Nýtt kvennablað - 01.02.1958, Síða 11

Nýtt kvennablað - 01.02.1958, Síða 11
Ingibjörg SigurSardóttir: BYLGJIJB FRAMHALDSSAGA Fagurt tunglskinsbjart haustkvöld faðmar litla þorpið við Straumfjörð. Lognkyrrar öldur fjarðarins ljóða létt og dreym- andi við ströndina, rísa og hníga í djúpri, friðsælli ró silfraðar af mánaskini. Tindrandi stjörnur brosa við leiftrandi norður- ljósum í hinni heiðu óravídd himinblámans. Jörðin er hjúpuð hreinhvítum snævi og glitrar björt og þögul í ljósfaðmi kvölds- ins. Út úr kaupmannshúsinu koma maður og kona. Þau eru bæði ung og hamingjusöm. Tign og fegurð haustkvöldsins heillar sálir þeirra. Ilann tekur blíðlega um arm hennar, og þau ganga hægum samstilltum skrefum í djú]iri, draumsælli leiðslu niður að höfn- inni og þaðan út með firðinum. Loks nema ]>au staðar langt fyrir utan þorpið við Iftla, lognkyrra vík, sem lilikar silfruð af ljósadýrð kvöldsins og sendir hreimþýðar, smávaxnar bárur upp að sandinum. Steinar litur á Huldu og segir 'brosandi. — Við erurn bara komin alla leið út að Báruvík, vina mín. Ertu ekki orðin þreytt? — Nei, ég er ekki þreytt, en hér væri gaman að dvelja smá- stund. Útsýnið er svo unaðslega fagurt héðan yfir fjörðinn. — Já, héðan er fjörðurinn víður og fagur á slíkum töfra- kvöldum, og mörg spor átti ég hingað út að þessari litlu vik, þegar ég var drengur. Hér lék ég mér oft með hátana mína og lét mig dreyma um dásemdir hafsins. Hulda brosir. — Viltu segja mér söguna af því, Steinar, þeg- ar þú varst lítill drengur og lékst þér hérna við ströndina? Já, það skal ég gera, ástin mín, fyrst þú óskar eftir því, en eigum við þá ekki bæði að taka okkur sæti hérna á fjöru- steinunum á meðan? — Jú, það skulurn við gera, það verður svo, gaman að sitja hérna við litlu lognkyrru víkina og lilusta á söguna þína. — Þau setjast, og hann leggur arminn yfir herðar hennar, og hún hallar sér að breiðum barmi hans. liæði horfa hugfangin út á fjörðinn. Steinar segir: — Frá því að ég man fyrst eftir mér sner- ust leikir mínir mest um báta og sjóinennsku, og þetta bláa, viða, óendanlega haf heillaði snemma dreyminn barnshuga minn. Og það átti í hugmyndum mínum ótal töfraglæstar ævintýra- hallir, sem ég ætlaði að kanna, þegar ég væri orðinn stór, eins og mennirnir, sem sigldu um liafið. Eg sótti mikið niður að sjónum, þó að mér væri stranglega bannað að fara þangað. Ég skynjaði engar hættur, en í fjörunni, þar sem öldurnar léku við sandinn, undi ég leikjum mínum bezt, og hinn hljóm- þýði báruniður við ströndina lét í eyrum mínum sem heill- andi, seiðþrungið söngvamál. Ég var átta ára gamall, þegar ég fyrst komst á sjóinn, og því ferðalagi gleymi ég aldrei. Það var um vor, og vermennirnir flestir farnir liéðan úr firð- inum og því fámennt niður við sjóinn. Eg fór einn niður að höfn, auðvitað í leyfisleysi, og fram á bryggju. Lítill árabátur lá bundinn við 'bryggjusporðinn, og hoppaði ]iar létt og leik- andi á lognöldunum. Eg horfði nokkur augnablik með innilegri hrifningu á hið girnilega fley, og freistingin sigraði mig. Ég stökk ofan í bátinn og losaði hann frá bryggjunni. Nú var ég frjáls, og báturinn vaggaði liægt af stað út höfnina. lfeit, ósegj- nýtt KVEiNNABLAÐ anleg gleði gagntók mig. Ég settist á þóftuna og fór að syngja hástöfum hrífandi kvæði, sem ég var nýbúinn að læra af pabba: Ha/iS, bláa hajiS hugann dregur... . En söngurinn varð til þess að vekja eftirtekt á mér. Maður, sem var á gangi niður við höfnina, heyrði söng minn og sá mig í hátnum, sem óðum barst frá landi. Manninum þótti kringum- stæður mínar ekki eins ákjósanlegar og mér sjálfum og kom mér til bjargar. Hann fór með mig heim til mömmu, og þar fékk ég verðskuldaða refsingu fyrir þetta liættulega tiltæki mitt. En þessi fyrsta sjóferð vakti þann nnað í sál minni, sem ég gleymi aldrei. Og ég hét því að verða sjómaður, hvað sem það kostaði. Árin liðu og ég var fermdur. Nokkru síðar hóf ég nám í Sjómannaskólanum og lauk þaðan prófi. Lengra ætlaði ég ekki á menntabrautinni. Hafið kallaði á mig. Ég hvarf því hingað heim aftur og byrjaði þegar formennsku á fiskibátum föður míns. Fegursti æsktidraumur minn var orðinn að veru- leika. Ég var ákveðinn í því að helga sjómannsstarfinu alla krafta mina, og það hef ég lika gert síðan. Steinar lítur brosandi til Huldu og hvislar: — Og svo á það að verða þitt vandasama hiutskipti, ástin mín, að vera sjómannskona. — Já, Steinar, ]>að hlutskipti finnst mér öllu öðru dásamlegra að eiga sókndjarfan, fiskisælan formann, sem siglir fleyi sínu um lognkyrran blikandi sæ og færir þjóð sinni hinn dýrasta auð. Vaska, hughrausta hetju, sem þorir að stríða við æstar öldur hafsins i dimmum byljum liins kaldu vetrar og hræðist hvergi. Mér ér það vel ljóst, hve hætturnar verða margvislegar um- hverfis ástvin minn á hafinu, og ég á efalaust oft eftir að bíða hans milli vonar og ótta, en á slíkum stundum verð ég heldur ekki í neinum vafa um það, hvert ég á að flýja með liinar þungu áhyggjur mínar. Ég veit, að meistarinn mikli frá Nazaret, sem forðum svaf i skutnum hjá lærisveinum sínum, þegar bylgjurnar risu sem hæzt á Genesaretvatninu, á enn sama máttinn og þá til að hasta á vind og sjó, og í trúnni á liann verð ég hin örugga, hamingjusama sjómannskona, vinur minn... . Steinar þrýstir henni fastar að barmi sinum og segir heitri, ástblíðri röddu: — Ekkert getur verið dýrmætara og yndis- legra fyrir sjómanninn á hafin, en að eiga þá konu heima, sem vakir og biður fyrir honum. Finna kraftinn, fyrir bænir hennar, lægja hinar æstu bylgjur hafsins og tendra öruggasta leiðar- Ijósið gegnum hverja hættu. Og heimkoman til hennar að loknum sigri verður sú bezta og fegursta hamingja, sem lifið getur veitt.--- Hann lítur á úrið sitt og segir: — Það er orðið áliðið kvölds, ástin mín. Við höfum alveg gleymt tímanum liérna úti í haust- kyrrðinni. — Þetta hefur líka verið unaðsleg stund, og nú skulum við halda af stað heim aftur. Þau rísa á fætur og leiðast sæl og örugg inn með firðinum í áttina að litla sjávarþorpinu, þar sem framtiðin bíður þeirra. Ljúfur, dreymandi niður hafsins ljóðar milt og þýtt við ströndina óð sinn um unað og hamingju. ENDIR. Ný framlialdssaga heíst í marzblaðinu eftir Ingihjörgu Sigurðardóttur: BÖBN BÆJABSTJÓItANS. 9

x

Nýtt kvennablað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.