Nýtt kvennablað - 01.01.1964, Blaðsíða 13

Nýtt kvennablað - 01.01.1964, Blaðsíða 13
sinn lítilsvirtur með þessu. Þann sama dag riðu þær systur Markúsar í hlaðið. Sigrún var ákaflega góð við Margréti og bað hana að lofa sér að hugsa um veiting- arnar, því þau systkinin gætu ekki hugsað til þess, að hann hvíldi annars staðar en í Atlastaðagarðinum. Þar voru foreldrar hans og systkini. Margrét hafði ekkert á móti því, þó hún hefði heldur viljað, að hann yrði við hliðina á litlu gröfinni, sem þau áttu í sameign í heima- garðinum. Hún gat ekki staðizt vináttu og hlýleik þess- arar konu. En sárt var að sjá kistuna flutta burtu. En hún bjóst ekki við að verða meira í Grenivík, þá var sama hvar leiðið hans var. Kannski hefði hann helzt kosið að vera hjá móður sinni. Hann elskaði hennar minningu. Mikil var nú eftirvæntingin hjá fólkinu að heyra, hvernig hann hefði ráðstafað eignum sínum. Það heyrðist fljótlega. Margrét fékk ekkert nema innstæðu í spari- sjóðsbók. Það vissi víst enginn, hversu mikil hún var. Brynhildi gaf hann yngri kúna og Ingibjörgu systur sinni nokkrar ær. Hitt fékk Gunnar í Múla með þeim skilmálum, að hann færi að búa í Grenivík, svo skepn- urnar þyrftu ekki að hrekjast burtu. Heldur þótti fólk- inu dimmt yfir svip þeirra mága, Jónatans hreppsjóra og Nikulásar. Gunnar óskaði eftir, að Sigrún léti sig hafa reikning yfir veitingarnar. en hún sagði, að það kæmi ekki til mála. Það fóru fáir utan úr sókninni nema Múlafólkið og Kláus gamli. Hann fór helzt til þess að vita, hvernig reyturnar skiptust.Kona hans varð alveg hissa, þegar hún frétti hvernig þeim hefði verið skipt. Náttúrlega flytti Múlafólk í sambýlið við þau, þá færi þó að þrengjast á jörðinni. Þvílík vandræði, að þau hefðu nokkurn tíma sleppt Melhúsum og flutt á þennan horskika. En það yrði ekki aftur tekið. Magga og Steinka frá Þröm voru tvær einar á stóra búinu. Gunnar rak féð í kaupstaðinn til slátrunar. Sig- urlaug bjóst við, að hópurinn frá Múla flytti einhvern daginn, en svo varð ekki. Einn daginn voru svo flestar eignir, sem tilheyrðu Margréti, fluttar út að Melhúsum. — „Ert þú nú að flytja heim til föðurhúsanna, Magga mín?“ spurði Sigurlaug hlýlega, þegar hún sá mótbýlis- konuna koma sunnan úr kirkjugarðinum. Sjálfsagt hefði hún verið að kveðja litla leiðið. Þar hafði hún setið marga stundina, aumingja stúlkan. — „Já, ég er að flytja heim aftur,“ svaraði hún. „Hver hugsar um skepnurnar?" spurði Sigurlaug for- vitin. Hún var orðin þreytt á því að bera þessa spurn- ingu í huga sér. — „Það er eitthvað, sem mér tilheyrir ekki lengur-/1 svaraði hún. „Yngri kýrin er eign mömmu. Hún verður hérna, þangað til hin kýrin verður tekin inn,“ svo kvaddi hún þessa blendnu sambýliskonu sína með þakklæti fyrir samveruna. Henni var mikið hlýtt til hennar þrátt fyrir allt. Um kvöldið kom Hilda og lét inn kýrnar og mjólkaði ANDLEYSI Sjaldan út á sólskinsmið siglt er ljóðafleyi, yfir mér liggur andleysið eins og torfa á heyi. I. Þ. þær, sem mjólk var í og fór með mjólkina út að Melhús- um. Skárri voru það nú búskaparhættirnir, sem hér áttu að verða, hugsaði sambýlisfólkið. Steini skinnið ranglaði við kindumar, en svaf heima á Melhúsum. Guddi þóttist viss um það, að það yrði Steinka, sem byggi með Gunn- ari. En þann dag, sem sá spádómur var birtur, fluttu bláfátæk hjón utan af Nestá að Grenivík. Þau höfðu verið í húsmennsku og áttu enga kú. Konan hét Guð- björg. Hún heilsaði Sigurlaugu brosandi: „Hvemig held- urðu, að sambýlið gangi fyrir okkur?" bætti hún við. — „Ætlið þið að verða hér sem ábúendur?" spurði Sigur- laug alveg undrandi. — „Við verðum hér í vetur. Jónas hirðir skepnurnar fyrir Gunnar. Ég hlakka nú heldur til að hafa mjólkina. Svo ætlar hann að láta okkur hafa slátur, það kemur upp í kaupið.“ „Já, það má nú segja,“ sagði Sigurlaug við mann sinn, „að það snýst margvíslega gæfuhjólið fyrir fólkinu og margir njóta góðs af reytunum hans Markúsar heitins, og svo fær BrynhildUr þessa fallegu kú komna fast að burði. Ég vildi, að einhver vildi leiða kú heim í hlaðið til mín. Það er ekki lengi að auðgast fólkið það.“ — „Það hleypur nú ekki svoleiðis lukkuhnútur á styttubandið þitt,“ sagði Kláus gamli. „Þau hafa flutt hingað á gæfustundu, þau hjón, Guðni og Brynhildur," sagði amma gamla. Það var þungur svipur á Sigurlaugu næstu daga, þegar Guðbjörg var að dýrðast yfir mjólkurfötimni og slátr- unum, sem hún fékk frá Gunnari stórbónda, svo kallaði það hann, Kláusarfólk, í háði. Það var talað mikið um eigumar hans Markúsar í Grenivík þennan vetur. Margrét fór inn á Hvítasand upp úr nýárinu og vann þar á saumaverkstæði, það sem eftir var vetrarins. „Hún á ekki bágt með að borga fyrir sig stúlkan sú,“ sagði fólkið. Einhver þóttist hafa heyrt, að Nikulás hefði beðið hennar oftar en einu sinni. Hvort það hefur verið nokkur fótur fyrir því, vissu víst fáir, en það hefur áreiðanlega haft heldur lítið upp á sig bónorðið það. Hún kom heim um sumarmálin, spikfeit og glaðleg á svip. Hún var áreið- anlega búin að kasta sorgarsvipnum, fannst fólkinu þar í nágrenninu. Auðbjörg vesalingur var heldur vesælli útlits. Hún hafði verið í vetrarvist vestan heiðarinnar, eins og fyrri, en kom heim upp úr sumarmálum alráðin í að drífa sig til Vesturheims. Hún þóttist vita, að hún ætti vísan stað hjá vinkonunni góðu, Gyðu, en frá henni hafði hún ekki frétt nýlega. Það vildi svo vel til, að Nikulás kom, rétt eftir að hún var komin heim. Hann var forðagæzlumaður sveitarinn- ar. Hann kom inn til Kláusar gamla og drakk kaffi. Sigurlaug fór að segja honum frá fyrirætlun Auðbjargar. „Hún er nú bara orðin þreyjulaus hér heima og ætlar að drífa sig til Ameríku. Þú vildir nú kannski vera svo góður að segja mér, hvar Gyða er. Henni trúi ég betur fyrir henni en systkinum hennar, börnum mínum.“ Nikulás hikaði dálitið með svarið: „Ég er nýbúinn að fá bréf að vestan frá Sigurði bróður mínum. Hann segir mér lát hennar. Svo það verður sjálfsagt dálítið erfitt fyrir hana að hafa upp á henni. Það fór eins og mig grunaði, að þau myndu ekki sækja neitt sérstakt lán þarna til Ameríku. Sveinbjörn veslingur orðinn geð- veikur. Þeim hefði verið nær að híma kyrr hérna. Þá hefðu þau öll verið lifandi og hðið vel. Þess vegna vil ég ráðleggja dóttur þinni að reyna að fá sér karlmann til að búa með hér á íslandi, það verður heldur lánlegm NÝTT KVENNABLAÐ 11

x

Nýtt kvennablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.