Nýtt kvennablað - 01.01.1944, Blaðsíða 5

Nýtt kvennablað - 01.01.1944, Blaðsíða 5
5. árg. - I. tbl, MTTT KVEMMABLAB | Minningarorð. | „Ó, þú þunga umbreyting.“ Síðustu vikurnar hefur víða syrt að, þó sói hafi hækkað. Sjóslysin, er Hilmir fórst og síðan Max Pemberton, hafa kippt fjölda manns frá starfi, sem unnið var til blessunar heimilum þeirra og þjóð. Tvær húsmæður, sem sjaldan yfirgáfu heimiii sín, fórust með Hilmi og sjö ára gamall drengur, auk vaskra manna. Með Max Pemberton fórst tuttugu og níu manna einvalalið. Með þessum skipshöfnum er höggvið stórt skarð í drengjaval hinnar íslenzku sjómanna- stéttar, en eftir eru sárin mörg og stór. Hér hafa farizt saman mágar, feðgar og bræður. Hvílíkar helfregnir. En frá hjarta hvers góðs íslendings stígur þakklæti og aðdáun til þeirra, er stóðu til hinztu stundar í fylkingarbrjósti í baráttu þjóð- arinnar fyrir afkomu sinni. Guð blessi þá og ástvini þeirra. Hjúkrunarkonur og Ijósmæður í sveitum. Er ég hóf máls á að koma up'p skólahcimilum í bæjunum, fvrir ungar stúlkur, er hjálpa vildu til við húsverk, utan skólans, fy-rripart dagsins, 3—4 tíma á dag, gegn heimilisvist í skólanum og kennslu í ýmsu því, er þeim mætti að gagní koma seinnipartana, urðu fáir til að taka undir við mig um nauðsyn þcss, eða taka til máls um slíkt fyrirkomulag, og þó ýmsir í orði kveðnu húist við að full þörf væri á heimili starfsstúlkna, tiafa kvenfélög eða bæjarfélög ekki rætt málið, svo ég vili til. Aftur hef ég lieyrt orð falla i þá átt, að sveitafólk mundi ekki kæra sig um að senda dætur sínar i skóla, ef sú kvöð væri á, að stjana undir frúrnar í Reykjavík. — Svona lagað skólaheimili yrði alls ekki sótt. — Hús- freyjunum mundi þykja tímavinnan dýr o. s. frv. En það þarf ekki því til að dreifa, að sækja stúlkur út í sveitir; kaupstaðirnir eru nokkuð birgir sjálfir af ungum stúlkum. Og dýrara yrði húsfreyjunum að horga mánaðarkaup og hús- næði og fullt fæði. Einu sinni lieyrði ég á tal tveggja húsmæðra, við cinn af bæjarfulltrúum Reykajvíkur. Töluðu þær um vandræði, sem af því gæti hlotizt, að húsmæður fengju ekki hjálp, livað sem i boði væri. Þótti þeim forystumenn hæjarins þurfa að ráða fram úr þessu með þeim. En hann svaraði aðeins: „Ríðið þið hara, hiðið þið hara.‘* Þær fengju nógar vinnukonur að stríðinu loknu. En livers vegna að hugsa aðeins um kaup- staðina? Veit ég vel, að engu síður þarf að létta undir á sveitaheimilunum, svo sagðist þá líka frú Jóninu S. Líndal á Lækjarmóti í fyrravetur. En aðstæðurnar eru þar að þvi leyti verri, að stúlkurnar vilja heldur í bæjunum vera. Mismunandi fólkssælar eru sveitirnar, og mis- munandi ráðagott er fólkið að ráða fram úr vandkyæðum sínum. Dæmi eru til þess, að kvenfélög hafa ráðna hjálparstúlku til að lilaupa undir hagga þar sem verst stendur á. Sitja þau heimili fyrir vinnu stúlkunnar, þar sem húsmóð- irin er veik eða heimilið að öðru leyli illa statt. Hjálparstúlkan gengur á milli og gerir það, sem mest kallar að á þeim og þcim hænum. Veit ég að þetta l)lessast ágællega, þegar félögin eru heppin með stúlkuna. Félögin áhyrgjast henni kaupið. En því miður er ]>etla líklega of sjald- gæft, og svo engan veginn fullnægjandi, þegar veikindi herja á heimilin. Það þarf að tryggja sveitunum hjálp lil að sinna sjúklingum. — Þó læknis sé viljað, sem ekki er víst hlaupið að i sumum héruðum landsins, mun góð og skyn- samleg lijúkrun oft ráða miklu um batann. Yki það mikið á öryggi liúsmæðranna, að geta leit- að og vænst hjálpar lijá kunnandi konum. Mætti það auk lieldur verða til þess, að unga fólkið' l)úsettist frekar í sveitinni.

x

Nýtt kvennablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.