Morgunblaðið - 20.07.2009, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 20.07.2009, Qupperneq 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. JÚLÍ 2009 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Vill Ísland inn í ESB  Utanríkisráðherra Þýskalands vill Ísland í ESB og segir landið mun þróaðra en nokkurt annað ríki sem vill komast inn í ESB  Kristilegir demókratar andvígir Eftir Halldór Armand Ásgeirsson haa@mbl.is UTANRÍKISRÁÐHERRA Þýskalands, Frank- Walter Steinmeier, er hlynntur því að Ísland fái aðild að Evrópusambandinu (ESB). „Íslenski forsætisráðherrann kom að máli við mig nýlega á fundi í Brussel og ég gerði honum ljóst að við myndum styðja umsókn Íslendinga um aðild að Evrópusambandinu,“ sagði Steinmeier í viðtali við ZDF-sjónvarpsstöðina í gær. „Allir vita að Ísland er mun þróaðra ríki en nokkurt annað ríki sem vill komast inn í Evrópu- sambandið.“ Hann bætti svo við: „Ég get ekki ímyndað mér að Angela Merkel kanslari sjái málið með öðrum augum en ég.“ Steinmeier er í þýska Jafnaðarmannaflokknum sem myndar ríkisstjórn Þýskalands ásamt kristi- legum demókrötum (CDU/CSU). Hann verður kanslaraefni flokksins í þingkosningum í Þýska- landi sem haldnar verða í september. Í dagblaðinu Süddeutsche Zeitung á laugardag kom fram að kristilegir demókratar í Bæjaralandi (CSU) væru andvígir því að Ísland fengi aðild að Evrópusambandinu. Markus Ferber, leiðtogi CSU á Evrópuþinginu, sagði í samtali við blaðið að Evrópusambandið gæti ekki bjargað Íslandi út úr efnahagskrepp- unni. Það væri því eðlilegra að ræða uppbyggingu ESB áður en fleiri ríkjum yrði boðin aðild og vís- aði hann þar til jákvæðra viðbragða framkvæmda- stjórnar ESB þegar Íslendingar afhentu aðildar- umsóknina á fimmtudag. Framkvæmdastjóri CSU, Alexander Dobrindt, sagði í samtali við blaðið á ráðstefnu flokksins í Nürnberg á föstudag að það væri stefna flokksins að hægja á fjölgun ríkja í sambandinu og að ekki ætti að taka fleiri ríki inn en Króatíu að svo stöddu. Af þeim sökum ætti Ísland ekki að fá aðild að ESB. Flokkurinn vill að greidd verði þjóðarat- kvæði í Þýskalandi um hvort stækka eigi ESB. RÍFLEGA þrjú þúsund skátar hvaðanæva úr veröldinni eru nú staddir hér á landi í tilefni evr- ópska skátamótsins Rowerway, sem hefst í Reykjavík í dag. Á næstu dögum munu þátttak- endurnir, sem koma frá alls 44 löndum, ferðast víða um land og kynna sér mannlíf og menningu. Dagskráin er mjög fjölbreytt rétt eins og skáta- starf almennt er. Undir lok vikunnar verður svo reist risastórt skátaþorp austur við Úlfljótsvatn þar sem sitthvað verður til gamans gert. „Það er einstakt tækifæri fyrir okkur að halda þetta mót þar sem þjóðin eignast marga nýja Íslandsvini,“ segir Margrét Tómasdóttir, skátahöfðingi Ís- lands. Í gær voru skátarnir, sem margir halda til á tjaldsvæðinu í Laugardal, að leggja upp í skoð- unarferðir um borgina og þá lá beint við að taka strætó, sem er þegar allt kemur til alls þarfasti þjóninn í umferðarys borgarinnar. sbs@mbl.is ALLIR SKÁTARNIR ÆTLA MEÐ STRÆTÓ Morgunblaðið/Ómar Skátar frá 44 löndum á evrópska skátamótinu Rowerway sem hefst í dag „MÉR þykir býsna ótrúlegt að ís- lenskur dómstóll hnekki þeim,“ segir Indriði H. Þorláksson, ráðuneyt- isstjóri í fjár- málaráðuneyt- inu, um líklega málshöfðun kröfuhafa í þrotabú Lands- bankans til að fá neyðarlögunum hnekkt. Kröfulýsingar í þrotabú Lands- bankans verða að liggja fyrir í haust. Indriði H. Þorláksson segir að þá komi í ljós hvaða kröfur verði skilgreindar sem forgangskröfur og gera megi því skóna að þeir sem ekki falli í þann hóp höfði mál til að fá neyðarlögunum hnekkt. Fram hefur komið að áætlað er að allar eignir gamla Landsbankans fari í að greiða niður Icesave- skuldina og aðrir kröfuhafar fái því ekki greiddar kröfur sínar. Neyð- arlögin settu innstæðueigendur í for- gang og því vilja eflaust aðrir kröfu- hafar fá breytt. Fjármálaráðherra kynnir í dag drög að eignarhaldi gamla Kaup- þings og Glitnis. steinthor@mbl.is Segir neyðarlög- in standa Stjóri Indriði H. Þorláksson Samkomulag um bankana kynnt í dag EGGJUM var hent í hús og á bíla við heimili Davíðs Odds- sonar, fv. seðla- bankastjóra og forsætisráðherra, við Fáfnisnes í Skerjafirði í Reykjavík í fyrrinótt. Auk þess var níðvísa skrifuð á húsið með rauðum tússpenna. Lögregla var kölluð á vettvang en upplýsingar fengust ekki um hvort „skáldið“ náðist. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem fólk sem tengist stjórnmálum og bankahruninu verður fyrir ónæði af þessum toga. Má þar nefna að máln- ingu hefur verið slett á hús Hann- esar Smárasonar, Bjarna Ármanns- sonar, Björgólfs Guðmundssonar, Steingríms Wernerssonar og Birnu Einarsdóttur, bankastjóra Íslands- banka. sbs@mbl.is Davíð Oddsson Egg og níð á hús Davíðs Eftir Halldór Armand Ásgeirsson haa@mbl.is „SÍÐUSTU þrjár vikurnar hafa verið skjálftar á um 10 kílómetra dýpi undir Eyjafjallajökli og það svipar mjög til atburða árin 1994 og 1999. Bæði árin var þar á ferð kvikuinnskot undir Eyjafjallajökli og í seinna skiptið hafði það augljóslega áhrif á Kötlu þótt það hafi ekki valdið gosi. Það eru dæmi um það að virkni undir Eyjafjallajökli geti virkað eins og gikkur fyrir Kötlu og þessar eldstöðvar eru svo ná- lægt hvor annarri að þær geta haft áhrif hvor á aðra,“ segir Páll Einarsson jarðeðlisfræð- ingur. Hann segir mögulegt að jarðhræringar und- ir Eyjafjallajökli geti valdið eldgosi í Kötlu. „Þetta gerðist síðast árið 1821 þegar gos varð í Eyjafjallajökli sem stóð í tvö ár og því lauk með Kötlugosi árið 1823.“ Páll segir það geta tekið nokkra mánuði að greina nákvæm- lega hvað gerist undir Eyjafjallajökli. „Þetta tók talsverðan tíma árin 1994 og 1999 en það er ekki ólíklegt að við séum nú að horfa á upp- hafið að myndun kvikuinnskots undir Eyja- fjallajökli. Við mælum þetta sérstaklega með því að fylgjast með landrisinu.“ Páll segir erfitt að segja til um hvers konar gos geti orðið í Kötlu. „Katla á sér margar hliðar en síðustu gos virðast flest hafa verið af svipaðri gerð. Þau verða þá undir þykkum ís inni í miðri öskjunni í Kötlu. Þegar gosið kem- ur upp bráðnar mikið af ís og úr verður Kötlu- hlaup. Þetta gerðist til dæmis árið 1918; það var stórt gos með miklu hlaupi og er talið hefð- bundið Kötlugos. Ef maður skoðar hins vegar jarðfræðina í kringum Kötlu er ljóst að hún á sér margar aðrar hliðar. Það geta til dæmis orðið gos utan við öskjuna og það er því erfitt að segja hvað mun gerast nákvæmlega,“ segir Páll. Jarðskjálftar hafa einnig greinst við Goða- bungu og alþjóðleg rannsókn hefur sýnt að bráðnun jökla orsaki þar jarðskjálfta við rætur Kötlu og þeir eigi því engin tengsl við yfirvof- andi eldgos. Páll segir hins vegar að sú rann- sókn eigi ekkert skylt við skjálftana undir Eyjafjallajökli. „Kvikuinnskotið er mjög traust skýring á þessum skjálftum undir Eyja- fjallajökli. Þetta hefur verið mælt mjög vel.“ Kvikuinnskot gæti vakið Kötlu  Jarðhræringar undir Eyjafjallajökli hafa áður haft áhrif á eldfjallið Kötlu  „Kvikuinnskotið er mjög traust skýring á þessum skjálftum undir jöklinum,“ segir Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur Í HNOTSKURN »Páll Einarsson jarðeðlisfræðingursegir að skjálftavirkni undir Eyja- fjallajökli orsakist að öllum líkindum af því að þar sé kvikuinnskot í myndun. »Hann segir Kötlugos mögulegt afþessum sökum enda hafi hræringar undir Eyjafjallajökli áður „vakið“ Kötlu.Morgunblaðið/RAX Eldfjall Katla gaus síðast árið 1918.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.