Morgunblaðið - 12.06.2009, Blaðsíða 13
Fréttir 13INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 2009
FRÉTTASKÝRING
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
FRAMMISTAÐA lögreglunnar við sér-
stakar og hættulegar aðstæður í janúar sl.
sannaði með ótvíræðum hætti að mann-
fjöldaskipulag, sérþjálfun lögreglumanna og
sérstakur búnaður var lífsnauðsynlegt til að
afstýra óviðráðanlegu ástandi. Lögreglu-
menn héldu ró sinni og yfirvegun en árangur
þeirra er ekki síst merkilegur fyrir þær sak-
ir að það var fyrst árið 2001 sem ríkislög-
reglustjóri hóf athugun á nauðsyn þess að
koma upp viðbúnaði lögreglu vegna mann-
fjöldastjórnunar.
Mótmælin í miðborginni leystust nokkrum
sinnum út í hálfgerðar og eiginlegar óeirðir.
Þrátt fyrir það voru sárafáir á meðal al-
mennings sem þurftu á aðhlynningu að halda
á sjúkrastofnun og um tugur lögreglumanna
slasaðist minniháttar. Einn fékk hins vegar
grjót í höfuðið og var frá vinnu í töluverðan
tíma. Hann hefur þó snúið aftur líkt og aðrir.
Skipulögðum viðbúnaði lögreglu er þar
fyrst og fremst þakkað. Fyrir árið 2002 voru
hins vegar ekki til verklagsreglur né heild-
stætt skipulag um framkvæmd mann-
fjöldastjórnunar og því erfitt að ímynda sér
að lögregla hefði ráðið við verkið hefðu álíka
aðstæður komið upp.
Árið 2002 var fyrst gefin út handbók og
verklagsreglur um mannfjöldastjórnun. Tek-
ið var mið af reynslu lögreglunnar hérlendis
auk þess sem valdar voru hentugar aðferðir
frá dönsku, bresku og norsku lögreglunni.
Í Morgunblaðinu í gær var fjallað um BA-
ritgerð Vilborgar Hjörnýjar Ívarsdóttur sem
byggðist að mestu á viðtölum við fimm lög-
reglumenn í óeirðasveit lögreglunnar. Flest-
ir þeirra voru sammála um að lögregla hefði
verið of lin í aðgerðum sínum gegn mótmæl-
endum.
Aðferðafræðin umdeild
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuð-
borgarsvæðisins, hefur ekki kynnt sér efni
ritgerðarinnar til hlítar og vildi því ekki tjá
sig um hana að svo stöddu. Hann segir þó
rétt að sú aðferðafræði sem beitt var hafi
ekki verið óumdeild innan lögregluliðsins og
ákveðnir einstaklingar hafi haft aðra sýn á
málið. Hann bætir við að þegar upp sé staðið
hafi aðferðafræðin gengið upp. „Hún gekk
upp þannig að við komumst eins skaðlitlir frá
þessu og ég tel að hafi verið framast unnt.“
Einnig bendir lögreglustjórinn á að meiðsli
meðal mótmælenda hafi nær eingöngu ein-
skorðast við að skola piparúða úr augum.
Fjöldi fólks sendi lögreglunni þakklæt-
isvott, s.s. í formi blóma og kveðja, fyrir vel
unnin störf á meðan ástandið var verst. Ár-
angurinn vakti ekki aðeins athygli meðal al-
mennings á Íslandi því eftir honum var tekið
meðal annarra lögregluliða á Norðurlöndum.
Stefán segir að um þetta hafi verið rætt á
óformlegum fundum lögreglustjóra höf-
uðborga Norðurlandanna og hann er viss um
að athyglin muni enn aukast.
Aðferðafræðin gekk upp
Morgunblaðið/Golli
Mælirinn fullur Lögreglumenn voru yfirleitt rólegir og yfirvegaðir á meðan mótmælin stóðu
yfir. Þau breyttust í óeirðir aðfaranótt 22. janúar sl. og var fjöldanum þá dreift með táragasi.
Verklag lögreglu við mannfjöldastjórnun í mótmælum vekur athygli annars staðar á Norðurlöndum
Ríkislögreglustjóri gaf fyrst út handbók og verklagsreglur um mannfjöldastjórnun árið 2002
Viðbúnaðaráætlun vegna hugsanlegra
mótmæla í miðborg Reykjavíkur var gerð í
október í kjölfar mats greiningardeildar
ríkislögreglustjóra. Lögreglustjóri telur að
lögreglumenn hafi komist eins skaðlitlir
frá mótmælum og framast var unnt.
Öryggi lögreglumanna hefur aukist til
muna eftir að ný hnífa- og skotheld vesti
voru tekin í notkun. Tekin var ákvörðun
um kaupin á síðasta ári og veitti Björn
Bjarnason, þáverandi dómsmálaráðherra,
fjárveitingu til kaupanna.
Kaupin á vestunum voru boðin út og
upphaflega aðeins gert ráð fyrir hnífa-
heldum vestum. Í boði voru svo vesti sem
bæði eru skot- og hnífaheld og urðu þau
fyrir valinu. Allir lögreglumenn sem eru
við störf á vettvangi eiga þann kost að
klæðast slíku vesti.
Klæðast skotheldu