Morgunblaðið - 05.06.2009, Síða 9

Morgunblaðið - 05.06.2009, Síða 9
Fréttir 9INNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 2009 Eftir Skúla Á. Sigurðsson skulias@mbl.is „VIÐ höfum túlkað þetta þannig að ríkið eigi að fá greitt um leið og lögin eru samþykkt og byrjað þannig að innheimta strax nýtt vörugjald,“ segir Hermann Guð- mundsson, forstjóri N1, um hækk- að eldsneytisverð í kjölfar hækk- ana almenns eldsneytisgjalds. Samkvæmt upplýsingum frá tollstjóraembættinu greiðist gjald- ið við tollafgreiðslu eldsneytisins. Hermann svarar því til að elds- neytisfarmar séu til að byrja með tollafgreiddir til bráðabirgða og um níutíu dögum seinna fái þeir endanlega afgreiðslu. Ekki liggi ljóst fyrir í lögum við hvor tíma- mörkin skuli miða en breytist gjaldið á dögunum níutíu hafi í framkvæmd verið miðað við hina endanlegu afgreiðslu tollsins. Þannig vill Hermann meina að hækkunin komi til fyrir toll- afgreiðslu og eldsneytið lúti því hinu breytta gjaldi. „Hefðin hefur verið þessi og við höfum þar af leiðandi ekki talið okkur heimilt annað en að innheimta þetta nýja vörugjald strax og standa skil á því til ríkisins.“ Hermann segir að skera þurfi úr þessari óvissu. Hann hafi haft samband við fjármálaráðuneytið og þar sé málið í skoðun í sam- vinnu við tollayfirvöld. Ekki feng- ust upplýsingar frá ráðuneytinu eða tollstjóra um framgang máls- ins. Skapast enginn gróði „Ef ríkið myndi harðneita að taka við þessum nýju vörugjöld- um, byggt á þessari túlkun [tolla- yfirvalda], þá værum við með pen- inga í höndunum sem við teljum okkur vera að innheimta fyrir rík- ið,“ segir Hermann inntur eftir því hvort N1 eða olíufélögunum skap- ist gróði af hinu venjubundna fyr- irkomulagi. Kæmi til þessa segir hann að bensínverð yrði lækkað í samræmi við það til leiðréttingar. Hækkun ekki án tilefnis miðað við viðtekna venju Lög sögð ekki nógu skýr um við hvaða tímamörk beri að miða Í HNOTSKURN » Skiptar skoðanir eru umvið hvaða tímamörk skuli miða við álagningu eldsneyt- isgjalds. » Venja hefur verið að miðavið það þegar farmar eru endanlega afgreiddir úr toll- inum. » Meðalverð 95 okt. bensínsá stöðvum N1 er nú 181,3 krónur. Dísilolía er í 171,6. HITAVEITA Suðurnesja mun hækka raforkuverð líkt og Lands- virkjun og Orkuveita Reykjavíkur. Ekki liggur þó fyrir hver hækkunin verður. „Hækkun Landsvirkjunar var rædd á síðasta stjórnarfundi og við neyðumst til þess með ein- hverjum hætti að fylgja á eftir,“ seg- ir Albert Albertsson, aðstoðarfor- stjóri HS. Ákvörðun um verðhækkun lá ekki fyrir hjá öðrum orkuveitum sem leit- að var upplýsinga hjá. Samþykki stjórnar er oft forsenda fyrir slíkri hækkun. Forsvarsmenn þeirra fyr- irtækja sem rætt var við virtust þó á einu máli um að Landsvirkjun gæfi tóninn með 7,5% raforkuverðshækk- uninni nú og ekki væri ólíklegt að fleiri fylgdu í kjölfarið. „Raforkuverð er einn liðurinn í neysluvísitölunni, þannig að þessi hækkun mun klárlega hafa áhrif á hana,“ sagði Henný Hinz, hagfræð- ingur hjá ASÍ. annaei@mbl.is Búast má við frekari hækkunum Bæjarlind 6 sími 554 7030 Eddufelli 2, sími 557 1730 Kjólar á 6.900 kr. Margir litir - Stórar stærðir Jónsmessunótt á Fimmvörðuháls Skráning í Jónsmessunæturgöngu Útivistar í síma 562 1000 Upplifðu stemninguna 25% afsláttur af öllum skyrtum föstudag og langan laugardag Laugavegi 47 sími 552 9122 Laugavegi 47 sími 551 7575 Áttu stóra sæng? Lín Design Laugavegi 176, gamla sjónvarpshúsið. Sími 533 2220 www.lindesign.is Þá eigum við sængurverið. Bjóðum 30% afslátt af stærri sængurverum; 140x220, 220x220 & 220x240. Margir litir & gerðir á þessu frábæra tilboði sem gildir fram á laugardag. Laugavegi 54, sími 552 5201 50% afsl. af völdum kjólum og skokkum Gildir föstudag og laugardag Langur laugardagur Opið virka daga frá 9.00-18.00 og lau. frá 10.00-16.00 Laugavegi 29 - Sími 552 4320 www.brynja.is - brynja@brynja.is 15% afsláttur af lásum í júní Langur laugardagur opið til kl. 17.00 Fréttir í tölvupósti

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.