Morgunblaðið - 20.07.2009, Blaðsíða 12
12 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. JÚLÍ 2009
Eftir Sigrúnu Rósu Björnsdóttur
sigrunrosa@mbl.is
TÍU lögregluþjónar voru handteknir
í Mexíkó í gær grunaðir um pynt-
ingar og morð á tólf lögregluþjónum.
Þykir þetta bera vitni um að stríð
Felipe Calderón, forseta Mexíkó,
gegn fíkniefnum sem hófst 2006 sé
nú enn að harðna. Samkvæmt BBC
fundust hinir látnu lögreglumenn, 11
karlmenn og ein kona, á mánudag
blóðug, hálfnakin og með bundið fyr-
ir augun.
Þungvopnaðir menn hafa und-
anfarið gert árásir á lögreglustöðvar
í vesturhluta Mexíkó. Er talið að alls
hafi um 19 her- og lögreglumenn lát-
ið lífið í átökum
síðustu viku.
Þrátt fyrir
10.000 manna
herlið hefur ekki
tekist að stöðva
drápin í borginni
Ciudad Juarez og
eru þau orðin
fleiri en í fyrra
þegar örfáir her-
menn voru þar. Þá hefur Calderón
sent 5.500 manna her- og lögreglulið
til heimabæjar síns eftir átök bloss-
uðu upp þar.
Calderón hefur heitið því að halda
áfram stríðinu gegn eiturlyfja-
samtökum. Ofbeldi komi ekki til með
að hræða hann frá aðgerðum. Nýleg-
ar árásir á lögregluna bæru vitni um
örvæntingu í kjölfar handtöku nokk-
urra forystumanna samtakanna.
Calderón sætir aukinni gagnrýni
vegna átakanna en talið er að alls
liggi um 12.800 manns í valnum síð-
an eiturlyfjastríðið hófst. Gagnrýnin
kemur jafnt úr flokki pólitískra sam-
herja og mótherja Calderóns, og frá
mannréttindasamtökum.
Hins vegar virðast fáar aðrar
lausnir til umræðu
Í frétt The New York Times er
bent á að Calderón gæti reynt að
klekkja á eiturlyfjabarónunum þar
sem þeir eru veikastir fyrir. Fara á
eftir peningunum þeirra, ná fram
dómínó-áhrifum þannig að minna
væri til vopnakaupa og í mútur. Gall-
inn sé hins vegar sá að mexíkósk lög
gegn peningaþvætti séu haldlítil.
Lögreglan undir grun
Tíu lögreglumenn grunaðir um pyntingar og morð í Mexíkó 5.500 hermönn-
um bætt við 45.000 manna her- og lögreglulið sem þegar berst í eiturlyfjastríðinu
Felipe Calderon
Í HNOTSKURN
»Hermt er í The New YorkTimes að mexíkósk lög
gegn peningaþvætti standist
ekki alþjóðlegan samanburð
og séu mál oft illa rannsökuð.
»Frá árinu 1989 hafa mexí-kóskir dómstólar aðeins
sakfellt í 25 peningaþvættis-
málum.
Í DAG eru liðin 40 ár frá því að geimfarið Apollo
11 gerði það sem áður hafði verið talið ófram-
kvæmanlegt og lenti á tunglinu. Áhöfn Apollo 11
samanstóð af geimförunum Neil Armstrong,
Edwin „Buzz“ Aldrin, og Michael Collins.
Orð Armstrongs þegar hann steig fyrstur
manna fæti á tunglið eru löngu orðin fleyg.
„Þetta er lítið skref fyrir mann, en risastórt
skref fyrir mannkynið.“
Aldrin steig á tunglið nokkrum mínútum á eft-
ir Armstrong en Michael Collins hringsólaði í
kringum tunglið í geimfarinu á meðan. Geim-
farinu Apollo 11 var skotið á loft frá Kennedy-
geimferðamiðstöðinni miðvikudaginn 16. júlí
1969 og lenti það á tunglinu fjórum dögum síðar.
RISASTÓRT SKREF FYRIR MANNKYNIÐ
Reuters
TALIBANAR hafa sent frá sér myndband sem sýnir
skelkaðan bandarískan hermann sem var rænt í Afganist-
an í síðasta mánuði.
Varnarmálaráðuneytið í Washington staðfesti í gær að
hermaðurinn væri hinn 23 ára gamli Bowe R. Bergdahl frá
Idaho.
Myndbandið, sem tekur um 28 mínútur í spilun, var sett
á vefinn um helgina. Í myndbandinu segir Bergdahl að
dagsetningin sé 14. júlí. Honum hafi verið rænt þegar
hann dróst aftur úr við eftirlit.
Bergdahl lýsir því hversu mikið hann sakni fjölskyldu
sinnar. Þegar rödd heyrist spyrja um ástand hans, segist
hann vera hræddur um að komast ekki aftur heim. Það
taki á taugarnar að vera fangi. Röddin spyr aftur hvort
hann hafi einhver skilaboð til „síns fólks“. Þá ákallar Berg-
dahl samlanda sína og segir þeim að það sé í þeirra valdi að
fá ríkisstjórnina til að senda aftur heim alla þá ástvini sem
þeir sakni. „Gerið það, komið okkur heim. Þetta eru
Bandaríkin og bandaríska þjóðin hefur þetta vald.“
Talsmaður bandaríska heraflans í Kabúl fordæmdi
myndbandið í samtali við Reuters-fréttastofuna. Hann
sagði talibana nota hermanninn í áróðursskyni og slíkt
væri brot á alþjóðalögum. Unnið væri að því með öllum
ráðum að ná honum aftur ósködduðum.
Talið er að Bergdahl sé fyrsti bandaríski hermaðurinn í
tvö ár, til að vera rænt í Írak eða Afganistan.
sigrunrosa@mbl.is
Myndband talibana af
bandarískum hermanni
Reuters
Von Faðir Bergdahl sagðist, í samtali við AP, biðja fyrir
því að sonur hans kæmist aftur heill á húfi til félaga sinna.
„Gerið það, komið okkur
heim,“ segir hermaðurinn
SÆNSKI skatt-
stjórinn endur-
ákvarðaði nýlega
álagningu upp á
um 670 milljónir
sænskra króna,
um 11 milljarða
íslenskra króna.
Er þetta gert í
kjölfar rann-
sóknar á umfangi netviðskipta og
nær álagningin allt til ársins 2007.
Töldu pókersíðurnar t.d. ekki
fram tekjur upp á 350 milljónir
sænskra króna. Áætlað er að sænska
ríkið verði af um 5 milljörðum
sænskra króna árlega í skatttekjum
af netinu. sigrunrosa@mbl.is.
Milljarða
skattsvik
á netinu
Mest frá póker
HÆSTA bygging Bandaríkjanna,
Sears-turninn í Chicago, hefur nú
formlega skipt um nafn. Í stað Se-
ars stendur nú Willis framan á
turninum. Hin 442 metra háa bygg-
ing hefur borið Sears-nafnið frá því
hann var byggður fyrir 36 árum.
Eins og með mörg tilfinningamál
hefur verið stofnaður hópur á fés-
bókinni gegn nafnbreytingunni.
sigrunrosa@mbl.is
Sears verður
Willis-turninn
Willis Félagið á þrjár hæðir.
ÓTTAST er að þrír hafi látið lífið
þegar aurskriða féll á tvö hús í
þýska þorpinu Nachterstedt. Á vef
Zeit.de segir að skriðan hafi hrifið
með sér heilt hús og hluta af öðru,
en húsin stóðu við fyrrum námu-
svæði. Mikil rigning hefur verið á
þessu svæði. Þau sem saknað er,
eru hjón og nágranni þeirra, öll á
fimmtugsaldri. Fólkið í hinu húsinu
var fjarverandi í fríi.
Samkvæmt Zeit.de er hægt að
rekja að minnsta kosti 11 dauðsföll
til óveðurs sem gekk yfir mið- og
suðurhluta Evrópu um helgina.
sigrunrosa@mbl.is
Reuters
Þýskaland Aurskriða hreif heilt hús og hluta af öðru. Þriggja er saknað.
Mannfall í óveðri í Evrópu
RÚSSNESKUR sveppatínslumaður,
við bæinn Perejaslavka í Rússlandi,
kom auga á blóðugt handklæði bak
við runna.
Þegar hann lyfti handklæðinu,
var fyrir honum nýfætt stúlkubarn.
Var telpan blóðug og naflastreng-
urinn vafinn um hana.
Maðurinn fékk far með hana
sjúkrahús þar sem læknir áætlaði
að hún væri um tólf tíma gömul.
Samkvæmt Jyllandsposten er
móðurinnar nú leitað í héraðinu.
Stúlkan er nú kölluð Von.
sigrunrosa@mbl.is
Fann tólf tíma
gamalt barn