Morgunblaðið - 10.09.2009, Síða 1

Morgunblaðið - 10.09.2009, Síða 1
F I M M T U D A G U R 1 0. S E P T E M B E R 2 0 0 9 STOFNAÐ 1913 245. tölublað 97. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is «MENNING LISTIN Í SELÁRDAL ÖÐLAST NÝTT LÍF «FJÁRMÁL HEIMILANNA Blað um það sem á öllum brennur Verðum að taka í taumana  130 greinast árlega með lungnakrabba  90% meinanna eru vegna reykinga  Hræðilegt að sjá fólk á besta aldri deyja frá litlum börnum, segir læknir Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@mbl.is „ÞAÐ sker mig í hjartað að sjá unglinga reykja úti á götu. Tölurnar segja okkur að annar hver eigi eftir að deyja vegna reykinga. Það er hræðilegt að horfa upp á fólk á besta aldri fá ólæknandi sjúk- dóm og deyja frá litlu börnunum sínum af völdum reykinga.“ Þetta segir Sigríður Ólína Haraldsdóttir, lungnasérfræðingur á lungnadeild Landspítalans og formaður Tóbaksvarnaráðs. Meirihluti sjúk- linganna á lungnadeildinni reykir eða hefur reykt. Þeir þjást af lungnaþembu, lungnateppusjúkdóm- um og lungnakrabbameini, að sögn Sigríðar. Alls greinast um 130 manns með lungnakrabba- mein á hverju ári á Íslandi að því er Sigríður greinir frá. „Vitað er að 90 prósent lungnakrabba- meina eru vegna reykinga. Þetta er alvarlegur sjúkdómur sem miklar þjáningar fylgja. Þetta er sjúkdómur sem hægt er að koma í veg fyrir eins og tekist hefur með marga smitsjúkdóma. Þess vegna berum við sem stöndum að undirbúningi tóbaksvarnaþings Læknafélags Íslands fram rót- tækar tillögur í forvarnaskyni, eins og til dæmis bann við sölu á tóbaki í matvöruverslunum. Við verðum að taka í taumana.“ Að sögn Sigríðar verða sjúklingar í mörgum til- fellum undrandi þegar þeim er greint frá því að lungnasjúkdómar þeirra stafi af reykingum. „Þeir segjast ekki hafa vitað að þetta væri svona hættu- legt. Reykingar eru einnig einn aðaláhættuþáttur kransæðasjúkdóma og heilablóðfalls. Þetta eru allt alvarlegir sjúkdómar sem erfitt er að ráða við. Þótt dregið hafi úr reykingum sýna kannanir að enn reykir stór hópur ungs fólks. Leggja þarf áherslu á að það byrji ekki að reykja þar sem það virðist ekki tengja reykingar við sjúkdóma.“ Morgunblaðið/Júlíus Landspítali Meirihluti á lungnadeild hefur reykt. Niðurstöður kannana á vegum Lýðheilsustöðvar frá 2007 sýna að í 7. bekk reykja undir 2% daglega en 11,1% 10. bekkinga reykir daglega. Samkvæmt könnunum í fyrra reykja 13,6% á aldrinum 15 til 19 ára daglega en 20,2% á aldr- inum 20 til 29 ára. Af þeim sem eru 30 til 39 ára reykja 16,3 prósent daglega en 19,1 prósent þeirra sem eru 40 til 49 ára. Yfir 400 Íslendingar deyja ár- lega fyrir aldur fram af völdum reykinga. Fjöldi ungra reykir Vanefnd varð nýlega á hárri vaxta- greiðslu á láni Nýja Kaupþings til 1998 ehf., móðurfélags Haga. Var vanefndin það há að bankinn hefði getað gjaldfellt lánið. Viðskipti Hefðu getað gjaldfellt lánið Tækifæri eru fyrir íslensk fyrir- tæki að komast að evrópskum markaði með hergögn. Þekking á ratsjárkerfum og sérútbúnum bif- reiðum er hér mikil. Tækifæri fyrir Ís- lendinga hjá EDA Glitnir skuldar Seðlabanka Evrópu andvirði um 180 milljarða króna vegna veðlána. Veð fyrir lánunum voru lán Glitnis til íslenskra sjávar- útvegsfyrirtækja. Skuldar 180 milljarða króna HAUSTIÐ er að bresta á og til marks um það er litadýrð náttúrunnar sem senn fer að verða allsráðandi. Þannig skarta trén ár hvert sínu fegursta áð- ur en þau missa laufið og fara að búa sig undir veturinn. Sumarið virðist þó ætla að kveðja með stæl því spáð er einstakri veðurblíðu um helgina á Norður- og Austurlandi með allt að 20 stiga hita, þurru og björtu veðri. Sunnlendingar þurfa á sama tíma hins vegar að sætta sig við vætu. LITADÝRÐ HAUSTSINS Morgunblaðið/Ómar Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is VIRÐI eigna Íslendinga í skatta- skjólunum Tortola, Kýpur, Mön, Jersey, Guernsey og Cayman-eyjum jókst um 40 prósent á síðasta ári á meðan heildareignir Íslendinga er- lendis brunnu upp. Beinar fjármunaeignir Íslendinga í þekktum skattaskjólum jukust um 27,2 milljarða króna í fyrra og námu í árslok 72,5 milljörðum króna. Á sama tíma lækkaði virði allra fjármunaeigna Íslendinga erlendis um þriðjung, eða um 463 milljarða króna. Hafa ber í huga í þessu sam- bandi að krónan veiktist um tæp 44% á árinu 2008. Því hækkaði virði er- lendra eigna í krónum á árinu. Vert er að taka fram að ekki er um að ræða tæmandi eignir Íslendinga sem eru skráðar á þessum stöðum, heldur einungis beina eign. Óbein eign í skattaskjólsfélögum var einnig mjög algeng á meðal íslenskra kaup- sýslumanna í gegnum önnur aflands- félög, sem voru helst skráð í Hol- landi eða Lúxemborg. Um helmingur fjármunanna sem geymdir eru í skattaskjólum, tæp- lega 35 milljarðar króna, er geymdur á Kýpur en eignir Íslendinga þar jukust um 45 prósent á árinu 2008, eða rúma fimmtán milljarða. Tengsl íslenskra kaupsýslumanna við Kýpur hafa vaxið gífurlega á und- anförnum árum. Meðal annars var stærsti eigandi Landsbankans fyrir bankahrun, Samson eignarhalds- félag, í helmingseigu kýpverska fé- lagsins Bell Global Investments, sem aftur var í eigu Björgólfsfeðga. Eignir í skatta- skjólum jukust um 40% í fyrra Tæpur helmingur fjárins á Kýpur » Bein eign jókst um 27,2 milljarða 2008 » Nam eignin 72,5 milljörðum í árslok  Milljarðar flæddu | Viðskipti OLLI Rehn, stækkunarstjóri Evr- ópusambandsins, segir að við end- urbæturnar á fiskveiðistefnu ESB verði horft til reynslu Íslendinga í sjálfbærri nýtingu á sjávarauðlind- inni. Sökum þessa muni breyting á stefnu ESB gera það auðveldara fyrir Ísland að aðlagast henni. Rehn minnir á að sjávarútvegsstefna ESB byggist á veiðireynslu á hverjum stað. „Eðli málsins samkvæmt hafa Íslendingar sterka veiðireynslu á Ís- landsmiðum. Það er jákvæður punktur til að byrja viðræðurnar á, frá sjónarhóli Íslendinga,“ segir stækkunarstjórinn. | 14 Auðvelt að aðlagast ESB mun horfa til reynslu Íslendinga af sjálfbærri nýtingu sjávarauðlinda

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.