Morgunblaðið - 10.09.2009, Síða 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2009
Eftir Unu Sighvatsdóttur
una@mbl.is
„ÉG skil ekki hvernig þetta á að geta
gengið eins og það er sett upp fyrir
okkur, að þjónustan minnki ekki og
gæði þjónustunnar rýrni ekki, það
eru markmiðin en ég tel það bara úti-
lokað,“ segir Elsa B. Friðfinnsdóttir,
formaður Félags íslenskra hjúkr-
unarfræðinga.
Meðal sparnaðaraðgerða á Land-
spítala er að endurnýja ekki tíma-
bundnar ráðningar. Hópur nýútskrif-
aðra hjúkrunarfræðinga sem og
ungra lækna sem hófu störf í vor
mun því brátt missa vinnuna.
Verulegt áhyggjuefni
„Svo óttast maður að þetta end-
urtaki sig 2010 og nýútskrifaðir fái þá
bara sumarafleysingar, því það verð-
ur ekkert auðveldara ár. Þannig að
þetta er okkur verulegt áhyggju-
efni,“ segir Elsa.
Auk nýráðinna hefur líka verið
ákveðið að ekki verði ráðið í stöður
þeirra sem fara í fæðingarorlof eða
veikindaleyfi af LSH. Elsa bendir á
að í hópi hjúkrunarfræðinga séu
fyrst og fremst konur og mikil hreyf-
ing sé jafnan á starfsliðinu. Hún ótt-
ast því að hugsanlega muni fækka
mjög ört í hópnum.
Meira álag á færri starfsmenn
Í ofanálag verður nú nokkrum
legudeildum breytt í dagdeildir, sem
þýðir að mati Elsu að sjúklingar
verði „þyngri“, þ.e.a.s. krefjist meiri
hjúkrunar, þann tíma sem þeir liggja
inni. „Þegar þetta leggst saman er
augljóst að álagið á þá sem eru að
störfum eykst verulega.“
Fleiri leiti til annarra landa
Elsa segir því ekki raunhæft að
ætla að þjónusta við sjúklinga skerð-
ist ekki neitt, þegar vinnuálag eykst
svo mjög á starfsfólkið.
„Ég tel það útilokað og ef það væri
hægt þá værum við að segja að það
hefði verið verulega ofmannað og
reksturinn ekki nógu góður.“
Líklegt er að hjúkrunarfræðingar
muni í auknum mæli leita til ná-
grannalandanna eftir störfum og
ungir læknar muni að sama skapi
halda fyrr en áður út í sérnám.
Þórey Þorgeirsdóttir, formaður
Félags ungra lækna, segir dæmi um
skammtímaráðningu ungra lækna, í
sex mánuði í stað tveggja ára. Hugs-
anlega sé í spilunum fækkun stöðu-
gilda yngri lækna, sem sé varasamt.
Vinnuálagið hættulega mikið
„Nánast allir unglæknar hafa upp-
lifað það að vinnuálagið sé of mikið á
Landspítalanum þannig að það sé
hættulegt sjúklingum,“ segir Þórey
og bendir máli sínu til stuðnings á
gríðarlega ógreidda yfirvinnu sem
ungir læknar inna af hendi.
„Þess vegna tel ég faglega óráðlegt
að auka vinnuálagið meira, ég get
ekki séð að það sé möguleiki á hag-
ræðingu með því að fækka stöðugild-
um án þess að mjög víða verði öryggi
sjúklinga ógnað.“
Öryggi sjúklinga í hættu
Fjöldi hjúkrunarfræðinga og ungra lækna á Landspítala fær ekki störf að nýju
þegar tímabundinni ráðningu lýkur Vinnuálag hættulega mikið nú þegar
Morgunblaðið/Ásdís
Áhyggjufull Bæði læknar og hjúkrunarfræðingar telja nauðsynlegt að horf-
ast í augu við það að þjónusta Landspítala verði síðri í kjölfar niðurskurðar.
MENNTARÁÐ Reykjavíkur hélt fund sinn í Norðlingaskóla í
gær. Hluti fundarins var í Björnslundi, útikennslustofu skól-
ans. Að sögn Kjartans Magnússonar, formanns menntaráðs,
voru samþykktar tvær tillögur á fundinum. Önnur um nýtt
starfsleyfi fyrir grunnskóla Hjallastefnunnar í Öskjuhlíð og
hin um lestrarátakið „Lesum enn meira“ sem ætlað er að efla
lestrarskilning nemenda í grunnskólum Reykjavíkur. Leita á
samstarfs við Félag eldri borgara um þátttöku í verkefninu.
Kjartan sagði að það hefði verið óvenjulegt að halda hluta
fundarins undir beru lofti í skógarrjóðri. Hann sagði mennta-
ráð fara reglulega í skóla og halda fundi þar. Nemendur
sýndu einnig hvernig útikennslustofan nýtist. gudni@mbl.is
Menntaráð Reykjavíkur hélt fund sinn í Björnslundi, útikennslustofu Norðlingaskóla, í gær
Morgunblaðið/Heiddi
Ferskir vindar blésu um fundarmenn
VERZLINGAR gátu gætt sér á ís í eftirmat í hádeg-
ishléinu í skólanum í gær en þá stóð góðgerðaráð
Verzlunarskóla Íslands fyrir íssölu í samvinnu við Ís-
búð Vesturbæjar. Fór hún fram á marmaranum svo-
kallaða og rann svalt góðgætið ljúflega niður kverkar
fúsra viðskiptavina. Markmiðið með sölunni var að
safna fé fyrir vatnsbrunni í Litla Verzló, barnaskóla í
Úganda, sem ABC-barnahjálp byggði fyrir söfnunarfé
frá skólanum. Að auki hyggst góðgerðaráðið styðja við
bakið á Mæðrastyrksnefnd þegar líða fer að jólum. Að
sögn Elínar Lovísu Elíasdóttur, sem situr í ráðinu,
markaði íssalan í gær aðeins byrjunina á fjársöfnun
vetrarins. Ef marka má biðraðirnar eftir ísnum má
ætla að söfnunin hafi farið af stað með miklum sóma.
Morgunblaðið/Ómar
GÓMSÆTUR ÍS FYRIR GOTT MÁLEFNI
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur
ben@mbl.is
BÖRNIN í borginni virðast koma sæl
og glöð undan sumri. Í öllu falli virð-
ist skólahald fara vel af stað og ekk-
ert bendir til annars en að líf nem-
enda sé í eðlilegum skorðum, skv.
upplýsingum sem viðbragðsteymið
Börnin í borginni hefur aflað.
Teymið var sett á laggirnar í kjöl-
far bankahrunsins í fyrrahaust og er
markmið þess að fylgjast með líðan
barna og starfsfólks í skólum og frí-
stundastarfi á vegum borgarinnar.
„Við erum búin að halda okkar fyrsta
fund á þessu hausti og t.a.m. kemur
fram í samantekt frá fulltrúa skóla-
stjóra að ekkert bendi til annars en
að börnin séu í góðu lagi og hlutirnir
séu með eðlilegum hætti,“ segir
Ragnar Þorsteinsson, fræðslustjóri í
Reykjavík og formaður teymisins.
Hann segir tilkynningar til teym-
isins ekkert fleiri en í fyrra þótt
vissulega sé erfitt að mæla slíkt eftir
aðeins tveggja vikna skólahald.
„Kannski getur skýringin á aukning-
unni í fyrra verið að við í kerfinu er-
um meira á vaktinni núna en við höf-
um verið áður og að það sé brugðist
við hraðar og ákveðnar.“ Sem dæmi
bendir hann á að í síðustu viku hafi
velferðarráð Reykjavíkur samþykkt
breytingar á reglum sem veiti 200
fjölskyldum með um 300 börn á fram-
færi rétt til sérstakrar fjárhags-
aðstoðar vegna skólagöngu
barnanna.
Ragnar segir því fyrstu meldingar
jákvæðar. „Já, menn tala um að
skólastarfið fari vel af stað og að
börnin komi brosandi og sæl í skól-
ann eftir yndislegt sumar.“
Börnin brosandi
og sæl að hausti
Skólinn fer vel af stað þrátt fyrir kreppu
Góð byrjun Haustið fer vel af stað
hjá krökkunum í grunnskólunum.
ÖSSUR Skarp-
héðinsson, utan-
ríkisráðherra,
segir ýmsa
koma til greina
í embætti for-
manns sendi-
nefndar Íslands
í komandi
samninga-
viðræðum við
Evrópusam-
bandið. Hann
segir hins vegar ekkert búið að
ákveða um málið enn sem komið
er.
Aðspurður vísar hann því á bug
að gengið verði frá því á næstu
dögum að Gunnar Snorri Gunn-
arsson, sendiherra í Kína og fyrr-
verandi ráðuneytisstjóri í utanrík-
isráðuneytinu, taki við for-
mennskuhlutverkinu, eins og
greint var frá á vef Pressunnar í
gær samkvæmt öruggum heim-
ildum innan stjórnkerfisins. „Eitt
er víst, heimildir Pressunnar eru
ekki frá skrifstofu utanríkis-
ráðherra,“ segir Össur.
Enn engin
ákvörðun
verið tekin
Össur
Skarphéðinsson