Nýtt kvennablað - 01.01.1957, Side 15
MATUIR
KJÖTBÚÐINGUR.
1. mjólk eÖa kjötsóö, 50 gr. hinjörlíki, 60
hveiti, 1—2 1 effgiahvíta. Salt, sykur, pipar.
Kifinn laukur. Sinjörliki brauðmylsna. 125 til
150 gr. saxað kjöt.
Þegar mjólkin sýður, er smjörlíkið, sem hrærl hefur
verið með hveitinu, látið út í. Rifinn laukur látinn út
• ásamt kryddinu. Sósulitur látinn í jafninginn. Soðið
í 5 mín. KæÞ í skál og salti stráð yfir. Degið er hrærl
með eggjarauðunum um stund. Saxaða kjötinu hland-
að í og síðast hinum stífþeyttu eggjahvítum. Látið í
smurt mót, sem stráð er brauðmylsnu. Brauðmylsnu
stráð yfir. Bakað í 3—4 stundarfjórðunga. — Borðað
með kartöflum, grænmeti og bræddu smjöri.
LJÓS SÓSA, með soðnum og steiklum fiski (fyrir4).
1 matsk. smjör, — 3 niatsk. hveiti, — V/t dl. fisksoð,
— salt og- pipar, — 1 eggjarauða, — 2 niatsk. rjómi,
— 1 tcsk. kalt smjör. — Sósuna má hvort heldur
sem er baka npp eða þykkja með hveitijafningi.
BÖKUÐ: Smjörið hrætt í skaftpolti, hveitinu sáldrað
út í. Þetta jafnað með því að hræra í. En það verð-
ur að gæta þess, að það verði ekki hrúnt. Ilella vökv-
anum í smátt og smátt. Þykkt með hveitij.: Vökvinn
settur í skaftpottinn. Hveitið hrært út í köldu valni
og síðan sett út í heitt fisksoðið. Með hvorri aðferðinni,
sem notuð er, á sósan að sjóða, vægri suðu, í 5 mín-
útur. (Það er misjafnt hversu þykka fólk vill hafa
sósuna). Hræra verður í við og við, svo að hún brenni
ekki við. Sósan verður mjög góð, ef hún er hætl með
eggi. Hrærið eggjarauðuna með rjómanum og síðan
saman við sósuna, sem eftir það má alls ekki sjóða.
örh'tið kalt smiör að síðustu sett út í.
Þetta er upphaflega sósan, sem gera má svo af
brigðilega, eftir því hvort maður vill, lauk — agúrku
— steinselju — sinneps — eða spínatsósu. — Setja
2 matskeiðar af hökkuðum graslauk út í liana, þá
notuð með soðnum fiski og grænmeti. Setia I V2 mat-
skeið fínt hakkaða agúrku eða pickles út í, þá höfð
með steiktum fiski. — Setja 2—-3 matskeiðar af hakk-
aðri steinseliu, eða þá 1—2 teskeiðar af sinnepi (hræra
það fyrst út í köldu vatni) sinnepsósa. Eða 100—150
gr. hakkað spínat ef fólki þykir spínatsósa góð. Þessi
síðuslu afbrigði notuð með soðnum íiski. Eflir hvers
og eins smekk.
* *
„Sérhver Iflendingur getur lesið og skrifað og margir þeirra
eru lærðir málarar eða tónlistamenn eða myndhöggvarar eða
eitthvert samhland af þessu öllu.“ (Umsögn Bandaríkjamanns.)
LÍF OG LITÍR
iieitir ný ljóðabók eftir íngibjörgu Þorgeirsdóttur.
Hefur hún oft skrifað í Nýtt kvenuablað, svo að les-
endum blaðsins er ekki alveg ókunn hin skarpgáfaða
kona. Hafa ljóð hennar hlotið góða dóma. Geðbrigð-
um vakti hjá mér kvæðið: „Þung er þrautab$.“
í .,Liðnu öldinni“ er fyrirsögn með feitu letri: Kona
sezt á skáldabekk, er ég las liana, kom Ingibjörg Þor-
geirsdóltir mér í hug og okkar tímar. Allir hafa af
nokkru að státa. Öska ég henni til hamingju með út-
gáfuna. G. St.
SvÖr
Kaupmannahöfn, Stokkhólmi, London, Paris, Bonn og Nev»
York.
Gestur Oddleifsson hinn spaki. Hann var forvitri, ])ótti sem
Bolli stæði yfir höfuðsvörðum Kjartans og inni sér samtímis
höfuðbana.
Margréti Jónsdóttur.
ORÐUVEITING.
Á nýársdag sæmdi forseti íslands, að tillögu orðunefndar,
frk. Ólafía Jónsdóttur, forstöðukona Kleppjárnsreykjahælis,
riddarakrossi hinnar íslenzku Fálkaorðu, fyrir hjúkrunarstörf.
* *
Bókmennta- lista- og listiðnaðarsýning kvenna var opnuð i
bogasal t>jóamtnjasaínsins 27. þ. m., í tllefnl af 50 ára afmæll
Kvenréttindafélags Islands.
* *
Vegna áramótanna vill Nýtt kvennahlað flytja útsölukonum
blaðsins þakkir og árnaðaróskir.
líÍTX ItVENNABLAB - Afgretðela: Fjölnlsveg 7 í Heykjavfk. Síml 2740. - Itltstj. og Abm.: Gnðrún Stefúnsdótttr. - Borgarprent