Morgunblaðið - 05.06.2009, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 05.06.2009, Blaðsíða 14
14 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 2009 Eftir Orra Pál Ormarsson orri@mbl.is SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA vill gera breytingar á fiskveiðistjórnun- arkerfinu. Hann segir að annað væri í hrópandi ósamræmi við öll skilaboð sem berast frá þjóðinni. Jón Bjarna- son sjávarútvegsráðherra hefur ákveðið að skipa starfshóp sem mun hafa það verkefni að skilgreina álita- mál sem uppi eru varðandi stjórn fiskveiða og nýtingu auðlindarinnar. Aðild að hópnum eiga fulltrúar stjórnar og stjórnarandstöðu á Al- þingi og hagsmunaaðilar í sjávarút- vegi og ætlast ráðherra til þess að hópurinn kalli jafnframt eftir rökum og greinargerðum frá fleiri aðilum gerist þess þörf. Miðað er við að hóp- urinn ljúki störfum 1. nóvember næstkomandi. Góð rekstrarskilyrði „Þarna fá allir hlutaðeigandi að- ilar tækifæri til að koma sínum sjón- armiðum á framfæri og ég treysti þessum hópi til að vinna af heilindum og komast að sameiginlegri niður- stöðu. Ég er ekki að biðja um marg- ar álitsgerðir frá hópnum, heldur eina heildarniðurstöðu. Hópurinn á að hafa það að leiðarljósi að greininni verði sköpuð góð rekstrarskilyrði og að fiskveiðar verði stundaðar á sjálf- bæran hátt,“ segir ráðherra. Starfshópurinn mun einnig fá það verkefni að koma á sátt meðal þjóð- arinnar um stjórn fiskveiða. „Umræðan eins og hún hefur birst undanfarið sýnir að engin sátt er um stjórn fiskveiða meðal þjóðarinnar. Það er staðreynd sem allir verða að viðurkenna. Sjávarútvegurinn er höfuðatvinnuvegur þjóðarinnar og einn af hornsteinum okkar sam- félagsgerðar. Fyrir vikið er brýnt að sátt ríki um hann,“ segir Jón. Hann tekur fram að samhliða starfi hópsins verði unnið áfram að endurskoðun ákveðinna þátta í ráðu- neytinu. Má þar nefna framsal á afla- heimildum, veiðiskyldu, fullvinnslu á afla, vistvænar veiðar og verndun fiskistofna, sérstaklega á grunnslóð. Full sátt um málið Gert er ráð fyrir því í stjórnarsátt- málanum að kalla inn aflaheimildir í áföngum. Hvað gerist komist starfs- hópurinn að þeirri niðurstöðu að það sé ekki heppileg leið? „Það er verkefni hópsins að fara yfir þessi mál í heild sinni. Komist hann að þeirri niðurstöðu að ein- hverjar ákveðnar leiðir séu ófærar verður það að sjálfsögðu skoðað mjög vandlega.“ Eru stjórnarflokkarnir samstiga í þessu máli? „Það er full sátt um að málið fari í þennan farveg.“ Í máli útgerðarmanna í Morgun- blaðinu í síðustu viku komu fram áhyggjur af því að breytingar á fisk- veiðistjórnunarkerfinu gætu haft slæmar afleiðingar fyrir lands- byggðina. Deilirðu þeim áhyggjum? „Ég hef áhyggjur af stöðu lands- byggðarinnar almennt, ekki síst hinna ýmsu sjávarbyggða sem hafa mátt horfa upp á sitt lífsviðurværi flytjast burt. Sjónarmið íbúa í þess- um byggðum, sem hafa átt þátt í því að gera auðlindina jafn verðmæta og hún er, eiga að sjálfsögðu að heyrast og starfshópurinn mun sjá til þess.“ Skuldastaða sjávarútvegsins er erfið. Kemur til álita að færa skuldir niður í samræmi við niðurfærslu á veiðiheimildum? „Það er allt annað mál. Núna erum við fyrst og fremst að horfa á til- högun fiskveiðistjórnunarinnar. Skuldastaðan er víða erfið og við verðum að skoða það mál í heild sinni. Efnahagskerfið sem hér var rekið leiddi til hruns síðastliðið haust og þar verða allir að skoða sinn hlut að máli. Enginn er undanskilinn.“ Hvernig leggjast áform um strandveiðar í þig? „Vel. Enda þótt þetta sé í smáum stíl er um að ræða tímamótaopnun á veiðum og stefnumörkun um að byggðirnar sem búa að grunnslóð- unum hafi forgang. Markmiðið er að gefa mönnum tækifæri til að sækja sjó án þess að vera njörvaðir niður.“ Það hefur verið gagnrýnt að strandveiðar opni leið fyrir þá sem búnir voru að selja sig út úr greininni inn aftur. Þeir muni þá jafnvel róa til fiskjar við hlið þeirra sem keyptu veiðiheimildirnar af þeim. „Það er hægt að gagnrýna öll kerfi en ég minni á að með þessu eru menn ekki að afla sér neinnar veiðireynslu. Verði lögin samþykkt, sem ég vona, verður þetta gert til bráðabirgða og við munum meta eftir 1. september hvernig til hefur tekist.“ Ná þarf sátt um stjórn fiskveiða  Sjávarútvegsráðherra skipar starfshóp til að skilgreina álitaefni varðandi stjórn fiskveiða  Allir hlutaðeigandi aðilar fá tækifæri til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri  Niðurstaða 1. nóvember Morgunblaðið/Kristinn Ráðherra „Sjávarútvegur er einn af hornsteinum okkar samfélagsgerðar.“ Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is „ÉG var með skrifaða ræðu en ég verð að horfa framhjá henni nú, eftir þær fréttir sem bárust okkur í dag í vaxtamálum. Það er eins og það sé markvisst verið að reyna að drepa íslenskt atvinnulíf,“ sagði Þór Sig- fússon, formaður Samtaka atvinnu- lífsins, á fundi um auðlindanýtingu í Vestmannaeyjum í gær. Vitnaði hann þar sérstaklega til ákvörðunar Seðlabanka Íslands um að lækka stýrivexti aðeins um eitt prósentu- stig, úr 13 í 12, en vonir voru bundn- ar við að vextirnir yrðu lækkaðir meira. Þór endurómaði þá skoðun útgerðarmanna á fundinum að fyrn- ingarleiðin svonefnda myndi á end- anum „drepa niður útgerð í landinu“ eins og Eiríkur Tómasson, fram- kvæmdastjóri Þorbjörns og varafor- maður LÍÚ, komst að orði í um- ræðum á fundinum að loknum framsögum. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna er tekið fram að endurskoða skuli fiskveiðistjórnunarkerfið og að áætlun um fyrningu á aflaheimildum liggi fyrir í september á næsta ári. Atli Gíslason, formaður sjáv- arútvegsnefndar Alþingis og þing- maður Vinstri grænna, sagði á fund- inum að fyrningarleið yrði ekki farin ef skoðun leiddi það í ljós að sjávarútvegsfyrirtæki myndu ekki þola hana. Upplýsti Atli um að það að ellefu manna nefnd myndi fara sérstaklega yfir stöðu sjávarútvegs- fyrirtækja og meta áhrif fyrning- arleiðar á rekstur þeirra. „Mín skilaboð til stjórnvalda eru þessi: Hendið hugmyndinni og byrjið að bjarga þjóðinni,“ sagði Þorvarð- ur Gunnarsson, framkvæmdastjóri Deloitte, um fyrningarleiðina. Hann sagði að sjávarútvegsfyrirtæki hefðu í árslok 2008 verið með afla- heimildir að virði um 200 milljarða eignfærðar í bókum sínum. Skuld- irnar á bak við þessar bókfærðu eignir væru miklar, og ljóst væri að sjávarútvegsfyrirtækin gætu ekki þolað það ef aflaheimildirnar yrðu kallaðar inn. Sérstaklega væri staða fyrirtækjanna erfið nú í ljósi mikilla skulda en talið er að þær séu um 500 milljarðar eða sem nemur um þreföldum árstekjum. Getur tryggt réttindi Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, sagði fyrningarleiðina vel til þess fallna að tryggja hagsmuni eigenda auð- lindarinnar, það er almennings. „Ranglætið í sjávarútvegskerfinu“ væri öðru fremur það að 1. grein laga um stjórn fiskveiða, að fisk- veiðiauðlindin væri í eigu þjóð- arinnar, hefði verið vanvirt yfir langt tímabil sem hefði leitt til mik- illa vandamála. Þá hefði mikil veð- setning útvegsmanna á aflaheim- ildum, meðal annars til kaupa á hlutabréfum, leitt til þess að rekstr- arvandi sjávarútvegsfyrirtækja hefði dýpkað mikið á undanförnum árum. Einnig sagði Þórólfur að þjóðhagslega þyrfti fyrningarleiðin ekki að valda neinum skaða. Þvert á móti gæti hún verið góð leið til þess að „leiðrétta“ áralangt órétt- læti fiskveiðistjórnunarkerfisins, án þess að kippa stoðunum undan getu íslensks efnahagslífs til þess að veiða fisk og selja hann. Þór sagði það mikið áhyggjumál hvernig væri verið að koma fram við íslenskt atvinnulíf, þá helst með vaxtastefnu Seðlabanka Íslands. Stýrivextirnir voru í morgun lækk- aðir úr 13 prósentum í 12. Margir höfðu gert ráð fyrir því að vextirnir yrðu lækkaðir meira. „Það er erfitt að færa það í nægilega sterk orð, hvernig fyrirtæki í landinu standa núna. Samkvæmt upplýsingum sem við höfum frá bönkunum þá eru um 50 til 70 prósent fyrirtækja í miklum erfiðleikum. Það er kannski tákn- rænt fyrir stefnu stjórnvalda að það standi til að fyrna aflaheimildir í því ástandi sem nú ríkir. Bara það að þessi fráleita hugmynd sé komin á blað, í stjórnarsáttamála, hefur nú þegar valdið beinum skaða,“ sagði Þór. Ólína Þorvarðardóttir, þingkona Samfylkingarinnar, sagði málflutn- ing margra þeirra sem á fundinum ræddu vera einsleitan og ómálefna- legan. „Mér líður eins og ég sé í messu,“ sagði Ólína og vitnaði til einarðrar afstöðu útvegsmanna gegn fyrningarleiðinni. Ólína sagði útvegsmenn ekki mega gleyma því að þjóðin væri klofin í afstöðu sinni til fiskiveiðistjórnunarkerfisins, og það hefði leikið byggðir landsins grátt. „Það eru nú innan við þrjú ár síðan aflaheimildir voru seldar út úr byggðarlagi á Vestfjörðum fyrir þrjá milljarða, með slæmum afleið- ingum.“ Fyrning sögð keyra fyrirtæki í þrot Ljósmynd/Eyjafréttir Málin rædd Fjölmennt var á fundinum um auðlindanýtingu í Eyjum í gær. Útvegsmenn eru ósáttir við fyrning- arleiðina og létu skoðanir sínar óspart í ljós á fundinum. Sögðu hana leiða útveginn „til glötunar“. Í HNOTSKURN »Skuldir sjávarútvegsinsnema nú um 500 millj- örðum, sem eru um þrefaldar árstekjur. »Aflaheimildir eru eign-færðar í bækur sjávar- útvegsfyrirtækja fyrir um 200 milljarða króna. » Þorvarður Gunnarsson,framkvæmdastjóri Delo- itte, sagði fyrningarleiðina óraunhæfa. Þingmaður Samfylkingarinnar sagði umræður líkari „messu“ en fundi www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25 Stuðningshlífar fjölbreytt úrval

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.