Morgunblaðið - 10.09.2009, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 10.09.2009, Qupperneq 4
4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2009 FJÖLMIÐLAFÓLK frá frönsku sjónvarpsstöðinni France24 er nú statt hér á landi við gerð fréttaþáttar um Ísland, umsóknaraðildina að Evrópusambandinu og bankahrunið sem sýna á í Frakklandi ári eftir hrun. Rætt er við fólk í atvinnulífinu, stjórnmálamenn m.a. utanrík- isráðherra, og fjölmiðlafólk. Þrátt fyrir ítarlegar tilraunir hefur þáttastjórnendum hins vegar ekki tekist að ná tali af Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. „Ég lagði fram viðtalsbeiðni fyrir nokkrum mánuðum,“ segir Caroline de Camaret, ritstjóri Evrópumála hjá France24. Henni hafi síðar verið tjáð að Jóhanna yrði í fríi. Er hún frétti fyrir tíu dögum síðan að Jóhanna myndi taka á móti Olli Rehn, stækkunarstjóra ESB, endurnýjaði Camaret viðtalsbeiðnina. „Við vonuðumst til að ná tali af henni þar, en hún var ekki til í að tala við okkur, jafnvel ekki að svara aðeins einni eða tveimur spurningum.“ Slæmt sé að ekki verði hægt að vitna beint í forsætisráð- herra. „Jóhanna er vinsæl í Evrópu þar sem sú skoðun er ráðandi að Ísland verði að ganga í ESB. Hún er sú sem getur haft áhrif á aðildarumsókn Íslands og þess vegna verður hún að ræða meira við erlenda fjölmiðla,“ segir Camaret. Segir hún, að erlendum fjölmiðlum gangi illa að ná í forsætisráðherrann, hún hafi heyrt að einhverjir þeirra hafi sýnt samkynhneigð forsætisráðherra e.t.v. meiri athygi en hún kæri sig um. Svo sé þó ekki um France24. „Við höfum engan áhuga á því. Athygli okkar beinist öll að ESB-umsókninni.“ annaei@mbl.is „Verður að ræða meira við erlenda fjölmiðla“ Forsætisráðherra neitar France24 um viðtal Stúdentar taka hækk- un fagnandi „OKKUR líst ágætlega á þetta og það er fagn- aðarefni að komið skuli vera til móts við stúdenta,“ segir Ingólfur Birgir Sig- urgeirsson, fulltrúi Stúd- entaráðs í stjórn LÍN, um 20% hækkun grunn- framfærslu lán- þega LÍN. „Við teljum að þetta sé fyrsta skrefið til að jafna atvinnu- leysisbætur og námslán. Tekju- skerðingin er hins vegar orðin mjög mikil og við höfum talsverðar áhyggjur af því en við getum kallað þetta stöðugleikasáttmála á milli námsmanna og ríkis, hún er bara tímabundin,“ segir Ingólfur. „Í heildina séð er þetta mjög gott,“ segir Hjördís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Sambands ís- lenskra námsmanna erlendis (SÍNE), sem einnig á sæti í stjórn LÍN. Hún hafi þó viljað sjá meiri samvinnu. „Þetta var svolítið ein- hliða ákvörðun hjá stjórnvöldum og við hefðum viljað hafa meiri sam- vinnu eins og venja er með úthlut- unarreglurnar á vorin,“ segir Hjör- dís. jmv@mbl.is Nám Framfærsla LÍN mun hækka. Tekjuskerðing orðin mikil en mun lækka Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur jmv@mbl.is „ÞETTA er fyrsti liðurinn í að sam- tvinna menntakerfið og félagslega kerfið og ég held að það sé nauðsyn- leg hugsun í því ástandi sem við lif- um í núna,“ segir Katrín Jak- obsdóttir menntamálaráðherra. Gert er ráð fyrir að grunn- framfærsla Lánasjóðs íslenskra námsmanna hækki eða standi í stað hjá miklum meirihluta námsmanna eða allt að 80% með nýjum úrræðum menntamála- og félagsmálaráðu- neytis sem kynnt voru í gær. Grunnframfærsla námslána hækkar í 120.000 krónur á mánuði sem er 20% hækkun. Tekjuskerð- ingarhlutfall lánanna mun aukast úr 10% í 35% auk þess sem tekið verður upp 750.000 króna frítekjumark, en það verður fimmfalt fyrir þá sem hefja nám og hafa verið á vinnu- markaði. Samkvæmt upplýsingum frá LÍN er nú unnin undirbúningsvinna en í næstu viku geta þeir námsmenn sem þess óska afturkallað umsóknir sín- ar og sent inn nýja samkvæmt breyttum reglum. Hægt er að nálg- ast nánari upplýsingar á vef LÍN. Atvinnulausir sæki í nám Breytingarnar eru liður í heild- stæðri stefnumörkun beggja ráðu- neyta sem er ætlað að hvetja at- vinnulausa til að sækja sér menntun. Atvinnuleysisskrá hefur nú verið keyrð saman við nemendaskrár há- skólanna og þannig á að draga úr því að fólk stundi nám en sé jafnframt á atvinnuleysisbótum. Talið er að breytingarnar muni kosta um einn milljarð króna í framkvæmd en sparnaður í félagslega kerfinu auk sparnaðar innan LÍN á að koma fyllilega til móts við þann kostnað. „Sparnaðurinn sem við sjáum er að við reiknum með að ákveðinn fjöldi þeirra sem eru á atvinnuleysisskrá leiti í nám. Þá verða sumarbætur af- lagðar og svo hefur verið ákveðinn kostnaður vegna þeirra óljósu marka hvort fólk er í námi eða á bót- um,“ segir Árni Páll Árnason, fé- lagsmálaráðherra. Framfærslan hækkar um 20%  Grunnframfærsla LÍN í 120.000 krónur á mánuði  Tekjuskerðingarhlutfall úr 10% í 35%  Erfiðara að stunda nám á bótum  Kostnaði m.a. mætt með sparnaði í félagslega kerfinu Morgunblaðið/Kristinn Fundað Ráðherrar kynntu skref sem ætlað er til að hvetja fólk til náms. EINAR Karl Haraldsson, upplýs- ingafulltrúi í forsætisráðuneyt- inu, segir forsætisráðherra reyna að halda sig til hlés og sinna aðeins því nauðsynleg- asta, eins og undirbúningi rík- isstjórnarfunda og móttöku skiptastjóra ESB. „Hún hefur ekki gefið kost á viðtölum og það gildir jafnt um franska sjón- varpið sem annað.“ Reynir að halda sig til hlés Jóhanna Sigurðardóttir Afraksturinn rennur til Mæðrastyrksnefndar Kópavogs Konur prjóna í Turninum Baðstofudagur í Turninum á 19. hæð, laugardaginn 12. september 2009 frá klukkan 15.00 til 17.00 Konur takið með það sem þið eru með á prjónunum Einnig býðst að taka þátt í hópverkefni þar sem hver og ein prjónar húfu eftir einfaldri uppskrift úr margvíslegum garnafgöngum, borðum eða glimmergarni. Takið með ykkur prjóna nr. 5½ -6 og þá garn- afganga sem þið eigið til. Leiðbeinandi: Sólveig Sigurvinsdóttir handavinnukennari Þetta er ókeypis og allar konur velkomnar meðan húsrúm leyfir Freyja, kvenfélag í Kópavogi Nánari upplýsingar gefur Una María Óskarsdóttir formaður. LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæð- inu hefur handtekið hátt í tug manna síðustu tvo daga í aðgerð sem beinst hefur að þjófaflokki, sem hefur verið stórtækur undanfarna mánuði. Alls hafa hátt í 20 menn, allt Pólverjar, verið handteknir í þess- um aðgerðum. Þýfi, sem metið er á milljónir króna, hefur fundist við húsleitir. Að sögn Stefáns Eiríkssonar, lög- reglustjóra höfuðborgarsvæðisins, er rannsókn málsins í fullum gangi. Stefán segir að lögreglan hafi verið að elta þessa menn undanfarna daga og kortlagt starfsemi þeirra. Nú sé verið að reyna að hafa uppi á öllum þeim sem tengjast þessum þjófa- flokki og kunna að vera í landinu ennþá. Að sögn Stefáns verður krafist gæsluvarðhalds yfir þeim mönnum, sem handteknir hafa verið allra síð- ustu daga. Nokkrir landar þeirra, sem áður hafa verið handteknir, sitja í gæsluvarðhaldi. Stefán segir að kraftur verði lagður í rannsókn- ina og að henni lokinni verði vænt- anlega gefin út ákæra. Ef þeir hljóti dóma verði gerð krafa um að mönn- unum verði vísað úr landi þegar þeir hafi lokið afplánun. Fram hafi komið við rannsókn málsins að þessir menn hafi komið til landsins beinlínis til að stunda afbrot. Því séu skýrar for- sendur fyrir brottvísun. sisi@mbl.is Þjófaflokkur afhjúpaður Komu til landsins gagngert til þess að fremja afbrot Morgunblaðið/Júlíus Handtaka Einn hinna grunuðu afbrotamanna leiddur út úr húsi í austurborginni síðdegis í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.