Morgunblaðið - 07.02.2009, Side 39
Morgunblaðið/Heiddi
Reykjavíkurmeistari í fyrsta sinn Hjörvar Steinn Grétarsson.
ÞORVARÐUR Ólafsson og Hjörvar
Steinn Grétarsson urðu jafnir og
efstir á Skákþingi Reykjavíkur –
Skeljungsmótinu sem lauk fyrir
röskri viku. Þeir hlutu báðir 7½ vinn-
ing af níu mögulegum en þar sem
Þorvarður á ekki lögheimili í
Reykjavík er Hjörvar Skákmeistari
Reykjavíkur 2009. Það hefði ekki
skemmt neitt fyrir þó þeir hefðu háð
einvígi um sigur í mótinu en móts-
haldarinn, sem er stjórn TR, hefur
nýverið gengið frá reglu um keppn-
ina sem tekur af öll tvímæli þegar
slíkar aðstæður koma upp.
Hjörvar Steinn er aðeins 15 ára
gamall en þó ekki sá yngsti í sögunni
því árið 1986 vann Þröstur Árnason
þetta mót aðeins 13 ára gamall.
Helstu keppinautar hans þá voru
jafnaldri hans Hannes Hlífar Stef-
ánsson og Héðinn Steingrímsson
sem þá var 11 ára gamall og varð síð-
an yngsti Íslandsmeistari sögunnar
15 ára árið 1990.
Þorvarður Ólafsson náði sínum
besta árangri til þessa. Hann vann
Hjörvar Stein í uppgjöri þeirra í 8.
umferð. Þorvarður hefur bætt sig
mikið á skáksviðinu undanfarin
misseri. Niðurstaðan hvað varðar
efstu menn varð þessi:
1. – 2. Þorvarður Ólafsson og
Hjörvar Steinn Grétarsson 7½ v. (af
9) 3. – 4. Lenka Ptacnikova og Ingv-
ar Þór Jóhannesson 6½ v. 5. – 13.
Hrannar Baldursson, Atli Freyr
Kristjánsson, Halldór Brynjar Hall-
dórsson, Sverrir Þorgeirsson, Sigur-
björn Björnsson, Kristján Eðvarðs-
son, Sverrir Örn Björnsson,. Jóhann
Ragnarsson og Sævar Bjarnason 6 v.
14. – 19. Stefán Bergsson, Torfi
Leósson, Daði Ómarsson, Páll Sig-
urðsson, Patrekur Maron Magnús-
son, Birgir Rafn Þráinsson 5½ v.
Í uppgjöri formanns TR, Óttars
Felix Haukssonar, kom m.a. fram að
bestum árangri skákmanna undir
2000 stigum hefði Páll Sigurðsson
náð og bestum árangri skákmanna
undir 1600 stigum Birgir Rafn Þrá-
insson. Mest stigahækkun varð hjá
Sigríði Björgu Helgadóttur.
Fyrir síðustu umferð var Lenka
Ptacnikova í efsta sæti ásamt Þor-
varði og Hjörvari. Viðureign hennar
við Hjörvar var því hrein úrslita-
skák:
Skákþing Reykjavíkur; 9. umferð:
Lenka Ptacnikova – Hjörvar
Steinn Grétarsson
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rc6 5. Rc3 Dc7 6. Be3 a6 7.
Dd2 Rf6 8. O-O-O Bb4 9. f3 Re5 10.
Rb3 b5 11. De1 Be7
Hvítur hótaði 12. Rxb5.
12. Dg3 d6
Þessi peðsfórn á að duga til jafn-
teflis a.m.k. Annar möguleiki er 12.
… h5 eða 12. … O-O
13. Dxg7 Rg6 14. Dh6 b4 15. Rb1
Afleitur reitur fyrir riddarann.
Eftir 15. Re2 getur svartur einnig
leikið 15. … e5 sem gæti leitt til jafn-
teflis því ein af hugmyndum svarts
er 16. … Rg8 17. Dh5 Rf6 o.s.frv.
15. …. e5 16. Bd2 Hb8 17. De3 a5
18. Bd3 Be6 19. De2 O-O 20. c4 Hfc8
21. Be3 d5!
Án þess að hafa ýkja mikið fyrir
hlutunum er svartur kominn með
myljandi sókn. Hvítur fær nú við
ekkert ráðið.
22. exd5 Rxd5 23. Kd2 Rdf4 24.
Bxf4 Rxf4 25. De1 Rxd3 26. Kxd3
Dxc4+ 27. Ke3 Bc5+ 28. Rxc5
Dxc5+ 29. Ke2 Bc4+ 30. Hd3 Bxd3+
31. Kxd3 Dd4+ 32. Ke2 Hc2+ 33.
Kf1 Dc4+
– og hvítur gafst upp. Næst kemur
34. … Hc1.
Karjakin sigraði í Wijk aan Zee
Úkraínski stórmeistarinn Sergei
Karjakin sigraði á Corus-mótinu í
Wijk aan Zee í Hollandi sem lauk um
síðustu helgi. Karjakin vann Kúbu-
manninn Lenier Dominguez með
svörtu í lokaumferðinni og komst við
það einn í efsta sætið þar sem enginn
af helstu keppinautum hans náði að
sigra. Fyrir síðustu umferð deildu
sex skákmenn efsta sætinu. Magnús
Carlsen var einn þeirra en hann tap-
aði sinni úrslitarimmu fyrir Kínverj-
anum Yue Wang í lokaumferðinni.
Lokaniðurstaðan varð þessi:
1. Sergei Karjakan (Úkraínu) 8 v.
2. – 4. Levon Aronjan (Armeníu ),
Teimour Radjabov (Aserbadsjan) og
Sergei Movsesian (Slóvakíu) 7½ v. 5.
– 6. Magnús Carlsen (Noregi), Le-
nier Dominguez (Kúbu) 7 v. 7. Gata
Kamsky (Bandaríkjunum) 6 ½ v. 8. –
10. Van Wely (Hollandi), Yue Wang
(Kína) og Jan Smeets (Hollandi) 6 v.
11. – 14.Vasilí Ivantsjúk ( Úkraínu ),
Michael Adams 5½ v.
Í B-riðli mótsins virtist Nigel
Short eiga sigur vísan þegar langt
var liðið á skák hans við Ítalann Fa-
biano Caruana. Short átti þvingaða
vinningsleið, sem blasti við öllum
viðstöddum, og byggðist á því að
vekja upp riddara í stað drottningar
en hann tók þá skyndilega vitlausa
stefnu og tapaði að lokum.
Þess má geta að jafntefli hefði
einnig dugað honum til að vinna mót-
ið. Caruana vann B-flokkinn með
þessum óvænta sigri og teflir því í
efsta flokki á næsta ári.
Hjörvar Steinn Grétarsson
Skákmeistari Reykjavíkur
Helgi Ólafsson
SKÁK
TR, Faxafeni
Skákþing Reykjavíkur 2009
– Skeljungsmótið
11. – 29. janúar 2009
Sveinn Ragnarss. - Runólfur Guðmss. 1081
Magnús Sverriss. - Halldór Þorvaldss. 1070
Ingibj. Guðmundsd. - Sólveig Jakobsd.
1052
Sunnudaginn 1/2 var spilað á 14 borðum.
Hæstu skor kvöldsins:
Norður/Suður
Sveinn Ragnarss. - Runólfur Guðmss. 411
Karólína Sveinsd. - Sigurj. Björgvinsd. 392
Garðar Jónsson - Þorgeir Ingólfss. 366
Austur/Vestur
Ingibj. Guðmundsd. - Sólveig Jakobsd. 380
Þorleifur Þórarins. - Haraldur Sverris. 377
Magnús Sverriss. - Halldór Þorvaldss. 376
Spilað er í Breiðfirðingabúð, Faxafeni
14, á sunnudögum klukkan 19.
Bridsfélag Reykjavíkur
Lokið er 3 kvölda tvímenningskeppni
þar sem 2 bestu kvöldin úrskurðuðu sig-
urvegara.
Staðan var þessi.
117,4% Jón G. Jónss. - Guðm. Baldurss.
108,7% Sveinn R. Eiríkss. - Guðl. Sveinss.
106,0% Björgv. Kristinss. - Guðm. Snor-
ras.
En sigurvegarar kvöldsins urðu Soffía
Daníelsdóttir og Hrafnhildur Skúladóttir
með risaskor, 64,3%
Næst er aðaltvímenningur BR. Spilað er
4 kvöld, Fyrirkomulag ræðst af fjölda para.
Halldór Gunnarsson og
Kristján Mikkelsen Suður-
landsmeistarar
Suðurlandsmótið í tvímenningi var hald-
ið að Heimalandi undir Eyjafjöllum 17. jan-
úar sl. Í mótinu tóku 17 pör þátt og voru
spiluð 3 spil á milli para, eða alls 51 spil.
Mótsstjórn var í höndum Garðars Garð-
arssonar og Sigurðar Skagfjörð, og um út-
reikning sáu ungir Rangæingar.
Efstu pör urðu:
Halldór Gunnarss. – Kristján Mikkelsen 67
Össur Friðgeirsson – Karl Björnsson 43
Helgi G. Helgas. – Kristján M. Gunnarss.
40
Garðar Garðarsson – Gunnar Þórðars. 32
Magnús Guðmundsson – Gísli Haukss. 25
Leif Österby – Erlingur Örn Arnarson 8
Suðurlandsmótið í sveitakeppni verður
haldið í Tryggvaskála á Selfossi helgina
21.-22. febrúar nk. Spilamennska hefst
stundvíslega kl. 10 báða dagana. Auk Suð-
urlandsmeistaratitilsins, verður spilað um
5 sæti á Íslandsmótinu í sveitakeppni í lok
mars og einnig vinnur efsta sveitin sem
skipuð er Sunnlendingum sér rétt til að
keppa fyrir hönd HSK á 26. Landsmóti
UMFÍ á Akureyri 9.-12. júlí nk.
Skráningarfrestur er til fimmtudagsins
19. febr. og er hægt að skrá sig á netinu á
síðunni bokun.netberg.is/bridgeselfoss eða
hjá Ólafi í síma 898 2880 og með tölvupósti
í netfangið ost@ms.is eða hjá Garðari í
síma 844 5209.
Krossgáta 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 2009
LÁRÉTT
2. Maður skapaður úr hráka ása og vana. (6)
5. „Að fljóta sofandi að _____________“ (10)
8. Mikhaíl Ivanovich ____, rússneskt tónskáld sem
samdi óperuna Rúslan og Lúdmílu. (6)
9. Slangur yfir eðalvagna. (9)
10. Annað heiti yfir víólu. (8)
12. Frumefni og málmur sem getur valdið ofnæmi (6)
14. Pennanafn François-Marie Arouet. (8)
16. Jökull sem er syðstur íslenskra jökla (13)
18. Ljósálfur sem vængirnir voru klipptir af. (4)
19. Flugvöllur norður af London.. (8)
21. ______ kveður, kætir og gleður frjálst er í fjallasal.
(Vorvindar glaðir) (9)
24. Bandarískt tónskáld sem samdi m.a. West Side
Story. (7,9)
25. Stórbýli austan Ölfusár í Flóa, þar sem var herstöð
með stórum flugvelli á stríðsárunum. (11)
27. Tveggja spora gangur hesta, samtímis stigið í
vinstri afturfót og hægri framfót, síðan hægri aft-
urfót og vinstri framfót. (5)
29. „_________ ríkisins tók handfylli sína af leir“
Steinn Steinarr: Hallgrímskirkja (líkan) (12)
32. Landlukt ríki í suðurhluta Afríku með landamæri
að Suður-Afríku, Namibíu, Sambíu og Simbabve.
(8)
33. Efni sem setjast á botninn. (8)
34. Hafið milli Bretlands og Danmerkur. (10)
35. Berfrævingur eða dulfrævingur. (9)
36. Trú sem kennir að allt sem gerist sé fyrirfram
ákvarðað og verði ekki breytt. (10)
LÓÐRÉTT
1. Spilaþraut fyrir einn mann. (6)
2. Byggingareining kjarnsýru, íslenskt heiti yfir núk-
leótíð. (5)
3. Byggð sem var vestar en Bolungarvík en er nú
bara sumarbústaðabyggð. (8)
4. Eyðimerkurrefurinn. (6)
5. Gyðingur sem hýsti Óliver Tvist. (5)
6. Bresk fréttastofa sem dreifir fréttum um allan
heim. (7)
7. „______ efla alla dáð.“ (8)
11. _____ Depardieu, einn þekktasti leikari Frakk-
lands. (6)
13. Kryddjurt af sveipjurtaætt en bragðmikil fræ
hennar eru notuð sem krydd. (5)
15. Höfuðborg Eistlands. (7)
17. Blátt afbrigði gimsteinsins kórúnds (5)
20. Latneskt kvæði um móður Krists sem hefst svo í
íslenskri þýðingu: „Stóð að krossi sefa sárum
sorgum bitin, drifin tárum, móðir þar sem mögur
hékk.“ (6,5)
22. Frumefni (tákn Cs), silfurhvítur alkalímálmur. (5)
23. Hemlar í bílum gerðir úr núningsþolnu efni. (12)
24. Einföld íslensk hús þar sem allt var undir einu
þaki eldhús, svefnhús og vinnustaður. (7)
26. Arfgeng yfirstétt. (5)
27. Gálgi sem bjargbátur hangir í. (8)
28. Fylki í Sviss. (ft.) (8)
30. „í lágan ____ var lagður hann þó lausnarinn
heimsins væri.“ (5)
31. Haf sem að hluta er umlukt meginlöndum. (6)