær Jóna Björk
Helgadóttir hér-
aðsdómslögmaður, sem er formaður
nefndarinnar, Brynja I. Hafsteins-
dóttir lögfræðingur og Kirstín Flyg-
enring hagfræðingur.
Nefndin er skipuð á grundvelli
breytinga á lögum um Póst- og fjar-
skiptastofnun og nýrrar reglugerðar
sem sett var í framhaldi af gildistöku
laganna.
Fram kemur m.a. á vef sam-
gönguráðuneytisins að með nýrri
reglugerð séu starfi nefndarinnar
sett skýrari mörk. bjb@mbl.is
Skipaði
þrjár konur
í nefnd
Kristján L.
Möller
Innritun nýnema fyrir næsta skólaár 2009-2010 stendur yfir hjá
Tónlistarskóla FÍH til 1. mars nk.
Sótt er um skólavist á heimasíðu skólans www.fih.is/sk og á
rvk.is (Rafræn Reykjavík)
Allir nýnemar þreyta inntökupróf í skólann.
Umsækjendur fá bréf um tíma fyrir inntökupróf en þau fara fram
dagana 9., 10. og 11. mars nk. Umsækjendur fá svar um skólavist
fyrir 1. apríl nk.
Tónlistarskóli FÍH er framsækinn skóli með vel menntaða
úrvalskennara sem eru virkir þátttakendur í íslensku tónlistarlífi.
Skólinn býður nemendum sínum gott námsumhverfi og fjölbreytt
námsframboð. Um leið eru gerðar kröfur til nemenda hvað varðar
ástundun og námsframvindu.
Ef þú vilt verða góður tónlistarmaður er Tónlistarskóli FÍH rétti
skólinn fyrir þig.
Lifandi tónlist – Lifandi fólk
Tónlistarskóli FÍH
auglýsir eftir umsóknum um skólavist
fyrir skólaárið 2009-2010