Morgunblaðið - 23.02.2009, Síða 1
MÁNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2009
íþróttir
Boltinn rúllar Deildabikarinn í fótbolta er kominn á fulla ferð. Grindvíkingar skelltu Frömurum.
Stjarnan lagði bikarmeistara KR. Fylkir mátti sætta sig við jafntefli gegn Njarðvíkingum. 3
Íþróttir
mbl.is
GUÐRÚN Sóley
Gunnarsdóttir,
miðvörður hjá
KR í knatt-
spyrnu, býst við
að skrifa undir
samning við
sænska úrvals-
deildarliðið
Djurgården í
dag. Þetta stað-
festi hún við
Morgunblaðið í gær. „Ég geri ráð
fyrir að klára þetta í dag, svo
framarlega sem samningar nást
milli KR og Djurgården,“ sagði
Guðrún, en þeir samningar ættu
að teljast nánast formsatriði.
Guðrún mun spila með liðinu út
þessa leiktíð, sem lýkur í nóv-
ember. „Það voru einnig önnur
lið sem voru að bjóða mér samn-
ing, en mér leist best á Djurg-
ården. Ég geri ráð fyrir að fara
til Svíþjóðar strax eftir Algarve-
mótið með landsliðinu, verði ég
valin,“ sagði Guðrún hógvær, en
hún er einn af burðarásum lands-
liðsins, sem tekur þátt í Algarve-
mótinu í Portúgal í næsta mán-
uði. Guðrún vinnur í Seðlabank-
anum, en hefur fengið leyfi til að
sinna knattspyrnunni og því ekki
um pólitíska „hreinsun“ að ræða.
trausti@mbl.is
Guðrún Sóley
semur við
Djurgården
Guðrún Sóley
Gunnarsdóttir
LJÓST er að hin
efnilega skytta,
Þorgerður Anna
Atladóttir mun
ekki leika með
Stjörnunni í bik-
arúrslitunum
gegn FH í Eim-
skipsbikarkeppni
kvenna í hand-
knattleik næsta
laugardag. Þor-
gerður meiddist í gær í leik með 3.
flokki þegar brotið var gróflega á
henni í gegnumbroti.
„Hún fer til læknis á morgun (í
dag) og þá kemur í ljós hvað er að.
Líklega sleit hún þó liðband í ökkla.
Hún er úr leik og mikið áfall að
missa hana úr hópnum rétt fyrir
bikarúrslitin,“ sagði Atli Hilm-
arsson, þjálfari Stjörnunnar og fað-
ir Þorgerðar.
Þrátt fyrir að vera aðeins 16 ára
gömul hefur Þorgerður verið mik-
ilvæg fyrir meistaraflokk Stjörn-
unnar í vetur og hefur átt fast sæti í
byrjunarliði Garðabæjarfélagsins.
Hefur hún skorað 54 mörk í N1-
deildinni í vetur og því mikill sjón-
arsviptir að henni fyrir liðið það
sem eftir lifir vetrar.
thorkell@mbl.is
Þorgerður
missir af úr-
slitaleiknum
Þorgerður Anna
Atladóttir
Morgunblaðið/Golli
Sprettur FH varð bikarmeistari í frjálsíþróttum á laugardag eftir hnífjafna keppni við ÍR. Hér er það hinsvegar Linda Björk Lárusdóttir úr Breiðabliki,
sprettharðasta kona landsins um þessar mundir, lengst til vinstri, sem er með forystu í 60 metra grindahlaupi í Laugardalshöllinni. »4-5
Eftir Þorkel Gunnar Sigurbjörnsson
thorkell@mbl.is
„ÞETTA var virkilega góður sigur
hjá okkur. Sérstaklega í ljósi þess að
Stefan Lövgren tognaði á kálfa á æf-
ingu stuttu fyrir leikinn, þannig að
ég var nú ekkert rosalega bjartsýnn
fyrir þennan leik þar sem við höfðum
engan rétthentan skiptimann í
skyttustöðunni. En við spiluðum
fyrst og fremst stórgóðan varnarleik
og það var frábært að landa þessum
sigri,“ sagði Alfreð Gíslason, þjálfari
Kiel, við Morgunblaðið í gær eftir að
lið hans bar sigurorð af Evr-
ópumeisturum Ciudad Real, 33:26, í
meistaradeild Evrópu í handbolta.
Kiel náði þar með að hefna fyrir
tapið í úrslitaleik liðanna síðasta vor
þegar Ólafur Stefánsson skoraði 12
mörk fyrir Spánverjana.
„Eins og ég upplifði þennan leik
hefðu úrslitin geta farið á hvorn veg-
inn sem var þar til svona korter var
eftir af leiknum. Þeir höfðu gert mik-
ið af skiptingum og dreift álaginu
vel, en ekki við. En vörnin var frá-
bær hjá okkur og markvarslan hjá
[Thierry] Omayer var líka mjög góð.
Svo kvarta ég svo sem ekkert mikið
yfir sóknarleiknum. Svo að ég sé þó
sanngjarn þá vantaði varnartröllið
Didier Dinart í lið Ciudad Real,
þannig sóknarleikur okkar gekk bet-
ur fyrir vikið.“
Kiel komið áfram
Ljóst er eftir úrslit leiksins að Kiel
er þegar komið áfram upp úr milli-
riðlinum og Ciudad Real þarf aðeins
eitt stig til að tryggja sig í 8 liða úr-
slit. „Þessi leikur skipti engu máli
með það að gera í sjálfu sér. Bæði lið
fara áfram, en það er samt auðvitað
alltaf gaman að vinna svona stór lið.
Auk þess er líka virkilega gaman að
halda sigurgöngunni áfram á heima-
velli.“ Frá því Alfreð tók við Kiel síð-
asta sumar hefur liðið aldrei tapað
leik eða gert jafntefli í Eystrasalts-
höllinni, heimavelli sínum, enda mikil
gryfja og stemningin hreint mögnuð.
Ólafur Stefánsson var markahæst-
ur í liði Ciudad Real með 5 mörk, þar
af gerði hann fjögur þeirra úr víta-
köstum. Var hann öryggið upp málað
í hvert sinn sem hann steig á víta-
punktinn og vílaði meðal annars ekki
fyrir sér að vippa yfir Omayer í
markinu af vítapunktinum.
Kim Anderson, Vid Kavticnik og
Filip Jicha skoruðu allir 7 mörk hver
í liði Kiel og Nikola Karabatic gerði 6
mörk. Frakkinn hefur einmitt þrá-
látlega verið orðaður við félagsskipti
til Rhein-Neckar Löwen í sumar, þar
sem hann yrði þá samherji Guðjóns
Vals Sigurðssonar og Ólafs Stef-
ánssonar.
Karabatic verður líklega áfram
„Það hefur ekkert meira gerst í
þessu máli með Karabatic og Rhein-
Neckar, þannig það stefnir allt í að
það verði bara ekkert meira úr því,
sem er frábært mál,“ sagði Alfreð, en
hinn 24 ára gamli Frakki þykir besti
handknattleiksmaður heims, enda
frábær bæði í sókn og vörn.
„Virkilega góður sigur“
Alfreð
Gíslason
Ólafur
Stefánsson
Lærisveinar Alfreðs möluðu Evrópumeistarana Ólafur var markahæstur