Morgunblaðið - 20.07.2009, Síða 31

Morgunblaðið - 20.07.2009, Síða 31
Menning 31 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. JÚLÍ 2009 ÚTSALA Útsalan hefst í dag allt að 70% afsláttur Kringlan-5680800. smáralind-5659730. laugavegur-5629730. aKureyri-4627800. BANDARÍSKA söng- og leikkonan Jessica Simpson hefur átt löng sím- töl við fyrrverandi eiginmann sinn, Nick Lachey, að undanförnu, eða allt frá því að ruðningshetjan Tony Romo sagði henni upp. Fregnir herma að Simpson sé í mikilli ást- arsorg, og leiti sér huggunar til Lac- heys. „Nick hefur aldrei hætt að elska Jessicu. Þau hafa verið í miklu sam- bandi frá því þau urðu bæði einstæð að nýju fyrir skömmu,“ segir heim- ildarmaður um málið. „Þau hafa átt fjölmörg mjög löng símtöl, stundum standa þau yfir í meira en klukku- tíma, sérstaklega eftir að Tony og Jessica hættu saman.“ Þrátt fyrir þetta eru ekki taldar mjög miklar líkur á því að Simpson og Lachey byrji aftur saman, sér- staklega vegna þess að samband Lacheys og föður hennar, Joe Simp- son, er ekki gott. Eins og margir eflaust muna voru raunveruleikaþættirnir Newlyweds um þau Simpson og Lachey. Aftur með Nick? Reuters Ást Bandaríska söngkonan Jessica Simpson og þáverandi eiginmaður hennar, Nick Lachey, árið 2005. Það fer ekki milli mála aðskáldsagan De Niro og éger byggð á tilvísun í nokkurverk heimsbókmenntanna. Höfundurinn Rawi Hage er alinn upp í rústunum af Beirút í borgarastríð- inu þar og sagan ber þessum áfalla- heimi vitni. Titillinn vísar augljóslega í Hjartarbanann (The Deer Hunter) en þar lék De Niro aðalhlutverkið í kvikmynd gerðri eftir þeirri sögu. Þar sem verkið vísar einnig til Út- lendingsins eftir Camus – en sú heim- speki er þar sett á oddinn að einungis sé til eitt mikilvægt heimspekilegt viðfangsefni og það sé sjálfsmorðið – verður sagan að einhvers konar rúss- neskri rúllettu tveggja vina. En þess- ar tilvísanir eiga ekki síður við um tónblæ sögunnar, harmsöguna, til- vistarnauðina og áfallastreitu stríðs- ins. Aðalpersónunum, Bassam og George, er lýst sem ungum, gröðum mönnum í hópi hinna kristnu í Beirút. Þeir eru vinir sem hafa alist upp sam- an, tengjast skipulagðri glæpastarf- semi og hernaðaröflunum, hvor með sínum hætti. George er þátttakandi í ofbeldinu og blóðbaðinu en Bassam, sem sagan fylgir eftir, vill komast burt. Í stríðinu tapast allt, meira að segja vináttan. Þetta er því fremur myrk saga. Helsti galli skáldsögunnar er raun- ar hversu einstefnan til glötunar er órofin og fyrirséð og hversu reyf- arakenndur endir hennar er. Á hinn bóginn hefur sagan mikinn styrk af stílfimi höfundar sem á vissan hátt yrkir þessa sögu með einhvers konar stílblöndu arabískrar ljóðlistar, bibl- íulegra tilvísana (Bók Ezekíels spá- manns) og nútímalegs hasarstíls sem minnir nokkuð á amerísk beat-skáld. Textinn er því ljóðrænn og léttleik- andi, kryfjandi og nánast sprengi- kynjaður á köflum. Þýðing Önnu Maríu Hilmarsdóttur er með ágætum, ekki síst í þeim köfl- um þar sem reynir á ljóðræna fágun. Rússnesk rúlletta Þýdd skáldsaga De Niro og ég Eftir Rawi Hage. Anna María Hilm- arsdóttir þýddi. Bjartur 2009 – 239 bls. SKAFTI Þ. HALLDÓRSSON BÆKUR Hjartarbaninn Robert De Niro. GEORGE Lucas, kvikmyndagerð- armaður og skapari Star Wars, er hæst launaði einstaklingurinn í Hollywood samkvæmt bandaríska tímaritinu Forbes. Lucas hafði um 170 milljónir dollara í tekjur á síð- asta ári, en það nemur um 22 millj- örðum íslenskra króna. Þessar miklu tekjur má rekja til velgengni sjónvarpsþáttanna Star Wars: The Clone Wars og kvikmyndarinnar In- diana Jones and the Kingdom of the Crystal Skull. Leikstjórinn Steven Spielberg er í öðru sæti með 150 milljónir dollara í tekjur. Reuters George Lucas Brosir breitt. Með hæstu tekjurnar Topp tíu og tekjur í dollurum: 1. George Lucas 170 milljónir 2. Steven Spielberg 150 milljónir 3. Jerry Bruckheimer 100 millj. 4. Jerry Seinfeld 85 milljónir 5. Dr. Phil McGraw 80 milljónir 6. Tyler Perry 75 milljónir 7. Dick Wolf 75 milljónir 8. Simon Cowell 75 milljónir 9. Bruce Springsteen 70 milljónir 10. Howard Stern 70 milljónir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.