Morgunblaðið - 12.06.2009, Side 19

Morgunblaðið - 12.06.2009, Side 19
19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 2009 Helvítis fokking fokk Háskólastúdentar litu sér nær í mótmælum á Austurvelli í gær og blótuðu menntamálunum. Kristinn Haraldur Haraldsson | 10. júní Hamingjan felst í ferlinu en ekki útkomunni... Heimildarþáttur um líf og störf Evu Joly var sýndur á Rúv fyrir skömmu. Þar fengum við að sjá mann- legu hlið þessarar merki- legu konu. ... hún sagði að nautnin og hamingjan í lífinu væru fólgin því þeim skrefum sem við tökum í átt að markmiðum en ekki með því að klára eða ljúka við það mark- mið sem fyrir mann er sett. Þetta keyrir þessa kjarnakonu áfram í sinni vinnu og ber ég mikla virðingu fyrir þeim sem hafa þessa skoðun á hamingju og fyll- ingu í lífinu. Meira: hhbe.blog.is Eva Hauksdóttir | 11. júní Dauðadómur yfir glæpamönnum Íslensk stjórnvöld sem kenna sig við fé- lagshyggju og mannúð, hafa nú kveðið upp dauðadóm yfir 6 flótta- mönnum til vibótar.... Hassan Raza á ekki að vera í flóttamannabúðum. Hann á að vera í námi eða á vinnumarkaðnum eins og aðrir ungir menn. Hann á ekki að þurfa að fara aftur í aðstæður þar sem hann hefur góða ástæðu til að óttast um líf sitt, heldur á hann að njóta þeirra sjálfsögðu mannréttinda að lifa við ör- yggi. Meira: sapuopera.blog.is VIÐ undirritaðir höfum ritað all- margar greinar þar sem við höfum fært lögfræðileg rök fyrir því að okkur sem þjóð beri ekki að end- urgreiða þeim inni- stæðueigendum sem lögðu inn hjá íslensku bönkunum erlendis fyrir hrunið. Við höfum ekki fengið nein málefnaleg rök sem hnekkja okkar ályktunum. Ríkisábyrgð verður ekki til úr engu. Til að hún stofnist þarf af- dráttarlausa lagaheimild sem ekki er til staðar í dag vegna innistæðu- tryggingasjóðs. Við höfum verið þátttakendur í samstarfi ríkja í Evr- ópu þar sem við höfum tekið upp reglur sem samdar hafa verið af Evrópusambandinu. Ekkert í þeim reglum gerir íslenska ríkið ábyrgt fyrir starfsemi íslenskra einka- banka. Þær reglur hafa hins vegar ekki staðist þær væntingar sem ESB hefur byggt upp í kringum þær. Þær reyndust gallaðar og náðu ekki markmiðum sínum. Þeir ágallar geta hins vegar ekki verið á ábyrgð íslenskrar þjóðar að okkar mati. Þeir samningar sem nú hafa verið kynntir þjóðinni eru tæpast ásætt- anlegir. Ekki er með góðu móti unnt að réttlæta að við tökum á okkur ábyrgð sem við höfum aldrei gengist undir eða berum ábyrgð á með öðr- um hætti, hvað þá að það sé gert á þeim kjörum sem um hefur verið samið. Við köllum eftir lögfræðilegum rökstuðningi fyrir þeim samningum sem búið er að undirrita. Ákvörð- unin um undirritun samninganna er stór á alla mælikvarða. Hún er m.a. stór í því ljósi að ekki liggur fyrir hve mikill hluti heildarfjárhæðarinnar, 650 milljarða króna að viðbættum háum vöxtum, kemur í hlut Íslend- inga að greiða eða hvort innistæður njóti forgangs fram yfir aðrar kröfur samkvæmt neyðarlögunum. Það er engan veginn hægt að ganga út frá því að það ákvæði neyðarlaganna standist. Það liggur hins vegar fyrir að kröfuhafar allra gömlu bankanna munu láta á þetta reyna og breytir umræddur samningur þar engu um. Ef þetta forgangsákvæði laganna stenst ekki verður greiðslubyrði ís- lenska ríkisins margfalt meiri en ætla mætti samkvæmt kynningu á samningnum. Samninganefnd Íslands hefur skilað sínu verki. Forsendan í starfi hennar virðist hafa verið sú að okkur bæri skylda til að greiða og því ekki annað að gera en að semja um greiðslukjör. Þessi nálgun er ekki í samræmi við þá þingsályktun sem samþykkt var þann 5. desember sl. á Alþingi né þá kynningu sem fram fór á hlutverki samninganefndarinnar þegar hún var skipuð. Í þingsálykt- uninni ályktar Alþingi aðeins að fela ríkisstjórninni að leiða til lykta samninga við viðeigandi stjórnvöld á grundvelli tiltekinna viðmiða. Í þeim viðmiðunum er hins vegar ekkert að finna sem bendir til að Alþingi hafi litið svo á að íslenska ríkið væri greiðsluskylt. Í kynningu nefndarinnar á samn- ingnum kemur ekki fram hvers vegna rökum, sem leiddu til þess að íslenska ríkinu bæri ekki að greiða, hafi verið hafnað í samningaviðræð- unum. Ekki liggur heldur fyrir hvers vegna alþjóðlegir dómstólar voru ekki fengnir til að skera úr um deil- una svo sem eðlilegt hefði verið í samskiptum ríkja. Hafi þau sjón- armið ekki verið höfð að leiðarljósi í samningaviðræðunum að Ísland væri ekki greiðsluskylt var fyr- irfram lítil von til þess að ná við- unandi samningum. Nú er komið að Alþingi Íslendinga að taka afstöðu til málsins. Ef til eru lögfræðileg rök fyrir þeim nið- urstöðum sem samninganefndin hef- ur samið um, þá verður að kynna þau. Það er nauðsynlegt að um þau sé rætt og að skipst sé á skoðunum um þau. Jafnframt verður að greina frá því hvers vegna dómstólaleiðin var ekki valin. Hins vegar er ljóst að ef ekki er upplýst um röksemdir samninganefndarinnar eru þing- menn í jafnmikilli óvissu um það á hverju hún byggist og aðrir lands- menn. Á hverju eiga þeir þá að byggja sína afstöðu? Séu niðurstöður samninganna byggðar á pólitískum sjónarmiðum, t.d. vegna mögulegrar aðild- arumsóknar Íslands að ESB, eða beinum eða óbeinum þvingunum, verður að upplýsa það. Síðan verða þingmenn að taka upplýsta ákvörð- un um hvort þau sjónarmið réttlæti skuldsetningu þjóðarinnar sem hljóða upp á óvissar en gríðarlegar fjárhæðir þrátt fyrir að lögfræðileg rök hnígi í aðra átt. Það er algjörlega á valdi Alþingis að ákveða hvert framhald þessa máls verður óháð því hvað núverandi og fyrrverandi ríkisstjórnir kunna að hafa sagt eða gert. Við skorum á þingmenn á Alþingi Íslendinga að krefjast þess að öll rök fyrir þeim samningi sem gerður hefur verið, hvort sem þau eru lögfræðileg eða pólitísk, verði kynnt þingi og þjóð og að ákvörðun verði síðan tekin í fram- haldi af því. Þjóðin hlýtur að spyrja: treysta þingmenn sér til að taka ákvörðun um að skuldsetja hana um 650 milljarða kr. auk hárra vaxta, án þess að skýr og afdráttarlaus rök- stuðningur liggi að baki? Eftir Lárus Blöndal og Stefán Má Stefánsson » Þjóðin hlýtur að spyrja: treysta þing- menn sér til að taka ákvörðun um að skuld- setja hana um 650 millj- arða kr. auk hárra vaxta, án þess að skýr og af- dráttarlaus rökstuðn- ingur liggi að baki? Stefán Már Stefánsson Lárus er hæstaréttarlögmaður. Stefán Már er prófessor. Áskorun til þingmanna Lárus Blöndal BLOG.IS SAMKVÆMT lög- um um Ríkisútvarpið ohf. felur útvarp í al- mannaþágu í sér „að leggja rækt við ís- lenska tungu, sögu þjóðarinnar og menn- ingararfleifð“. Í reglum um auglýs- ingar í Ríkisútvarpinu segir: „Auglýsingar skulu vera á lýtalausu íslensku máli.“ Þessar reglur er væntanlega settar til þess að eftir þeim sé far- ið. Á því er misbrestur. Nær daglega heyrum við hlust- endur auglýsingar sem eru að hálfu leyti á ensku. Ég leyfi mér að nefna tvö dæmi: Reunion – Skíðaskálinn í Hveradölum og Sunnudagsbrunch – Hótel Loft- leiðir. Þessar auglýsingar eru ekki á lýtalausri íslensku. Þær eru að hálfu leyti á ensku. Þær eru á hrognamáli. Nú leikur mér hugur á að vita hversvegna Ríkisútvarpið fer ekki að réttum lögum og settum reglum. Sínum eigin reglum. Læt- ur starfsfólk auglýsingadeildar ekki að stjórn? Er þetta gert með vitund, vilja og góðu samþykki æðstu embættismanna og stjórnar stofnunarinnar? Þarf að höfða mál gegn Ríkisútvarpinu ohf. svo stofnunin fari að lögum og reglum? Í lokin um annað efni: Ríkisútvarpið brýtur ef til vill ekki, í strangasta skilningi, lögin um bann við áfengisauglýsingum. En í bjórauglýsingum sem Ríkisútvarpið ítrekað birtir dylst engum að verið er að auglýsa áfengan bjór, þótt orðið léttöl birtist í tvær sekúndur, eða svo, með ör- smáu letri neðst í hægra skjáhorni. Það er opinberri stofnun, Rík- isútvarpinu, til skammar að fara í kringum landslög með þeim hætti sem gert er. Vissulega er Ríkisútvarpið í harðri samkeppni á auglýs- ingamarkaði, en það á ekki að afla tekna með því að brjóta reglur og fara í kringum lögin. Eftir Eið Guðnason » Þarf að höfða mál gegn Ríkisútvarpinu ohf. svo stofnunin fari að lögum og reglum? Eiður Guðnason Höfundur er fyrrverandi sendiherra og starfsmaður Ríkisútvarpsins um ellefu ára skeið. Ríkisútvarpið brýtur sínar eigin reglur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.