Morgunblaðið - 20.07.2009, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 20.07.2009, Blaðsíða 19
um þér einnig fyrir allan fróðleikinn og sögurnar sem þú miðlaðir til okkar, en þær munum við varðveita alla ævi. Við biðjum að þér ljóssins englar lýsi og leiði þig hin kærleiksríka hönd. Í nýjum heimi æ þér vörður vísi sem vitar inn í himnesk sólarlönd. Þér sendum bænir upp í hærri heima og hjartans þakkir öll við færum þér. Við sálu þína biðjum Guð að geyma, þín göfga minning okkur heilög er. (Guðrún Elísabet Vormsdóttir.) Elsku Sunna, við kveðjum þig með bros í hjarta. Bergþóra og Einar Bjarni Halldórsbörn. Sunna var gift Jóni Atla, móð- urbróður mínum. Þau eru samofin bernsku og æsku okkar systkin- anna, órjúfanlegur hluti þess tíma. Í huga barnsins var yfir þeim ákveðinn ævintýrablær. Þau gerðu svo margt og þau virtust geta allt. Þau ferðuðust meira um landið en algengt var á þeim tíma. Þau reistu sumarbústað, löngu áður en það komst í tísku. Það var gott að koma til þeirra í Álftahól í Grímsnesi. Þar höfðu þau samhent búið sér sann- kallaðan unaðsreit, enda var sum- arbústaðurinn eins og þeirra annað heimili. Þaðan eigum við systkinin góðar minningar um bjarta og sól- ríka sumardaga. Jón Atli féll frá langt um aldur fram, en áfram héldust traust og góð tengsl við Sunnu. Það var ávallt gaman að hitta hana. Hún hafði frá mörgu að segja, enda fór hún víða og var vinamörg. Síðast hittumst við Sunna í maí sl. Þá var hún orðin alvarlega veik. En hún bar sig vel, var létt og hress að vanda og kvartaði ekki. Báðar vissum við, þegar við kvödd- umst, að við myndum ekki hittast aftur. Við systkinin kveðjum Sunnu að leiðarlokum, þökkum ótal samveru- stundir og allt sem hún var okkur. Við erum ríkari að hafa átt Sunnu og Jón Atla í okkar nánustu fjöl- skyldu. Blessuð sé minning Súsönnu Halldórsdóttur. Dögg Pálsdóttir. Það er með söknuði sem við kveðjum Sunnu frænku, en jafn- framt miklu þakklæti fyrir að hafa átt því láni að fagna að eiga samleið með svo heilsteyptri manneskju. Sunna fæddist í Vestmannaeyj- um, yngst þriggja systkina. Hin voru Sigríður og Einar sem bæði eru látin. Öll fluttu þau ung að ár- um til Reykjavíkur og þar giftist Sunna ástinni sinni honum Jóni Atla sem var í senn listfengur og skemmtilegur maður. Saman áttu þau góða tíma þar til Jón Atli féll frá langt um aldur fram. Síðar gift- ist Sunna öðrum heiðursmanni Hauki Gröndal. Aftur kvaddi sorgin dyra og hún varð að sjá á eftir Hauki allt of fljótt. Nafnið Súsanna merkir sönn feg- urð og sannarlega var hún frænka falleg innan sem utan. Sérstaklega ræktaði hún vel tengslin við Vest- mannaeyjar og hafði unun af því að rifja upp atburði frá uppvextinum í Eyjum, ekki síst þátttökuna í íþróttum með sínu kæra félagi Tý. Sunna var vel að sér í ættfræði og það var gaman og fróðlegt að hlusta á hana greina af mikilli þekkingu tengsl fólks, sérstaklega þess sem ættir rakti til Eyja. Sunnu varð ekki barna auðið en svo sannarlega löðuðust börnin að henni og hún átti alltaf eitthvað fal- legt og uppbyggilegt við þau að segja. Það var einstaklega ánægju- legt að Sunna skyldi ná að fagna áttræðisafmælinu nú í vor á fal- legum sólardegi, umvafin sínum nánustu vinum og fjölskyldu. Á tím- um mikilla hræringa á Íslandi er kannski eðlilegt að spyrja hvaða mannkostir prýða ærlegan Íslend- ing. Sunna hafði þá kosti sem skip- uðu henni í fyrsta flokk, og reisn hennar og andlegur styrkur þegar kom að kveðjustund lét örugglega engan ósnortinn. Við þökkum fyrir samferðina, skemmtilegheitin og traustið. Esther og Halldór. Sunna bar nafn með rentu, því birta og ylur fylgdu henni hvar sem hún kom. Minningar um frá- bæra frænku hrannast upp eins og þéttskrifaðar blaðsíður í endalausri ævintýrabók. Minningar frá því ég var barn að ferðast með þeim Atla á gamla góða jeppanum, með heimasmíðaðan húsvagn í eftir- dragi, sem var sögusvið margra skemmtilegra atvika og jafnvel urðu til söngvar um skondna at- burði. Við Álftavatn var óþrjótandi jarðvegur fyrir uppátæki og leiki, þar sem ég fékk að skottast um að vild, þó undir öruggri umhyggju Sunnu. Ég naut þess ávallt að dvelja hjá þeim, og eflaust hafa þau ofdekrað mig, en stelpuhnokka úr stórum systkinahópi fannst það bara gott mál. Sunna var afar heppin með mennina tvo í lífi sínu, fyrst Atla, sem var uppátækjasam- ur og skemmtilega stríðinn þús- undþjalasmiður, og síðar Hauk, sjentilmann fram í fingurgóma, sem hafði lag á að láta fólki líða vel í návist sinni. Þannig er enn í fersku minni matarveisla á Mel- haganum fyrir þrjátíu árum, þar sem kostir gestgjafanna Sunnu og Hauks nutu sín til fullnustu. Hún frænka mín var glæsileg kona, glettin og góð, og féll ávallt vel inn í hópinn, sama hvar aldurs- bilið lá. Það var auðvelt að spjalla við hana, jafnt um pólitík sem praktísk mál, og stutt var í húm- orinn sem kryddaði samræðurnar glettilega oft. Hún var ættfróð með afbrigðum, og sagði margar skemmtilegar sögur því tengdar. Hún var stemningsmanneskja eins og pabbi, og fjölskylduboðin urðu töfrandi stundir þegar hún mætti, ávallt fallega klædd og létt í lund. Hún var ótrúlega dugleg og já- kvæð þrátt fyrir að sjúkdómurinn sem hrjáði hana tæki sinn toll síð- ustu mánuðina, og fór allra sinna ferða þar til nokkrum vikum fyrir andlát sitt. Hún naut ómetanlegrar hjálpar Laugu hans Ödda frænda, sem jók lífsgæði hennar til muna. Sunna yfirgaf heimili sitt í hinsta sinn 18. maí sl., degi fyrir áttræð- isafmæli sitt, jafn reisnarlega og hún hafði lifað. Hún vildi ganga nið- ur stigann með aðstoð, en ekki vera borin á sjúkrabörum. Andrúmsloftið var tilfinninga- þrungið þegar hún bankaði upp á hjá Eyrúnu vinkonu sinni og ná- granna til 50 ára til að kveðja. Leið- in lá á líknardeild LSH í Kópavogi, og þar, í fallegu sumarveðri, var af- mælisveisla hennar haldin, sem var gleðileg stund og hún naut vel. Síðustu vikurnar dvaldi hún svo á líknardeild LSH Landakoti, þar sem einstaklega vel var hugsað um hana. Þegar kallið kom kvaddi Sunna frænka þetta líf, á sinn já- kvæða hátt, sátt við guð og menn. Takk fyrir allt og allt. Ingibjörg Einarsdóttir. Hún fæddist á hvítasunnu, þá var vor í Eyjum og allt að lifna af vetr- ardvala. Nú kveður hún þetta jarð- líf, þegar sumarið skartar sínum fegursta skrúða. Hún var alltaf kölluð Sunna. Þessi elskulega vin- kona sem við kveðjum í dag hefur átt samleið með okkur allt frá barn- æsku. Við vinkonurnar vissum að hún var að heyja sína síðustu bar- áttu við illvígan sjúkdóm, sem sigr- aði að lokum. Veikindum sínum tók hún með einstöku æðruleysi, kvart- aði aldrei. Á kveðjustund leitar hugurinn heim til Eyja þar sem við ólumst upp. Vinahópurinn var stór og þá var alltaf líf í tuskunum. Við stofn- uðum klúbb sem lifir góðu lífi enn í dag hér í Reykjavík, þótt við köllum hann saumaklúbb er þar aldrei þrædd nál. Við fórum í kirkjukórinn nokkrar stelpur og sungum þar við hverja messu, héldum tónleika og fórum upp á land í söngferðalag. Þar var Sunna hrókur alls fagn- aðar. Sunna æfði bæði fimleika og handbolta og var góð íþróttakona. Hún var glæsileg stúlka, íturvaxin með brúnt liðað hár, geislandi bros og glettni í augum. Sunna fór suður í húsmæðraskóla og í Reykjavík kynntist hún mannsefni sínu, hon- um Jóni Atla. Þau áttu vel saman, giftu sig og settust að í Reykjavík. Þau ferðuðust mikið, fóru í veiði- túra, sóttu tónleika og kynntust skemmtilegu fólki og byggðu sér sælureit fyrir austan fjall. Það var alltaf gaman að hitta Sunnu og spjalla við hana um menn og málefni, hún var vel lesin og skýr í hugsun. Jón Atli var bráð- skemmtilegur karakter. Aldrei gleymi ég fyrstu veiðiferðinni sem við Sigurjón fórum með þeim. En sorgin gleymir engum og Jón Atli lést á besta aldri. Sunna giftist aft- ur, Hauki Gröndal, nokkrum árum seinna, það var hamingjuríkur tími sem endaði allt of fljótt en hann lést eftir aðeins eins árs sambúð. Nú var Sunna búin að missa tvo menn en hún stóð ekki ein því systk- inabörn hennar voru henni ákaflega hjartfólgin og reyndust henni vel. Við í saumaklúbbnum kveðjum nú vinkonu okkar með söknuði og biðjum Guð að blessa minningu hennar. Ragnheiður Sigurðardóttir. Það var í kringum 1959 sem Byggingarfélag verkamanna úthlut- aði félagsmönnum sínum nýjum íbúðum við Stigahlíð. Sá háttur var hafður á að það var dregið um íbúð- irnar og dró faðir okkar íbúð á fjórðu hæð til hægri á nr. 14. Það var heilmikill spenningur að vita hverjir hefðu dregist í okkar stiga- gang og þá sérstaklega í íbúðina á móti því alltaf hafa nú góðir grann- ar skipt miklu máli. Það kom svo í ljós að fólkið sem fékk íbúðina á móti foreldrum okkar voru sóma- hjónin Jón Atli Jónsson og hans glæsilega og góða kona, Súsanna Halldórsdóttir, sem nú er kvödd. Það var ekki laust við að það færi um móður okkar þegar í ljós kom að þau hjónin voru barnlaus, en for- eldrar okkar voru með fjögur börn. En sá kvíði var sannarlega óþarfur því aldrei fundu þau að við okkur eða kvörtuðu yfir okkur þó að sjálf- sagt hafi oft verið ástæða til, þar sem fjögur börn hafa vafalítið oft hlaupið ógætilega um ganga. Þvert á móti voru þau okkur alltaf ein- staklega góð. Í stigaganginum skapaðist alveg sérstakt samfélag vináttu og þá sér- staklega á meðal húsfreyjanna. Þær áttu margar góðar stundir saman yfir kaffibollanum og mörg hin síð- ari ár var á hverjum morgni alla virka daga „húsfundur“ þar sem málefni líðandi stundar voru rædd. Vafalítið voru þarna oft leyst sam- félagsmál líðandi stundar, miðlað af þekkingu og skapaðar skemmtileg- ar samverustundir. En eins og lífið býður góðan dag, þá kveður það einnig. Hópurinn þynntist, ein af annarri hurfu þær, þessar merk- iskonur, og að lokum voru þær bara tvær eftir af frumbýlingum, Sunna og móðir okkar. Það bar aldrei skugga á vináttu þeirra og reyndist Sunna móður okkar einstaklega hjálpsöm og góð vinkona. Við vilj- um að leiðarlokum þakka Sunnu samfylgdina í þessi bráðum 50 ár og erum forsjóninni innilega þakk- lát fyrir að við „drógumst saman“ á sínum tíma. Bragi, Sigurveig, Guðrún og Steinunn. Minningar 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. JÚLÍ 2009 Hann Hjalti Nínu er fallinn frá. Við fjölskyldan kveðjum kæran vin. Hjalti hefur verið stór þáttur í okkar lífi og er einn af fáum sem við hjónin þekkt- um bæði er við kynntumst. Við vorum og erum öll skátar. Hjalti hafði sterkar skoðanir á öllu og var oft mikið talað og skipst á skoðunum, hvort sem það var þjóðmál, skátamál eða heilsa og matarræði. Við vorum ekki allt- af sammála en það var aldrei leið- inlegt þar sem Hjalti var, hann var með skemmtilegri mönnum. Að leiðarlokum viljum við þakka Hjalta okkar frábæru ferð saman. Hann var alltaf klettur í orðsins fyllstu merkingu, hvort heldur var í veikindum Helga eða samskipt- um við okkur hin. Dísu og fjöl- skyldu sendum við samúðarkveðju. Helgi, Vilborg, Elsí Rós og Sverre Valtýr. Fallinn er frá vinur og félagi sem sárt verður saknað. Vinur sem margir hafa t.d. kynnst í gegnum Bifreiðaíþróttaklúbb Reykjavíkur sl. 25 ár eða svo. Fyrst sem keppanda í rallakstri og nú seinni árin sem skipuleggjanda keppna og ekki síst tengiliði kepp- enda við klúbbinn sinn. Ætíð var gott að eiga Hjalta að. Hann kunni allar reglur og hefðir í sportinu og náði hann oft að leysa ágreiningsmál á milli áhafna, en reglur í þessu frábæra sporti eru margar og oft erfiðar að muna ut- Hjalti E. Hafsteinsson ✝ Hjalti EyjólfurHafsteinsson fæddist í Reykjavík 12. júlí 1953. Hann lést á hjartadeild Landspítala við Hringbraut 6. júlí 2009. Útför Hjalta var gerð frá Fossvogs- kirkju 14. júlí síðast- liðinn. anbókar þegar í keppnina sjálfa er komið. Reynslumikill gat ljúflingurinn Hjalti því sætt ólík sjónarmið manna á örskotsstundu. Við að stunda íþrótt þar sem líf og limir eru lagðir undir að auki, getur skapast mikil spenna, þrátt fyrir að öryggismál eins og veltibúr, 6 punkta ör- yggisbelti og hjálmar séu til staðar. Og mikinn áhuga hafi vinur okkar á öryggismálum íþróttarinnar, bauð sig oft fram við skoðanir á tækjum og búnaði. Að fyrrverandi kepp- andi komi til starfa fyrir klúbbinn sinn er ekki sjálfgefið, en Hjalti var einn af þeim sem voru í rallinu af lífi og sál og lagði mikið á sig ár hvert svo keppnir mættu yfir höf- uð fara fram. Við félagarnir erum ekki vissir um að við höfum þakkað honum nógu vel fyrir framlag hans á með- an á okkar keppnisferli stóð, eitt- hvað sem oft gleymist í hita og þunga leiksins. En minning um góðan félaga lifir. Fjölskyldu hans og vinum sendum við innilegar samúðarkveðjur. Páll Halldór Halldórsson, Jóhannes Jóhannesson. Hjalti, vinur og samstarfsmaður til margra ára, er fallinn frá, fyrr en við sættumst á. Hjalti var stór maður í öllum besta skilningi orðanna – hafði gott hjartalag og góðvildina að leiðarljósi. Hann hafði næmt eyra fyrir músík og það var vegna hennar sem leiðir okkar lágu saman. Hann var um tíma bílstjóri Þursanna og gjarnan hafði hann skoðun á því músíklega, sem tekið var mark á því hann kunni að hlusta með eyr- anu þunna. Margar ánægjustundir áttum við á ferðalögum eða þegar hann ók okkur til og frá flughöfninni í Keflavík, þá var létt yfir okkar manni og hann kunni; minnugur og frásagnafús, að rifja upp skemmtilegar samverustundir. Fyrir fáeinum árum kom hann fram með hljómsveitinni og lék þá á gamla vindmaskínu úr leikhús- inu, í laginu um Sæmund Klem- ensson, þetta gerði Hjalti af mikilli natni, hárréttri innkomu og lét fylgja ábúðamikið látbragð meist- ara vindsins. Líkt og segir í grafskrift um Sæmund – þá barðist Hjalti kröft- ugt undir merkjum réttlætis og sanngirni. Að leiðarlokum kveðjum við góð- an vin og sendum aðstandendum okkar innilegustu samúðarkveðjur. F.h. Þursanna Egill. Við Hjalti könnuðumst við and- litið hvor á öðrum, höfðum rekist saman einhvers staðar, en við kynntumst fyrir alvöru í gegnum akstursíþróttir. Þegar ég tók að mér keppn- isstjórn alþjóðarallsins fyrir tæp- um tuttugu árum, þurfti að gefa út sérstakar keppnisreglur fyrir það. Þekking Hjalta á regluverki akst- ursíþrótta var mikil og því rökrétt að ég leitaði til hans. Við settumst því niður síðla árs 1990, lásum al- þjóðlegar reglur um rallkeppnir, akstursíþróttir almennt og skoð- uðum síðan sérreglur fjölda keppna sem okkur áskotnuðust. Út úr þessu bjuggum við til okkar út- gáfu af reglunum, sem voru lítið breyttar þar til fyrir þremur ár- um, er ákveðið var að breyta til samræmis við aðrar alþjóðakeppn- ir. Í framhaldi af þessu yfirfærð- um við og aðlöguðum reglurnar til notkunar í torfærukeppnum. Þekking hans náði ekki aðeins til reglna heldur hafði hann yf- irgripsmikla þekkingu á flestum ef ekki öllum tegundum aksturs- íþrótta, þó honum þætti misgaman að þeim. Upplýsingar hans um ökuleiðir, tíma að aka milli staða á landinu var slíkur að ekki þurfti kort til að setja niður fyrir sig fyrstu skipu- lagningu leiða í keppni. Eitt besta dæmið um þetta er að fyrir um tíu árum ræddum við um akstur forn- bíla umhverfis Ísland. Yfir kaffi- bolla kom upp hugmynd að dag- leiðum og ökuleiðum innan hvers dags. Síðastliðið haust varð þessi akstur að veruleika, í nokkuð óbreyttri mynd frá upphaflegu til- lögunni. Ófá símtöl áttum við saman þar sem rætt var um lífið, tilveruna, pólitík og auðvitað bíladellu, í einni eða annarri mynd. Hann var tengiliður keppenda í alþjóðarallinu á Íslandi frá 1992 og leysti vandamál keppenda sem og keppnisstjórnar af alúð og sam- visku. Þegar keppnislið breska hersins í rallakstri kom hingað fyrst til keppni í alþjóðarallinu fór Hjalti á rútu og sótti það á Kefla- víkurvöll og skilaði aftur að keppni lokinni. Þetta hefur svo endurtekið sig með einum eða öðrum hætti allt til nú. Vegna alþjóðarallisins áttum við mörg kvöld og marga parta úr nóttum saman við umræður um það sem út af stóð eða hvað þyrfti að gera. Hann rólegur, ég senni- lega ekki. Hann sá oft hlutina frá sjónarhorni sem ekki var almennt notað, en kom því skilmerkilega til skila. Hann átti til að draga ímyndað strik með hendinni, svona til undirstrikunar, stundum aka sér aðeins til í stólnum, en þá var yfirleitt komin lausn. Ég held að við höfum alltaf komist að nið- urstöðu, niðurstöðu sem báðir voru svipað sáttir við, allavega niður- stöðu sem við gátum staðið við. Við aðstæður sem þessar er oft erfitt að finna réttu orðin, en hans verður sárt saknað. Tíminn nú er þungbær, við skulum hugga okkur við þær góðu stundir sem við átt- um með honum, minnast hans, því minningarnar lifa að eilífu. Fyrir mína hönd, keppnisstjórna alþjóðarallsins og fyrir hönd Bif- reiðaíþróttaklúbbs Reykjavíkur sendi ég Dísu og fjölskyldu hug- heilar samúðarkveðjur. Megi hinn hæsti höfuðsmiður vaka yfir þeim og vernda. Tryggvi Magnús Þórðarson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.