Morgunblaðið - 10.09.2009, Side 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson
Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
BJÖRN L. Bergsson, settur ríkissaksóknari í mál-
um vegna bankahrunsins, hefur vísað frá kærum á
hendur sex blaðamönnum fyrir meint brot á lögum
um bankaleynd. Forsendur frávísunar eru þrenns
konar en niðurstaðan er endanleg.
Fjármálaeftirlitið (FME) kom í febrúar á fram-
færi við sérstakan saksóknara ábendingu um hugs-
anleg brot á bankaleynd. Síðar í sama mánuði sendi
sérstakur saksóknari FME bréf þar sem sagði að
embættið myndi ekki hafast frekar að í málinu.
Tekið var fram að þessa ákvörðun mætti kæra til
embættis ríkissaksóknara innan mánaðar. Valtýr
Sigurðsson ríkissaksóknari hefði síðan greint frá
því að ákvörðunin hefði ekki verið kærð til embætt-
is hans innan þessa frests. Málin voru kærð til setts
ríkissaksóknara. Í bréfi sem hann hefur sent FME
segir að málunum sé vísað frá.
Í málum Agnesar Bragadóttur og Kristins
Hrafnssonar var um að ræða að eins mánaðar
kærufrestur var löngu liðinn
þegar kæra barst í ágúst sl.
Engin ný gögn í skilningi saka-
málalaga eða nýjar upplýsingar
hafi fylgt kæru FME. Því sé
ekkert tilefni til endurupptöku
málsins og kærunum vísað frá.
Í máli Egils Helgasonar var
um það að ræða að þau gögn
sem Egill birti féllu ekki undir
58. grein laga um bankaleynd.
Egill birti gögn um bankann sjálfan, þ.e. fund-
argerðir bankans en ekki upplýsingar um málefni
viðskiptamanna sem viðkomandi grein laganna tek-
ur til.
Í málum Þorbjörns Þórðarsonar, Morgun-
blaðinu, og Reynis Traustasonar og Inga F. Vil-
hjálmssonar, DV, reyndi á ákvæði laga um meðferð
blaðamannanna á trúnaðargögnum, hvort blaða-
mönnunum hefði borið að gæta leyndar á gögnum
sem þegar var búið að rjúfa. Það var mat setts rík-
issaksóknara að svo væri ekki, þegar búið væri að
rjúfa leynd á gögnum yrði hún ekki endurvakin í
höndum annarra.
Túlkunin hefur fordæmisgildi
Að mati Huldu Árnadóttur, lögmanns þriggja
ofangreindra blaðamanna, hefur túlkun setts rík-
issaksóknara ákveðið fordæmisgildi. „Ég myndi
ætla að allir sem eru að vinna með þessi lög, bæði
FME og handhafar ákæruvaldsins, væru bundnir
af þessari túlkun ríkissaksóknara á ákvæðinu af því
að hann er æðsti handhafi ákæruvalds í landinu.“
Hulda minnir á að blaðamenn verði hins vegar
eftir sem áður að gæta að friðhelgi einkalífs. „Þeg-
ar þeir fá upplýsingar af þessu tagi upp í hendur
verða þeir að fara vandlega yfir það og meta hvort
þær eigi erindi til almennings.“ silja@mbl.is
Blaðamenn ekki taldir brotlegir
Öllum kærum Fjármálaeftirlitsins á hendur blaðamönnum vísað frá Settur ríkissaksóknari segir
að þegar búið sé að rjúfa leynd á bankagögnum, verði hún ekki endurvakin í höndum blaðamanna
Í HNOTSKURN
»Fjármálaeftirlitið kom ífebrúar á framfæri við
Ólaf Hauksson, sérstakan sak-
sóknara, ábendingu um hugs-
anleg brot á bankaleynd.
»Um var að ræða kærur áhendur þeim Agnesi
Bragadóttur og Þorbirni
Þórðarsyni á Morgunblaðinu,
Agli Helgasyni hjá RÚV,
Kristni Hrafnssyni, þá frétta-
manni Kompáss, og þeim
Reyni Traustasyni og Inga F.
Vilhjálmssyni hjá DV.
Björn L. Bergsson
Eftir Sigurð Boga Sævarsson og
Jón Pétur Jónsson
BÆJARSTJÓRN Álftaness ákvað
á fundi sínum í gærkvöldi að segja
Sigurði Magnússyni bæjarstjóra
upp störfum. Þetta var samþykkt
með fjórum atkvæðum gegn þrem-
ur. Með tillögunni greiddu atkvæði
bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og
Margrét Jónsdóttir, óháður
fulltrúi.
„Þetta er ábyrgðarleysi,“ segir
Kristín Fjóla Bergþórsdóttir, bæj-
arfulltrúi Álftaneslistans, sem eftir
fundinn í gærkvöld sagði af sér sem
forseti bæjarstjórnar. Við því emb-
ætti tekur Kristján Guðlaugsson,
bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks.
Væringar hafa verið í bæjar-
stjórn Álftaness nánast allt kjör-
tímabilið. Á haustdögum fór Krist-
ján Sveinbjörnsson, þá forseti
bæjarstjórnar, í leyfi í kjölfar til-
tekinna ummæla sem hann ritaði á
bloggsíðu. Í leyfið fór hann í því
augnamiði að lægja öldur. Þegar
slíkt gerðist ekki sneri hann til
baka í óþökk félaga sinna í Álfta-
neshreyfingunni, sem töldu að hann
þyrfti endurnýjað umboð kjósenda.
Með hvorugu liðinu
Í sumar setti Margrét Jónsdóttir
bæjarfulltrúum í Álftaneshreyfing-
unni skilyrði um áframhaldandi
samstarf sem lutu að samstarfserf-
iðleikum hennar við Kristján og
Sigurð bæjarstjóra. „Síðustu vikur
höfum við reynt að mynda meiri-
hluta,“ sagði Kristín Fjóla sem seg-
ir að skilyrðum Margrétar hafi ver-
ið mætt en hún ekki viljað ganga til
samstarfs þegar til kom. „Hún vill
með hvorugu liðinu vinna.“
Eftir bæjarstjórnarfundinn í
gærkvöldi er komin upp pattstaða;
enginn meirihluti er í bæjarstjórn
og bæjarstjóri á förum. Pálmi Más-
son skrifstofustjóri sinnir daglegri
framkvæmdastjórn sveitarfé-
lagsins fyrst um sinn.
Guðmundur G. Gunnarsson, bæj-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokks, segir
ekki í hendi að sjálfstæðismenn og
Margrét Jónsdóttir myndi meiri-
hluta en reynt sé að finna flöt.
Samþykkt að segja
bæjarstjóranum upp
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fundurinn Mikill mannfjöldi fylgdist með bæjarstjórnarfundinum á Álftanesi í gærkvöldi.
Meirihlutinn í bæjarstjórn á Álftanesi enn í lausu lofti
„SENDIRÁÐ Íslands í Washington
hefur misst húsnæði sitt, þar sem
það hefur verið til langs tíma, svo
það var ljóst að við yrðum að flytja,“
segir Pétur Ásgeirsson, skrif-
stofustjóri rekstrar- og þjón-
ustusviðs utanríkisráðuneytisins.
Eigendur húsnæðis þess sem ís-
lenska sendiráðið í Washington var í
sögðu upp leigusamningnum og í
framhaldinu mun sendiráðið flytja í
Sænska húsið (House of Sweden)
þar sem leigð verður skrifstofuað-
staða. Sænska sendiráðið er í sömu
byggingu, og er það þáttur í þeirri
stefnu Norðurlandanna að vera í ná-
grenni hvert við annað.
„Þetta er tengt þeirri stefnu; að
við gerum samkomulag við sænsku
framkvæmdasýsluna um að taka á
leigu húsnæði fyrir sendiráðið þar,“
segir Pétur.
Hann segir nýja húsnæðið vera
ódýrara og talsvert minna en það
sem flutt verður úr. „Sendiráðið
verður að mörgu leyti sterkara
þarna, við höfum aðgang að fund-
arsölum í húsinu og ýmissi aðstöðu.
Þannig að það er hagræðing í
þessu,“ segir Pétur.
24. september verður sendiráðið
opnað á nýjum stað.
Húsnæði sendiráðanna í London,
Washington og New York hefur ver-
ið til sölu. Pétur upplýsir að tilboð
hafi borist í húsnæðið í New York og
nú standa yfir samningaviðræður
þar um. „Í London hefur mikið verið
skoðað en við höfum ekki fengið
neitt áþreifanlegt tilboð ennþá,“ seg-
ir Pétur. Hið sama á við um sendi-
herrabústaðinn í Washington.
sia@mbl.is
Sendiráðið í
Sænska húsið
Sendiráðsbygging í New York seld
Morgunblaðið/Einar Falur
ÞREMUR starfsmönnum á skrif-
stofu Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík hefur verið sagt upp
störfum. Eru uppsagnirnar liður í
endurskipulagningu á starfsemi
flokksins, samkvæmt heimildum
blaðsins.
Samkvæmt sömu heimildum
hafa tveir af þremur starfs-
mönnum, sem uppsagnir fengu,
starfað lengi fyrir flokkinn. Annar
í 25 ár og hinn í 18 ár. Þá mun
starfshlutfalli hjá öðrum starfs-
mönnum hafa verið verið breytt.
Jónmundur Guðmarsson tók ný-
lega við starfi framkvæmdastjóra
flokksins. Ekki náðist í Jónmund í
gærkvöldi, né í Bjarna Benedikts-
son formann eða Þorgerði Katrínu
Gunnarsdóttur varaformann.
Starfsmenn fengu uppsagnir
Morgunblaðið/RAX