Morgunblaðið - 07.02.2009, Blaðsíða 30
30 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 2009
✝ Bára Sigfúsdóttirfæddist á Rauða-
vík í Eyjafirði 22.
ágúst 1921. Hún lést á
hjúkrunarheimilinu
Hlíð á Akureyri 2.
febrúar 2009.
Foreldrar hennar
voru Guðlaug Ás-
mundsdóttir, f. 9.12.
1880, d. 1.10. 1952 og
Sigfús Valtýr Þor-
steinsson, f. 24.5.
1890, d. 30.10.
1979. Systkini Báru
voru: Iðunn, f. 14.10.
1909, d. 23.6. 1992, Þóra, f. 8.8.
1913, d. 28.10. 1984 og Bragi, f. 6.7.
1920, d. 5.3. 1994. Þann 23. sept-
ember 1943 giftist Bára Jónasi
Heiðdal Árnasyni, f. 29.10. 1917, d.
8.12. 1947. Foreldrar hans voru
Árni Sigurðsson og Guðrún Jón-
asdóttir. Börn Báru og Jónasar eru:
1) Sigfús Jónasson, f. 28.4. 1943,
kvæntur Jantee Sopab, sonur Jan-
tee er Sathian. 2) Guðrún Jón-
asdóttir, f. 4.6. 1945, giftist Helga
Benedikt Aðalsteinssyni, þau
skildu. Börn þeirra
eru Jónas, Jón, Sig-
fús, Guðlaug, Þórunn
og Benedikt. 3) Björg-
vin Jónasson, f. 6.9.
1946, kvæntur Gest-
ínu Sigríði Gunn-
arsdóttur. Börn
þeirra eru Þurý
Björk, Auðunn Þór og
Björgvin. Bára og
Jónas bjuggu á
Syðra-Kálfskinni í
Eyjafirði og þegar
Jónas lést, aðeins 30
ára gamall, hélt Bára
kyrru fyrir á búinu ásamt fjöl-
skyldu sinni. Hún hélt þar mynd-
arlegt heimili fyrir börnin sín þrjú,
föður sinn og bróður eftir andlát
móður sinnar. Árið 1992 fór Bára
inn til Akureyrar til að sinna Iðunni
systur sinni sem þá lá banaleguna
og sneri ekki aftur á Syðra-
Kálfskinn. Hún bjó á Gilsbakkavegi
þar til hún flutti á hjúkrunar- og
dvalarheimilið Hlíð.
Útför Báru verður gerð frá
Stærri-Árskógskirkju í dag kl. 14.
Hún Bára amma mín sigldi víst
ekki lygnan sjó í sínu lífi. Einn
dimman dag í desembermánuði,
þegar hún var 26 ára gömul, hélt
eiginmaður hennar til sjós eins og
svo oft áður. Hann hafði kennt sér
einhvers meins þá um morguninn
en lét það ekki á sig fá og reri út á
Eyjafjörðinn við annan mann. Á
leið aftur til lands hnígur afi minn
niður og andast þar í firðinum
fagra. Eftir stóð amma með börnin
sín þrjú, það yngsta aðeins ársgam-
alt. Amma og afi bjuggu á Syðra-
Kálfskinni með foreldrum ömmu og
systkinum og hefur það vafalítið
verið styrkur til handa ungri ekkju
að vera umvafin sínum nánustu.
Langamma mín Guðlaug deyr svo
fimm árum seinna og systur ömmu,
þær Iðunn og Þóra, fluttust til Ak-
ureyrar. Börnin hennar þrjú, Sig-
fús, Guðrún og Björgvin, héldu
einnig eitt af öðru innar í fjörðinn.
Amma Bára hélt því heimili með
föður sínum og bróður lengst af.
Ætli ég hafi ekki verið um 9 ára
gömul þegar ég fór að fara fyrst ein
míns liðs á Kálfskinn til ömmu. Það
voru mikil viðbrigði fyrir litla prins-
essu af mölinni að dvelja í sveitinni
og vissi ég varla hvað sneri fram og
hvað sneri aftur á kúnum. Amma
var mikil rólyndiskona og ekki fór
mikið fyrir henni, en mikil lifandis
ósköp gat hún hlegið að vitleysunni
og pjátrinu í borgarbarninu. Ég
hélt að hún yrði ekki eldri þegar
hún stóð á stigaskörinni og horfði
niður í kjallara á mig þar sem ég
stóð skjálfandi á beinunum og var
þess fullviss að kýrnar, sem voru í
fjósi aðliggjandi bænum, væru að
reyna að brjóta sér leið í gegnum
vegginn. Þá hristist amma gamla
og hafði ekki undan að þurrka tárin
sem runnu í stríðum straumum nið-
ur vanga hennar. „Að þér skuli
detta þessi vitleysa í hug, barn.
Hvað heldur þú að kýrnar hafi ekki
nóg annað um að hugsa en að glápa
á þig.“ Hvað það var sem þessar
blessuðu kusur voru svona upp-
teknar við þarna í litla fjósinu skildi
ég þó aldrei, ég sá þær bara jórtr-
andi með letilegt augnaráðið.
Það var alveg óskaplega gott að
dunda sér með ömmu, hún hafði
endalausa þolinmæði fyrir hinar og
þessar hugdettur hjá mér. Eitt
sumarið þóttu vinabönd það allra
flottasta og þá var farið í vefn-
aðarvöruverslun á Akureyri og
strengir og snæri keypt fyrir allan
vasapeninginn. Amma sat svo með
mér og fléttaði böndin þar til þau
voru orðin svo mörg að ég átti erf-
itt með að hreyfa olnbogann á mér,
og þá hló amma. Eitt af því sem við
gerðum oft saman í sveitinni var að
lesa ljóðin hans Davíðs Stefánsson-
ar frá Fagraskógi. Mér fannst svo
merkilegt að stórskáldið sjálft
skyldi hafa búið þarna í sveitinni
hennar ömmu.
Í hjarta mínu er hátíð.
Hver hugsun og tilfinning mín
verða að örsmáum englum,
sem allir fljúga til þín.
Þeir ætla að syngja þér söngva
og segja þér, hvað þú ert góð –
og eigir sál mína alla
og allt mitt hjartablóð.
(Davíð Stefánsson.)
Ég kveð þig nú, elsku amma mín,
en veit að þú munt aldrei verða
langt undan og það hlýjar mér um
hjartarætur að vita að þú ert komin
í fangið á honum afa, manninum
sem þú misstir fyrir 61 ári. Kysstu
hann frá mér!
Þín
Þurý Björk Björgvinsdóttir
Elsku amma, þá ertu búin að fá
hvíldina. Þegar okkur var tilkynnt
að þú værir farin voru það trega-
fullar tilfinningar sem brutust fram,
því það er alltaf sárt að missa ást-
vin en í sumum tilfellum er hvíldin
góð.
Við munum alltaf geyma þig í
hjarta okkar og segja börnum okk-
ar sögur af þér um ókomna framtíð.
Við munum öll eftir jólaboðunum
á jóladag í Syðra-Kálfskinni, þú
hefur örugglega hugsað með bros á
vör að nú væri friðurinn úti þegar
hersingin úr Bragholti mætti á
svæðið. Við vitum það svona eftir á
að við vorum nú kannski ekki róleg-
ustu krakkar í heimi þegar sá gáll-
inn var á okkur. Háaloftið var vin-
sælt og neðri hæðin þar sem Sigfús
langafi smíðaði bátana.
Amma, þú varst frábær, traust
og skemmtilegur félagi, þú hafði
lúmskt gaman af prakkarastrikun-
um hjá okkur, oftar en ekki glottir
þú út í annað yfir þeim en þú lést
okkur nú alveg vita af því ef við fór-
um yfir strikið.
Amma, þá ertu loksins komin til
afa. Afi, þá er hún komin til þín, þú
ert búinn að bíða eftir henni lengi,
ástinni þinni. Hún er gullmoli sem
við biðjum þig um að passa.
Síðustu 20 árin tóku veikindin þín
mikinn toll af þér, þú fórst ekki
mikið út úr húsi og síðustu árin var
það nú bara sólarferð út á pallinn í
Gilsbakkaveginum á góðum sum-
ardegi, þar var oft Spánarblíða og
þú naust þess að sitja úti og láta
sólina sleikja þig. Það sást líka á
þér eftir sumarið, súkkulaðibrún og
sæl.
Amma þú ert hörkutól sem við
lítum upp til því þrautseigja þín er
öðrum til fyrirmyndar.
Þú ert komin til drottins og hvíl-
ist þar og við biðjum þig að vaka
yfir okkur og láta okkur vita ef við
erum að gera eitthvað af okkur og
afi hjálpar þér sennilega við það.
Er við kveðjum þig, elsku amma,
í hinsta sinn minnumst við þín og
þökkum þér fyrir það sem þú gafst
okkur og þökkum þér fyrir sam-
ferðina.
Jónas, Jón, Sigfús, Guðlaug,
Þórunn, Benedikt og börn.
Í dag kveðjum við hana Báru vin-
konu okkar frá Syðra-Kálfsskinni.
Við systurnar ólumst upp á næsta
bæ þar sem stutt var á milli. Það
var því auðvelt fyrir okkur að
skreppa í heimsókn til hennar
Báru. Alltaf var gaman að koma í
Syðra-Kálfsskinn og alltaf fengum
við eitthvað gott að borða. Í minn-
ingu okkar var eldhúsið í Syðra-
Kálfsskinni alveg sérstakt með
sinni miklu skúffuinnréttingu sem
við vorum vissar um að innihéldi
mikinn leyndardóm. Seinna átti
þessi minning eftir að verða áhrifa-
valdur í okkar lífi.
Bára hafði gaman af því að
spjalla við okkur og var ýmislegt
rætt um leið og spáð var í lífsins
gagn og nauðsynjar. Ekki var síðra
að fá að komast á háaloftið hennar
Báru þar sem ýmislegt fróðlegt var
að finna. Gömul leikföng barnanna
hennar eða aðrir gamlir hlutir
vöktu oft forvitni. Þegar á unglings-
árin var komið átti Bára mikið safn
af tölum og efnisströngum sem
henni áskotnaðist eftir að systur
hennar hættu með verslun sína á
Akureyri. Það var eins og ævintýri
fyrir okkur systurnar að fá að
skoða safnið og oftar en ekki vorum
við leystar út með smá efnisbút eða
töluspjaldi. Ekki er ólíklegt að
áhugi okkar á saumum hafi vaknað
þarna á háaloftinu hennar Báru.
Þá eru ótaldar ferðirnar með
Báru í berjamó þar sem margt var
skrafað.
Nú höfum við systurnar keypt
Syðra-Kálfsskinn og var það ekki
síst eldhúsinnréttingin góða og
minningarnar frá æskuárum sem
réðu þar ferðinni. Elsku Bára, við
munum halda í heiðri minningu
þína og fjölskyldu þinnar um ókom-
in ár og reyna eftir bestu getu að
viðhalda gestrisni þeirri sem ein-
kenndi Syðra-Kálfsskinn. Hvíl þú í
friði.
Við sendum börnum Báru, þeim
Guðrúnu, Sigfúsi og Björgvin ásamt
fjölskyldum þeirra okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Erla og Margrét frá Kálfsskinni.
Bára Sigfúsdóttir
✝
Systir okkar, mágkona og frænka,
MARÍA JÓHANNSDÓTTIR
frá Háagerði,
Eyjafjarðarsveit,
lést á dvalarheimilinu Hlíð fimmtudaginn 29. janúar.
Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju
mánudaginn 9. febrúar kl. 13.30.
Benedikt Jóhannsson,
Aðalsteinn Jóhannsson, Guðbjörg Stefánsdóttir,
Guðrún Jóhannsdóttir,
Freygerður Geirsdóttir, Örn Hansen.
✝
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
DAGBJARTUR JÓNSSON,
Álakvísl 106,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum Fossvogi mánudaginn
2. febrúar.
Jarðarförin fer fram frá Árbæjarkirkju þriðjudaginn
10. febrúar kl. 13.00.
Ingibjörg Auður Ingvadóttir,
Dagrún Dagbjartsdóttir, Halldór Jónsson,
Viktoría Dagbjartsdóttir, Júlíus Þór Júlíusson,
Inga Hanna Dagbjartsdóttir, Jónas J. Hallsson,
Þóra Jóna Dagbjartsdóttir, Hlynur Hjörleifsson,
Dagbjartur Vigfús Dagbjartsson,
Ellen Arný Barnes, Jeffrey Barnes,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
SIGURÐUR EINARSSON
frá Hvalnesi í Lóni,
Ásvallagötu 17,
Reykjavík,
sem lést á Landspítala, Landakoti fimmtudaginn
29. janúar, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju
föstudaginn 13. febrúar kl. 13.00.
Guðný Egilsdóttir,
dætur, tengdasynir
og barnabörn.
✝
Hugheilar þakkir til allra sem sýndu okkur hlýhug,
vináttu og samúð og sendu blóm og minningarkort
vegna andláts og útfarar eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
ÓLAFS MARINÓS SIGURÐSSONAR,
Selási 6,
Egilsstöðum.
Jafnframt þökkum við starfsfólki Sjúkrahússins á Egilsstöðum fyrir
alúð og góða umönnun.
Ólöf Elín Gísladóttir,
Eyþór Ólafsson, Aðalbjörg Sigurðardóttir,
Sigurður Ólafsson, Kristrún Pálsdóttir,
Baldur S. Ólafsson, Þóra Kristín Jónsdóttir,
María R. Ólafsdóttir, Þórarinn Þórhallsson,
Aðalheiður Ólafsdóttir, Ágúst S. Sigurðsson,
Einar Ólafsson, Þórunn Guðgeirsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
BJARNI LEIFS FRIÐRIKSSON,
Sunnuhvoli,
Akrahreppi,
Skagafirði,
sem lést þriðjudaginn 3. febrúar, verður jarðsunginn
frá Miklabæjarkirkju laugardaginn14. febrúar
kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast
hans er bent á Krabbameinsfélag Skagafjarðar.
Bryndís Pétursdóttir,
Pétur Bjarnason,
Sigrún Bjarnadóttir,
Friðrik Bjarnason,
Una Bjarnadóttir,
Ragnheiður Bjarnadóttir,
tengdabörn og afabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi,
langafi og langalangafi,
GUNNLAUGUR KARLSSON
fv. útgerðarmaður,
Sólvallagötu 47,
Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fimmtudaginn
5. febrúar.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Guðmunda Sumarliðadóttir,
Jósebína Gunnlaugsdóttir, Sigtryggur Maríusson,
Gunnlaugur Gunnlaugsson, Kristjana Sigurðardóttir,
Hafdís Gunnlaugsdóttir, Róbert Svavarsson,
Karl Hólm Gunnlaugsson, Sigurveig Þorsteinsdóttir,
Sævar Gunnlaugsson, Selma Kristjánsdóttir
og aðrir aðstandendur.