Morgunblaðið - 05.06.2009, Blaðsíða 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 2009
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@mbl.is
BRESKA flugfélagið Astraeus, sem meðal ann-
ars leigir Iceland Express flugvélar, var fært
undan Fons til félaga tengdra Pálma Haraldssyni
áður en Fons var sett í gjaldþrot. Heimildir
Morgunblaðsins herma að lágmarksverð hafi ver-
ið greitt fyrir. Pálmi var aðaleigandi Fons áður
en félagið fór í þrot.
Færði líka Iceland Express
Í vikunni var sagt frá því að hlutafjáraukning í
Iceland Express, sem einnig var í eigu Fons, hinn
24. nóvember 2008 væri til skoðunar hjá skipta-
stjóra í þrotabúi félagsins. Þá var hlutafé aukið
um 300 milljónir króna að nafnvirði. Fengur, ann-
að félag í eigu Pálma, skráði sig fyrir öllu hluta-
fénu og eignaðist við það um 92 prósent hlut í
flugfélaginu. Nokkrum vikum síðar var Fons lýst
gjaldþrota.
Landsbankinn, sem átti veð í hlut Fons í Ice-
land Express, vissi ekki af hlutafjáraukningunni
fyrr en hún var yfirstaðin, samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins. Bankinn heldur nú á þeim tæpu
átta prósentum í Iceland Express sem ekki eru í
eigu Fengs.
Miklar arðgreiðslur fyrir árið 2007
Fons greiddi sér 4,4 milljarða króna í arð
vegna árangurs félagsins á árinu 2007. Arð-
greiðslan var greidd til Matthews Holding S.A. í
Lúxemborg, eignarhaldsfélags í eigu Pálma og
Jóhannesar Kristinssonar.
Hagnaður Fons á árinu 2007, að teknu tilliti til
óinnleysts hagnaðar og matsbreytinga hluta-
bréfa, nam um 4,7 milljörðum króna og bókfært
eigið fé félagsins var 39,3 milljarðar króna. Sam-
kvæmt ársreikningi voru eignir félagsins 112
milljarða króna virði.
Rúmu ári síðar var Fons tekið til gjaldþrota-
skipta. Þá var talið að eignir félagsins næmu á
bilinu tíu til tólf milljörðum króna. Íslensku bank-
arnir þrír eru helstu kröfuhafar í þrotabú Fons.
Fengur nú bara skráður á Pálma
Fengur, sem nú er aðaleigandi Iceland Ex-
press, er nú skráður í persónulegri eigu Pálma
Haraldssonar. Félagið var áður í eigu Nupur
Holdings sem er skráð í Lúxemborg, en það félag
var í eigu Pálma og Jóhannesar.
Astraeus líka fært undan Fons
Flugfélagið Astraeus var selt til félaga tengdra Pálma Haraldssyni
Fons keypti 51 prósent hlut í
Astraeus-flugfélaginu í októ-
ber 2006. Samkvæmt frétt-
um frá þeim tíma var kaup-
verðið um 790 milljónir
króna.
Þann 16. nóvember 2007
keypti Northern Travel Hold-
ing (NTH) 49 prósent í félag-
inu, en hlut Fons í Astraeus
hafði þá verið rennt inn í
NTH. Kaupverðið var ekki gef-
ið upp. Fons var á þeim tíma
stærsti eigandi NTH með 44
prósent eignarhlut.
Var hluti af NTH
„ÞAÐ er mikill meðbyr í ýmsum
verkefnum sem snúa að umhverf-
ismálum og ég finn fyrir mikilli
vakningu hjá borgarbúum hvað
þetta varðar,“ segir Eygerður Mar-
grétardóttir, framkvæmdastýra
Staðardagskrár 21. Reykjavík-
urborg óskaði í vor liðsinnis borg-
arbúa um hvernig sporna mætti við
gróðurhúsaáhrifum og hvernig auka
mætti loftgæði í borginni.
Vel á annað hundrað ábendinga
bárust og snerust flestar þeirra, að
sögn Eygerðar, um samgöngu- og
skipulagsmál. Sterkur vilji var til
þess að nagladekk yrðu bönnuð í
borginni. Er þannig í drögum að
áætlun, sem stýrihópur á vegum
borgarinnar vinnur nú að og stefnt
er á að leggja fram í haust, lagt til að
2012 verði 20% bifreiða á nagla-
dekkjum í stað 44% veturinn 2007-
2008.
Þá bárust ábendingar um gerð
hjólareina meðfram umferðargötum
og lagt var til að Laugavegi, Austur-
stræti og Skólavörðustíg yrði al-
mennt lokað fyrir bílaumferð. Einn-
ig komu fram skýrar kröfur um að
losun brennisteinsvetnis á svæði
Orkuveitunnar á Hellisheiði yrði
rannsökuð. annaei@mbl.is
Samgöngur
eru málið
Sterkur vilji til að
banna nagladekk
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest
fjögurra ára fangelsisdóm yfir 41 árs
karlmanni, Jóhanni Sigurðarsyni,
sem ruddist í heimildarleysi inn í
húsnæði í miðborg Reykjavíkur,
læddist inn í svefnherbergi fimm ára
sofandi stúlku og braut gegn henni
kynferðislega. Honum var einnig
gert að greiða stúlkunni 800 þúsund
krónur í miskabætur.
Maðurinn, sem klæddi stúlkuna úr
náttbuxum og sleikti kynfæri henn-
ar, hefur fjórum sinnum áður gerst
sekur um húsbrot, tvisvar gegn
blygðunarsemi og einu sinni gerst
sekur um sifskaparbrot. Hann bar
við minnisleysi vegna áfengisneyslu.
Rétturinn taldi hins vegar sannað,
s.s. þar sem fingrafar hans fannst
innan á rúðu hússins og DNA-sýni
úr hráka á tröppum þess reyndist úr
honum, að maðurinn hefði brotið
gegn stúlkunni. andri@mbl.is
Dæmdur fyrir
að brjóta gegn
5 ára stúlku
FRAMHLAUP virðist hafið í Breiðamerkurjökli
en lónið er nánast fullt af ís. Að sögn Odds Sig-
urðssonar jarðfræðings eru slík hlaup þekkt í
jöklinum. „Þegar hann gengur skarpt út í Jök-
ulsárlón fyllist það af ís svo vatnsyfirborð verð-
ur mjög lítið, t.d. fyrir báta. Framhlaupsjöklar
gera þetta yfirleitt reglulega á nokkurra ára-
tuga fresti. Það er dálítið langt síðan síðast var
framhlaup í Breiðamerkurjökli, þannig að það
ætti í sjálfu sér ekki að koma á óvart að þetta
Jökulsárlón á Breiðamerkursandi er sneisafullt af ísjökum
Ljósmynd/Ragnar Th. Sigurðsson
Framhlaup hafið í Breiðamerkurjökli
gerist nú.“ Oddur segir slík hlaup geta varað
upp undir ár en óljóst sé hvenær þetta hlaup
hafi hafist. Hann telur þó að brúnni við lónið sé
engin hætta búin eða hringveginum sem hún
tengir. Nánari umfjöllun er á mbl.is. ben@mbl.is
Ríkisendurskoðun
getur ekki rann-
sakað fjárreiður
stjórnmálaflokka
og frambjóðenda
án lagabreytinga.
Þetta kemur fram
í svari ríkisend-
urskoðanda til
Kristins H. Gunn-
arssonar, fv. þing-
manns. Jóhanna
Sigurðardóttir forsætisráðherra fól
nýskipaðri nefnd, sem ætlað er að
endurskoða lög um fjármál stjórn-
málaflokka, að kanna hvernig hægt
sé að fela Ríkisendurskoðun að gera
úttekt á fjárreiðum flokkanna tíu ár
aftur í tímann.
Í svari Sveins Arasonar ríkisend-
urskoðanda við fyrirspurn Kristins
kemur fram að hann getur ekki tekið
verkefnið að sér að óbreyttum lög-
um, né hafið sjálfstæða rannsókn.
Skiptir þá engu hvort viðkomandi
flokkar eða frambjóðendur sam-
þykki að veita aðgang að gögnum
þar að lútandi. Hægt væri, með laga-
breytingum, að fá slíkan aðgang.
Hins vegar tekur ríkisendurskoð-
andi fram að skv. núgildandi lögum
er einungis skylt að varðveita bók-
haldsgögn í sjö ár. Þá séu ein-
staklingar í prófkjörum ekki bók-
haldsskyldir og einungis sé heimilt
að rannsaka skattskil þeirra í sex ár.
Þarf laga-
breytingu til
Kristinn H.
Gunnarsson
Eftir Jón Pétur Jónsson og
Halldór Armand Ásgeirsson
„ÞAÐ byrjaði skyndilega að koma
reykur inn um lofttúður í lofti og
niðri við gólf. Svona blá reykjarmóða
sem þéttist býsna skarpt. Þessu
fylgdi óþægileg tilfinning,“ sagði
August Hakansson, einn farþega í
þotu Icelandair, sem lenda varð á
Gatwick-flugvelli við Lundúnir í gær
vegna reyks um borð í farþegarými.
Þotan var á leið frá París til Kefla-
víkurflugvallar. Um leið og reyk-
urinn gerði vart við sig slökkti flug-
stjóri þotunnar á öðrum hreyfli
hennar og sneri henni til Lundúna.
Þar lenti þotan heilu og höldnu á
Gatwick-flugvelli klukkan 13:20 í
gærdag.
August sagði að farþegarnir hefðu
haldið ró sinni þó mörgum hefði eðli-
lega verið brugðið. 148 farþegar
voru um borð og var þeim boðið upp
á áfallahjálp á Gatwick-flugvelli.
Nokkrir þáðu þá aðstoð.
„Það var merkilega rólegt í vélinni
miðað við það sem verið hefur í frétt-
um síðustu dagana. Engin örvænting
greip um sig,“ sagði August og vísaði
þar til flugslyssins á Atlantshafi á
mánudagsmorgun.
Hann sagði jafnframt að reykurinn
hefði að mestu verið horfinn þegar
vélin lenti á Gatwick-flugvelli. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Icelandair
var áætlað var að allir farþegarnir
kæmust til Íslands í gærkvöldi, ann-
ars vegar með vél frá Icelandair og
hins vegar með vél frá Iceland Ex-
press.
„Óþægileg tilfinning að
sjá reykinn koma inn“
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Flugatvik Ein flugvéla Icelandair fylltist af reyk í gær, á leið sinni frá París
til Keflavíkur. Engin örvænting greip um sig, að sögn eins farþegans.
Í HNOTSKURN
»Þota frá Icelandair þurftiað lenda í Lundúnum á leið
sinni til Keflavíkur frá París í
gær vegna reyks í farþega-
rými.
»148 farþegar héldu rósinni og var boðið upp á
áfallahjálp á Gatwick-flug-
velli. Áætlað var að þeir kæm-
ust til Íslands í gærkvöldi.
Þota Icelandair
varð að lenda á
Gatwick-flugvelli