Morgunblaðið - 10.09.2009, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 10.09.2009, Blaðsíða 11
Fréttir 11INNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2009 Eftir Líneyju Sigurðardóttur Þórshöfn | Það er seigla í íslenska sauðfénu enda hefur það þurft að laga sig að misjafnri veðráttu í gegnum tíðina. Lambhrúturinn Brimir er gott dæmi um það en hann fannst við Brimnes á Langanesi í lok júlí síðastliðins illa á sig kominn. Hann er þrí- lembingur sem hafði misst af móður sinni, lík- lega snemma sumars, og var lítið annað en skinn og bein. Guðrún Þorleifsdóttir tók þennan litla gimb- il upp á sína arma og með góðri umönnun og pelagjöfum er hann orðinn hinn sprækasti. Hann dvelur nú í hesthúsahverfinu á Þórshöfn í góðu yfirlæti og þykir sopinn góður þegar mæðginin Guðrún og Jón Fannar koma með mjólkurpelann hans. Áfram við hesthúsin Hesthúsahverfið er rétt við tjaldstæðið á Þórshöfn og gimbillinn hefur vakið athygli gesta þar í sumar en hann kemur gjarnan að hliðinu við veginn þegar hann sér til manna- ferða og heldur að þá sé von á pelanum. Litlar Reykjavíkurdömur á tjaldsvæðinu fengu að gefa honum pelann og sögðust alveg geta haft hann hjá sér í fjölbýlishúsinu sínu í Reykjavík en Brimir kaus víst heimahagana frekar. Hann fær að vera þar í vetur og á því fram- undan lengri lífdaga en flest önnur lömb, enda orðinn mjög hændur að eigendum sínum. Litli gimbill, lambið mitt Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Umhyggja Guðrún Þorleifsdóttir og sonurinn Jón Fannar gefa Brimi mjólk á pela. Menntamála- ráðherra hefur skipað vinnuhóp sem á að gera til- lögur að því er varðar fornleifa- rannsóknir á al- þingisreitnum og um varðveislu á þeim fornleifum sem þegar hafa fundist. Í hópnum eru Kristín H. Sigurðardóttir, Guðný Gerður Gunnarsdóttir, Hjörleifur Stef- ánsson, Karl M. Kristjánsson, Mar- grét Hallgrímsdóttir, Óskar Valdi- marsson, Ragnheiður H. Þórarinsdóttir og Sigurður Ein- arsson. Vinnuhópur skip- aður um alþingisreit NÝ könnun Capacent Gallup fyrir Sveitarfélagið Skagafjörð leiðir m.a. í ljós að níu af hverjum tíu Skagfirðingum eru ánægðir með að búa á svæðinu. Hefur ánægjan al- mennt aukist frá síðustu könnun fyrir fjórum árum. Nærri 80% eru ánægð með lífsgæði í sveitarfé- laginu og þjónustu sem það veitir, einkum fyrir barnafólk. Óánægja er þó með suma þætti, m.a. umferð- aröryggi við skólana, vöru- og verslanaúrval og upplýsingagjöf um ákvarðanir sveitarfélagsins. Þá er nokkur óánægja með ástand Sundlaugar Sauðárkróks. Almenn ánægja meðal Skagfirðinga Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Ánægja Gott að búa í Skagafirði. BÆJARRÁÐ Reykjanesbæjar hef- ur samþykkt að halda óbreyttu hlutfalli á niðurgreiðslu bæjarins á skólamáltíðum fyrir grunn- skólanema, þ.e. 55% niðurgreiðsla til þeirra nemenda sem eru í mat- aráskrift og 45% niðurgreiðsla til þeirra nemenda sem eru með klippikort. Þrátt fyrir verðlags- hækkun á hverri skólamáltíð er Reykjanesbær með lægsta verð á skólamáltíðum ef borin eru saman tíu stærstu sveitarfélögin, segir í tilkynningu. Verð á máltíð í mat- aráskrift verður því 215 krónur og verð á máltíð með klippikorti verð- ur 350 krónur. Ódýr skólamáltíð í Reykjanesbæ ÞAU leiðu mistök urðu í Morg- unblaðinu hinn 9. september að eft- irfarandi lokaorð greinar um skýrslu vistheimilisnefndar vantaði: „Nefndin telur sömu tillögur til stjórnvalda gilda fyrir þessar stofn- anir og Breiðavíkurheimilið. Þ.e. til- lögu um hugsanlegar skaðabóta- greiðslur, geðheilbrigðisþjónustu og eftirlit á sviði barnaverndarmála. LEIÐRÉTT Lokaorð féllu niður

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.