Morgunblaðið - 07.02.2009, Qupperneq 52
LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 38. DAGUR ÁRSINS 2009
4) ,5&) /
+,
67889:;
&<=:8;>?&@A>6
B9>96967889:;
6C>&BB:D>9
>7:&BB:D>9
&E>&BB:D>9
&3;&&>!F:9>B;
G9@9>&B<G=>
&6:
=3:9
.=H98?=>?;-3;H&B;@<937?I:C>?
J
J
J% J J
J
J%
J%
%J%
?)$
$ !)/
J
J
J% J
J
J %J
J . B#2 &
J
J J J
J%
J%
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 250 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Ingimundur baðst lausnar
Ingimundur Friðriksson, einn
þriggja bankastjóra Seðlabankans,
hefur beðist lausnar frá embætti frá
og með næsta mánudegi. Eiríkur
Guðnason baðst ekki lausnar og Dav-
íð Oddsson hefur ekki svarað. »2
Settur í gæsluvarðhald
Ekki hafði verið brotist inn um dyr
dúfnakofans þar sem lík konu á fer-
tugsaldri fannst. Sambýlismaður
hennar hefur verið handtekinn vegna
gruns um aðild að andlátinu. »2
Kæra íbúðakaup í Köben
Hópur íslenskra kaupenda hót-
elíbúða í Kaupmannahöfn hefur
stefnt eigendum og starfsmönnum
fasteignasölunnar Stórhúsa. »15
Fleiri fara í Bláa lónið
Innlendum gestum Bláa lónsins
fjölgaði um 29% milli janúarmánaða.
Erlendum gestum fjölgaði einnig og
voru gestir alls 17.092 í janúar. Fleiri
fara einnig í sund í Laugardalslaug-
inni. 20 þúsundum fleiri voru þar í
janúar í ár en í fyrra. »4
SKOÐANIR»
Ljósvakinn: Ekkert væl!
Forystugreinar: Margfalt meira mál
| Trúnaðarmenn ráðherra
Pistill: Lýðræðið þitt eða vald sér-
fræðinganna?
Staksteinar: Indriði er hress
UMRÆÐAN»
Ekki eða heldur og
Stjórnarskráin og „góð verk“ Þor-
gerðar
Ofbeldi og valdníðsla
Börn: Sköpunarkraftur í
Kramhúsinu
Lærum að vera jákvæð
Lesbók: Með Messíasi við kassann
Litróf lækningarinnar
BÖRN | LESBÓK»
Heitast 0° C | Kaldast -12° C
Suðaustan 8-15 m/s
og él s- og v-lands en
annars hægara og
bjart með köflum.
Kaldast inn til landsins. » 10
Kammersveit
Reykjavíkur verður
með tónleika á
Myrkrum mús-
íkdögum annað
kvöld. »42
MENNING»
Íslenskt og
tékkneskt
FÓLK»
Aðalbjörg Ósk og Vaka
höfðu betur. »43
Arnar Eggert Thor-
oddsen fjallar um
söngvara The
Cramps, Lux Int-
erior, er lést á dög-
unum. »45
TÓNLIST»
Allt um Lux
Interior
FÓLK»
Christian Bale biðst af-
sökunar. »51
FÓLK»
Fjölnir segir Mel B vera
með Alzheimer. »44
Menning
VEÐUR»
1. Handtekinn vegna mannsláts
2. Ætlaði ekki að trúa þessu
3. Styrking getur komið sér illa
4. Var sambýlismaður hinnar látnu
Íslenska krónan styrktist um 0,69%
»MEST LESIÐ Á mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
Fjallayndi Það var fagurt í Bláfjöllum í gær í ljósaskiptunum. Í baksýn er byrjenda- eða barnabrekkan.
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur
ben@mbl.is
„ÞAÐ er rosalegt fjör í sölunni, ég
hef aldrei upplifað annað eins,“ seg-
ir Guðmundur Gunnlaugsson, eig-
andi verslunarinnar Íslensku alp-
anna, um eftirspurnina eftir
skíðabúnaði. Mikil örtröð hefur ver-
ið í skíðaverslunum undanfarna
daga og eru vörur víðast hvar upp-
seldar eða á góðri leið með að verða
það.
Undir orð Guðmundar taka flestir
kollegar hans í skíðaverslununum.
„Það er alveg vitlaust að gera,“ seg-
ir Birna Hermannsdóttir, versl-
unarstjóri í Everest. „Við skárum
niður pantanirnar um 30% frá í
fyrra því við bjuggumst við minni
verslun en það hefði þurft að bæta
við,“ segir Viðar Freyr Viðarsson
hjá Skíðaþjónustunni á Akureyri.
Tómar hillur í skíðabúðum eru þó
fleiru að kenna en spám um sam-
drátt á þessu sviði. „Þegar til stóð
að taka vörurnar inn í haust var
ástandið hvað verst, evran var í 190
krónum og engar bankaábyrgðir
fengust,“ segir Rúnar Theodórsson,
verslunarstjóri í Markinu. „Þá bið-
um við aðeins enda fyrirséð að verð-
ið yrði 100% hærra en í fyrra. Þegar
gengið hafði skánað stóð til að taka
þetta inn en þá voru birgjarnir bún-
ir að selja öðrum okkar pantanir.“
Svipaða sögu hefur Gísli Páll
Hannesson hjá Útilífi að segja. „Í
haust fengum við skammtaða
ákveðna upphæð í evrum til að
kaupa fyrir. Reyndar skárum við
líka niður pantanirnar því við héld-
um að það væri kreppa. En und-
anfarnar vikur er búið að vera eins
og um páska.“
Notaðar græjur eru einnig vin-
sælar, eins og Viðar hjá Skíðaþjón-
ustunni staðfestir. „Það er mjög
mikið spurt um notað.“ Undir þetta
tekur Birna í Everest sem er byrjuð
að höndla með notaðar skíðavörur.
„Skíði stoppa hér í svona kortér til
hálftíma og þá eru þau farin.“ Skíða-
fólk getur þó huggað sig við að búð-
irnar eiga flestar von á nýjum send-
ingum á næstu dögum og vikum.
Menn eru sammála um að snjór
og gott veður undanfarið valdi þess-
ari miklu eftirspurn. „Ég held að
stóran hluta megi líka skýra með því
að fólk er hætt að fara til útlanda í
skíðaferðir og skíðar frekar heima,“
segir Rúnar í Markinu. Guðmundur
í Íslensku ölpunum telur breytt hug-
arfar hafa sitt að segja. „Ég held að
fólk hafi dregið mikið úr lífsgæða-
kapphlaupinu og sé farið að líta sér
nær. Enda þegar foreldrarnir hafa
minni vinnu en áður hafa þeir meiri
tíma fyrir börnin sín.“
Skíðabúnaður rýkur út
Margar vörutegundir nánast uppseldar í verslunum
Mikil og vaxandi eftirspurn er eftir notuðum búnaði
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Alfreð Flóki Mikill bóhem og afar
sérstæður sem listamaður.
ALFREÐ Flóki var ein af barn-
fóstrum Helga Hjörvars alþing-
ismanns í Kaupmannahöfn en þeir
Úlfur, faðir Helga, voru vinir.
„Einu sinni fóru pabbi og mamma í
ferð til Póllands og ég var skilinn
eftir hjá Flóka. Þegar þau komu
heim var sagt að á öllum búllunum
á leiðinni frá dagmömmunni og
heim til Flóka hefðu menn þekkt
fimm ára gamlan strákinn með for-
nafni og vitað hvernig hann vildi fá
appelsínið sitt!“
Þessi saga Helga Hjörvar af
myndlistarmanninum Alfreð Flóka
er meðal annarra í Lesbók í dag þar
sem fjallað er um sýningu er opnuð
var á Kjarvalsstöðum í vikunni.
Lesbók | 6-7
Í fóstri
hjá Flóka
Ákveðið var í vikunni að lengja þann
tíma sem opið er í Bláfjöllum og
Skálafelli um klukkustund á virkum
dögum. Að sögn Einars Bjarnason-
ar, rekstrarstjóra í Bláfjöllum, var
ákvörðunin tekin vegna „gríð-
arlegrar aðsóknar“ í fjöllin. „Við
höfum verið að fá 2-3 þúsund
manns hér á virkum dögum og 5-7
þúsund um helgar,“ segir hann og
bætir því við að árskortasalan hafi í
ár farið fram úr öllum vonum. „Ég
held að við höfum aldrei séð annað
eins.“ Einar er ekki í vafa um skýr-
ingarnar á aukinni aðsókn. Nú skíði
fólk heima fyrir í stað þess að eyða
háum fúlgum í skíðaferðir til út-
landa. „Þetta er eins fyrir norðan
og alls staðar erlendis þar sem
komið er eitthvert krepputal. Í Finn-
landi hefur t.d. aðsókn í fjöl-
skyldugarða og annað slíkt á
heimaslóðum aukist til muna.
Þannig að við erum ánægðir með
kreppuna og viljum bara hafa hana
áfram,“ segir hann hlæjandi.
„Erum ánægðir með kreppuna“
KLETTASALAT telst varla til
grunnfæðu. Grænmetið er samt
sem áður lykilatriði í flatbökugerð
á heimili
Aurateljara.
Verðskyn
er ekki helsta
náðargáfa
karlmanna á
fimmtugs-
aldri, en í ljósi
„ytri að-
stæðna“ í ís-
lensku sam-
félagi vöktu
mismunandi umbúðir um klettasal-
atið í Krónunni athygli. Lambhagi
býður fram sitt klettasalat í 150 g
pakkningu og sá skammtur kostaði
539 kr. Pakkningin fá Náttúru veg-
ur 75 g og í gær kostaði varan 498
kr.
Umtalsverður munur, eða 85%.
Bílrúðurnar verða óhreinar í því
veðurfari sem nú ríkir. Verð á bíl-
rúðuhreinsi er eflaust afar mismun-
andi. Í Olís kostar 1 ltr. 216 kr. og
þolir sá vökvi allt að 18 gráða frost.
Það var ekki 18 gráða frost í gær
og afar sjaldgæft að slíkt frost sé
ríkjandi á Íslandi.
Aurateljari þynnti því rúðu-
hreinsinn með 1 ltr. af ókeypis
vatni og það dugði ágætlega.
seth@mbl.is
Auratal
85% munur Kletta-
salat er kalkríkt.