Morgunblaðið - 10.09.2009, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 10.09.2009, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2009 Óskar Magnússon. Ólafur Þ. Stephensen. Útgefandi: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Útlitsritstjóri: Árni Jörgensen. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Um nokkurtskeið hafakærur Fjármálaeftirlitsins á hendur sex blaða- mönnum vegna meints brots á bankaleynd verið að velkjast um í kerfinu. Í gær var þeim öllum vísað frá. Forsendur frávísunar- innar eru ólíkar, en niðurstaðan endanleg. Í hlut áttu Agnes Bragadóttir og Þorbjörn Þórðarson, blaða- menn á Morgunblaðinu, Krist- inn Hrafnsson, sem var frétta- maður Kompáss þegar kæran kom fram, og Reynir Trausta- son, ritstjóri DV, og Ingi F. Vil- hjálmsson, blaðamaður á DV. Athyglisverðast er að skoða ástæðuna fyrir frávísun mála Þorbjörns, Reynis og Inga. Þar reyndi á 58. grein laga um fjár- málafyrirtæki. Sú grein snýst um þagnarskyldu og er svo- hljóðandi: „Stjórnarmenn fjár- málafyrirtækis, framkvæmda- stjórar, endurskoðendur, starfsmenn og hverjir þeir sem taka að sér verk í þágu fyrirtæk- isins eru bundnir þagnarskyldu um allt það sem þeir fá vitneskju um við framkvæmd starfa síns og varðar viðskipta- eða einka- málefni viðskiptamanna þess, nema skylt sé að veita upplýs- ingar samkvæmt lögum. Þagn- arskyldan helst þótt látið sé af starfi. Sá sem veitir viðtöku upplýs- ingum af því tagi sem um getur í 1. mgr. er bundinn þagn- arskyldu með sama hætti og þar greinir. Sá aðili sem veitir upp- lýsingar skal áminna viðtakanda um þagnarskyld- una.“ Mat Björns L. Bergssonar, setts ríkissaksóknara, var að svo væri ekki. Ef leynd á gögnum hefði verið rofin yrði hún ekki endurvakin í höndum annarra. Þetta virðist vera nokkuð rök- rétt niðurstaða, en nú vaknar sú spurning hvort hún verði for- dæmisgefandi. Hulda Árnadótt- ir, lögmaður blaðamannanna þriggja, kveðst í samtali í Morg- unblaðinu í dag telja að túlkun saksóknara hafi ákveðið for- dæmisgildi. „Ég myndi ætla að allir, sem eru að vinna með þessi lög, bæði FME og handhafar ákæruvaldsins, væru bundnir af þessari túlkun ríkissaksóknara á ákvæðinu af því hann er æðsti handhafi ákæruvalds í landinu,“ segir hún. Það er umhugsunarefni að Fjármálaeftirlitið skuli hafa ákveðið að kæra blaðamennina sex, en það varð þó til að knýja fram þá niðurstöðu, sem fékkst í gær. Sérstaklega mikilvæg er niðurstaða ríkissaksóknara í málum Þorbjörns, Reynis og Inga. Ekkert frelsi er þó án ábyrgðar og áminning Huldu um að blaðamenn verði eftir sem áður að virða friðhelgi einkalífs- ins og vega og meta hvort upp- lýsingar, sem þeir fái í hendur, eigi í raun erindi við almenning er þörf. Frelsi fjölmiðla til að fjalla um mikilvæg mál er grundvallaratriði. Það er á ábyrgð fjölmiðla að kunna að fara með það frelsi. Ef leynd hefur verið rofin verður hún ekki endurvakin í höndum annarra} Fjölmiðlar og bankaleynd Afleiðingarreykinga eru einn helsti heil- brigðisvandi Ís- lendinga eins og kemur fram í um- fjöllun Ingibjargar B. Sveinsdóttur blaðamanns í Morgunblaðinu í gær og í dag. Yfir 400 Íslendingar deyja ár- lega um aldur fram vegna reykinga. Á hverju ári greinast 130 manns með lungnakrabba á Íslandi. Læknar í undirbún- ingsnefnd Tóbaksvarnarþings Læknafélags Íslands, sem hefst á morgun, hafa reiknað út að kostnaður samfélagsins vegna reykingatengdra sjúk- dóma sé 30 milljarðar á ári, en tekjur ríkisins af sölu tóbaks séu sjö milljarðar. Mörgum kann að þykja óhugnanlegt að setja mannslíf á vogarskál peninganna, en aðrir virðast vart skilja annað tungumál. Kristján G. Guðmundsson, yfirlæknir Heilsugæslunnar í Glæsibæ, er einn nefnd- armanna. Hann lýsir þeirri skoðun að hér sé á ferð faraldur og læknar vilji láta taka tób- ak úr almennri sölu í þrepum næstu tíu árin. Hann gerir sér grein fyrir að ekki verði gripið til róttækra aðgerða án sáttar í samfélaginu, en átaks sé þörf. Hann bendir á að vikulega ánetjist 20 unglingar á Íslandi tóbaki og að minnsta kosti helmingur þeirra muni deyja úr sjúkdómum, sem tengjast reykingum. Velta má fyrir sér hvernig brugðist yrði við ef hugmyndin um tóbaksneyslu væri nú fyrst að koma til sögunnar og ein- hverjum dytti í hug að fá leyfi til framleiðslu og almennrar sölu. Leyfi fyrir svo eitraðri neysluvöru yrði aldrei veitt. Þegar reykingar hófust höfðu menn hins vegar ekki hug- mynd um skaðsemi þeirra og mörgum öldum síðar sýpur mannkyn enn seyðið af því. 400 Íslendingar deyja árlega um aldur fram vegna reykinga} Skaðsemi reykinga G uðrún fallegust á EM,“ hefur verið ein mest lesna fréttin á fréttavef Morgunblaðsins undanfarna daga. Bloggarar létu ekki sitt eftir liggja og sumir fordæmdu kosninguna og sögðu hana niðrandi fyrir frækna íþróttakonu. Slík kosning væri „dæmigerð“ og til þess fallin að varpa rýrð á íþróttaafrekin. Aðrir bentu á að sömu sögu væri að segja úr karlaboltanum og því væri ekki hægt að vera með einhverja femínistavitleysu. Iðulega væri kosinn fegursti knattspyrnumaðurinn í tengslum við ýmis stórmót. Guðrún Sóley Gunnarsdóttir hlaut yfir- burðakosningu í finnska dagblaðinu Ilta Sano- mat eftir Evrópukeppnina í knattspyrnu, kosn- ingin var ekki á vegum mótshaldara. Á heimasíðu blaðsins var hægt að merkja við myndir af henni og sjö öðrum knattspyrnukonum og varð Guðrún hlutskörp- ust. Slíkar fegurðarkosningar eru ekki óalgengar í tengslum við knattspyrnustórmót karla en einnig hefur borið á kosn- ingum um flottustu hárgreiðsluna. Breskir kvenaðdáendur kusu David Beckham kynþokka- fyllsta knattspyrnumann heims í fyrra en þess má geta að eiginkona hans, Victoria Beckham, hlaut þann eftirsókn- arverða titil kynþokkafyllsta móðirin ekki alls fyrir löngu. Franski sóknarmaðurinn Thierry Henry varð annar kyn- þokkafyllstur í heimi, sænski leikmaðurinn Freddie Ljung- berg, sem er Calvin Klein-fyrirsæta rétt eins og David Beckham, varð í þriðja sæti en hinn sykursæti Cristiano Ronaldo hafnaði í fjórða sæti. Sitt sýn- ist hverjum um slíkar fegurðarkosningar meðal sveittra íþróttamanna og vilja margir halda íþróttunum utan við slíkt. Fegurðarsamkeppnir eigi lítið skylt við íþróttir. Öðrum þykir gaman að virða fyrir sér stælta kroppa á íþrótta- leikvöngum og ófáar konur hafa heyrst kveina yfir stæltum lærvöðvum knattspyrnumanna. Útlitið getur líka verið tekjulind eins og Dav- id Beckham hefur nýtt sér öðrum betur. Nær- buxnaauglýsingar, ilmvatnsauglýsingar og gallabuxnaauglýsingar með fáklæddum íþrótta- körlum í nautnalegum stellingum eru ekki óal- geng sjón. Málið er viðkvæmara þegar kemur að konum enda fegurðarsamkeppnaferill kvenna lengri og konur hafa löngum verið dæmdar eftir útlitinu einu saman. Útlitið er gjarnan til umræðu nái konur árangri á einhverju sviði. Hver kannast ekki við umræðu um óklæðilegan fatnað þingkvenna eða fulldigur læri kaupsýslukvenna svo dæmi séu tekin. Saga kvenna í afreksíþróttum er nokkru styttri en karla, konur eru líka síður teknar alvarlega sem íþróttamenn og þurfa helst að skara fram úr til að eftir þeim sé tekið. Þetta hefur sannast á íslenska kvennalandsliðinu sem ekki fékk tilskilda athygli fyrr en það fór að skara fram úr. Það er því kannski fagnaðarefni að fólk gagnrýni fegurðarkosningar meðal íþróttakvenna, þær geta nefnilega ýmislegt merki- legra en að vera sætar. jmv@mbl.is Jóhanna M. Vilhelmsdóttir Pistill Kynþokki og knattspyrna Fjárfestingasjóður efli markaðinn FRÉTTASKÝRING Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is Þ að er ekki ofmælt að segja íslenskan hluta- bréfamarkað nánast dauðan frá því sem áður var þegar íslenska efna- hagsbólan var í algleymingi um mitt ár 2007. Flest félög sem skráð voru í kauphöllinni hafa verið afskráð og er nú svo komið að hlutabréfa- viðskipti í kauphöllinni eru lítil sem engin. Markmiðið með Fjárfestingasjóði Íslands, sem stjórnir lífeyrissjóð- anna hafa nú til skoðunar að stofna, er ekki síst að endurvekja íslenskan hlutabréfamarkað. Sjóðurinn mun hafa það að markmiði fyrst um sinn að vera kjölfestufjárfestir í lífvæn- legum fyrirtækjum. Er þá einkum horft til fyrirtækja sem farið hafa illa út úr kreppunni þótt grunn- rekstur þeirra sé traustur. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins er horft til þess að lífeyrissjóðir í gegnum Fjárfestingasjóðinn verði eigendur 35 til 55 prósenta hlutafjár a.m.k. í þeim fyrirtækjum sem sjóð- urinn mun verða stór hluthafi í. Skynsamlegri „einkavæðing“ Ragnar Önundarson, formaður stjórnar Lífeyrissjóðs verzl- unarmanna, segir tækifærin fyrir lífeyrissjóðina ekki síst felast í því að fá aðkomu að fyrirtækjum með góðan rekstur í upphafi endurreisn- arinnar. „Það má líkja þessu við einkavæðingu í raun. Þegar bank- arnir voru einkavæddir þá fengu líf- eyrissjóðirnir ekki aðkomu að því nema í gegnum hlutabréfamark- aðinn og þá með meiri tilkostnaði en þeir sem í upphafi fengu að verða kjölfestufjárfestar. Í þessu tilfelli, þar sem fyrst og fremst verður um að ræða fyrirtæki sem eru í höndum kröfuhafa vegna skuldavanda, þá tel ég skynsamlegra að lífeyrissjóðirnir fái strax kjölfestustöðu í fyrirtækj- unum og efli þau fljótt og hluta- bréfamarkaðinn í leiðinni með því að skrá þau á markaði.“ Skilvirkur markaður Meðal þeirra fyrirtækja sem horft er til eru þau sem skapa gjaldeyri og þau sem spara gjaldeyri. Þá hefur komið til umræðu sérstaklega, sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins, að lífeyrissjóðirnir verði eigendur að tryggingarfélögum komi til þess að eitthvert þeirra verði selt. Er þar meðal annars horft til Sjóvár, sem fyrirhugað er að selja síðar á þessu ári eða því næsta. Auk þess hefur nafn Icelandair borið á góma á óformlegum fundum forsvarsmanna lífeyrissjóðanna. Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Íslands, segist hafa þá trú að skilvirkur hlutabréfamark- aður muni gegna lykilhlutverki við endurreisn efnhagslífsins. „Við höf- um alltaf gert ráð fyrir því að fyrsta árið eftir hrun myndi fara í að end- urvekja skuldabréfamarkað en 2010 yrði árið sem skipti sköpum fyrir endurreisn hlutabréfamarkaðar. Það eru mikil tækifæri fyrir hendi ef rétt verður haldið á spilunum, sér- staklega að því er varðar uppbygg- ingu fyrirtækja sem eiga sér framtíð eftir endurskipulagningu þeirra. Ég er vongóður um framtíðina.“ Morgunbladid/Kristinn Kauphöllin Byggingin sem hýsir Kauphöll Íslands er tignarleg. Ekki hefur þó verið eins mikið líf í henni núna eins og oft áður. Fjárfestingasjóður lífeyrissjóð- anna getur gegnt lykilhlutverki við að efla hlutabréfamarkaðinn. Rætt hefur verið um að sjóðurinn eigi 35 til 55 prósent í einstökum fyrirtækjum. VELTA á íslenskum hlutabréfa- markaði náði hæstu hæðum á árinu 2007. Þá var veltan á hlutabréfa- markaði 3.109 milljarðar, en árið áður, sem þá var metár, var veltan rúmlega 2.200 milljarðar króna. Árið í fyrra einkenndist af mikilli niðursveiflu sem endaði með hruni bankanna þriggja í byrjun október. Eftir það hefur veltan með hluta- bréf nánast engin verið. Helst eru það hlutabréf í Marel og Össuri sem hafa gengið kaupum og sölum, en þó í miklu minna mæli en árin á undan. Það sem af er ári hefur velt- an aðeins verið um 32 milljarðar króna sem þýðir að markaðurinn hefur fallið saman um ca. 97 pró- sent frá því sem best var, miðað við að þróunin verði svipuð út þetta ár og hingað til. Erlendis hefur uppsveifla verið á flestum hlutabréfamörkuðum, eftir mikla niðursveiflu í fyrra. AF SEM ÁÐUR VAR ››

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.