Morgunblaðið - 12.06.2009, Side 22

Morgunblaðið - 12.06.2009, Side 22
22 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 2009 ✝ Nína Lárusdóttirfæddist á Eyr- arbakka 6. júní 1932. Hún lést á Landspít- alanum í Fossvogi 4. júní 2009. Foreldrar hennar voru Sigríður Haraldsdóttir, f. á Eyrarbakka 16.8. 1913, d. 23.7. 1987 og Lárus Böðvarsson, f. á Seyðisfirði 15.5. 1905, d. 11.9. 1972. Systir Nínu er El- ísabet, f. 1934, gift Jóni Friðgeiri Magn- ússyni. Bróðir, samfeðra, Valur Fannar Marteinsson, f. 1927, d. 2000, kona hans er Hanna Að- alsteinsdóttir. Nína giftist 19.4. 1951 Hans Benjamínssyni vélsmið, f. 23.8. 1926, d. 1.1. 1982. Foreldrar hans voru Benjamín Hansson, f. 1893, d. 1961 og Bríet Ásmundsdóttir, f. 1903, d. 1976. Sonur Nínu og Hans er Benjamín, f. 10.12. 1950 kvæntur Eygló Karlsdóttur, f. 5.10. 1951. Börn þeirra eru a) Harpa, f. 1973, gift Sturlu Fanndal Birki- ssyni, börn Birkir, f. 1999, Eygló, f. 2001 og Benjamín, f. 2006, b) Hans, f. 1982, í sambúð með Sólrúnu Hörpu Þrastardóttur. Nína var alin upp á Seyðisfirði af föð- urfólki sínu en 16 ára gömul fluttist hún til Reykjavíkur og bjó þar síð- an. Hún starfaði við verslunarstörf, síðast hjá Epal eða fram til 72 ára aldurs. Útför Nínu fer fram frá Foss- vogskirkju í dag, 12. júní og hefst athöfnin kl. 13. Meira: mbl.is/minningar Örlagavefirnir eru skrítnir; eitt at- vik verður þess valdandi, að í einu vet- fangi breytist allt í lífinu og tekur óvænta stefnu. Þannig var það með Nínu mágkonu mína, foreldrar hennar Sigríður Har- aldsdóttir og Lárus Böðvarsson bjuggu á Eyrarbakka, hann var apó- tekari þar. Ásdís systir hans, alltaf kölluð Dísa, var hjá þeim. Nína var fædd 6. janúar, það er á þrettándan- um, hana langaði að kveikt væri á jólatrénu. Dísa gerði það, logarnir læstu sig í gardínuna og húsið brann. Í framhaldi af því skildu þau Lárus og Dista en það var gælunafn Sigríð- ar. Þannig varð það, að Nína ólst upp hjá þeim Dísu og Stefáni bróður hennar ásamt Jónínu móður þeirra í svokölluðu Stebbahúsi á Seyðisfirði. Í þessum frændgarði öllum ólst Nína upp. Mamma hennar Sigríður og El- ísabet systir Nínu voru áfram á Suð- urlandi. Nína naut góðs uppeldis, hún var bæði falleg, góð og skynsöm. Hún tók landspróf fyrst þegar það var tekið, auðvitað með glans. Þaðan lá leiðin í Menntaskólann í Reykjavík. Hans bróðir minn og Nína kynnt- ust barnung á Seyðisfirði, eignuðust soninn Benjamín Hansson. Mér er minnisstætt hvað þau amman og af- inn voru stolt af barnabarninu. Nína var einstök kona og yrði það langur listi að telja það upp. Gagnvart mér og minni fjölskyldu var hún allt í senn, góð mágkona og einstakur vin- ur krakkanna okkar, kom í öll afmæli og um jól, gaf þeim gjafir og rækti fjölskylduböndin. Það er gott að minnast svona góðr- ar konu, manni verður ósjálfrátt hugsað til allra hinna, sem farnir eru, hvað það verður gott að fá Nínu í hóp- inn. Það verður ekki leiðinlegt eftir það. Mér finnst að við sem eftir erum eigum að tileinka okkur eitthvað af öllu því góða, sem Nína bjó yfir. Við fjölskyldan vottum Benna, Eygló, Hörpu, Hans og fjölskyldum þeirra samúð. Ásta Benjamíns og Kristján, Selfossi. Elsku amma mín. Nú er komið að kveðjustund. Það er erfitt að kveðja en ég hugga mig við það að ég veit að nú er runnin upp langþráð stund hjá ykkur Hans afa. Ég er þess fullviss að hann hefur tek- ið á móti þér, en þið voruð skilin að allt of snemma. Þegar ég hugsa til baka eru svo ótal minningar sem hellast yfir mig. Mér er svo minnisstæður undrunar- og gleðisvipurinn þegar ég kom óvænt gangandi síðasta spölinn að Grá- kambi aðeins 5 ára gömul. Þá hafði Hans afi þurft að fara í bæinn til að útrétta og á bakaleiðinni leyfði hann mér að koma með í Grákamb til að koma þér á óvart. Þegar ég birtist þarna fékk ég að launum risastórt knús og auðvitað var allt látið eftir mér eins og vanalega. Í Grákambi leið þér mjög vel og þú hafðir yndi af því að fylgjast með gróðrinum og sjá hann vaxa og dafna. Ég man að mér sem barni þótti jafn- vel stundum nóg um hve mikið þú gast dásamað gróðurinn og veðrið í Grákambi. Þú settir alltaf þarfir annarra fram fyrir þínar eigin þarfir og sannaðist það best þegar ég fékk að gista hjá þér og afa. Ég var iðulega komin fram úr klukkan 7 á sunnudagsmorgnum og þá taldir þú það ekki eftir þér að koma með mér fram og fara að spila við mig. Síðan þegar sjoppan í hverf- inu hafði opnað nokkrum klukku- stundum síðar fengum við okkur göngutúr þangað til að kaupa okkur eitthvert góðgæti. Þetta voru sannar- lega sæludagar hjá mér. Við brölluðum nú líka heilmargt saman og þegar ég var 9 ára og þú um fimmtugt fórum við tvær saman í fyrstu utanlandsferð okkar beggja. Við fórum til Danmerkur og vorum duglegar að drífa okkur í þær skoð- unarferðir sem í boði voru þannig að það voru fáar kirkjur og fáir skemmtigarðar sem við áttum eftir að skoða þegar við héldum heim til Ís- lands, þreyttar en alsælar með okkar fyrstu utanlandsferð. Amma, þú varst yndisleg og ein- stök kona og ávallt sjálfri þér nóg en einstaklega rausnarleg við fólk sem þér þótti vænt um. Ekki man ég eftir að hafa heyrt þig kvarta, enda var það ekki þinn stíll þar sem þú vildir aldrei láta hafa neitt fyrir þér. Elsku amma, þakka þér fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig og fjöl- skyldu mína. Söknuður okkar er mik- ill, en minning þín mun lifa í hjörtum okkar sem eftir standa. Ég kveð þig að sinni. Þín, Harpa. Nína Lárusdóttir ✝ Árni Óskarsson,frá Meiðavöllum í Kelduhverfi, fæddist þar 16. maí 1946. Hann lést á Sjúkra- húsi Akureyrar 2. júní 2009. Árni ólst upp á Meiðavöllum og bjó þar alla sína ævi. Hann var sonur hjónanna Óskars Ingvarssonar frá Undirvegg, f. í Grá- síðu 5. febrúar 1918, og Guðrúnar Árna- dóttur frá Meiðavöll- um, f. í Arnarnesi 24. júlí 1922. Árni var einbirni. Foreldrar Árna fluttu á Meiða- velli árið 1928. Árni starfaði við bú for- eldra sinna, en eftir að faðir hans lést tók Árni við og bjó þar ásamt móður sinni. Á Meiðavöllum var um margra ára skeið að- allega stundaður kúa- og sauðfjárbúskapur, en síðustu árin hefur nær eingöngu verið búið með sauðfé. Útför Árna fer fram frá Garðskirkju í dag, 12. júní, og hefst athöfnin klukkan 14. Jarðsett verður í Skinnastaða- kirkjugarði. Elskulegur vinur minn og frændi, Árni frá Meiðavöllum. Takk fyrir vináttuna, væntumþykj- una, gestrisnina, samverustundirnar, full stígvél af vatni og allt spjallið í símann. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama. En orðstír deyr aldrei hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum.) Ég kveð þig með söknuði. Þín frænka Auður Mikaelsdóttir. Með þessum orðum langar mig að minnast Árna Óskarssonar bónda á Meiðavöllum í Kelduhverfi. Árni frændi eins og hann var ævinlega kallaður á mínu heimili var einstakur persónuleiki sem setti mikinn svip á samfélagið hér í Kelduhverfi. Hnyttin tilsvör og beittur húmor einkenndu Árna og var þá ekkert undanskilið, hvorki menn né málefni. Árni og Meiðavellir eru sem eitt í mínum huga. Bærinn stendur á vest- urbarmi Ásbyrgis og er óvíða eins fal- legt útsýni og frá Meiðavöllum. Ás- byrgið í austri, marflatt undirlendið við Öxarfjörð í norðri, keldhverfsku heið- arnar í vestri og sunnan við túnjaðar- inn breiðir Meiðavallaskógur úr sér, einn stærsti samfelldi birkiskógur landsins. Árni fylgdist glöggt með öllu því sem gerðist í nánasta umhverfi hans, hvort sem það voru rjúpurnar í skóginum, fálkinn í byrginu eða mýsn- ar sem spáðu fyrir um ríkjandi vind- áttir á komandi vetri. Árni gerði mikið af því að spá um veður og frægur varð hann af því að spá í músaholur. Við Árni áttum samleið í allmörg ár þegar ég starfaði í þjóðgarðinum í Jökulsárgljúfrum. Þar vann hann fyr- ir okkur sem verktaki og var auk þess okkar næsti nágranni. Þegar mikið lá við gat verið gott að leita til Árna sem oft brást þá fljótt og skjótt við þrátt fyrir miklar annir. Stundum fannst honum þó asinn of mikill og lét þá frænku sína alveg vita af því. Ég ætti nú ekkert með að vera rífa hann úr heyskapnum. Okkur sem í þjóðgarð- inum störfuðum þótti alltaf gaman að fá Árna í heimsókn, hvort sem var vegna þeirra verka sem hann innti af hendi eða allra skemmtilegu sam- ræðnanna um ýmis málefni. Mér er það minnisstætt þegar ég fékk hann til að koma með mér að Dettifossi vestanverðum fyrir rúmum 10 árum. Á leiðinni þangað sagði hann mér að þetta væri hans fyrsta heim- sókn að Dettifossi á þessum stað þrátt fyrir að hafa, haust eftir haust, farið í göngur ekki svo langt frá. Á heimleið- inni hafði hann á orði að þó honum fyndist nú frekar tilgangslaust að vera að leggja á sig svona langan gang frá bílastæðinu að fossinum, þá hefði þessi heimsókn að Dettifossi reyndar alveg verið þess virði. Þetta var dæmigerður Árni. Ég hitti Árna síðast á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri í apríl síð- astliðnum. Þá var hann nýbúinn að gangast undir erfiða aðgerð, bar sig þó vel og húmorinn og tilsvörin enn á sínum stað. Ekki átti ég þá von á að þetta væri í síðasta skipti sem ég hitti Árna en önnur varð raunin. Ég og fjölskylda mín vottum Guð- rúnu móður hans okkar dýpstu samúð. Sigþrúður Stella Jóhannsdóttir. Árni Óskarsson  Fleiri minningargreinar um Nínu Lárusdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.  Fleiri minningargreinar um Árna Óskarsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, FINNBOGI ÓLAFSSON, Skólastíg 14a, Stykkishólmi, sem lést á St. Franciskusspítalanum í Stykkishólmi mánudaginn 8. júní, verður jarðsunginn frá Stykkishólmskirkju laugardaginn 13. júní kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á St. Franciskusspítalann eða Dvalarheimili aldraðra í Stykkishólmi. Helga Ólöf Finnbogadóttir, Reynir Gísli Hjaltason, Björg Kristín Finnbogadóttir, Andrés Kristjánsson, Ellert Rúnar Finnbogason, Sigurlína Ragúels, Anna Finnbogadóttir, Smári Steinarsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, STEFÁN STEFÁNSSON fyrrv. bæjarverkfræðingur á Akureyri, Skálatúni 11, áður Barðstúni 1, Akureyri, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri sunnu- daginn 7. júní. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 16. júní kl. 13.30. Jarðsett verður á Möðruvöllum í Hörgárdal. Jóhanna Stefánsdóttir, Stefán Stefánsson, Þórhalla L. Guðmundsdóttir, Davíð Stefánsson, Olga Kashapova, Þóra Ragnheiður Stefánsdóttir, Erling R. Erlingsson og barnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, SIGRÍÐUR ÞÓRLAUG ELSA BJÖRG SVEINSDÓTTIR fyrrv. húsfreyja í Leyningi Eyjafjarðarsveit, Mýrarvegi 111, Akureyri, lést á lyfjadeild Sjúkrahússins á Akureyri þriðju- daginn 9. júní. Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 19. júní kl. 13.30. Áslaug Kristjánsdóttir, Gunnar Frímannsson, Petra Kristjánsdóttir, Gísli Bogi Jóhannesson, Haukur Kristjánsson, Hildur Hafstað, Erlingur Örn Kristjánsson, Vilhjálmur Geir Kristjánsson, Pollý Rósa Brynjólfsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, LEIFUR ÞÓR JÓSEFSSON, Ásgarðsvegi 47, Húsavík, lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga miðvikudaginn 10. júní. Hann verður jarðsunginn frá Húsavíkurkirkju föstudaginn 19. júní kl. 14.00. Elísabet G. Vigfúsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástríkur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR HAFSTEINN BENJAMÍNSSON, Rjúpnasölum 10, Kópavogi, lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hring- braut þriðjudaginn 9. júní. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudag- inn 18. júní kl. 15.00. Erla Jóna Sigurðardóttir, Árni Þór Sigurðsson, Freygerður Anna Ólafsdóttir, Guðmundur Sigurðsson, Pálína Margrét Hafsteinsdóttir, Eva Rún Árnadóttir, Sigþór Óli Árnason, Arnar Freyr Árnason.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.