Morgunblaðið - 10.09.2009, Síða 18
18 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2009
FLÖK vöruflutningabíla sem skyndileg flóð í kjölfar
geysimikillar úrkomu í Istanbúl sviptu um koll. Minnst
31 hefur látið lífið, mörg hús eru enn umflotin og allt að
tveggja metra djúpur vatnsflaumur rennur nú eftir
þjóðvegum á svæðinu. Sjö konur drukknuðu þegar
flaumurinn hreif með sér smárútu þeirra.
Reuters
MANNSKÆÐ FLÓÐ Í TYRKLANDI
ÁKÖF umræða fer nú fram í Banda-
ríkjunum um hættuna sem það veld-
ur þegar ökumaður sinnir ýmsu öðru
en akstrinum, talar t.d. í farsíma eða
sendir smáskeyti (sms) undir stýri.
Talsmenn aukins öryggis vestra
segja að svo geti farið að málið verði
leyst innan fjölskyldunnar, segir í
grein í blaðinu The New York Times.
Bent er á að fólk hafi almennt farið
að nota öryggisbelti vestra vegna
þess að aðstandendur bílstjóra höfðu
áhyggjur af öryggi þeirra. Ekki hafi
dugað að setja lög, margir ökumenn
hafi hunsað þau. Nú séu þessir „sjálf-
skipuðu verðir“, stundum í aftursæt-
inu, farnir að verða órólegir og and-
mæla því að ökumaður með mörg
járn í eldinum noti tímann við akstur
til að senda smáskeyti til við-
skiptavina og annarra. kjon@mbl.is
Hafi hug-
ann við
aksturinn
Hættulegt að senda
smáskeyti undir stýri
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
BARACK Obama flutti mikilvægustu ræðu sína
frá því að hann tók við embætti Bandaríkjaforseta
þegar hann ávarpaði sameinað þing landsins í nótt
til að reyna að snúa vörn í sókn í deilunni um loforð
hans um að koma á umbótum á heilbrigðiskerfinu.
Ræðan er talin geta ráðið úrslitum um hvort
Obama takist að knýja fram sjúkratryggingar fyr-
ir alla Bandaríkjamenn eins og hann hafði lofað.
Bíði hann ósigur í málinu næstu vikurnar gæti það
staðið honum fyrir þrifum það sem eftir er kjör-
tímabilsins og orðið til þess að hann gæti ekki
komið á raunverulegum breytingum í öðrum mál-
um.
Forsetinn hefur lýst umbótum á heilbrigðis-
kerfinu sem forgangsmáli sínu í innanríkismálum í
ár. Fréttaskýrendur segja að Obama hafi tekið
mikla áhættu með því að leggja svo mikla áherslu
á þetta mál en hann hafi orðið að flytja ræðuna á
þinginu til að snúa vörn í sókn. Núna væri að duga
eða drepast.
Obama hefur átt undir högg að sækja í sumar
og vinsældir hans hafa minnkað hraðar en nokk-
urs annars nýkjörins Bandaríkjaforseta, ef marka
má nýlega skoðanakönnun. Hún bendir til þess að
forsetinn njóti stuðnings um 50-51% landsmanna
en allt að 68% sögðust styðja hann í byrjun kjör-
tímabilsins.
Fylgistapið er einkum rakið til erfiðra vanda-
mála sem komið hafa upp, m.a. efnahagskrepp-
unnar og aukins atvinnuleysis. Loforð hans um
umbætur á heilbrigðiskerfinu hefur einnig sætt
vaxandi andstöðu meðal almennings, sem hefur
m.a. áhyggjur af því að breytingarnar verði of dýr-
ar. Í ræðunni beindi Obama því orðum sínum að
þjóðinni allri til að reyna að sannfæra hana um að
breytingarnar þjónuðu hagsmunum hennar.
Úrslitastund fyrir Obama
Forsetinn ávarpaði Bandaríkjaþing til að snúa vörn í sókn í deilunni um
sjúkratryggingar Mikilvægasta ræða hans í forsetaembættinu til þessa
» Talinn hafa tekið mikla
áhættu með ræðunni
» Nú var að duga eða drepast
eftir mikið fylgistap
DR NEIL Stanley, sem stýrir svefn-
rannsóknastofnun í Surrey í Bret-
landi, segir að hjón ættu ekki að
sofa að jafnaði í sama rúmi vilji þau
tryggja sér góðan nætursvefn.
Hrotur, byltur og annað ónæði
valda miklum truflunum sem koma
niður á svefninum.
„Við vitum öll hvernig það er að
kela svolítið og segja síðan: „Núna
ætla ég að fara sofa,“ og færa sig
síðan yfir í hinn hluta rúmsins. Af
hverju ekki að fara alveg úr rúm-
inu?“ segir Stanley.
Lélegur svefn geti tengst þung-
lyndi, hjartasjúkdómum, slagi og
lungnakvillum, segir hann en einn-
ig slysum í umferð og á vinnustað.
Loks geti niðurstaðan af svefn-
leysinu orðið skilnaður. Um 8%
miðaldra hjóna í Bretlandi sofa
hvort í sínu rúmi, segir í frétt BBC.
kjon@mbl.is
Hjón sem sofa
hvort í sínu rúmi
njóta betri svefns
HENRYK Bro-
der, þekktur
blaðamaður og
rithöfundur í
Þýskalandi, hót-
ar nú að kæra
danska ríkið í
kjölfar þess að
hann varð fyrir
árás í fríríkinu
Kristjaníu, að
sögn Jyllandsposten.
Broder bendir á að í túr-
istabæklingum sé Kristjaníu lýst
sem athyglisverðum stað. Hann fór
þangað með vini sínum og tók
myndir. Nokkur vöðvabúnt stöðv-
uðu hann þá og heimtuðu að hann
afhenti vélina. Er hann neitaði var
hann laminn niður og vélin eyði-
lögð.
Broder segist hafa séð skilti þar
sem varað var við myndatökum en
ekki tekið mark á þeim enda hann
ekki staddur á einkalóð. Eftir árás-
ina hafi hann talað við lögregluna
en fengið það svar að hún færi að
öllu jöfnu ekki inn í fríríkið.
kjon@mbl.is
Þorir lögreglan ekki
inn í Kristjaníu?
Henryk Broder
SUÐUR-Kóreumaður hrópar slagorð gegn Kim Jong-il, leiðtoga N-Kóreu.
Um liðna helgi opnuðu N-Kóreumenn óvænt flóðgátt í Imjin-fljóti sem
rennur skammt frá Seoul og fórust í kjölfarið sex manns.
Reuters
SLAGORÐ GEGN KIM
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
ÞINGKOSNINGAR verða í Þýska-
landi 27. september, óvissan er
mikil og sveiflur hafa verið á fylgi
helstu flokka í skoðanakönnunum. Í
könnun Forsa fyrir tímaritið Stern,
sem birtist í gær, jók Vinstriflokk-
urinn mjög fylgi sitt og var með
14%.
Ein ástæðan er að sögn Financial
Times talin vera andstaða flokksins
við þátttöku Þjóðverja í hernaðinum
gegn talíbönum í Afganistan. Hinir
stóru flokkarnir styðja hana allir og
kom það skýrt fram í þingumræðum
á þriðjudag. Þátttakan er hins veg-
ar óvinsæl meðal kjósenda og verð-
ur fróðlegt að sjá hvort aðrir flokk-
ar reynast staðfastir ef
Vinstriflokkurinn heldur áfram að
bæta stöðu sína fyrir kosningarnar.
Fleira veldur því að menn setja nú
spurningamerki við þátttöku Þjóð-
verja í aðgerðunum. Yfirmaður
þýsks herliðs í Kunduz bað fyrir
skömmu um loftárás á tankbíl sem
talíbanar höfðu rænt. Um 90 manns
féllu, sennilega var stór hluti þeirra
óbreyttir borgarar.
Bandaríski hershöfðinginn Stanl-
ey McChrystal, yfirmaður allra er-
lendra herja í Afganistan, gagnrýndi
síðar þýska liðið fyrir að vera lengi
að komast á staðinn eftir árásina.
Einnig hefur verið gefið í skyn í
bandarískum blöðum að þýski yf-
irmaðurinn hafi ef til vill brotið regl-
ur McChrystals um að ekki ætti að
biðja um loftárás NATO-véla nema
aflað hefði verið fyrst upplýsinga um
aðstæður frá minnst tveim aðilum.
Angela Merkel kanslari hefur
harmað mannfallið. En Þjóðverjar
hafa sætt gagnrýni annarra NATO-
ríkja fyrir að vilja ekki stofna eigin
hermönnum í hættu á mestu átaka-
svæðunum. „Sjálfur Bin Laden hefði
ekki getað skipulagt betur árás á
einingu NATO,“ sagði blaðið Frank-
furter Allgemeine Zeitung. „Von-
brigði Bandaríkjamanna vegna
áfalla í Afganistan geta verið skilj-
anleg en jafnvel þótt aðstæður væru
mun hættuminni væri afskaplega
heimskulegt að setja í gapastokkinn,
því að það hefur McChrystal gert,
bandamann sem menn vilja fá til að
taka meiri þátt í bardögum.“
Þjóðverjar deila um
hernað gegn talíbönum
Gagnrýni Bandaríkjamanna á þýska herliðið fordæmd
Deilur um þátttökuna í hern-
aðinum í Afganistan setja mark
sitt á kosningabaráttuna í Þýska-
landi. Vinstriflokkurinn, sem vill
kalla þýsku hermennina heim,
eykur nú fylgi sitt.
Stanley
McChrystal
Angela
Merkel
Óttast menn klofning í NATO?
Anders Fogh Rasmussen, fram-
kvæmdastjóri bandalagsins, hefur
látið í ljós áhyggjur af aukinni
andstöðu við hernaðinn í skoð-
anakönnunum.
Hvað vill hann gera í málinu?
Hann segir að sýna verði fram á
að aðgerðirnar beri árangur. Afg-
anar verði að taka í auknum mæli
við stjórn eigin mála.
S&S