Morgunblaðið - 20.07.2009, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 20.07.2009, Blaðsíða 32
MÁNUDAGUR 20. JÚLÍ 201. DAGUR ÁRSINS 2009 »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 295 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» Má ekki samþykkja Ice- save-samninginn óbreyttan  Ragnar Hall hæstaréttarlögmað- ur segir að ekki megi samþykkja Icesave-samninginn óbreyttan. Gera verði fyrirvara um að reglurnar, sem gengið er út frá um úthlutun úr búi Landsbankans upp í kröfur vegna Icesave, verði endurskoðaðar. Samningurinn kveði nú á um víð- tækari greiðslur en Íslendingum hefur nokkurn tímann borið að greiða. »Forsíða Styður aðild okkar að ESB  Utanríkisráðherra Þýskalands, Frank-Walter Steinmeier, segist styðja umsókn Íslendinga um aðild að Evrópusambandinu. Ísland sé mun þróaðra ríki en nokkurt annað ríki sem vilji komast inn í sam- bandið. »2 Myndbrot Evu Braun  Haldin verður sýning á Ísafirði í dag á áður ókunnum myndbrotum frá heimsókn Evu Braun, eiginkonu Adolfs Hitlers, til Ísafjarðar og Ak- ureyrar fyrir 70 árum. Braun kom hingað til lands á skemmtiferðaskipi en kvikmyndir hennar eru með elstu litkvikmyndum teknum hérlendis. Í þeim eru m.a. áður kunn myndbrot frá Reykjavík, Vestmannaeyjum, Gullfossi og Geysi. »4 Myrtu starfsfélaga sína  Tíu lögregluþjónar í Mexíkó voru í gær handteknir vegna gruns um pyntingar og morð á tólf starfs- félögum sínum. Þykir þetta til marks um að stríð forseta Mexíkó gegn fíkniefnum, sem hófst fyrir þremur árum, sé að harðna. »4 SKOÐANIR» Staksteinar: Tortryggnir kjósendur Forystugreinar: Aukið fé til rann- sóknar | Laskað lánstraust Pistill: Þöglu undirskriftirnar Ljósvakinn: Allir í Eusébíó! UMRÆÐAN» Okkar auðlindir í okkar þágu Vanhæf og geggjuð ríkisstjórn? Halló! Er enginn þarna úti? … Sómi ESB eða Íslands? Heitast 18°C | Kaldast 9°C NA 3-10 m/s, hvass- ast NV- og SA-til. Skýj- að en úrkomulítið A- lands. Bjart á V-landi en skýjað með köflum. »10 Að mati Jóns Agn- ars Ólasonar er fyrsta plata hljóm- sveitarinnar Audio Improvement hörkuflott. »26 GAGNRÝNI» Frumraun gengur upp FÓLK» Byrjar Jessica aftur með Nick? »31 Skafti Þ. Halldórs- son er nokkuð hrif- inn af bókinni De Niro og ég eftir rit- höfundinn Rawi Hage. »31 BÓKMENNTIR» Ljóðrænt og léttleikandi TÓNLIST» Útgáfu Rafskinnu var ákaft fagnað. »27 TÓNLIST» Emilíana Torrini er ennþá á toppnum. »26 Menning VEÐUR» 1. Var hún of falleg fyrir fangelsið? 2. Mikil snjókoma í Hrafntinnuskeri 3. Vinningsrúllan valin í Kjós 4. Tvö slys í Vestmannaeyjum »MEST LESIÐ Á mbl.is Samrýndir Jón Þór Birgisson og Alex Somers senda frá sér skífu sem sprottin er af samveru. Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is JÓN Þór Birgisson í Sigur Rós og Alex Somers, sambýlismaður hans, senda í dag frá sér plötuna Riceboy Sleeps, sem þeir hafa unnið að und- anfarin fimm ár. Ekki er þó allt talið því Jón Þór, Jónsi, er líka með aðra sólóplötu í smíðum, sem hann leggur lokahönd á um þessar mundir. Þeir Jónsi og Alex hafa dundað sér við plötuna heima fyrir undan- farin ár, tekið upp í stofunni, því þar er besti hljómurinn, en þeir búa í timburhúsi við Laugaveginn. Þeir segja og að það sé oft erfitt að finna hljóða stund til að hljóðrita, enda sé umferðarniður og hávaði svo að segja allan sólarhringinn á Lauga- veginum. „Við sætum lagi,“ segir Jónsi, „en þurfum ansi oft að taka hluta upp aftur vegna hávaða.“ Hann segir þó að þeir hafi ekki getað hugs- að sér að fara í hljóðver að taka upp, platan sé sprottin af samveru þeirra og tónlistariðkun þeirra sé svo órjúf- anlegur hluti af heimilishaldinu að ekki hafi önnur leið verið fær. Þegar Sigur Rós tók sér frí sl. haust ákváðu þeir að ljúka við plöt- una og fóru til Havaí í ársbyrjun að hljóðrita lítilræði til viðbótar, fín- pússa og hljóðblanda. Það gerðu þeir í hráfæðiskommúnu, settu upp far- tölvur sínar og hljóðbúnað – allt knú- ið af sólarrafhlöðum, en vinnan fór alla jafna fram í opnu rými, veggja- lausu, til að ná sem mestri nálægð við náttúruna. Þegar upptökum var lokið tók Alex að sér að stýra gerð frum- eintaks, því Jónsi sneri sér að því að hljóðrita aðra plötu, sólóskífu, sem hann hyggst ljúka við á næstunni. Hann segir að það sé allt öðruvísi plata, mun fjörugri og meira sungið á henni, en hann hefur lokið við grunnupptökur að mestu vestur í Connecticut með upptökustjóranum Peter Katis. Hann segir að fyrir vik- ið hafi vinnan við Riceboy Sleeps lent á Alex að miklu leyti, en Alex tekur því vel, segir að það sé aldrei erfitt að gera það sem er skemmti- legt. Eins og getið er kemur Riceboy Sleeps út í dag og þeir félagar eru staddir í Lundúnum að setja upp sýningu á myndverkum sínum sem opnuð verður annað kvöld, en sú opnun er um leið útgáfuhóf vegna plötunnar. | 29 Hluti af heimilishaldinu Jónsi úr Sigur Rós og Alex Somers senda frá sér plötu Ljósmynd/Lilja Birgisdóttir FLESTIR sjá um að þrífa bílana sína sjálfir en þó eru þeir til sem telja peningunum vel varið í bón og þrif sem fagmaður sinnir. Einu ættu þó bíleigendur að huga að, sér- staklega ef til stendur að selja bíl og það er að splæsa í mössun á lakki. Fyrirtækið Glitr- andi býður upp á slíka meðferð fyrir bílinn sem kostar 22 þúsund krónur. Mörgum kann að þykja það dýrt en það er afar ódýrt þegar haft er í huga að öll þvottakústaför hverfa af bílnum við aðgerðina sem getur tekið 8-13 tíma. Fyrir vikið lítur bíllinn út eins og ný- sprautaður og endursöluverðið ætti því að vera mun hærra og því skilar kostnaðurinn við mössunina sér margfalt tilbaka. Auratal Plata þeirra Jónsa og Alex kemur út á Íslandi í dag, um heim allan utan Íslands og Bandaríkjanna á morgun og í Bandaríkjunum næsta dag þar á eftir. Hægt er að hlusta á plötuna á vefsetrinu jonsiandalex.- com, sem opnað verður í dag. Riceboy Sleeps verður gefin út í nokkrum útgáfum; á geisladiski, sem niðurhal, á tvöföldum vínyl með aukadiski með uppáhalds- lögum þeirra félaga og á vefsetr- inu er hægt að panta sérstakan kassa sem framleiddur verður í takmörkuðu upplagi, aðeins 3.500 eintök. Í þeim kassa er platan á geisladisk, diskur með hálftíma aukalagi, 40 blaðsíðna litabók með myndum eftir þá Jónsa og Alex, trélitir og endurútgáfa á bók- inni Riceboy Sleeps sem þeir gáfu út fyrir nokkrum árum. Fjölbreytt útgáfa ENGAN bilbug er að finna á Sig- rúnu Söndru Ólafsdóttur, eig- anda og framkvæmdastjóra Gall- erís Ágústs við Baldursgötuna, þrátt fyrir kreppu. Hún segist vissulega finna fyrir því að fólk haldi að sér höndum á myndlistarmarkaðnum, en henni takist þó að láta enda ná saman í rekstrinum. „Galleríið er ungt, það er lítið og það gerir það að verkum að það er mjög lítil yfirbygging. Stærðin veitir mér vissan sveigjanleika, ég er ekki eins og gallerí í New York sem er með tugi manna í vinnu og þarf að segja upp helmingnum. En í ljósi aðstæðna – ég er ekkert að segja að allt sé í himnalagi – þá hafa hlutirnir breyst. Ég hef þurft að endurskoða plönin,“ segir Sigrún sem er bjartsýn á framtíðina. „Ég er að vinna með listamönn- um sem ég hef mikla trú á og hef áhuga á að vinna með áfram. En mitt starf snýst m.a. um að ráð- leggja fólki við kaup á myndlist og þar er það fagmennska og heiðarleiki sem skipta máli.“ | 24 Morgunblaðið/Valdís Thor Eigandinn Sigrún Sandra er bjartsýn á framtíð gallerísins. Gallerírekstur gengur vel

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.