Nýtt kvennablað - 01.10.1947, Side 12

Nýtt kvennablað - 01.10.1947, Side 12
þar í svolitlum afdal, sem er kominn í eySi, nema þessl eini bær. Það er fastheldni gamla mannsins að þakka, eða sér- vizku, eða nú hvað það heitir, að þar er búið ennþá, því þetta er fjarska afskekkt, það var Sveinn hreppstjóri, sem varð fyrir svörum. — Þau búa þar ein með krakka, gömlu hjónin, hélt hann áfram. Ég læt oft vitja um þau að vetr- inum til, því það er stytzt frá mér. Konan er óróleg, ef ég geri það ekki. Enda veit ég satt að segja ekki hvað þau gerðu, ef annaðhvort þeirra veiktist, en það er lán, að þau hafa hestaheilsu. Sýslumaðurinn ætlaði að spyrja meira, en Þor- grimur gall þá upp, um leið og hann benti með svipunni á háreistan bæ með mörgum þiljum, sem stóð á stóru iðgrænu túni: — Sjáið þér nú, sýslumaður góður, þarna er nú kotið mitt. Það er búið á mörgum skikanum, sem er Iélegri. Ég vona, að þér sýnið lítillæti og komið heim og þiggið kaffisopa. Ekki reið hann fyrir neðan garð, blessaður öldungurinn, sein skipaði sætið yðar fyrrum. Þeir beygðu út af veginum og riðu heim að Brún. Eftir að hafa drukkið kaffi og hvílt sig dágóða stund, var haldið áfram að Hofi, sem var þingstaður hreppsins. Þar ætlaði sýslumaður að gista um nóttina. Hon- um var vísað til sængurs frammi í stofu. Það voru dáiitið óskýrar hugsanimar, svona upp á það síðasta, og fannst þeim þá, ferðafélögum hans, að hann vera sparneytinn á innihald vasapelanna hjá þvi, sem fyrirrennari hans hafði verið. Samt mundi hann að Sveinn hreppstjóri hafði sýnt honum hvar dalurinn, sem Hólakot stóð í, skarst inn í fjöllin, og bónd- inn þar héti Hannes. Hann vaknaði snemma um morguninn við hanagal og háværar bamsraddir. Hann hafði álitið það snemmt, en þegar hann leit á úrið, sá hann að svo var ekki. Honum hafði bara fundizt of snemmt að vakna frá því, sem hann var að dreyma. Það var æskuvinkonan ógleyman- lega, sem hafði birtzt honum svona skýrt. Hún kom sjaldan til hans í draumi nú orðið. En áður — þá hafði hún sífellt vitjao hans í svefninum, gert næturnar hans sælustu stundir, eins og meðan þau voru saman og nutu ástar sinnar. Hann rifjaði upp drauminn. Hann var svo skýr. Hún hafði setið þarna á stólnum, rétt á móti rúminu hans, svona fögur og brosandi, á hvítum, síðura kjól, með slegið fallega, bjarta hárið. Hann hafði látið i ljós, að hann hefði ekki húizt við að sjá hana hérna. En hún hafði sagt: — Ég á hérna heima. Ég sá þegar þú reiðst í hlaðið í gær. — Hesturinn þinn var fallegur. — Ja, þú átt að fá annan, þóttist hann segja, því alltaf hugsaði hann um það, i svefninum, að búa saman við hana. — Ég er að fara upp að Hólakoti, en ég þarf ekki hest, þú verður samferða. Þá vaknaði hann. Var það ekki undarlegt, að hann skyldi dreyma hana núna. Það var svo langt síðan að hann hafði séð hana í svefni. Líklega var það af því, að hann var að hugsa um hana í gær, þegar hann reið yfir sveitina hennar. Einu sinni hafði hún sagt við hann f gamni. — Þú skalt sækja um sýsluna mína, þegar þú ert búinn að læra. Kannske verð ég þá búandi á einhverju kotinu og stend úti til að sjá hvað hestarnir þinir eru fallegir þegar þú ríður fyrir ofan, eða neðan? Var það ekki undarlegt, að hún skyldi minnast á hestinn hans í draumnum? En hann hafði bara sagt henni,að hún yrði hvcrgi, ncma þar sem hann væri. Hann ætlaði sér með bjartsýni og cldhita æskunnar, að brjóta niður alla örðugleika, ættardramb móður sinnar hvað þá annað, og njóta hennar, þessarar góðu 6túlku, lifið á enda. En forlögin voru honum harðlynd. Hann fékk aldrei bréf frá henni eða frétti neitt um hana, fyrr en hann kom heim eftir tvö ár. Hann hafði beðið yngri systur sína, Karó- línu, að segja sér eitthvað af henni, en hún skrifaði aldrei eitt orð um hana. Hann spurði hana strax eftir Maríu, fyrsta daginn, 6em hann var heima. — Hún María, sagði hún þá BALLKJÓLLINN. Þegar við höfum lagt nið- ur íslenzka húninginn, verð- um við allar, ungar og gamlar, að eiga síðan kjól, hvernig sem það tekst nú þegar skömmtunin skellur á. Á íslandi eru nú 66213 karlmenn, 66537 konur. Þannig fórust henni orð um styrkveitingar ríkisins: Styrkirnir drepa öll góðverk fyrir utan allt annað íll, sem þeir hafa í för með sér. Síðastliðið ár tók blind stúlka stúdentspróf í Sví- þjóð. FAGURT STARF. Frú Unnur Ólafsdóttir hafði í sumar sýningu á messu- hökli og altaristöflum, er hún hefur gert af sinni kunnu listfengi. Fé er inn kom á sýningunni í Reykja- vík og Akureyri gaf hún blindu fólki á íslandi, og nam það 32 þúsundum króna. Allan kostnað af sýningunni bar hún sjálf. hún er dáin fyrir löngu. Ilún dó strax um haustið, eftir að hún for hcðan. Hún fór í júní heim til foreldra sinna. Eða átti hún ekki foreldra? — Því sagðir þú mér aldrei neitt af henni, þcgar ég bað þig þess? spurði hann. En það mundi hún ekki, að hann hefði nokkurn tima gert. Hann var alveg ringlaður. Hann hafði búizt við að heyra að hún væri gift, því hún hafði alltaf verið svo vonlítil um, að það ætti fyrir sér að liggja að giftast honum. En að hún væri dáin, það hafði honum aldrei dottið í hug. — Úr hverju ætli hún hafi dáið? Það mundi hún nú ekki. En það gat skcð, að mamma myndi það. Og svo hafði hún farið fram til að fá greitt úr þessu. — Það var taugaveiki, sagði frúin, svo hátt að hann heyrði það inn í stofuna. Alltaf þessi taugaveiki hjá þessum fátækl- ingum, sem stafar af soðaskap. Þetta voru fréttirnar, scm móð- ir han6 kallaði til hans kalt og vægðarlaust, þó henni væri vel kunnugt um hvern hug hann bar til Maríu. Og svo hafði hún ekki getað stillt 6Íg um að bæta þessari lítilsvirðingu aftan við andlátsfregnina. Hann hafði ráfað út með sjónum, leitað uppi þá staði, þar sem þau höfðu verið vön að sitja sam- an, og ekki látið sjá sig allan daginn. Eftir þetta veiktist Kar- ólína alvarlcga af berklum og var flutt á hæli, þar endaði hún æfina nokkru seinna. Lánið hafði algerlega yfirgefið heimil- ið árið eftir að María dó. Hin systirin var nú á hæli utan- ^ant^s' Framhald. 10 NÝTT KVENNABLAÐ

x

Nýtt kvennablað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.