Morgunblaðið - 07.02.2009, Side 45
Menning 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 2009
ÁHEIMASÍÐU sinni er Dr.Gunni nánast hissa á því aðLux Interior, fyrrverandi
söngspíra költsveitarinnar The
Cramps, hafi gefið upp öndina síð-
astliðinn miðvikudag. Hann hafi
einfaldlega verið of kúl til að deyja.
Doktorinn er síst einn um þessaskoðun, en The Cramps var
algerlega einstök sveit, þreifst í
skjóli pönksins til að byrja með en
var þó alla tíð sólkerfi út af fyrir
sig. Hrátt rokkabillí lá til grund-
vallar tónlist sveitarinnar en
Cramps fór að sjálfsögðu ekki var-
hluta af byltingu pönksins og þegar
áhrif þess fléttuðust inn í rokk-
abillíið varð til ný stefna sem eign-
uð er sveitinni, svokallað sýrubillí
eða „psycho-billy“. Þetta form náði
kirfilegri fótfestu í Bretlandi upp
úr 1980 (Meteors, Guana Batz), náði
ströndum Íslands (Oxzmá) og má
heyra í dag hjá sveitum eins og The
Horrors.
Hvað svalleika varðar voru Lux
og kona hans, Poison Ivy, gítarleik-
ari Cramps, ósnertanleg. Ofur stíl-
iserað útlitið sem sótti m.a. í tísku
sjöunda áratugarins og dufl við b-
myndir og hrollvekjur gerði að
verkum að parið virtist ekki af
þessum heimi; þau voru nánast eins
og lifandi teiknmyndafígúrur.
Þessi sterka áhersla á útlit ogímynd þýðir þó ekki að Lux og
co hafi fyrst og fremst verið yf-
irborðslegar tískudrósir. Allt var
þetta órofa partur af heildarmynd
sem náði dýpra en svo að þetta væri
„bara rokk og ról“. Lux greindi
ekki á milli lífs og listar og tilþrif
hans á sviði voru ótrúleg þar sem
hann hentist um sviðið í kven-
mannsnærbuxum einum fata
(stundum nakinn) í hamslausri inn-
lifun. Til hliðar stóð Poison Ivy
keik; hamraði á gítarinn en brá
varla svip á meðan. Það þarf vart
að taka fram að Cramps og hjónin
ómótstæðilegu njóta mikillar költ-
hylli en litlir, harðsnúnir aðdáenda-
hópar leynast í öllum heimshornum
og þegar netið er skannað er ljóst
að missirinn að Lux er mikill.
Goðsagan segir að Lux (ErickPurkhiser) hafi pikkað verð-
andi konu sína, Poison Ivy (Kristy
Wallace), upp í bílinn sinn sem
puttaferðalang. Þetta átti sér stað í
Sacramento, Kaliforníu, árið 1972
og voru þau bæði í listnámi við há-
skólann þar. Ást þeirra á gömlu (og
skringilegu) rokki, göldrum og b-
myndum rak þau svo til New York
þremur árum síðar. Hið forboðna;
hvort heldur í trú, kynlífi eða tón-
list höfðaði sterkt til parsins og var
rusl- og afgangamenning Ameríku
þeim mikill innblástur. Segja má að
Cramps hafi fundið fegurðina í
ógeðinu og ömurðinni.
Það var Alex Chilton, leiðtogi
annarrar költsveitar, Big Star, sem
tók upp fyrstu plötur Cramps en
upptökurnar voru gerðar í Memp-
his, fæðingarstað rokksins, og
komu fyrstu lögin út á tveimur sjö
tommum árið 1978. Fyrsta breið-
skífan, Songs The Lord Taught Us,
kom út 1980 og er jafnan nefnd sem
tónlistarlegur hápunktur sveit-
arinnar.
Mikið rennerí hefur verið ámeðlimum sveitarinnar og
voru hjónakornin einu föstu með-
limirnir. Þegar önnur plata sveit-
arinnar, Psychedelic Jungle, kom
út árið 1981 var sveitin komin aftur
til Kaliforníu og Kid Congo Powers
úr hinni merku sveit Gun Club
genginn til liðs við sveitina. Plötur
komu út reglubundið allt fram á
þennan dag, með mislöngu millibili.
Sama má segja um tónleika sem
voru mikil helgistund í augum og
eyrum hinna heittrúuðu sem lögðu
óhikað á sig ferðalög um fjöll og
firnindi til að berja goðin augun, og
á meðal þeirra nokkrir Íslendingar.
Framtíð The Cramps er óvissubundin eftir fráfall Lux. Hann
var 62 ára er hann sneri sínum of-
ursvölu tám í loft upp en leit út fyr-
ir að vera tíu árum yngri, hið
minnsta. Hvíli hann í friði en von-
andi verður arfleifð hans til þess að
stuðla að styrkjandi ófriði á rokk-
sviðum heimsins. Ástríða Lux var
mjög svo tilfinnanleg, á tónleikum
Cramps fundu áhorfendur sig sem
hluta af gjörningnum, sveitin
hrærði í fólki og það var heilnæm
hætta í loftinu. Af slíku er aldrei
nóg.
Tjaldið ýkta fallið
AF LISTUM
Arnar Eggert Thoroddsen
»Hið forboðna; hvortheldur í trú, kynlífi
eða tónlist höfðaði
sterkt til parsins og var
rusl- og afgangamenn-
ing Ameríku þeim mikill
innblástur. Segja má að
Cramps hafi fundið feg-
urðina í ógeðinu og öm-
urðinni.
Magnþrota Lux liggur á sviðinu. Þessi ótrúlega mynd minnir óneitanlega á málverk eftir ítölsku meistarana.
Þjóðleikhúsið
Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is
Hart í bak
Jökull Jakobsson
Hrífandi verk sem snertir okkur öll
EB, FBL
sun. 7/2 örfá sæti laus
Sýningum lýkur í mars
Sumarljós
Jón Kalman Stefánsson
leikgerð og leikstjórn Hilmar Jónsson
Hrífandi, einlæg og æsandi sýning
sun. 8/2 örfá sæti laus
sun. 15/2 örfá sæti laus, síðasta sýning
Kardemommu-
bærinn
Thorbjörn Egner
Frumsýning 21. febrúar
Miðasala í fullum gangi!
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Heiður
Joanna Murray-Smith
Drepur girndin ástina?
JVJ, DV
lau. 7/2 örfá sæti laus
lau. 14/2 örfá sæti laus
Sýningum lýkur 28/2
Skoppa
og Skrítla
snúa aftur í febrúar!
Minnum á Samstöðukortin
Fim 12/2 kl. 20:00 aukas.
Lau 14/2 kl. 19:00
Fös 20/2 kl. 19.00
Lau 7/3 kl. 19:00
Fös 13/3 kl. 19.00
Lau 14/3 kl. 19.00
Sun 22/3 kl. 19.00
Lau 28/3 kl. 19.00
Yfir 130 uppseldar sýningar. Áhorfendasýning ársins 2008.
Fló á skinni (Stóra sviðið)
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
Fólkið: Sýningum lýkur í febrúar!
Lau 7/2 kl. 20.00 6. kort
Fim 12/2 kl. 20.00
Fös 13/2 kl. 20.00
Lau 14/2 kl. 20.00
Fim 26/2 kl. 20.00
Fös 27/2 kl. 20.00
Lau 28/2 kl. 20.00
Fös 6/3 kl. 20.00
Ath! Bannað innan 16 ára. Ekki fyrir viðkvæma. Aðeins sýnt í febrúar og mars.
.
Fös 13/2 kl. 22:00 aukas.
Lau 14/2. kl. 19:00 aukas.
Lau 21.2 kl. 19:00 8. kort
Lau 21/2 kl. 22:00 aukas.
Sun 22/2 kl. 20:00 9. kort
Mið 25/2 kl. 20:00 10. kort
Fim 26/2 kl. 20:00
Fös 27/2 kl. 19:00
Leiklestrar á verkum Söru Kane.
Ást Fedru - 10. febrúar. Hreinsun - 17. febrúar. Þrá - 24. febrúar. 4:48 geðtruflun - 3. mars – 1.500 kr.
Sannleikurinn, einleikur Péturs Jóhanns (Litla sviðið)
Sýningum lýkur í febrúar á vinsælasta söngleik leikársins.
Fólkið í blokkinni (Stóra sviðið)
Lau 7/2 kl. 19:00
Lau 7/2 kl. 22:00
Fös 13/2 kl. 19:00 aukas.
Fös 13/2 kl. 22:00 Lau 21/2 kl. 19:00
Lau 21/2 kl. 22:00 síð. sýn.Lau 14/2 kl. 13:00
Lau 21/3 kl. 19.00
Lau 7/3 kl. 20.00
Sun 8/3 kl. 20.00
Fös 13/3 kl. 20.00
Lau 14/3 kl. 20.00
Fös 20/2 kl. 22.00 aukas
Lau 7/2 kl. 19:00 2. kort
Lau 7/2 kl. 22:00 aukas
Sun 8/2 kl. 20:00 3. kort
Mið 11/2 kl. 20:00 4. kort
Fim 12/2 kl. 20:00 5. kort
Fös 13/2 kl. 19:00 6. kort
Lau 14/2 kl. 22:00 aukas.
Sun 15/2 kl. 20:00 aukas.
Fös 20/2 kl. 19:00 7. kort
Fös 20/2 kl. 22:00
Mið 18/2 kl. 20:00aukas.
Fim 19/2 kl. 20:00 aukas.
Fös 27/2 kl. 19.00
Lau 28/2 kl. 19.00
Lau 28/2 kl. 22.00
Sun 1/3 kl. 20.00
HEIMILDARMYND eftir Alan G. Parker sem
rannsakar dauða Nancy Spungen, fyrrver-
andi unnustu Sid Vicious, var frumsýnd í gær
í Bretlandi. Kallast hún Who Killed Nancy?
og byggist á bók Parker, Sid Vicious: No One
is Innocent, frá því í haust.Vicious var sem
kunnugt er bassaleikari Sex Pistols og ein
helsta táknmynd „pönkarans“ í samtíma-
menningu. Hann var handtekinn árið 1978,
grunaður um að hafa myrt Spungen og ári
síðar lést hann úr of stórum skammti af eit-
urlyfjum, aðeins 21 árs að
aldri. Í myndinni leitast
leikstjórinn við að hreinsa
nafn Vicious með góðri
hjálp frá fyrrverandi um-
boðsmanni Sex Pistols,
hinum litríka Malcolm
McLaren. Sá síðarnefndi
er sannfærður um sakleysi Vicious og segir
Spungen hafa látist eftir átök við innbrots-
þjóf.
Sid drap ekki Nancy
Nancy Spungen
KEFLVÍSKA rokksveitin Deep Jimi and the
Zep Creams reis úr öskustó árið 2005 og hef-
ur svipt upp sveittum rokktónleikum með
nokkuð reglubundnum hætti síðan. Jafnan
stilla þeir félagar magnarana á ellefu og ætl-
ar sveitin að leggja undir sig Grand Rokk í
kvöld en á dagskrá verða lög eftir Jimi Hend-
rix, Led Zeppelin, Deep Purple og Cream.
Eðlilega. Inn í þá blöndu verður svo fléttað
frumsömdu efni en fjórða breiðskífa sveit-
arinnar er í vinnslu nú um stundir og er áætl-
að að hún komi út seinna á
þessu ári. Síðast kom út
plata 2005, samnefnd þess-
ari eðlu sveit. Hljómsveitin
er skipuð sem fyrr þeim
Birni Árnasyni, bassa- og
hljóðmborðsleikara, Júlíusi
Frey Guðmundssyni
trymbli, Sigurði Eyberg
Jóhannessyni, söngvara með meiru, og Þór
Sigurðssyni gítarleikara.
Deep Jimi á Grand Rokk
Júlíus Freyr
Guðmundson