Nýtt kvennablað - 01.10.1942, Síða 12
N’ÍTT KVENNABLAÐ
8
Þýzk ógnaröld í Póllandi.
Konur og börn í fremstu víglínu.
ógnarstjórn Þjóðverja í Póllandi líkist engu,
sem áður eru dæmi til í sögunni. Hver maður,
sem lifir í hinum frjálsa heimi, og sem ekki
hefir verið hræddur við að horfast í auau við
sannleikann, þekkir frásagnir um hryðjuverk
þau, sem þar hafa verið unnin.
En i þeim glæpaannál eru nokkur hermdar-
verk, sem taka öllu öðru fram: misþyrmingar
á konum, iinglingum og börnum.
Jafnvel þeim er engin linkind sýnd, heldur
pvnduð og ofsótt, — eins og þau áttu sér engrar
miskunnar von á dögum innrásarinnar, þegar
þýzkir flugmenn slungu sér yfir vegi og þorp og
létu vélbyssuskothríð dynja á konum og hörn-
um.
Eitt af fyrstu verkum hinnar þýzku stjórnar
í Varsjá var að dæma lil dauða tvær pólskar
konur, fyrir að rifa niður þýzka tilkynningu.
önnur var gömul lcona, hitt var ungur kven-
stúdent.
Félagsleg löggjöf í Póllandi.
Félagsleg löggjöf hins frjálsa Póllands lét sér
sérstaklega annt um konur og börn. Vinna
barna og unglinga innan 14 ára var bönnuð.
Sömuleiðis næturvinna kvenna og barná.
Bannað var að láta konur vinna neðanjarð-
arvinnu (námuvinnu), eða að kemiskri fram-
leiðslu, er útheimti að notuð væru eitruð efni.
Móðir og harn nutu sérstakrar verndar. Ó-
frískar konur máttu vera fjarverandi úr vinnu
6 daga í mánuði hverjum. Bannað var að taka
ófriskar konur í erfiðisvinnu og alls ekki í vinnu
á tímabilinu fi vikum fyrir og 6 vikum eftir
barnsburð, og óheimilt var að segja þeim upp
vinnu þann tíma. Fæðingarkostnaðurinn greidd-
ist af ti-yggingarstofnun.
Allan ]»ann tíma, er þær voru frá vinnu vegna
barnsburðar, voru þeim greidd mæðralaun, er
gátu numið allt að 100% af kaupi þeirra.
Allar verksmiðjur og vinnustöðvar, er höfðu
i þjónustu sinni 100 konur eða yfir, voru skyldar
til að reka vöggustofu fyrir smábörn og gefa
mæðrunum % klukkustundar fri tvisvar í vinnu-
timanum til að leggja börnin á brjóst.
Hlé þessi reiknuðust með i vinnutímanum.
Fóstrur höfðu stöðugt eftirlit með börnunum.
öll þessi fríðindi voru mæðrunum að kostn-
aðarlausu.
Til að gæta réttar kvenna og unglinga var
sett á stofn sérstakt vinnueftirlit. Heyrði það
undir atvinnumálanáðuneytið, en deild þeirri.
er um þessi mál fjallaði, veitti kona forstöðu.
Jafnrétti kynjanna í pyndingum.
Pólland var ekki fyr komið undir þýzka
stjórn, heldur en öll félagsleg löggjöf var bók-
staflega numin burlu. Tryggingar, fri með kaupi
og mæðravernd var afnumin. Hin pólska verka-
kona nýtur engrar vérndar lengur, eins og hinn
pólski verkamaður er hún nú gjörsamlega rétt-
laus. Konur hafa verið liflátnar, sendar í fanga-
búðir og pyndaðar jafnt og karlmenn. Þær hafa
verið reknar i nauðungárvinnu eins og kar-
menn, eini munurinn er að nokkrar þeirra hafa
ekki verið settar í þrælkunarvinnu — heldur
hefir þeirra beðft það, sem margfallt verra var.
Sumar þessar konur og ungu stúlkur komu
aldrei aftur og af þeim spurðist ekkert. Aðrar
komu aftur: veiklaðar, eyðilagðar — hálf vit-
skertar.
Leikvellir
eru einungis handa þýzkum börnum.
Hinu pólska barni er engin miskun sýnd.
Það er svift réttindum til framhaldsmenntun-
ar, látið draga fram lífið á hungurskammti og
bannað að sækja opinbera skemmligarða og
Ieikvelli. Þeir eru handa þýzkum börnum.
Óteljandi dauðadómar yfir konum.
í þýzku blöðunum getur maður lesið um ótal
dauðadóma yfir konum fyrir lítilfjörlegustu
yfirsjónir. Sem dæmi má nefna: Þ. 18. mai
1941 er 44 ára gömul kona tekin af lífi fyrir
að hlusta á útvarp frá London. Þ. 17. ágúst
1941 eru tvær pólskar konur dæmdar til dauða
fyrir að slá þýzkan kaupmann, sem ekki vildi
selja þeim mjólk handa hungruðum. börnum
þeirra. Þ. 9. des. 1941 er 24 ára gömul stúlka
tekin af lífi fyrir tilraun til að strjúka úr fang-
elsi. Þ. 5. febr. 1942 er kona dæmd til dauða
fyrir að hafa tafið fyrir hernaðarpóstsendingu.
Takmarkið: Útrýming á pólsku þjóðinni.
Til að ná því takmarki, að útrýma hinu pólska
þjóðerni, hafa Þjóðverjar gefið út lög, sem
banna körlum að giftast innan við 28 ára aldur
og konum yngri en 25 ára.
Hjónabönd, sem stofnað er lil innan þessa ald-
urs, eru dæmd sem lauslæti og börnin óskilgetin.