Morgunblaðið - 10.09.2009, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2009
GUÐMUNDUR Hauksson, fyrrver-
andi sparisjóðsstjóri SPRON, segir
engan tengdan sér hafa átt viðskipti
með stofnfjárbréf
í júlí 2007 nema
eiginkonu sína,
Áslaugu Björgu
Viggósdóttur.
Í yfirlýsingu
sem Guðmundur
sendi frá sér í
gær bendir hann
á að þau hjón
hafi aðeins selt
7% af sameig-
inlegri eign sinni
í SPRON um mitt ár 2007. „[E]nda
höfðum við miklar væntingar um
framtíð SPRON og héldum eftir
93% af stofnfjárbréfum okkar í
sparisjóðnum. Við sáum hins vegar
ekki fyrir þá miklu lækkun sem átti
sér stað á verðbréfamörkuðum
haustið 2007 og á árinu 2008, frekar
en aðrir, hvað þá það efnahagshrun
sem átti sér stað í október 2008,“
segir Guðmundur í yfirlýsingu
sinni.
Segist ekki hafa búið yfir upp-
lýsingum sem haft gætu áhrif
Bendir Guðmundur jafnframt á
að hann hafi, á þeim tíma sem salan
fór fram, ekki fremur en aðrir
stjórnendur sparisjóðsins búið yfir
óopinberum upplýsingum sem haft
gætu áhrif á stofnfjárverð. Máli
sínu til stuðnings vísar hann í bréf
saksóknara efnahagsbrotadeildar
Ríkislögreglustjóra frá því í júní
2008. Þar kemur fram að ekki verði
séð að stjórnarmenn SPRON hafi
búið yfir trúnaðarupplýsingum um
verðmat félagsins og að innherja-
reglur í lögum um verðbréfa-
viðskipti eigi ekki við um viðskipti
með stofnfjárbréf í SPRON á þess-
um tíma. „Hvílir því ekki skylda til
að upplýsa um viðskipti stjórn-
armanna með stofnfjárhluti, hvorki
þeim sem þau gera, né stjórn spari-
sjóðsins,“ segir m.a. í bréfi saksókn-
ara efnahagsbrota. Í bréfi sínu
bendir Guðmundur einnig á að
Fjármálaeftirlitið hafi ekki talið efni
til þess að bregðast við ásökunum
um meint brot stjórnar eða stjórn-
enda vegna sölu á stofnfjárhlutum
sumarið 2007. Yfirlýsingu hans má
lesa í heild sinni á: www.mbl.is.
Rannsaka fjársvikakæru
Þess ber að geta að fyrrgreind
niðurstaða saksóknara efnahags-
brotadeildar Ríkislögreglustjóra
var kærð til ríkissaksóknara, sem í
upphafi árs 2009 fól efnahags-
brotadeildinni að rannsaka hvort
stjórnarmenn í SPRON hefðu gerst
sekir um fjársvik þegar þeir seldu
stofnfjárhluti í SPRON sumarið
2007.
Í samtali við Morgunblaðið í gær
sagði Helgi Magnús Gunnarsson,
saksóknari efnahagsbrota ríkislög-
reglustjóra, það mál nú í rannsókn.
Spurður hvenær búast megi við nið-
urstöðu segir Helgi það sennilega
ekki verða fyrr en næsta vetur sem
megi m.a. skýra af manneklu og
miklum fjölda mála.
silja@mbl.is
Segist ekki hafa
verið innherji
Guðmundur
Hauksson
Hraði,
2 Mb/sek*.
Gagnamagn,
10 GB.
Verð 4.190 kr.
Það er800 7000 • siminn.is
E
N
N
E
M
M
/S
ÍA
/N
M
38
91
6
Leið 1:
INTERNET SÍMANS
Internet Símans er annað og meira en venjuleg nettenging
Þú hefur möguleika á hraðari nettengingu, meira gagnamagni, öruggri gagnageymslu,
Sjónvarpi Símans með fjölda sjónvarpsstöðva og vídeóleigu heima í stofu. Auk þess
fylgir Netvarinn öllum áskriftarleiðum. Skráðu þig í eina af nýju leiðunum.
* Hraði allt að 2 Mb/sek.
Skíðaferðir
Fleiri dagsetningar og nánari upplýsingar
á expressferdir.is eða í síma 5 900 100
Spennandi Skíðaferðir
hjá Expressferðum
Nýir áfangastaðir í Austurrríki
Skoðaðu úrvalið, sjáðu verðið!