Morgunblaðið - 10.09.2009, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 10.09.2009, Blaðsíða 20
20 Daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2009 Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is Þ essi leið var notuð til ferðalaga á milli landshluta í þúsund ár, frá upphafi Ís- landsbyggðar og alveg fram undir aldamótin 1900. Það var einstök upplifun að fara í spor alls þess fólks sem þarna hefur farið um í gegnum árhundruðin,“ segir Vigfús Gíslason sem gerði sér lítið fyrir í sumar og gekk aleinn í átta daga svokallaðan Miðveg sem er ævaforn þjóðleið. Og gott betur, því hann gekk frá Eyrarbakka austur í Skaftár- tungu og fór norðan við Mýrdals- jökul. „Elstu heimildir um þessa leið eru í Njálu en til að tengja þetta nær okkur í tíma, þá þurftu Skaftfellingar allt fram undir aldamótin 1900 að sækja aðföng í verslun á Eyrarbakka og eins riðu eða gengu menn mikið þessa leið þegar þeir fóru í verið. Um 1890 verður Vík í Mýrdal versl- unarstaður og þá þurfa menn ekki lengur að fara suður eftir vörum og einnig voru árnar brú- aðar upp úr aldamótum. Af báð- um þessum ástæðum þá hættir fólk að fara Miðveg,“ segir Vigfús sem er Skaftfellingur, fæddur og uppalinn á bænum Flögu í Skaft- ártungu en býr nú í Þorlákshöfn og er framkvæmdastjóri Flugger í Reykjavík. Hann á sumarhús í Skaftártungu sem var endastöðin í gönguferðinni hans í sumar. Aðeins fær í sjö vikur á ári „Þessi leið sem ég gekk er ein af þremur leiðum sem farnar voru hér áður fyrr úr Skaftafellssýslu og suður til verslunarbæjanna. Margir fóru syðstu leiðina með- fram sjónum, eða strandleiðina, á svipuðum slóðum og þjóðvegurinn liggur í dag. Fjallabaksleið nyrðri var líka mikið farin, um Eldgjá og Landmannalaugar. Miðvegurinn liggur á milli þessara tveggja leiða en uppsveitarmenn fóru meira yfir fjöllin, rétt eins og ég gerði, vegna þess að það er styttra heldur en að fara með sjónum og eins losna menn þann- ig við stóru jökulárnar og sand- bleyturnar.“ Vegna snjóalaga og kulda var Miðvegurinn aðeins fær í um sjö vikur á ári, eða frá 20. júlí fram í miðjan september. „Þetta kemur til af því að þegar menn ferðast á hestum, þá verður að vera kominn hagi til að beita þeim á leiðinni. Haglendi er því í raun bensínstöðvar þess tíma,“ segir Vigfús sem kynnti sér hvar þessar gömlu „bensínstöðvar“ voru og þar hafði hann næturgist- ingu í tjaldi sínu. „Leiðin rekur sig á milli þessara gömlu áning- arstaða þar sem er skjól, hagi og vatn. Sums staðar er þessi leið vörðuð hrundum vörðum og víða sjást greinilega eldgamlar grónar slóðir. Það virkaði sterkt á mig að feta mig áfram eftir þessum gömlu menjum.“ Ullin á sumrin, mjölið á haustin Vigfús var með 20 kíló á bak- inu allan tímann en gangan var um 200 kílómetrar. Hann segist ekki vita til þess að einhver ann- ar en hann hafi gengið þessa leið frá því hún var aflögð að mestu fyrir um 140 árum. Hann gekk að meðaltali um 30 kílómetra á dag, sem hann segir slaga upp í lestargang. „Fólk þurfti að fara árlega í kaupstaðarferðir og þá var algengast að farnar væru svokallaðar lestarferðir, þar sem fólk reið saman á hestum. Farið var tvisvar á ári, annars vegar með ullarlestina fyrripart sum- ars, til að koma ullinni í verð sem til féll í sumarrúningnum, og svo hins vegar að hausti til að ná í mjöl og aðrar vörur fyrir veturinn.“ Hann segir leið þessa ekki erf- iða yfirferðar en þó hafi hún greinilega verið valin með tilliti til áningarstaða og hvernig und- irlagið hafi verið fyrir hesta. „Fólk hefur ekkert verið að víla fyrir sér að láta leiðina liggja upp einstaka bratta brekku til að stytta sér leið eða fá nokkra kíló- metra af sléttlendi. Á Rangár- vallaafrétti var gott dæmi um þetta en brött brekka er upp úr Lambadal þar sem farið er upp á svokallaðar Dalöldur, en þegar ég kom þar upp tók við langur kafli af sléttlendi.“ Fjórir menn urðu úti Vigfús segir ástæðu þess að Miðvegsleiðin hafi lagst af fyrir um 140 árum ekki aðeins vera tilkomu verslunar í Vík og brúa yfir árnar. „Árið 1868 lögðu fjór- ir menn af stað í október úr Skaftártungu og var ferðinni heitið í ver á Reykjanesi. Sumir þeirra voru reyndir menn, þeir voru gangandi en með fjóra hesta sem báru færur þeirra. Þeir fengu fylgd áleiðis út yfir Hólmsá en komu aldrei fram. Mikið var leitað en þeir fundust ekki. Ýmsar sögusagnir fóru á kreik um að þeir hefðu verið rændir og drepnir af úti- legumönnum eða jafnvel gengið í lið með þeim. Í framhaldi af þessu kom tilskipun frá konungi um að ferðir um Miðveg væru bannaðar og lagðist sú ferðaleið því að mestu af. Tíu árum eftir að mennirnir hurfu, fundu Rang- vellingar í smalamennsku beinin af þeim á Mælifellssandi, norðan Mýrdalsjökuls. Þeir lentu í vondu veðri og hafa einfaldlega orðið úti, enda voru mikil harð- indi á þessu tímabili.“ Þess má geta að fyrirliði mannanna sem urðu úti var Þorlákur Jónsson í Gröf en bróðir hans, Eiríkur í Hlíð, var langalangafi Vigfúsar. Ferjaður yfir Þjórsá Vigfús lagðist í þónokkra heimildavinnu fyrir ferðalagið og segir að sögur og atburðir sem fólk hafi sagt honum hafi lifnað við á leið hans. „Ég tók hús á mörgu því fólki sem bjó á þeim jörðum sem ég þurfti að fara um áður en ég lagði á öræfin. Allir tóku mér einstaklega vel, voru boðnir og búnir til að aðstoða mig og sögðu mér margar sögur sem tengdust þessari leið. Af öðrum ólöstuðum var Guðsteinn bóndi á Egilsstöðum í Vill- ingaholtshreppi minn helsti hvatningarmaður. Hann bauðst líka til að ferja mig yfir Þjórsá þegar ég fór um hans land á göngu minni, sem hann og gerði og það setti svip á ferðina. Þarna er lögferja sem hafði svipað gildi áður fyrr og Hvalfjarðargöngin hafa fyrir okkur núna.“ Óð Markarfljót upp í klof Ýmsar hindranir voru á leið- inni, Vigfús þurfti að komast yfir áveituskurði í Flóanum sem voru illfærir og eins þurfti hann að vaða nokkrar ár, Eystri-Rangá, Markarfljótið og Hólsá. Markar- fljótið var nokkuð djúpt, náði honum upp í klof, en þá kom sér vel að hann er vanur að vaða. Hann segist hafa á göngu sinni haft ýmislegt fram yfir ferða- langa fyrri tíma. Hann var vissu- lega ekki á neinum sauðskinns- skóm og vel útbúinn að öllu leyti. „Ég var líka algerlega óttalaus gagnvart forynjum og varð ekki var við nokkurn draug á öræf- unum, en í Flóanum þar sem all- ar keldurnar eru, hef ég heyrt að Kampholtsmóri og aðrir draugar eigi til að bregða fæti fyrir fólk en ég varð ekki var við neitt óhreint. En vissulega var ég með ferðabæn með mér í bakpok- anum, hún hefur gert sitt gagn,“ segir Vigfús og brosir. Gott að ganga einsamall Hann segist kunna því af- skaplega vel að ganga einn um óbyggðir. „Maður verður að fara varlega, það er ekki heppilegt að verða fyrir einhverjum skakka- föllum þegar enginn er til að að- stoða mann. En það er mikill kostur að geta hagað sínum tíma nákvæmlega eins og manni sýn- ist og fara á sínum hraða. Dags- formið er ekki alltaf það sama og maður getur leyft sér að vera latur eða taka einhverja út- úrdúra. Ég var mjög heppinn með veður, það var sól og blíða allan tímann og því kaus ég að taka það rólega á morgnana og matast yfir miðjan daginn þegar heitast var og ég lagði mig gjarnan eftir aðalmáltíðina. Síð- an gekk ég langt inn í kvöldið þegar svalara var í veðri og oft var ég kominn í náttstað um klukkan tíu á kvöldin,“ segir Vig- fús sem er mikill fjallamaður og fer í nokkrar langar gönguferðir á hverju sumri, ýmist einn eða með öðru fólki. Í haust bíður hans smalamennska í sveitum og ekki laust við að hann hlakki til að fara um landið. Í fótspor forfeðranna Enga drauga hitti hann á leið sinni þegar hann gekk einn síns liðs gamla þjóðleið frá Eyrarbakka austur að Flögu í Skaft- ártungu. Aftur á móti lifnuðu myndir liðins tíma við þar sem hann fór um fornar slóðir. Ljósmynd/Vigfús Gíslason Á sjötta degi Vigfús hvílist og lætur Hollending smella af sér mynd en hann varð á vegi hans þar sem hann þveraði Laugaveginn neðan við Jökultungur. Við Rauðöldu Ein af mörgum hrundum vörðum sem varða leiðina. Hafrafellið framundan.                                                              Eyrarbakki (þar hófst ferðin)  Stokkseyri  Hólavöllur (gamall áningarstaður)  Ásavegur í Flóa  Egilsstaðaferja á Þjórsá  Kálfholt  Rauðilækur  Hella á Rangárvöllum  Keldur á Rangárvöllum  Árbær (Eyðibýli)  Rauðnefsstaðir (Eyðibýli)  Lambadalur Rangárvallaafrétti  Hungurfit  Faxi (fjall)  Launfit við Markarfljót (gamall áningarstaður)  Grashagi  Þvergil norðan Höfða og Hvanngils  Mælifellssandur  Hólmsá sunnan Svartafells  Tjaldgil í Ljótarstaðaheiði  Kelatungur vestan Ljótarstaða  Snæbýli í Skaftártungu  Hemrumörk  Flaga í Skaftártungu Helstu áningar- og viðkomustaðir, í þeirri röð sem að þeim var komið Ljósmynd/Vigfús Gíslason Ferjumaðurinn Guðsteinn bóndi á Egilstöðum ásamt hundum sínum að gera bátinn Dal kláran til að ferja Vigfús yfir Þjórsá.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.