Nýtt kvennablað - 01.01.1957, Qupperneq 9

Nýtt kvennablað - 01.01.1957, Qupperneq 9
GuSrún frá Lundi: ÖLDUFÖLL FRAMHALDSSAGAN „Og láta engan heyra þig eða sjá. Ekki nema það þó, að ætla syni þínum að laka að sér fertuga kerlingu, sem þar lil og með er alin upp á sveit. Það verður sjálfsagt ekki þetta árið, sem sú trúlofunin verður bor- in milli bæja.“ „Hana! Þar tók sú gamla af skarið“, flissaði Hrólf- ur. „En það er nú svona, þó að ég búist við, að Gunn- vör hefði ekkert á móti mér, þykir mér bún heldur óblómleg. Ég beld ég reyni heldur við Steinunni Bjarnadótlur. Faðir bennar liefur áreiðanlega ekkert á móti mér sem tengdasyni, livað sem henni líður.“ „Það skaltu gera sonur sæll,“ sagði Herdís. „Hún er geðug stúlka, og ég skal kenna benni að vinna og búa, en það kann það ekki á Stóru-Grund.“ „Ég segi þá alveg eins og ég meina,“ sagði Gunn- vör,“ að þó að ég hefði tekið orð Helga í alvöru, hefði ég áreiðanlega ekki skipt um til þess betra, því að á þessu heimili verður engin tengdadóttir annað en arg- asta ambátt. Ég sé það er satt, sem margir álíta, að hann sé skynsamastur af sinni fjölskyldu.“ Hún greip yfirsjalið undir handlegg sinn, kastaði kveðju á fólkið og fór fram úr baðstofudyrunum. Það yrði varla næsta sunnudag, sem hún yrði gestur á þessu heimili. Það næsta, sem fréttist af Bensa var ,að hann væri byrjaður á að byggja yfir sig stærðar steinhús, rétt við hliðina á Bjarnahæ. Sjálfsagt væri tengdafaðir lians tilvonandi í félagi við hann, að minnsta kosli vann hann og synir hans að því öllum stundum, sem þeir voru ekki á sjónum. Sá færi víst laglega á haus- inn, þessi snáði, var algengasti spádómurinn um fram- kvæmdirnar hjá Bensa. Margir álitu, að faðir hans stæði á bak við allt hans hrask. Hann liafði riðið út að Grund um veturinn til að tala við hann og boðið hon- um víst einhver kostakjör, vegna þess að liann náði meðulunum handa honum í manndrápsveðri. Karlinn hafði verið orðinn meðvitundarlaus, þegar þau komu, en rétt við undir eins og búið var að koma þeim ofah í hann. Og svo hafði hann verið svona þaEklátur fyrir að fá að tóra, að liann hafði riðið á fund sonar síns, sem hann hafði aldrei litið réttu auga fyrr, og boðið honum að ganga í ábyrgð fyrir öllu hans vitlausa hraski. Jóna, systir Signýjar í Bjarnabæ hafði hrugðið sér vestur á land lil að finna Sigríði dóttur sína, en frétti svo öll þessi ósköp, þegar hún kom heim og var fljót að heimsækja systur sína strax sama kvöldið. Það var þá allt í móupptekt, fólkið í Bjarnabæ, svo að hún settist inn hjá Grétu í Móunum. Hún tók henni vel ein og vanalega. „Sýnist þér nokkurt veldi vera á því, þarna í nágrenninu,“ sagði Gréta. „Ég á nú bara engin orð yfir þetta írafár,“ sagði Jóna. „Strákurinn er orð- inn vitlaus, reyndar hefur hann alltaf verið það. Hvaða fé skyldi hann hafa til að byggja aðra eins liöll og þessa? Ég trúi því ekki, að þau ætli að verða í því með honum, Jónas og Signý. Þau hafa víst aldrei haft af- gang þær manneskjur.“ „Það hjálpast víst margir að þar. Hallfríður hefur nú sjálfsagt verið húin að safna lalsvert, alltaf sama sem einhleyp. Strákurinn fór líka snemma að vinna. Ekki er hægt annað að segja um hann, en hann sé duglegur,“ sagði Gréta, „og það get ég sagt þér, Jóna mín, að Signý er alveg liætt að stynja, síðan Sigga setti upp hringinn.“ „Þá er hún áreiðanlega ánægð,“ sagði Jóna. Hún heimsótti systur sína næsta dag. Feðgarnir, Jónas og Mundi sonur hans, voru við steypuna. Jóna gaf þeim hornauga og hauð' góðan dag, því það voru þar einhverjir fleiri. Signý var inni í eldhúsi. „Sæl og blessuð systir,“ sagði Jóna og marg kyssti hana og skil- aði kveðju frá dóttur sinni. Signý bauð hana velkomna og spurði, hvernig Sigga hennar hefði það núna? „0. jæja, það er svona upp og ofan fyrir henni eins og fyrri. Hún er nú tekin saman við þann þriðja, hvernig sem það endar. Hún vill helzt fá drengangann, sem lijá mér hefur verið til að fá meðgjöfina. Auðvitað er ég ekki orðin nein manneskja til að hugsa um hann. litla skinnið, en tómlegt verður að vera ein í kofanum, þegar hann er farinn.“ „Það er skárra traustið, sem hún ber til þessara karlmanna. Ég er hrædd um, að ég væri búin að missa áhuga fyrir þeim,“ sagði Signý. „Ójá, það gengur nú svona. Það hefur einn og annar búizt við að hetra lægi fyrir Sigríði minni, þessari myndaistúlku,“ sagði Jóna. „Það held ég geti verið,“ sagði Signý áhugalaust." En hvernig heldurðu, að trú- lofun dóttur þinnar endist? Það spá margir lrálf leið- inlega fyrir lrenni. Strákurinn lrefur aldrei verið í miklu áliti hjá Víkurbúum,“ sagði Jóna. „Það læt ég vera. Það er víst ekki hægt að segja annað en golt um lrann, og líklegt þykir mér ,að trúlofunin endi ekki öðruvísi en vel,“ sagði Signý og hrosli ánægjulega. „Svo er liann bara farinn að byggja þetta líka litla lrús! Sá er þó ekki aldeilis blankur, nýbúinn að kaupa vélbát. Það er sagt, að faðir hans liafi hlaupið undir bagga með honum og Þorbjörg í Nausti. Þið eruð svei mér hjálpleg við hann. Jónas Jrrælar við það með drengnum, þegar þeir eru ekki á sjónum. Fær svo nátt- NÝTT KYENNABLAÐ 7

x

Nýtt kvennablað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.