Morgunblaðið - 10.09.2009, Side 17

Morgunblaðið - 10.09.2009, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2009 Kópavogur Ármann Kr. Ólafsson stýrði þúsundasta fundinum. ÞÚSUNDASTI fundur í bæjar- stjórn Kópavogs frá upphafi var haldinn á þriðjudag síðastliðinn. Af því tilefni ákvað bæjarstjórnin að styrkja Mæðrastyrksnefnd Kópa- vogs um 1.000.000 kr. Ennfremur var opnað fyrir útsendingu á bæj- arstjórnarfundum Kópavogs á net- inu, en þeim verður framvegis streymt jafnhliða útvarpsútsend- ingum á FM-tíðni 98,3. Tengilinn er að finna á heimasíðu Kópavogs- bæjar, kopavogur.is. Fundur 1.000 í bæj- arstjórn Kópavogs HIÐ árlega golfmót burtfluttra Skagfirðinga, Skagfirðingamótið, fór fram í miklu blíðskaparveðri um síðustu helgi í Borgarnesi. Mót- ið hefur verið haldið í meira en tíu ár sunnan heiða, og fór fram annað árið í röð í Borgarnesi. Metþátttaka var að þessu sinni. Yfir 80 kylfingar mættu til leiks, þar af um 20 að norðan, og komust færri að en vildu, slík er aðsóknin orðin í mótið. Skal engan undra þar sem verðlaun eru jafnan glæsileg, hver einasti keppandi kemur heim með verðlaun – bara mismikil eftir því hve árangurinn hefur verið á golfvellinum og heppnin í útdrætti á skorkortum, þar sem mikil eft- irvænting ríkir. Langbesta skor dagsins, á 73 höggum, eða tveimur höggum yfir pari vallarins, átti Halldór Heiðar Halldórsson. Skag- firðingamótið er punktakeppni og aðalverðlaunin, farandbikar, fær sá er flestum punktum nær. Það gerði Arnar Snær Kárason með 41 punkt. Með flesta punkta í kvennaflokki var Sólrún Steindórsdóttir, eða 37. Gefendur verðlauna voru yfir 30 talsins; frá einstaklingum til stór- fyrirtækja. Stærstu styrktaraðilar voru Flugfélag Íslands, Hótel Ham- ar í Borgarnesi, Alcan í Straumsvík og BM-Vallá í Borgarnesi. Morgunblaðið/Björn Jóhann Verðlaunahafar Yfir 80 kylfingar voru á Skagfirðingamótinu og verðlaun voru veitt í tíu efstu sætum í karla- og kvennaflokki, auk fleiri verðlauna. Færri komust að en vildu á Skagfirðinga- móti burtfluttra kylfinga sunnan heiða UMHVERFISVERÐLAUN Norð- urlandaráðs, sem nema jafnvirði 350.000 danskra króna, verða nú veitt í fimmtánda sinn. Verðlaunin eru veitt norrænu fyrirtæki, sam- tökum eða einstaklingi sem á ein- hvern hátt hefur skapað gott for- dæmi við að fá fólk til að stunda útivist og bæta skilning á þýðingu fyrir andlegt og líkamlegt atgervi. Ákveðið hefur verið hverjir keppa í annarri umferð. Níu af þeim 63 tillögum sem sendar voru inn halda áfram í annarri umferð. Þrjár tillögur koma frá Svíþjóð, tvær frá Finnlandi, ein frá Íslandi og ein er tillagan er sameiginleg frá öllum norrænum ríkjum. Frá Ís- landi eru tilnefndar þær Ósk Vil- hjálmsdóttir og Ásta Arnardóttir. Dómnefnd náttúru- og umhverf- isverðlaunanna ákveður hver fær verðlaunin á fundi sem verður hald- inn í Stokkhólmi hinn 7. október. Verða þau svo afhent á Norður- landaráðsþingi sem haldið verður í Stokkhólmi í lok október. Morgunblaðið/ÞÖK Tilnefndar Ásta Arnardóttir og Ósk Vilhjálmsdóttir eru tilnefndar. Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs MJÖG vel lítur út með kornuppskeru hjá bændum á Hornafirði og skiptir nú hver sólardagur máli. Áætlað er að framleiðsluaukning á korni í haust verði 30-40%, en kornræktendum (áætlaðir 12-15) hefur ekki fjölgað frá í fyrra er Flatey á Mýrum bættist í hópinn. Mest er kornrækt á Árbæ og Flatey með 40-50 hektara á hvor- um stað. Þetta kemur fram á frétta- vefnum www.hornafjordur.is. Einnig er útlit fyrir að heyfengur bænda verði meiri en í meðalári enda hefur sumarið verið sólríkt og gott. Framan af var rigning af mjög skornum skammti og dró það úr sprettu á sanda-túnunum en síðan kom rigning í júlí í hæfilegu marki og tók gróð- urinn þá allvel við sér. 40-50% aukning í kornuppskeru Kornrækt Hefur heppnast vel víða um land í sumar og haust. ÍSLANDSDEILD Amnesty Int- ernational hefur sent ráðamönnum landsins bréf þar sem farið er fram á það að Ísland undirriti valfrjálsa bókun við alþjóðasamning um efna- hagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi. Valfrjálsa bókunin mun tryggja að einstaklingar sem halda því fram að brotið hafi verið á þeim geti lagt erindi fyrir sérstaka nefnd Sameinuðu þjóðanna. Ríkisstjórnin styðji mannréttindi STUTT Það er800 7000 • siminn.is E N N E M M /S ÍA /N M 38 91 7 INTERNET SÍMANS Internet Símans er annað og meira en venjuleg nettenging Leið 2: Þú hefur möguleika á hraðari nettengingu, meira gagnamagni, öruggri gagnageymslu, Sjónvarpi Símans með fjölda sjónvarpsstöðva og vídeóleigu heima í stofu. Auk þess fylgir Netvarinn öllum áskriftarleiðum. Skráðu þig í eina af nýju leiðunum. * Hraði allt að 8 Mb/sek. Hraði, 8 Mb/sek*. Gagnamagn, 60 GB. Verð 5.990 kr.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.