Nýtt kvennablað - 01.01.1964, Blaðsíða 11
Konurnar svöruðu allar þessari spurningu játandi.
Dorian Leih, er veitir forstöðu stærsta umboði í
Evrópu í útvegun ljósmyndafyrirsæta, segir — Stúlk-
urnar mínar eru alltof fallegar. Þær vekja ótta hjá
karlmanninum. Þær eru stöðugt með uppskafning-
um, sem þykir gaman að vekja á sér athygli með
því að láta sjá sig í næturklúbbum og þess konar
stöðum í fylgd með fegurðardrottningum. Þér
munduð verða forviða, ef þér vissuð, hve margar
þeirra eru einmana í raun og veru, og þær dreymir
um venjulegan miðlungsmann, sem gæti orðið al-
varlegur og tryggur lífsförunautur. Á móti einni,
sem giftist farsællega, koma 10 aðrar, sem slæpast
og drekka, til þess að deyfa sig og gleyma. Og
hverju hafa þær þá að gleyma? — Að þær eru alltof
fallegar og girnilegar.
Forstöðukona við ballettinn í hinum heimsfræga
næturklúbbi „Lido“ í París fer enn lengra í stað-
hæfingum sínum. — Dansmeyjarnar, sem ég ræð
hingað eru yfirleitt 1,75 cm háar eða þar um bil.
Allar eru þær mjög fríðar. Og svo að segja allar
eru þær ógæfusamar. — Þær eru flestar frá Eng-
landi og Skandinaviu. Alltof fljótt fer Jjeim að
leiðast og Jirá gamla vini frá heimabyggð sinni, en
hér eignast þær ekki Jiannig vini. Karlmönnunum
finnst Jsær alltof fallegar, líta á þær sem hálfgert
yfirnáttúrlegar verur, sem varla þýði að nálgast.
Er Jjá einstæðingsskapur yfirleitt sjúkdómur 20.
aldarinnar og hlutskipti fegurstu kvennanna? Þess-
ari spurningu beindi Dick Simons til töfrandi ít-
alskrar stúlku rauðhærðrar, fyrrverandi smákvik-
myndastjörnu, er hafði leikið nokkur lítil hlutverk
í kvikmyndum?
— Já, svaraði hún. Fallegustu stúlkurnar eru
mestir einstæðingar. Þær fara mikið út, sækja sýn-
ingar og næturklúbba. Þær hafa um sig alltof mikla
hirð, Jjcss vegna eru þær svo einmana og vinalausar.
Enginn stingur upp á að fara með þær á einhvern
kyrrlátan látlausan stað. Menn vilja sýna þeim
sem allra mest. En Jiær dreymir um ungan pilt,
sem er ekki bíleigandi, en býður upp á kvöldverð
á rólegum veitingastað og svo ef til vill í bíó á eftir.
Meðal 30 kvenna, sem hlotið hafa titla fegurðar-
drottninganna, svo sem „ungfrú Alheimur, ungfrú
Evrópa, ungfrú Ameríka o. s. frv. (Simons rann-
sakaði pappíra þessara kvenna) voru síðan 1948
fjórar sjálísmorðstilraunir (ein heppnaðist), tíu al-
varlegar taugabilanir og ein tylft hjónaskilnaða.
en meðal þessara 30 voru einnig átta velheppnuð
lijónabönd.
Frá Jjví að Simons hóf rannsóknir sínar hefur
liann átt tal við margar fegurðardísir og hitt að
NÝTT KVENNABLAÐ
Sportjakki, stærð 40 (42) 44
Efni: Gróft garn, aðallitur hvítur, rautt, sansérað. Pr.
nr. 4 og 5(4.
Bak: Fitja upp 119 — (127) — 135 1. á pr. nr. 4 og
prjóna 3 cm snún. (1 r., 1 sn.). Þá prjónað á pr. 5Vj
þannig:
1. pr.: (hvítagarnið) x 1 sn., 1 r. x, endurt. milli x-
anna, síðasta 1. sn.
2. pr.: x 1 r., taka snúnu 1. ópr., garnið fyrir framan x,
cndurt. milli x-anna, síðasta 1. r. — Þessir tveir pr. alltaf
endurt 3., 4., 5. og 6. pr. hvítir. Lausa bandið prjónað með
r. 1. annan hvom pr. réttu megin.
7. pr: 2 — (6) — 10 1. hvítar, x 6 I. rauðar, 6 hvítar x,
endurt. milli x-anna unz 9 — (13) — 17 1. eru eftir, þá 6
rauðar, 3 — (7) — 11 hvítar. — 8. pr.: hvítt yfir hvítt,
rautt yfir rautt. — 9. pr.: 2 — (6) — 10 1. hvítar, x 6 1.
sanséraðar, 6 1. hvítar x, cndurt. milli x-anna unz 9 —
(13) — 17 1. em eftir, þá G sanséraðar, 3 — (7) — 11
hvítar. — 10. pr.: hvítt yfir hvítt, sansérað yfir sansérað.
Endurt. 7.—10. pr. tvisvar sinnum í viðbót. (Sjá myndina.)
Þá 12 pr. hvítir og á ný 12 pr. með röndum, eins og lýst
Framh. á bls. 10
máli marga sálfræðinga og mikilsvirta sérfræðinga
í taugasjúkdómum og sálsýki. Hann þykist þegar
geta fullyrt, að óvenjulegur fríðleikur geti orðið
konunt fjötur um fót. En með því að rannsóknum
hans er ekki að fullu lokið, er bezt að fara varlega í
að trúa um of á niðurstöður hans.
9