Morgunblaðið - 19.02.2009, Page 42

Morgunblaðið - 19.02.2009, Page 42
42 MenningFRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2009 KANADÍSKI rithöfundurinn Margaret Atwood hefur hætt við þátttöku í alþjóðlegri bók- menntahátíð í Dubai, sem kennd er við Emirates Airl- ine. Tók hún ákvörðunina eft- ir að rithöfund- urinn Geraldine Bedell var sett á svartan lista í arabísku fursta- dæmunum, fyrir „mögulega móðgun“ við menningu og siði þar. Atwood, sem var gestur Bók- menntahátíðar í Reykjavík árið 2005, er varaforseti Pen, hinna al- þjóðlegu samtaka rithöfunda. Samkvæmt The Guardian hefur stjórn Pen ritað stjórnanda hátíð- arinnar bréf, þar sem harmað er hvaða afstaða hefur verið tekið gagnvart skáldsögu Bedell, The Gulf Between Us. „Ég hlakkaði til hátíðarinnar og að hitta lesendur þar, en sem varaforseti Pen – samtaka sem bera rétt höfunda til að tjá sig fyrir brjósti – þá get ég ekki tekið þátt í hátíðinni í ár,“ segir í bréfi sem Atwood birti á heimasíðu sinni. Saga Bedell er rómantísk gam- ansaga sem gerist í ímynduðu furstadæmi við Persaflóa. Til stóð að bókin kæmi formlega út á há- tíðinni en stjórnendurnir báru síð- an fyrir sig að af því gæti ekki orðið, þar sem íslam og Persaflóa- stríðið koma við sögu. Þá er ein persónanna samkynhneigður fursti. Atwood hættir við Margaret Atwood Fer ekki til Dubai Kvikmynda- framleiðendur hafa lýst yfir áhuga á húseign- unum við Sætún 8, þar sem Kaffi- brennsla Ó. Johnson & Kaab- er og Heimili- stæki voru áður. Stofnun Fran- cescu von Habs- burg, dánarbú Dieters Roth og Ný- listasafnið hafa einnig lýst yfir áhuga á húsunum fyrir listamiðstöð. Húsin eru alls á áttunda þúsund fer- metrar. „Við leggjum fljótlega fram til- boð,“ segir Ari Kristinsson, einn þeirra sem eru í forsvari fyrir kvik- myndagerðarmenn. „Þarna eru skemmur sem virka ágætlega fyrir stúdíó, vel innréttað skrifstofu- húsnæði, og allskyns geymslur. Það virðist vera mikill áhugi hjá fólki í þessum geira að vinna saman þarna. Á næstunni verður samdráttur og ef bæði fyrirtæki og frílansfólk flytja þarna inn, geta þessir aðilar leitað hver til annars, auk þess að sameinast um stúdíó. Í því fælist veruleg hagkvæmni,“ segir Ari. „Þarna mætti fara inn og hefja starfsemi án mikils kostnaðar.“ Gögn um húsnæðið birtast á næstu dögum á heimasíðu Sam- bands íslenskra kvikmynda- framleiðenda. „Mér heyrist að við náum alveg að fylla þetta,“ segir Ari. „SÍK hefur forystu um þessa samvinnu en hún ætti að vera öllum framleiðendum til hagsbóta.“ efi@mbl.is Vilja Sæ- túnshúsin Ari Kristinsson ÁSMUNDUR Ásmundsson myndlistarmaður verður í sófa- spjalli í fjölnotasal Hafnar- hússins í kvöld kl. 20. Í sófaspjallinu mun Ásmund- ur bregða upp svipmyndum af hugmynda- og vinnuferli sínu og sýna verk sem tengjast sýn- ingu hans, Holu, í Hafnarhús- inu og spjalla við gesti um til- urð verksins, en það var unnið með hjálp skólabarna. Einnig verður tæpt á umfjöllunarefnum Ásmundar sem snerta listir og samfélagið úr skrifum hans fyrir Viðskiptablaðið. Klara Þórhallsdóttir myndlistarmaður mun stjórna umræðum. Myndlist Sófaspjall í Hafnar- húsinu Ásmundur Ásmundsson GEIR Sigurðsson, lektor í kín- verskum fræðum, heldur á morgun, föstudag, fyrirlest- urinn Kínversk siðfræði og samfélagshyggja. Fjallað verður um hug- myndafræði konfúsískrar sið- fræði, ádeilur á hana frá vest- rænum og asískum sjónarmiðum og hlutverk hennar í samtímanum. Er þetta sjötti fyrirlesturinn af ellefu í fyrirlestraröðinni Siðfræði og samfélag sem Siðfræðistofnun stendur fyrir í tilefni 20 ára starfsafmælis stofnunarinnar. Fyrirlesturinn hefst kl. 15.15 í fyrirlestrasal Þjóðarbókhlöðunnar. Siðfræði Fyrirlestur um kín- verska siðfræði Geir Sigurðsson EFTIR jólabókaflóðið: Ynd- islestur með Einari Kárasyni, er heiti námskeiðs sem hefst hjá Endurmenntun Háskóla Íslands í kvöld. Í leshringnum verða lesnar sex til átta bækur frá síðasta ári. Áhersla verður á fjölbreytni og lesnar íslensk- ar skáldsögur, þýðingar og ljóð. Rithöfundar heimsækja hópinn og ræða við þátttak- endur um verk sín. Verkin verða sett í samhengi við samtímann, fyrri verk höfunda og þau rædd út frá ólíkum hliðum bók- menntafræðinnar. Fyrsta bókin í hringnum er Skaparinn eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur en hringurinn ákveður svo framhaldið í sameiningu. Bókmenntir Yndislestur með Einari Kárasyni Einar Kárason Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is CAPUT, sem lengi hefur verið merkisberi samtímatónlistarinnar á Íslandi, hefur þekkst boð vestur- þýska útvarpsins WDR um að leika á sérstökum útvarpstónleikum í beinni útsendingu í Köln. WDR pantaði af tilefninu ný verk hjá einu íslensku tónskáldi og öðru þýsku, þeim Atla Ingólfssyni og Günter Steinke. Vildu kynna íslenska tónlist Hugmynd WDR byggist á því að flytja íslenska tónlist fyrir þýska út- varpshlustendur ásamt því að stofna til samstarfs þekktra þýskra tónlist- armanna, þeirra Beate Zelinsksy, David Smeyers og Günter Steinke og Caput hópsins. Kolbeinn Bjarnason flautuleikari er talsmaður Caput. „Við erum ekki þannig að við reynum mikið að koma okkur sjálf á framfæri erlendis. Í þetta sinn var Caput boðið til Kölnar  Spila á tónleikum í beinni útsendingu hjá WDR  Tónleikahaldarar pöntuðu verk hjá Atla Ingólfssyni fyrir tónleikana  Verk Atla hljóðritað fyrir útvarpið Caput „Hugmynd WDR byggist á því að flytja íslenska tónlist fyrir þýska útvarpshlustendur,“ segir Kolbeinn. hringt í Guðna Franzson, – West- deutscher Rundfunk í Köln vildi bjóða okkur að halda tónleika 28. febrúar í sal útvarpsins, sem okkur er sagt að sé einn stærsti kamm- ermúsíksalur í Köln. Það var um þessa dagsetningu að ræða eða sleppa því. Við vorum hikandi til að byrja með því það gekk illa að manna sveitina og þeir sem spila með Sinfó uppteknir á þessum tíma. En okkur langaði mjög til að fara, og á endanum tókst okkur þetta.“ Tveir Íslendingar í Þýskalandi ganga til liðs við Caput í Köln, Ing- ólfur Vilhjálmsson klarínettuleikari sem er við framhaldsnám í Berlín, og Gerður Gunnarsdóttir fiðluleikari sem hefur búið ytra um árabil, en hún var einn af stofnendum Caput á sínum tíma. Vildu verk eftir Atla Ingólfsson „WDR vildi að við spiluðum verk eftir Atla Ingólfsson, og báðu líka um að þetta yrði langt prógram, tvisvar fjörutíu músíkmínútur í allt. Tónleikarnir eru liður í tónleikaröð útvarpsins og listrænn stjórnandi hennar, Frank Hillberg þekkti vel til tónlistar Atla.“ Efnisskrá tónleikanna verður viðamikil og er að sögn Kolbeins unnin í samvinnu við Þjóðverjana. Þrjú íslensk tónskáld eiga verk á tónleikunum, auk Atla eru það Haukur Tómasson og Snorri Sigfús Birgisson. Aðrir höfundar eru góð- kunningi Caput, danska tónskáldið Bent Sörensen, Steinke og rúm- enska tónskáldið Georg Balint sem Caput vann með í Rúmeníu í desem- ber 2007. „Rúmensku tengslin okkar eru sterk,“ segir Kolbeinn. „Við ímyndum okkur að við gerum Balint greiða með því að koma verki hans á framfæri í þýska útvarpinu og von- um að hann fái smá pening fyrir.“ Daginn eftir tónleikana verða nýju verkin tvö hljóðrituð, en WDR stendur straum af kostnaði við tón- leikana, upptökurnar og boð Caput til Þýskalands öðrum en ferðunum sem Caput fer með Loftbrúnni. Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is SIRKUSATRIÐI, er orð sem manni dettur í hug við þær sögur sem ganga af frumflutningi Fiðlukonserts Beethovens. Beethoven var á síðustu stundu að semja fiðlukonsertinn, en ein mesta vonarstjarna þess tíma, fiðluleikarinn Franz Clement átti að frum- flytja hann á tónleikum. Sagan segir að konsert- inn hafi ekki verið tilbúinn fyrr en tveimur dög- um fyrir tónleikana, og þá hafi jafnvel vantað eilítið upp á. Clement hafði því ekki mikinn tíma til að æfa verkið. Hann notaði því tækifærið á tónleikunum, lýsti frati á seinaganginn í Beetho- ven með því að hætta leik eftir fyrsta þátt kons- ertsins og spila þá verk eftir sjálfan sig, með fiðluna á hvolfi, áður en hann kláraði Beethoven. Það liðu 38 ár þar til fiðlukonsertinn var spil- aður aftur, og þá var það rómaður snillingur, Jo- seph Joachim sem það gerði á tónleikum undir stjórn Mendelssohns. Það má búast við því að sirkusatriðin verði af allt öðrum toga í kvöld, þegar Sinfóníuhljóm- sveit Íslands leikur Fiðlukonsert Beethovens, auk verka eftir Carl Nielsen og Gerald Finzi. Einleikari er nefnilega ein af stórstjörnum sam- tímans í klassískri tónlist, Leila Josefowich – af- burðafiðlari og meir að segja handhafi amer- ískra snillingaverðlauna. Hún spilar á Guarneri-fiðlu frá 1724. Tónleikarnir verða að vanda í Háskólabíói og hefjast kl. 19.30, en Leila og hljómsveitarstjórinn, Rumon Gamba spjalla við áheyrendur við sviðið að tónleikum loknum. Leila bjargar Beethoven Leila Josefowicz Ótvíræður snillingur. Fiðlukonsert Beethovens á Sinfóníutónleikum í kvöld Caput hefur átt óvenju annríkt að undanförnu; Kolbeinn kallar það brjálað at, og segir það hafa verið meira en fulla vinnu fyrir suma meðlimi Caput. Árið hófst með fjölskyldu- tónleikum í Ráðhúsinu. Þá lék Caput í upptökum á óperunni Skuggaleik eftir Karólínu Ei- ríksdóttur og Messíönu Tóm- asdóttur. Að því búnu tók við æfingaskorpa fyrir Kölnartón- leikana. Caput var að venju með tónleika á Myrkum mús- íkdögum og heilmikil vinna fyr- ir þá, að sögn Kolbeins. Þar var meðal annars flutt verk eftir Philippe Manoury og verð- launaverkið Nine Tensions eftir Einar Torfa Einarsson. Strax að loknum Myrkum músíkdögum fór Caput í upptökustúdíó og hljóðritaði þrjú verk eftir Steingrím Rohloff með „þungavigtarstjórnandanum“ Christian Eggen. Eftir Kölnarferðina hljóðritar Caput með Schola cantorum Hallgrímspassíu Sigurðar Sæv- arssonar og flytur auk þess á tvennum tónleikum. Þá fer Ca- put til Finnlands og spila með Sinfóníuhljómsveitinni í Vasa þar sem fluttir verða íslenskir einleikskonsertar, en sér- staklega var beðið um að Guðni Franzson yrði hljóm- sveitarstjóri. Þar verður frum- fluttur Flautukonsert nr. 2 eftir Atla Heimi Sveinsson. Caput verður líka með eigin tónleika í Vasa. Brjálað at í kreppunni Hann er búinn að vera í fararbroddi í laga- og textasmíðum á Ís- landi í 30 ár. 44 »

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.