Nýtt kvennablað - 01.01.1964, Page 14
Guðrún H. Hilmarsd. húsmæðrokennari:
FISKBAKSTUR
4 bollar soðinn fiskur
1/2 bolli brauðmylsna.
Sósa:
2—4 msk smjörl.
2 msk hveiti
2 bollar mjólk
1 laukur
lárviðarlauf, steinselja
salt og pipar
2—4 msk rifinn ostur
Fylling:
3—4 epli
6 msk sykur
kanel með vanillu
1/2 bolli rúsínur
ílórsykur.
Búið til mjólkursósu kryddaða með lauk, lárvið-
arlaufi og steinselju, þegar hún er til. Smyrjið eld-
fast mót og stráið í það brauðmylsnu. Blandið osti
í sósuna og látið hana í mótið í lögum með fisk-
inum. Stráið brauðmylsnu yfir og bakið í vel heit-
um ofni Jjar til brauðmylsnan er orðin fallega
brún. — Borðað með soðnum kartöflum og bræddu
smjöri ef vill.
EPLARÚLLUR
Deig:
5 msk smjörl. 75 gr.
1/2 bolli sykur
1 egg
440 gr hveiti
3 tsk lyftiduft
1/2 bolli mjólk.
Hraarið smjörið létt og ljóst og bætið síðan hinu í
í þeirri röð, sem J^að er nefnt. Hnoðið saman í deig
og fletjið það út. Afhýðið eplin og skerið J)au í
bita. Blandið eplunum saman við sykur, kanel og
rúsínur og jafnið því yfir deigið. Veíjið deiginu
saman eins og rúllutertu. Bakið það við 150°C þar
til það hefur fengið fallegan gulbrúnan lit. — Flór-
sykri stráð yfir áður en eplarúllan er borin fram.
fyrir hana en þvælast í aðrar heimsálfur, þar sem hún
þekkir enga sál. Það er ekki neitt fráleitt að reyna að
klófesta þennan gullfisk, sem á jörðina í félagi við
ykkur. Þetta er ekki svo afleitt að setjast í þetta laglega
bú. Þær eru fallegar hjá Jónasi karlinum rollugreyin.
Hann þarf ekki að kosta miklu til að verða búfær sá
kauði.“
Auðbjörg flýtti sér burtu úr baðstofunni. Þetta varð
einhver mesti sorgardagur, sem þær mæðgur höfðu lifað,
síðan þær fluttu að Grenivík, þó margir hefðu gengið
nærri þeim. Auðbjörg var búin að mynda sér nýja vin-
áttu við Gyðu, en nú var sú stjarna hröpuð. Allt var
skrifað og lært á sömu bókina fyrir henni. Hún bjóst við,
að það bezta væri fyrir sig að vera hér heima hjá for-
eldrum sínum, þó það væri allt annað en skemmtilegt.
Jónas og Guðbjörg fóru að vinna á túninu, en strákur,
sem þau áttu, snérist kringum lambféð. Þau ætluðu að
verða þar næsta ár, sagði Guðbjörg sinni forvitnu sam-
býliskonu. En hvort þau yrðu þar ein, hafði hún ekki
hugmynd um, en henni þótti vænt um meðan hún hafði
blessaða mjólkina handa sér og sínu fólki. „Já, það er
vel líklegt, að þér bregði við, eða vera í þurrabúð," sagði
Sigurlaug.
Það var um krossmessubilið, að Gunnar í Múla reið
heim að Melhúsum og gerði boð fyrir Margréti. Hann
hafði aldrei komið þar við, þó hann væri sífellt á ferð-
inni inn að Grenivík þennan síðastliðna vetur. Margrét
kom út. Hann heilsaði henni kompánlega og bauð hana
velkomna heim.
„Nú er vorið komið, Margrét mín,“ sagði hann og brosti
dálítið. „Þá verðum við að fara að hugsa eitthvað um
búskapinn í Grenivík. Þú manst, að mér var gefið þetta
allt með þeim skilmálum, að þú nytir þess með mér. Ég
get ekki hugsað til þess, að ég verði að svíkja það lof-
orð. Ég vona, að þú sért sama sinnis og ég, viljir uppfylla
þessa síðustu ósk þessa góða vinar okkar.“ — „Þú sérð
engin önnur ráð,“ sagði hún. „Getur ekki Guðbjörg
ráðskað fyrir þig? Mér finnst ég varla geta hugsað til
þess að flytja að Grenivík aftur. Þar minnir mig allt á
erfiðleikana í fyrrasumar."
„Þú hlýtur að muna eftir þeim hvort sem er, meðan
þú ert svona nærri. Ég hefði ekki farið fram á þetta, ef
það hefði ekki verið vilji Markúsar. Hann sagði, að ég
fyndi aldrei eins góða stúlku og þig. En svo getur þú
verið ráðskona hjá mér svona til að byrja með. Ef það
getur ekki gengið, vil ég láta þig hafa eitthvað af eig-
unum. Mér finnst ég ekki vera frjáls að njóta þeirra, ef
þú verður ekki hjá mér.“
„Þú kemur inn og færð kaffi. Eg þarf að hugsa mig
dálítið um. Náttúrlega vil ég uppfylla ósk Markúsar, en
mér leiðist einveran. Heldurðu, að þau vilji ekki verða í
húsmennsku hjá þér þessi hjón, sem hafa verið þar í
vetur?“ — „Það getur vel verið. Ég skal tala um það
við þau.“ Hann kom inn og beið eftir kaffi. Þegar hann
fór, gekk hún með honum suður fyrir túngarðinn. (Frh.)
UM VINARGARÐ
Oft hef ég ílúið í þitt skjól
undan hríð og skuggum.
Það er eins og sífellt sól
sé í Ju'num gluggum.
I. Þ.
í SAMÚÐARSKYNI
vegna fráfalls Bandaríkjaforseta, John F. Kennedy,
hefur frú Kennedy fengið 200.000 bréf og 800.000
skeyti.
Blaðið hækkar í verði frá síðustu áramótum, verður
nú kr. 45,00 árgangurinn.
12
NÝTT KVENNABLAÐ