Morgunblaðið - 07.02.2009, Síða 44
44 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 2009
Fólk
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÞETTA er bara mjög jákvætt fyrir hana. En ég
vísa þessu annars bara til föðurhúsanna,“ segir
athafnamaðurinn Fjölnir Þorgeirsson þegar um-
mæli fyrrverandi kærustu hans, Kryddpíunnar
Mel B, eru borin undir hann. Í frétt sem birt var
á mbl.is í gær var haft eftir söngkonunni að hún
byggi yfir „meiri kynorku en nokkur sem hún
hefur kynnst um ævina.“ Þá sagði hún að eig-
inmaður hennar, Stephen Belafonte, væri eini
maðurinn sem hún hefði nokkru sinni verið með
sem næði að halda í við hana í rúminu. „Já, það
er allavega jákvætt að hann geti sinnt henni,“
segir Fjölnir og hlær.
Fjölnir og Mel B áttu í ástarsambandi í um eins
og hálfs árs skeið frá 1996 til 1997 og vakti sam-
band þeirra mikla athygli, hér á landi sem og er-
lendis, enda skein stjarna Spice Girls hvað skær-
ast á þeim tíma. Kryddpían lét meðal annars
hafa eftir sér í fjölmiðlum á sínum tíma að ís-
lenskir karlmenn væru þeir bestu sem hún hefði
kynnst á öllum sviðum, og því segir Fjölnir nýj-
ustu ummæli hennar skjóta svolítið skökku við.
„Íslenskir karlmenn eru langbestir og hún
ætti bara að fara og láta kíkja á sig, ég hugsa að
hún sé nú bara með alzheimer,“ segir Fjölnir í
léttum dúr.
„Annars er ég nú trúlofaður annarri konu í
dag og gamlar kærustur eiga ekki séns í hana,“
segir Fjölnir að lokum.
Fjölnir segir Mel B líklega bara með alzheimer
Morgunblaðið/Golli
Alvöru Fjölnir sýndi af sér mikla karlmennsku
þegar hann bjargaði hestum úr Tjörninni í vikunni.
Margir sperrtu eflaust eyrun
þegar auglýsingar þess efnis að
hljómsveitin Papar hefði breytt
nafni sínu í Hrafna fóru að hljóma á
Rás 2 nú í vikunni. Málavextir eru
þeir að Papar voru lagðir niður fyr-
ir tæpum tveimur árum en í kjölfar-
ið stofnuðu banjó- og bassaleikari
sveitarinnar hljómsveitina Kelta.
Stuttu síðar ákváðu þeir félagar að
breyta nafni Kelta í Papa, við litla
hrifningu þeirra Matthíasar Matt-
híassonar og Páls Eyjólfssonar,
sem jafnan eru kallaðir Matti Papi
og Palli Papi. Hinir nýju Papar
ákváðu því að breyta nafni sveit-
arinnar í Hrafna.
Þetta mun ekki vera í fyrsta
skipti sem tilraun til að taka hljóm-
sveitarnafn „ófrjálsri hendi“ er
gerð á Íslandi. Þannig er fræg sag-
an af Hljómsveit Geirmundar Val-
týssonar sem var á tónleika-
ferðalagi um landið seint á níunda
áratugnum. Eftir hávaðarifrildi í
rútu uppi á miðri heiði rauk einn
hljóðfæraleikaranna út úr rútunni,
og áður en hann skellti á eftir sér
öskraði hann: „Ég er hættur í band-
inu. Og ég tek nafnið með!“
Papar, Hrafnar, Keltar
og Geirmundur
Hún hefur eflaust vakið athygli
allra starfandi tónlistarmanna í
landinu, fréttin um að sátt hefði
náðst í deilumáli TÍ og FTT er
snertir punktafyrirkomulagið svo-
kallaða. Poppurum hefur lengi
sviðið óréttlætið sem þeir telja sig
verða fyrir en fyrirkomulagið
gamla sagði til um að alvarlegri
verk (lesist: verk tónskálda í TÍ)
fengju fleiri punkta og þ.a.l. meira
greitt fyrir hverja mínútu í útvarpi
en verk af „léttari“ toga (lesist:
verk tónskálda í FTT). Nú verður
þessu hins vegar breytt ef allt
gengur eftir og popparar geta séð
fram á betri tíð og stútfull seðla-
veski. Eða hvað? Líklega ekki. Um
er að ræða litlar upphæðir sem
flestir eiga ekki eftir að merkja við
næstu úthlutun STEF-gjalda. En
réttlætinu hefur í það minnsta verið
fullnægt.
Réttlætinu
loksins fullnægt
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
„ÞETTA er ferðasaga en bara í mín-
um sjónræna skilningi. Hvert og eitt
verk er fyrir mér brot til að virkja
ímyndunaraflið
hjá áhorfand-
anum,“ segir
listamaðurinn
Sara Riel um sýn-
inguna Return
Ticket sem verð-
ur opnuð í Kling
& Bang-galleríi í
dag. Sýningin
byggist á sýning-
unni Made in
China sem Sara vann í Xiamen í
Kína fyrir ári.
Sara segir að verkin sem hún
vann í Kína séu aðeins undirstaðan
að sýningunni hér heima, hún hafi
síðan unnið að því, heim komin, að
skilja tímann í Kína utan að frá.
„Verkin hafa verið að þróast frá því
þau voru síðast sýnd og nýju verkin
eru framhald á hugmyndum og
minningum þar sem ég velti fyrir
mér reynslu frá tímabilinu í Kína frá
nýju sjónarhorni. Nýju verkin eru
unnin út frá heimkomunni, þessi til-
finning að koma til baka, það er far-
miðinn heim.
Kínaverkin voru unnin út frá
þeirri upplifun að vera stödd á nýj-
um stað, rekast á nýjar upplifanir og
þeirri tilfinningu að vera einangruð í
einu fjölmennasta landi heims,“ seg-
ir Sara en einangrunin náði yfir
fleira en tungumálaörðugleika.
„Það töluðu fáir ensku og því var
erfitt að skapa persónuleg tengsl til
að öðlast dýpri skilning á því hvar
maður er í gegnum fólkið. En þegar
ég kom í þennan háskólabæ, Xia-
men, voru allir í vorfríi og borgin
tæmdist þannig að fyrsta mánuðinn
var ég mjög ein og var því óneit-
anlega þvinguð í þá aðstöðu að þurfa
að kryfja sjálfa mig,“ segir Sara og
bætir við að áhrifa frá tai chi og
kenningum því tengdum gæti líka í
verkum sínum. „Ég var í tai chi-
kennslu allan tímann og meistarinn
minn hafði mikil áhrif á mig, við átt-
um alltaf gott spjall áður en við fór-
um að æfa.“
Á leið til Grænlands
Return Ticket samanstendur af
innsetningum, málverkum, ljós-
myndum, vídeói, klippimyndum og
teikningum. Sýningin stendur til 8.
mars en fleira er í deiglunni hjá Söru
því hún er listamaður febr-
úarmánaðar hjá SÍM og opnar sýn-
ingu tengda því á safnanótt, 13. febr-
úar.
„Ég er svo vonandi að fara til
Grænlands til að vinna, er með brjál-
aða hugmynd sem tekur mig örugg-
lega ár að búa til. Sú sýning mun
heita Náttúrufræðingurinn og fyrir
hana þarf ég að ferðast og skoða
náttúrufræðisöfn og dýragarða.“
Sara er þekkt fyrir flottar graffití-
skreytingar sínar víða um Reykjavík
og aðrar borgir heimsins. Spurð
hvort hún sé að vinna að einhverjum
slíkum verður hún leyndardómsfull.
„Ég er alltaf að vinna í þeim. En nýj-
asta verkið er of stórt og brútal til að
segja frá því.“
Return Ticket verður opnuð kl. 17
í dag og á opnuninni munu plötu-
snúðarnir KGB & DÖH koma fram.
Farmiðinn aftur heim
Sara Riel opnar Return Ticket í Kling & Bang í dag Veltir fyrir sér dvölinni
í Kína og því að snúa aftur heim Tai chi-áhrifa gætir einnig í verkum hennar
Morgunblaðið/Heiddi
Return Ticket Myndlistamaðurinn Sara Riel lærði Tai Chi í Kína og gætir áhrifa frá því og kenningum því tengdu í
verkum hennar; mikilvægi flæðis og að finna jafnvægi í öllu. Verkin má sjá í Kling & bang galleríi á Hverfisgötu 42.
Sara Riel
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
NÝFALLINN dómur Héraðsdóms
Reykjaness í máli STEFs gegn
Istorrent og Svavari Lútherssyni,
stofnanda þess, hefur vakið tal-
verða athygli meðal torrentáhuga-
manna hér á landi, ekki síst fyrir
það að í dómnum er kveðið skýrt
uppúr með það að Istorrent og
Svavar beri ábyrgð á hugsanlegum
lögbrotum notenda vefsetursins
þar sem starfsemin hafi greinilega
verið beinlínis til þess að auðvelda
mönnum að skiptast á höfund-
arréttarvörðu efni.
Þetta hefur orðið þeim til um-
hugsunar sem reka íslenska tor-
rent-vefi og þannig lagði torrent-
síðan thevikingbay.org upp
laupana í kjölfar dómsins eins og
lesa má í tilkynningu á síðunni
dómsuppkvaðningardaginn:
„Við hjá TheVikingBay höfum
ákveðið að aðskilja okkur al-
gjörlega frá Torrent heiminum frá
og með deginum í dag.“.
Ýmsar ástæður eru tíndar til og
þar á meðal þessi:
„Einnig eftir að dómurinn gegn
Torrent.is var kveðinn upp ák-
vöddum við að það væri ekki þess
virði, gagnvart okkur, að eltast við
þann draum um frelsi á netinu,
þegar í endann verðum við lokaðir
inní litlum klefa seinna meir.“
Enn eru þó reknar íslenskar
torrent-síður, til að mynda rTor-
rent og Deiling.is, en líklegt verð-
ur að telja að STEF, og eins ein-
stakir útgefendur og listamenn,
muni einnig höfða mál á hendur
þeim í framhaldi af dómi Héraðs-
dóms.
Istorrent-dómur kveikir ótta
í brjósti torrentáhugamanna
Morgunblaðið/Ómar
Barátta Plata Páls Óskars rataði inn á Torrent.is og hann var meðal vitna.
The thevikingbay.org leggur upp laupana
Sara Riel býr og starfar í Reykja-
vík. Hún útskrifaðist úr Kunst-
hochschule Berlin-Weissensee
2005 og yfirgaf skólann 2006
eftir að hafa unnið til DAAD-
verðlauna og verið sæmd titl-
inum Meisterschüler. Strax á
námsárunum varð Sara virk í
sýningarhaldi, bæði í hvítum
kössum sem og á götum ýmissa
borga víðsvegar um heiminn, þar
sem hún varð frekar áberandi í
Urban art-senu Evrópu.
Fædd 1980