Morgunblaðið - 10.09.2009, Síða 8

Morgunblaðið - 10.09.2009, Síða 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2009 Eftir Sigrúnu Ásmundsdóttur sia@mbl.is ÞÝSKI fjárhundurinn Nökkvi hefur sinnt skyldu sinni í Vökuportinu undanfarin þrjú ár. Hann hefur rekið burt óboðna gesti og svo rammt hefur kveðið að varðmennskunni að þjófar forðuðust líka portið við hliðina. Nú hafa hins vegar aðstæður breyst og mannleg augu fylgjast með Vökuportinu allan sólarhringinn. Nökkvi er því laus undan skyldustörfunum. Ingvar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Vöku, segir að ekki hafi neitt annað komið til greina en finna Nökkva gott heimili og í því skyni var sendur út fjölpóstur á póstlista Vöku. Í póstinum segir m.a.: „Þekktasti schaefer- hundur landsins, hann Nökkvi, sem gætt hefur Vökuportsins undanfarin 3 ár, leitar nú að nýju heimili. […] Nökkvi er hreinræktaður Schae- fer og er frábær hundur, með eindæmum klár, hlýðinn og góður. […] Þetta er samt stór 39 kg hundur og því er ekki endilega best að hann sé á heimili með ungum krökkum. Ef þú hefur áhuga á að taka að þér kláran, lærdómsfúsan Schaefer, sem væri frábær á hundasýningar, skrifaðu mér stutt bréf og segðu frá þínum að- stæðum og af hverju þú myndir vilja eignast Nökkva. Ég er fullviss að um að hann venst nýjum eiganda á örskotsstundu því smá leikur fær hann til að dýrka fólk sem nennir að sýna honum áhuga.“ Viðbrögðin létu ekki á sér standa og strax fannst nýtt heimili fyrir Nökkva. „Ég er voða- lega ánægður með að hann sé kominn á gott heimili,“ segir Ingvar. „Þar fær hann ástúð og umhyggju. Þessi hundur er svo ótrúlega góður og klár og … bara frábær,“ bætir hann við, skortir lýsingarorð en hnykkir svo á því að Nökkvi hafi einfaldlega verið orðinn allt of góður hundur til að vera varðhundur! Þurfti enga þjálfun Þegar Nökkvi var í upphafi fenginn til að vakta portið var leitað ráða hjá þjálfurum lög- regluhunda. Þar fengust þær upplýsingar að ekki þyrfti að þjálfa Schaefer-hunda sér- staklega í vaktstörf, varðeðlið væri innbyggt í þá. Frá því að hann var eins árs stóð Nökkvi því vaktina, en hann er orðinn fjögurra ára. „Við vitum að menn voru að hoppa yfir girð- inguna hjá okkur og hann hljóp á eftir þeim, bæði heyrðum það frá sjónarvottum og svo sáum við það líka í eftirlitsmyndavélum,“ segir Ingvar. „Nökkvi hafði þess vegna gríðarleg áhrif í portinu hjá okkur og ekki nóg með það, heldur var líka mikill þjófnaður í portinu við hliðina. Þeir þökkuðu mikið fyrir að fá Nökkva því þjófnaður minnkaði hjá þeim líka,“ segir Ingvar. Ingvar segir alla starfsmennina hjá Vöku hafa verið sorgmædda yfir því að hundurinn hvarf frá störfum í fyrirtækinu. Sú sorg þarf þó ekki að vera mikil því nýi eigandinn kveðst ekki munu ekki láta hjá líða að heimsækja fyrri starfsstöðvar með hundinn. Morgunblaðið/Árni Sæberg Nökkvi og nýja fjölskyldan María Rós heldur utan um Nökkva og hinn agnarsmái Tristan er í fangi Rúnars Péturs, kærasta Maríu Rósar. Nökkvi kominn á nýtt heimili  Hefur staðið vaktina í Vökuportinu í þrjú ár og fælt þjófa þaðan og úr nálægum portum  Fékk inni á heimili þar sem fyrir er smáhundur  Samkomulagið gott þó að í upphafi hafi heyrst smávegis urr Nökkvi fékk nýtt heimili hjá Maríu Rós Bald- ursdóttur. María Rós lét ekki duga að svara tölvupóstinum frá Vöku, heldur tók til ráða sem dugðu. „Hún mætti bara hingað og vildi ekki gefa þetta eftir. Mér leist mjög vel á hana, hún er í húsi, með lokaðan garð og annan hund,“ segir Ingvar. María Rós segir það hafa komið sér á óvart hversu blíður Nökkvi er. „Kærastinn minn fékk póstinn frá Vöku og ég rauk bara út um dyrnar, beint upp í Vöku,“ lýsir hún. „Ég hef séð hann þar, en ég bjóst ekki við að hann væri svona ljúfur, algjört lamb.“ Nökkvi verð- ur þó ekki eini hundurinn á heimilinu því þar er fyrir smáhundur af tegundinni chinese crested, kínverskur faxhundur. „Samkomu- lagið er mjög fínt, sá litli urraði svolítið á Nökkva fyrst, en svo hætti hann því,“ segir María Rós. Hún er ákveðin í því að Nökkvi eigi framtíðarheimili hjá sér þó að vissulega séu það viðbrigði að fá svo stóran hund inn á heimilið. „Við höfum alltaf haldið bara á þeim litla en Nökkvi nær upp á borðið án þess að teygja sig,“ segir María Rós og hlær. Nökkvi er schafer en ljúfur sem lamb FELGURNAR fokdýru, sem stolið var undan Nissan 350Z sportbíl við Smiðjuveg í Kópavogi um helgina, eru komnar í leit- irnar. Þjófarnir sáust í örygg- ismyndavél og rataði lögreglan beint á viðkom- andi, að sögn Ragnars Tryggvason- ar, eiganda felgnanna, en hver þeirra kostar 300 þúsund krónur hjá umboðinu. Ein felgnanna var skemmd, að sögn Ragnars. ingi- bjorg@mbl.is Felguþjófarnir sáust í öryggismyndavél Ragnar Tryggvason BROTIST var inn í gróðrarstöðina í Laugarási í fyrrinótt nótt og þaðan stolið 13 hitalömpum. Að sögn lög- reglunnar á Selfossi var tilkynnt um innbrotið í gærmorgun, og er málið í rannsókn. Þá segir lögreglan að 28 lömpum hafi verið stolið úr gróðrarstöðinni í Reykholti aðfararnótt þriðjudags- ins. Ekki liggur fyrir hvort málin tengjast. Þjófnaður á hitalömpum hefur ítrekað komið upp á síðustu mán- uðum. Ástæðan er sú, að þeir hafa verið mikið notaðir við ólöglega ræktun á kannabisplöntum. Hitalömpum stolið úr gróðurhúsum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.