Nýtt kvennablað - 01.05.1955, Page 2
SOFÐU RÓTT (Gunnhildur kóngamóðir).
Margar konur hafa spurt Nýtt kvennahlað um handa-
vinnufyrirmyndir þær, sem Ása Guðmundsdóttir teikn-
aði og gaf út 1947. Blaðið hefur aflað sér þeirra upp-
lýsinga, að nokkur eintök af hverri fyrirmynd eru til
og getur blaðið útvegað þær. Fyrirmyndirnar eru
fjórar, allar fyrir gobelinsaum í íslenzkan ullarjafa.
Verðið er sem hér segir:
Landslagið 70.00 kr.
Vetrarferð 50,00 —
Krýningin 70,00 —
Sofðu rótt 70,00 —
Þær konur, sem vildu eignast þessar fyrirmyndir,
geta skrifað blaðinu og verða þær þá sendar í póst-
kröfu. Allar upplýsingar um stærð myndarinnar og
garn fylgja mynztrunum. (Mun blaðið hirta hinar
fyrirm. á næstunni).
APRtL
(1 góða veðrlnu).
Sólín skín og svellin bræðir, I»restir, erlur, svanlr syngja
sumarskarti landið klæðir. um sólargeisla, cr vorið yngja
Lækir streyma, lindir hjala, og lóan smá með ástar-óma
ljósið vekur strá á bala. eykur vorsins dýrðarljóma.
Lands vors dýrð og unun alla,
er eygló skín og daggir falla,
líta má í vorsins vexti.
Vor er allra söngva tetxti. J.
Árstíðaskiptin
Þá hefur blcssað sumaiið 1955 haldið innreið sína.
Og þó við fögnuðum því ekki með pálmaviðargreinum
cða með því að kasta klæðum á veginn, gerðum við
það á annan hátt. Klæddum börnin í fallegustu fötin
sín og fengum þeim fána í hönd. Síðustu orð gamallar
konu, sem andaðist á sumardaginn fyrsta voru þau,
livort litla slúlkan hefði ekki farið í fallega kjólinn
sinn? Sjálf liafði hún lagt hönd að því að laga hann
lil, og þetta var hennar síðasta áhugamál í þessu lífi.
Þegar deyjandi konur eiga áhugamál er trúlegt að
við eigum þau, sem lifandi erum. Það er trúlegt að
við klæðum börnin fallega og skynsamlega og eflum
atorku þeirra af öllum mætti. Við vildum líka sam-
eiginlega margt fyrir þau gera fiam yfir það, sem
Sumargjöf kemst yfir. Það vantar skjól meiri leik-
svæði, þar sem mæðurnar gætu verið með börnum sín-
um og götur, sem bannaðar væru bílum, svo frjálslegt
væri þar fyrir börn og barnavagna. Það vantar betra
eftirlit t.d. við Tjörnina í Rvík. Mjög væri æskilegt
fyrir Reykjavíkurbæ að eiga skaulahöll, eða skauta-
svæði og ekki síður þarft en sundhöllin. Skólaseta
unglingæ er svo átakanleg, að þeir verða að hafa tæki-
færi til fjölbreyttra hreyfinga og áreynslu.
Á foreldrafundi í Melaskólanum bar frú Lára Sig-
urbjörnsdóttir upp eitt vandamálið viðvíkjandi skóla-
æskunni, en það er hinn breytilegi matmálstími. Það
er þjóðarböl að geta ekki haft máltíðir heimilisfólks-
ins samtimis fyrir alla á heimilinu. Börnin og ungl-
ingarnir hafa ckki alltaf lyst á að borða, þegar þau
eiga að fara að borða ein. Margt harna og skólafólks
býr í námunda vð skólana, svo það gæti þess ve<rna
farið í mat heim til sín. Þetta fyrirkomulag, að lita
allt víkja fyrir skólahaldinu, þægindi og ánægiu heim-
ilanna og einnig líkamlega og þar með andlega vel-
ferð unglinganna, það er nokkuð miklð í sölurnar lagt.
Þá er það vinna, sem þarf að bíða eftir hverjum
unglingi, er skólinn hættir á vorin. Iðjulaus unglingur
er vansæll og líklega hefur það verið skárra fyrir
börnin, sem fóru í vistir um fermingaraldur í gamla
daga, en slæpingsháttur atvinnuleysis.
Þegar sumardagurinn fvrsti var gerður að barna-
dcgi, fannst mér sem eitthvað hefði verið tekið frá
mér. áður átti ég daginn. Það mætti lengi deila um
það. Það var dagur unga fólksins, en hann ekki helg-
aður foreldrum og börnum. Nú er unga fólkið þá sett
hjá. Okkur hefur áskotnast barnadagur, mæðradagur
og bændadagur er í uppsiglingu. En hinn fullkomni
dagur — dagur unga fólksins er enn ekki ákveðinn.
Mætli hið nýbvriaða sumar helzt líkiast honum. að
allur vöxtur nái sem hæstum blóma, hamingia fylli
hjörtun og ávöxtur lífsbaráttunnar hundrað faldist.