Morgunblaðið - 07.02.2009, Side 24
24 Daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 2009
Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur
ylfa@mbl.is
H
inn 4. febrúar sl. voru
liðin fimm ár síðan
annars árs nemi í
Harvard setti á lagg-
irnar samskiptasíðu
til að auðvelda samnemendum sínum
að kynnast og hafa samskipti sín á
milli. Síðan þá hefur mikið vatn runn-
ið til sjávar og hefur Facebook verið á
allra vörum síðustu misseri og ekki að
undra. Í heiminum öllum eru komnir
yfir 150 milljónir notenda og nýjustu
tölur hérlendis sýna að tæp 96% allra
Íslendinga á þrítugsaldri hafa opnað
aðgang á síðunni. Í heildina hefur
tæpur helmingur þjóðarinnar skráð
sig sem notendur og fer þeim fjölg-
andi með hverjum deginum sem
ákveða að láta slag standa og komast
að því um hvað fárið snýst.
Í grófum dráttum býður Facebook
fólki að dusta rykið af gömlum vina-
böndum eða styrkja þau sem fyrir
eru traust. Hafa margir skemmt sér
konunglega við að hafa upp á gömlum
skóla- eða vinnufélögum, nágrönnum
af æskustöðvunum, besta vininum í
leikskólanum nú eða æskuástinni og
rifja upp gömul kynni. Þá nota aðrir
síðuna til að fylgjast með vinum og
ættingjum, innanlands eða utan. Fa-
cebook er orðin vinsælasti samskipta-
og ljósmyndavefur í heimi.
Lævís tímaþjófur
Eftir því sem fleiri hafa skráð sig
inn á Facebook og reynsla komist á
síðuna hefur notkunin þróast. Stóru
og öflugu tengslaneti fylgja tækifæri
og fréttir hafa borist af fólki sem hef-
ur aflað sér viðskipta gegnum síðuna.
Enn algengara er þó að heyra af fólki
sem notar Facebook gagngert til að
leita eftir kynnum við hitt kynið.
Hver svo sem tilgangur fólks er hefur
það runnið upp fyrir mörgum að síð-
an getur reynst mikill tímaþjófur.
Í fréttaveitunni fær fólk upplýs-
ingar um það sem vinirnir eru að gera
og getur tíminn auðveldlega hlaupið
frá fólki vilji það skoða gaumgæfilega
fréttirnar og myndirnar í veitunni,
fylgjast með viðburðum, skrá sig sem
aðdáanda persóna, kvikmynda eða at-
hafna nú eða skrá sig í hópa sem berj-
ast fyrir misalvarlegum málstað. Er
svo komið að sumir skólar og vinnu-
staðir hafa séð sig tilneydda til að
loka fyrir aðgang að síðunni.
Við þetta kannast Guðberg K.
Jónsson, verkefnastjóri SAFT. Hann
segir gallann við Facebook vera
aukaefnið og viðbæturnar sem fólki
stendur til boða að nota. „Öll þessi
aukaleiktæki sem fólk getur bætt við
síðuna sína geta orðið mjög tímafrek.
Einnig ef menn fara fram úr hófi að
bæta við vinum sem eru ekki raun-
verulegir vinir þá getur ansi mikið
magn upplýsinga farið í gegnum síðu
fólks á hverjum degi. Ef það ætlar að
fylgja því öllu eftir held ég að það
verði lítið úr námi og vinnu þann dag-
inn,“ segir hann og bætir við að til séu
raunveruleg dæmi frá öðrum Evr-
ópuþjóðum um fólk sem hafi misst
vinnuna vegna tímans sem það eyddi
á Facebook.
Notendum í yngri og eldri aldurs-
hópum fer einnig fjölgandi á Face-
book. Salvör Gissurardóttir, lektor í
upplýsingatækni við Háskóla Íslands,
segist vera farin að sjá æ fleiri á sex-
tugsaldri á Facebook en hún hafi
lengi vel verið ein af mjög fáum í sín-
um aldurshópi. Notkun þeirra sé
hinsvegar ólík þeirra sem yngri eru,
hinir eldri noti síðuna á markvissari
hátt og passi sig á þeim upplýsingum
sem þeir setja inn.
Ungmenni eru mjög virkir not-
endur á samskiptasíðum en í þeirra
hópi hefur MySpace verið vinsælla.
„Það er yngra fólk á MySpace en ég
finn að menntaskólaaldurinn er að
færa sig meira á Facebook,“ segir
Salvör og undir það tekur Guðberg.
Hann segir að hingað til hafi síðunum
verið skipt í ólíka flokka. „MySpace
hefur verið meira fyrir unga fólkið og
Facebook fyrir þá sem eru í nostalg-
íunni,“ en svo virðist sem skilin milli
flokkanna verði æ óljósari.
Facebook fór fram úr MySpace í
vinsældum í apríl 2008 og er vinsæl-
asta samskiptasíðan í flestum ensku-
mælandi löndum heims, þ. á m. Kan-
ada og Bretlandi. Facebook á
hinsvegar ekki jafnmiklum vinsæld-
um að fagna í heimalandinu, Banda-
ríkjunum, en þar eru helmingi færri
skráðir notendur en á samkeppnissíð-
unni MySpace. Vinsældir Facebook
hafa verið útskýrðar með því að síðan
er einfaldari og stílhreinni en MyS-
pace, þar eru vírusar sjaldséðir, setja
má inn ótakmarkað magn ljósmynda
auk þess sem notendum gefst kostur
á að hanna eigin aukabúnað, svokall-
aðar viðbætur (e. applications).
Ekki vinsælasta sam-
skiptasíðan í öllum löndum
Búið er að þýða viðmót Facebook á
hátt í fjörutíu tungumál, þ. á m. ís-
lensku, og hefur það aukið á vinsæld-
ir síðunnar í löndunum þar sem málin
eru töluð. Facebook hefur hinsvegar
verið gagnrýnt fyrir að bjóða upp á
þennan möguleika heldur seint en í
sumum löndum á Facebook í harðri
samkeppni við samfélagssíður sem
eru aðeins í boði innan viðkomandi
lands og eru sérsniðnar að menningu
og tungumáli landsins. T.d. er síðan
Hyves í Hollandi mun vinsælli en Fa-
cebook. Á hana eru skráðar 7 millj-
ónir Hollendinga af 16 milljónum íbúa
landsins. Á hverjum mánuði fær síð-
an u.þ.b. tíu sinnum fleiri heimsóknir
stakra notenda en Facebook. Sam-
bærilega síðu er að finna á Spáni en
hún gengur undir nafninu Tuenti.
Tæplega helmingi fleiri Spánverjar
taka þá síðu fram yfir Facebook.
Stjórnendur Facebook vilja snúa
þessari þróun við og reyna nú hvað
þeir geta að aðlaga síðuna ólíkum
þjóðum til að laða að fleiri notendur.
Besta útgáfan
af sjálfu sér
Gagnrýni fólks á samskiptasíður á
borð við Facebook hefur að miklu leyti
snúist um að þar gefi fólk ekki raun-
verulega mynd af sér heldur leyfi að-
eins öðrum að kynnast „bestu útgáf-
unni“ af sjálfu sér, með því að velja
vandlega hvaða myndir fái að birtast
og að aðeins jákvæðar upplýsingar
birtist um það sem sýni viðkomandi í
sem bestu ljósi. „Fólk fær að búa til
ákveðna mynd af sjálfu sér,“ segir Sal-
vör. „Facebook-væðingin er eitt þrep-
ið í átt að heimi eins og „Second Life“
þar sem þú býrð til persónu, þú býrð
til þig, pappírsmynd eins og þú vilt að
aðrir sjái þig,“ segir hún.
Dr. Zuilma Gabríela Sigurð-
ardóttir, dósent í sálfræðideild Há-
skóla Íslands sem sérhæfir sig í at-
ferlisgreiningu, segir að fólk geti
gefið þá mynd sem það vilji af sjálfu
sér á Facebook, rétt eins og það geti
gert í samskiptum við aðra í venjuleg-
um aðstæðum. Til séu félagsfræðileg-
ar kenningar sem fjalli um að fólk sé
alltaf að setja upp grímur og leika
mismunandi hlutverk í mismunandi
Allt lífið á einum stað
Facebook Íslendingar á öllum aldri heyrast nú segja „ég sá það á Facebook“ enda rúmlega 120 þúsund þeirra skráðir á Facebook, eða Fésbók eins og sumir vilja kalla síðuna á ástkæra ylhýra.
GARÐAR (ekki hans rétta nafn)
er 26 ára gamall Reykvíkingur
sem byrjaði að nota Facebook til
að halda sambandi við gamla
skólafélaga erlendis en komst svo
að því að síðan er einnig góður
vettvangur til að komast í sam-
band við kvenfólk. Hann segist
hafa kynnst mörgum stelpum á
þennan veg og sé það mjög auð-
velt – reyndar töluvert auðveld-
ara en hann bjóst við.
Má segja að Facebook sé orðinn
viðurkenndur vettvangur til að
„höstla“? „Ég get ekki talað fyrir
aðra en sjálfan mig en miðað við
það sem ég er að heyra, þá alveg
klárlega. Tala nú ekki um fyrir
fólk sem er jafnvel yngra en ég,“
segir Garðar. Hann er með yfir
500 manns á vinalista og er vel yf-
ir helmingurinn kvenkyns. Berist
vinabeiðnir frá föngulegu kven-
fólki samþykkir hann þær, jafnvel
þó hann þekki ekki til þess. Garð-
ar segir svo að í miðbænum um
helgar sé algengt að fá spurn-
inguna „Erum við ekki vinir á Fa-
cebook?“ til að brjóta ísinn og við-
urkennir að hafa sjálfur fengið að
heyra hana nokkrum sinnum.
Potað til að sýna áhuga
Fjölmargar viðbætur eru til á
Facebook og eru sumar búnar
gagngert til þess að kynna fólk
fyrir hinu kyninu. Sem dæmi má
nefna „Are you interested?“ og
„Compare hotness“ en þar birtast
myndir af öðrum sem hafa virkjað
þessar viðbætur og getur viðkom-
andi skoðað myndirnar og ef hon-
um líst vel á einhvern er einfald-
lega hægt að ýta á takka og
manneskjan á myndinni fær skila-
boð um að viðkomandi hafi
áhuga. Aðrar leiðir sem notendur
geta farið er að skoða vinalista
eða myndir annarra og „pota í“
þá sem vekja áhuga en slíkur val-
möguleiki er í boði á síðum fólks.
„Potið“ gefur til kynna að áhugi á
kynnum sé fyrir hendi og fær við-
komandi tilkynningu um að potað
hafi verið í hana. Reynist áhuginn
gagnkvæmur er hægt að senda
vinabeiðni og í kjölfarið nota
spjallið sem Facebook býður upp
á. Garðar segist sjálfur mest nota
„Compare hotness.“ Svo sendi
hann vinabeiðnir til stelpnanna
og eftir að þær eru samþykktar er
allur gangur á því hvort hann tek-
ur fyrsta skrefið eða þær. „Svo
byrjar fólk bara að spjalla saman
og sér hvort blossar kvikna.“
Auðvelt að stofna til kynna við hitt kynið
ELÍSABET Sveinsdóttir og Ellert
Sigtryggsson kynntust sl. vor á Fa-
cebook. „Beta byrjaði að pota í
mig,“ segir Ellert en „pot“ er vin-
sæl leið á Facebook til að láta vita
að maður hafi áhuga. Hún hafði
séð myndir af honum á síðu sam-
eiginlegs vinar þeirra og leist vel á
en þau þekktu ekki hvort annað.
Hún ákvað að láta slag standa. „Ég
potaði svo til baka,“ segir hann.
Þau skiptust á að pota hvort í ann-
að í nokkrar vikur þar til Elísabet
sendi Ellert vinabeiðni. Þau sendu
svo skilaboð á milli sín og þannig
þróaðist sambandið smám saman.
„Ég var ekki inni á Facebook í
þessum tilgangi en svo er maður
að heyra í dag að þetta sé orðinn
hálfgerður skiptimarkaður, í stað-
inn fyrir einkamál.is, en mér finnst
þetta stórsniðugt.“
Elísabet og Ellert hafa staðið í
ströngu undanfarna daga við að
mála og gera nýja, sameiginlega
húsnæðið sitt tilbúið fyrir innflutn-
ing um helgina og eru börnin
þeirra, á aldrinum 3-21 árs, afar
ánægð með ráðahaginn. „Ég var
pínu feiminn að segja frá því
hvernig við kynntumst en er það
ekki í dag,“ segir Ellert en hann
segir eldra fólk helst fussa og
sveia yfir þessari nýju leið til að
kynnast einhverjum í rómantískum
hugleiðingum. „Ég á 21 árs dóttur
og hún sagði: „Eruð þið Facebook-
par? En flott!“ Svo henni fannst
þetta bara geggjað.“ Þau hafa
bæði verið meðlimir á Facebook í
u.þ.b. hálft annað ár. „Mér fannst
þetta fyrst ótrúlega lummó en svo
voru allir komnir inn á þetta,“ seg-
ir Ellert og Elísabet er sammála,
langflestir sem þau þekkja eru á
Facebook.
Pot og daður á Facebook orðið að sambúð
Morgunblaðið/Golli
Par Elísabet og Ellert kynntust eftir að hún „potaði“ í hann á Facebook fyrir
níu mánuðum. Þau munu flytja inn í sína fyrstu íbúð saman nú um helgina.