Morgunblaðið - 23.02.2009, Qupperneq 5
Íþróttir 5
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2009
Bakvörðurinn Eric Abidal, sem erfélagi Eiðs Smára Gudjohnsen
hjá Barcelona, spilar ekki meira
með Börsungum næstu tvo mán-
uðina, vegna meiðsla í leik liðsins
gegn nágrannaliðinu Espanyol á
laugardag. Mun hann því ekki mæta
sínum gömlu félögum í Lyon í 16 liða
úrslitum Meistaradeildarinnar.
ForráðamennBolton
Wanderers í
ensku úrvals-
deildinni vísa
þeim sögusögn-
um á bug að Gary
Megson, knatt-
spyrnustjóri liðs-
ins, verði leystur
frá störfum og Owen Coyle, stjóri
Jóhannesar Karls Guðjónssonar í
Burnley, verði ráðinn í hans stað á
næstu dögum. Megson hefur stjórn-
að liði Bolton síðan í október 2007 en
hefur ekki náð að vinna hylli stuðn-
ingsmanna liðsins þrátt fyrir ágæt-
isúrslit að undanförnu.
Bobby Zamora, framherji Ful-ham í ensku úrvalsdeildinni,
skoraði langþráð mark gegn West
Bromwich Albion í leik liðanna í
gær. Zamora, sem kom frá West
Ham í sumar, hafði ekki skorað
mark í deildinni síðan í september,
en þeir Andy Johnson tryggðu liðinu
2:0 sigur í gær.
Aron EinarGunnars-
son, leikmaður
Coventry í ensku
1. deildinni, er
sagður undir
smásjá Harry
Redknapp hjá
Tottenham, auk
spænska stórliðs-
ins Atletico Ma-
drid, í breska götublaðinu The
People. Einnig hafa nöfn Liverpool
og Blackburn verið nefnd í tengslum
við Aron, en samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins hefur ekkert tilboð
borist til eyrna Arons enn sem kom-
ið er.
Sir Alex Ferguson, knattspyrnu-stjóri Manchester United, seg-
ist þess fullviss að Norðmaðurinn
Morten Gamst Pedersen, leikmaður
Blackburn, hafi látið sig detta í leik
liðanna á laugardaginn, þegar leik-
maðurinn féll við í vítateig United,
eftir viðskipti sín við Rafael da
Silva. „Þetta var dýfa hjá Pedersen“
sagði Ferguson reiður, því hann vildi
fá gult spjald á Pedersen fyrir at-
hæfið, því Cristiano Ronaldo hafði
fengið spjald fyrir leikaraskap í
sama leik.
Harpa Þorsteinsdóttir sem er áreynslu hjá norska úrvals-
deildarliðinu Fløya í knattspyrnu
þessa dagana lék með liðinu æfinga-
leik við Vålerenga á laugardag. Stóð
Harpa sig með prýði í leiknum og
skoraði tvö mörk fyrir Fløya sem
vann leikinn 5:0. Harpa lék með
Breiðabliki síðasta sumar.
Danny Lee, rétt tæplega 19 áragamall áhugakylfingur frá
Nýja-Sjálandi, sigraði á Johnnie
Walker-meistaramótinu á Evr-
ópumótaröðinni í golfi í gær en mót-
ið fór fram í Ástralíu. Lee er yngsti
kylfingurinn í sögu Evrópumótarað-
arinnar sem landar sigri en hann er
18 ára og 213 daga gamall. Lee er
aðeins annar áhugakylfingurinn sem
nær að sigra á Evrópumótaröðinni
en Pablo Martin sigraði árið 2007 á
Estoril-mótinu í Portúgal.
Venus Williams vann á laugardagsigur á opna Dubai-mótinu í
tennis þegar hún lagði Vigrinie
Razzano í úrslitaleiknum.
Fólk sport@mbl.is
Eftir Þorkel Gunnar Sigurbjörnsson
thorkell@mbl.is
Hafdís er frá Ljósavatnsskarði í Þing-
eyjarsveit en hefur verið búsett á Ak-
ureyri undanfarin fimm ár og æft
frjálsíþróttir með UFA. „Fyrstu árin
æfði ég á Laugum í Þingeyjarsveit.
Þar er malarvöllur og aðstaðan sem
við höfðum innanhúss til æfinga bauð
upp á svona 30 metra hlaup. Þannig
að það var ekki mikið hægt að æfa
spretti, heldur voru margar æfingar
byggðar upp á einhvers konar tröppu-
hoppum. Ég pældi samt einhvern
veginn aldrei í því að ég æfði við léleg-
ar aðstæður fyrr en ég kom fyrst til
Reykjavíkur að keppa á móti. Þá sá ég
hvað fólkið á höfuðborgarsvæðinu
hefur í raun miklu meira forskot,“
sagði Hafdís þegar Morgunblaðið
spjallaði við hana í Laugardalshöllinni
um helgina.
Aldrei viljað flytja suður
„Þetta hefur nú allt skánað samt
hvað æfingaaðstöðu varðar eftir að ég
flutti til Akureyrar. Þar höfum við 100
metra langa braut innanhúss með
gerviefni. Svo er líka verið að byggja
völl utanhúss fyrir landsmótið í sum-
ar,“ en UMFÍ heldur sitt 26. landsmót
á Akureyri í júlí þetta árið.
Hafdís keppir yfirleitt undir merkj-
um HSÞ en æfir samt sem áður með
UFA á Akureyri. En hefur aldrei
hvarflað að henni að flytja hreinlega á
höfuðborgarsvæðið til að vera sam-
keppnishæf með aðstöðu og annað?
„Nei, reyndar ekki. Ég er mjög
ánægð með þjálfunina sem ég fæ fyrir
norðan og hef ekki verið tilbúin að
sleppa hendinni af henni. Eins veit ég
ekkert með hvaða félagi ég gæti æft
fyrir sunnan. Annars líður mér samt
best bara í sveitinni. Sveitin hefur
gert mig að þeirri manneskju sem ég
er í dag og ég hef nú alveg náð fínum
árangri nú þegar þrátt fyrir að stunda
ekki æfingar við toppaðstæður.“
Vesen að ferðast suður
Hafdís æfir 1-2 á dag alla daga
nema um helgar. Þær fara yfirleitt í
ferðalag til Reykjavíkur þar sem hún
tekur iðulega þátt á frjálsíþróttamót-
um. „Þessi ferðalög geta oft verið
mikið vesen. Þeir sem æfa og búa á
höfuðborgarsvæðinu gera sér kannski
ekki grein fyrir því að við sem erum
að norðan þurfum að ferðast í bæinn
og það er heldur ekkert ókeypis. Svo
þegar í bæinn er komið þarf að finna
sér gistingu og það er heldur ekkert
auðveldast í heimi. Það er ekkert
hægt að setjast upp á fólk og fá að
gista á hinum og þessum heimilum,
þannig að þar komum við aftur að því
hversu mikið forskot íþróttaiðkendur
á höfuðborgarsvæðinu hafa á okkur
landsbyggðafólkið,“ sagði Hafdís en
hún hefur nær eingöngu einbeitt sér
að íþróttunum síðustu tvö ár.
„Eftir að ég kláraði menntaskóla
fyrir næstum tveimur árum hef ég
bara verið að æfa frjálsar. Það getur
samt verið erfitt að einbeita sér alveg
að því, þar sem ég vinn lítið á meðan
og ég er ekki á neinum styrkjum.
Þetta er ekkert auðvelt líf þannig. En
maður lætur þetta bara ganga. Ég
verð stöðugt að vera að hreyfa mig.
Ég er góð í því og það er það sem mér
finnst skemmtilegast.“
Sterk í fótunum
Hafdís er sögð best í langstökki og
tókst henni nú nýlega að jafna Ís-
landsmetið í ungkvennaflokki í grein-
inni sem er 6,02 metrar. Er stefnan
sett á Íslandsmet í greininni en innan-
húss er það núna 6,28 metrar og 6,30
metrar utanhúss, bæði setti Sunna
Gestsdóttir.
„Ég æfi auðvitað vel og það fer mik-
ið púður í fótaæfingar. Til þess að
bæta stökkkraftinn sinn og stökkva
lengra þarf maður að vera sterkur í
fótunum. Í augnablikinu er samt efst
á markmiðaskránni hjá mér að fara
með landsliðinu á Smáþjóðaleikana og
Evrópubikarkeppnina í sumar. Svo er
ég líka í hópi þeirra sem stefna á Ól-
ympíuleikana 2012.“
„Sveitin gerði mig að
þeirri sem ég er í dag“
Morgunblaðið/Golli
Sigursæl Hafdís Sigurðardóttir keppti í langstökki og 200 metra hlaupi í bikarkeppninni innanhúss í frjálsíþróttum
um helgina í Laugardalshöll. Hafnaði Hafdís í fyrsta sæti í báðum greinum.
HAFDÍS Sigurðardóttir úr liði Norður-
lands hafði sigur í báðum þeim grein-
um sem hún keppti í í bikarkeppninni í
frjálsíþróttum um helgina. Átti hún
besta tímann í 200 metra hlaupinu á
tímanum 25,33 sek. auk þess að
stökkva allra kvenna lengst í lang-
stökkinu, 5,81 metra. Árangur Hafdís-
ar er sérstaklega athyglisverður sem
og seigla hennar í ljósi þess að að-
stæðurnar sem hún æfir við eru ekki
þær bestu og ýmislegt sem ætti að
gefa keppendum á höfuðborgarsvæð-
inu forskot á landsbyggðarfólkið.
Hafdís Sigurðardóttir lætur ekkert stoppa sig og stefnir hátt í langstökkinu
Í HNOTSKURN
»Hafdís Sigurðardóttir er 22ára frjálsíþróttakona frá
Tjarnarlandi í Ljósavatns-
skarði í Þingeyjarsveit.
»Hún þykir best í langstökkiog hefur þar stokkið best
6,02 metra.
»Um helgina vann Hafdíssigur bæði í langstökki og
200 metra hlaupi í bikarkeppni
Frjálsíþróttasambandsins inn-
anhúss.
kur
að
ínu.
nu
g
p til
a á
m
mö,
g
á-
bæjarlegt. En ég uni hag mínum vel, er í skóla
hérna og hef því komið mér ágætlega fyrir. Svo
er líka ágætt að búa að dönskunni, það flýtti fyrir
mér að komast inn í málið,“ sagði Dóra að lokum.
“
Morgunblaðið/Kristinn
Silfur Dóra og Malmö lentu í 2. sæti mótsins.
HINN 22 ára gamli hlaupagarpur frá Suður-
Afríku, Oscar Pistorius, ætti að ná sér að fullu
eftir að hafa gengist undir aðgerð á höfði og
andliti. Pistorius sem er einn sigursælasti hlaup-
arinn í flokki fatlaðra var í bátsferð með vini sín-
um nálægt Jóhannesarborg á laugardag á ánni
Vaal þegar hann lenti í slysi en sögum ber ekki
saman um hvernig slysið orsakaðist nákvæm-
lega. Hann gekkst svo undir aðgerð á sunnudag
á spítala í Jóhannesarborg.
„Heilinn í honum starfar eðlilega eftir slysið,“
sagði Anchen Laubcher, læknirinn sem með-
höndlaði Pistorius eftir slysið en hann skadd-
aðist mest á höfði.
Pistorius sem notast við gervifætur frá Össuri
og hefur nokkrum sinnum sótt Ísland heim
vegna þess, vann þrenn gullverðlaun á Ólympíu-
móti fatlaðra í Peking og fæturnir frá Össuri
hafa hjálpað honum mikið. Munaði minnstu að
hann væri meðal keppenda á
Ólympíuleikunum sjálfum
meðal full frískra í Peking á
síðasta ári.
Ástand Oscars Pistoriusar
var stöðugt eftir slysið og eftir
að aðgerðin var framkvæmd. Í
yfirlýsingu frá umboðsmanni
hans, Peet van Zyl í gær sagði:
„Oscar verður útskrifaður af
spítalanum fljótlega til þess að
fara heim til sín að jafna sig
og ná bata. Hann varð ekki fyrir neinum skaða á
neinum útlimum og braut ekki eða marði nein
rifbein. Oscar verður kominn á hlaupabrautina
fyrr en síðar. Hann vonar að hann geti tekið þátt
í heimsmeistarakeppni fatlaðra sem fer fram í
Manchester í Englandi í maí.“
thorkell@mbl.is
Hlaupagarpurinn Oscar Pistorius
ætti að ná sér að fullu eftir bátsslys
Oscar Pistorius